Tíminn - 08.01.1966, Qupperneq 3
3
LAUGARDAGUR 8. janúar 1966
Borgarrevían í Sigíúni
KLEPPUR-
HRADFERÐ
refjar í tveimur leiðum. - Haukur
Morthens hljómsveitarstjóri. - Sig-
urður Karlsson umferðarstjóri
TÍMINN
Á Mlllabar, frá vlnstri: Jökull farmenni (Lárus Ingólfsson) kominn að
landi fullfermdur, Brúsi barmenni ('Hjálmtýr Hjálmtýsson) og táningarn-
ir (AIH Rúts og Nína Björk)
Nýrri revíu hefur verið hleypt
af stokkunum, réttara sagt refju,
eins og höfundar nefna það, en
fullu nafni heitir fyrirbærið að
þessu sinni ,,Kleppur-hraðferð,
refjar í tveim leiðum“ en fyrir-
tækið Borgarrevían h. f., sem
annast „fararstjórn og hagræð-
ingu“ eins og segir i leikskrá.
Frumsýning var haldin í Sigtúni
fyrsta sunnudagskvöld í nýári. Höf
undar segja ekki til nafns frem
ur venjn, og raunar engir aðstand
endur nafngreindir auk leikenda
aðrfr en Haukur Morthens hljóm
svettaTstjóri og Sigurður Karls-
son, sagður „umferðarstjóri",
ihváð sem það þýðir og hvort leik
stjóm skrifast á hans reikning
•eður ei.
Ueikurinn eða hraðferðin upp-
j hefst og endar á Millabar, þar ræð
i ur ríkjum Brúsi barmenni (Hjálm
f týr Hjálmtýrsson), og fyrsti far
; þeginn, sem birtist auk hans, er
Jökull farmenni (Lárus Ingólfs-
Hinn 21. til 30. maí næstkom-
andi verður haldin alþjóðleg frí
merkjasýning í Washington D.C.
er nefnist Sixth International Phil
atelic Exhibition, eða skammstaf-
að SIPEX.Sýningin er haldin undir
vernd F.I.P. eða alþjóðasamtaka
frímerkjasafnara, og samtaka
blaðamanna er rita um frímerki
og frímerkjasöfnun, A.I.J.P.
Þetta er fyrsta sýning sinnar
tegundar, er haldin er í Washing-
ton D.C. en sú 6. er haldin er
fenan Bandaríkjanna. Munu marg
ir enn uinnast SIPEX. sem er sú
næsta á undan þessari.
Þegar er vitað um íslenzka
þátttöku í þessari sýningu, bæði
frímerkjadeild og bókmennta-
son), nýkominn úr siglingu, held
ur betur færandi hendi, því hann
er girtur belti með mörgum hólf
um, sem hann dregur upp úr jafn
marga séneverbrúsa og réttir Brúsa
barmenni, þá er hans skip komið
að landi og farmennið hefur kom
izt heilu og höldnu með farm sinn
í réttan áfangastað. Næsti farþegi,
sem kemur til sögunnar, er Jenka
Bargeir (Emilía Jónasdóttir), eig
inkona Jóns Bargeirs fjármála-
manns, „sem missti af strætis-
vagninum". Og loks prýða hópinn
tveir táningar (Nína Björk og
Alli Rúts).
Kleppur-Hraðferð fer allgreið-
lega af stað. Brandaramir f júka af
vörum farþeganna einna líkast og
úr hríðskotabyssu, „farþegarnir"
(leikpersnur) hafa sig alla við að
koma þeim á framfæri, þetta ger
ist svo ótt og titt, að óvissa vakn
ar um að slíkt úthald geti tæpast
enzt á leiðarenda. Þetta virðist nán
ast mikil brandarasóun, sjálfsagt
deild, -en fulltrúi sýningarinnar á
íslandi hefur verið skipaður Sig-
urður H. Þorsteinsson, og geta
þeir, sem vilja sýna snúið sér
til hans í pósthólf 1336 í Reykja-
vík, eða beint til undirbúnings-
nefndar S.I.P.E.Xi, 408 A
Street, S.E Washington, D.C.
20003 U.S.A. Þeir sem kynnu að
hafa áhuga, þurfa að hafa snúið
sér til annars hvors aðilans eigi
síðar en 15. janúar næstkomandi.
Hér á eftir fara helztu reglur
fyrir þátttöku í SIPEX 1966, en
auk þess gilda um þessa sýningu
sem aðrar alþjóðlegar sýningar
reglur F.I.P um sýningu frí-
merkja og reglur A.I.J.P. um
sýningu bóka.
fer mörg skemmtileg setningin fyr
ir ofan garð og neðan hjá viðtak
endum, hlustunarskilyrði í lakara
lagi eða öllu heldur útvarpsskil-
yrði ófullkomin, og einhvern veg
inn finnst manni, að þessi mikli
orðabelgur tæmist fyrr en æski-
legt væri. Þetta fer allt dá-
skemmtilega af stað og ferðar-
hraði ágætur, þó að því undan
skildu, að áður en varir rekur far
þega svo hrapalega í vörðurnar
og það oftar en góðu hófi gegnir.
Aðstandendum sýningarinnar hef
ur verið slíkt bráðmál að leggja
í þessa ferð, að leikendum hefur
ekki gefizt tóm til að læra rulluna
1. Sýningin er opin öllum söfn
urum, án tillits til hvort þeir séu
félagsbundnir í samtökum frí-
merkjasafnara. Verðlaun verða
veitt sýningarefninu, en ekki sýn
andanum. Engar skorður eru á
um fjölda sýningarefna, frá hverj
um einstakling. Sýna má undir
dulnefni. en fullt nafn og heim-
ilisfang sýnanda skai fylgja í lok-
uðu umsiagi til sýningarnefndar.
2. Hvert sýningarefni þarf að
sækja um rétta deild og flikk inn
an hennar. og má ekkert sýningar
efni vera sett undir nema eina
deild eða flokk innan deildar, sé
um óskyld efni að ræða. verða
þau að vera í fleiri deiidum hvert
í sinum ramma. Sé sótt um á
til hlítar, Sem sagt —- ekki full-
æft. Að vísu er söguÞráður, en
helzt til lítið óvenjulegur, þar
mætti gjarna vera feitara á
stykkinu, því allt of- mikið er
lagt upp úr orðaleík einum sam-
an og bröndurunum. Vonandi
stendur þetta nokkuð til bóta. Höf
undum refja er í lófa lagið að
breyta og bæta, og leikkröftunum
er til meira trúandi en þeir sýndu
á frumsýningu. Refjar eru nauð-
synlegt fjörefni um þetta leyti
árs og sjálfsagt að laga sem bezt
til neyzlu.
Maður á erfitt að hugsa sér
refju án Lárusar Ingólfssonar og
Emilíu Jónasdóttur. Lárus er full
komlega í stuði, eins dásamlega
skoplegur og hann hefur nokkurn
tíma verið og sparar ekki við sig.
Emilía er ein af þeim leikkonum,
sem þarf ósköp lítið að leggja sig
fram til að vekja alla og kátínu
um leið, en ég hygg að hún eigi
eftir að tjalda meiru en hún gerði
á frumsýningu. Hjálmtý veittist
ósköp létt að taka lagið, þótt mik
ið eigi hann eftir að læra í leik.
Nína Björk naut sín ekki sem
bezt þetta kvöld. En Alli Rúts
sýndi, að framkoma á leiksviði er
honum fullkomlega eðlileg. Það
var ómögulegt að ætlast til meira
af honum en hvernig hann vann
úr sínu hlutverki.
Það tvennt, sem heyrðist lýta-
lausast á þessari sýningu, var
það, sem sungið var, bæði ijóð og
lög, hvorttveggja hnyttilega og
snoturlega af hendi leyst og lypp
aðist eki niður eftir þvj, sem
nær dró lokum, eins og hinn text
inn. Því hefði höfundum verið
alveg óhætt að sýna sig í sviðs
ljósinu í leikslok til að taka við
því, sem þeim bar. G. B-
röngum stað, er dómnefnd heim-
ilt að færa sýningarefnið, einnig
er dómnefnd heimilt að veita
þannig safnhlutum í fleiri deild-
um verðlaun í einu lagi.
4. Safn, er tekur minna en 2
ramma (32 albúmsíður), er ekki
hægt að taka með . þátttak-
endur skyldu takmarka sig við há-
mark 10 ramma eða 3 albúm með
64 síðum hvert . .
5. Söfn, sem ekki hafa unnið
verðlaun á undanförnum Alþjóða-
sýningum. eða að minnsta kosti
silfur eða hliðstæð 2. verðlaun.
á þjóðlegum sýningum, er aðeins
hægt að sýna með sérstöku leyfi
sýningarnefndar. Söfn, sem áður
Framhald á bls. 14.
Á VÍÐAVANGI
„Með hliðsjón af
verðþenslu/y.
Borgarstjórnarupplitið á Mogg
anum var ekki á marga fiska
í gær, enda varla von. Munu
íhaldsforkólfarnir hafa séð, að
ekki var sigurstranglegt að
láta mikið af fjárhagsáætlun-
inni eða ræða ýtarlega um
hana, betra mundi að læðast
með löndum með þetta plagg í
fangi en vanda þá heldur meira
til Bláu bókarinnar með vor-
inu. Fyrirsögnin er höfð neðar-
lega á forsíðu Mogga og ekki
látin fylgja þar mynd af Geir
borgarstjóra til þess að draga
ekki um of athygli inanna að
þessu.
Fyrirsögnin sjálf er hálfkind
arleg og á þessa leið:
„Meginstefnan hóflegar álög
ur og hliðsjón af verðþenslu".
Líklega munu þeir fáir Reyk
víkingar, sem geta kallað álög-
urnar síðustu árin „hóflegar“,
og auðséð er að Moggi hefur
verið í vandræðum með að
koma „hóflega“ orðum að því
að segja Reykvíkingum, hvem-
ig á því standi, að aukning álag
anna hverfur í eyðslu en kem-
ur ekki fram í framkvæmdum.
Fannst loks það snjallræði að
orða stórminnkaðar fram-
kvæmdir svo, að þær væru
ákveðnar með „hliðsjón af verð
þensiu“. En hvers vegna mátti
ekki hafa álögurnar líka svo-
lítið lægri með „hliðsjón af
verðþenslu".
Leifur, Snorri og
Bjarni.
Forsætisráðherrann lét sér
tíðrætt um það í áramótahug-
vekju sinni til þjóðarinnar, að
íslendingar hefðu á siðarí ár-
uj,. 'axið töluvert í augum
heimsina og hlotið þar viður-
kenningu. Þetta stafaði þó ekki
fyrst og fremst af sögu þjóðar-
innar og fornri menningu, held-
ur af stjórnarathöfnum og af-
skiptum af alþjóðamálum og
skiptum ráðamanna við aðrar
þjóðir hin síðari ár.
Skildist gerla í hvaða hnappa-
gat þessi rós átti að fara. Hing-
að til höfum vig þótzt nokkuð
góðir af frægð þeirra Snorra
og Leifs heppna, en forsætisráð
herrann vill að þjóðin geri sér
ljóst, að nú er breyting á orðin,
og íslenzkt frægðarmenni á
heimsmælikvarða upp risið,
maður, sem óréttmætt er að
þeir gömlu víkingar orðs og
brands skyggi á. Virðist meira
að segja augljóst, að hin nýja
frægðarhetja láti sér varla
nægja stall milli þeirra Leifs
og Snorra, og er þá spurt, hvor-
um þeirra hann ætli að víkja
af stalli fyrir sér, eða hvort
hann ætlar sér báða stallana,
eða mundi af hæversku sinni
lána Guðmundi í. annan.
„Förum okkur hæg-
ar".
Morgunblaðið sagði m. a. í
áramótaforystugrein sinni:
„Förum okkur hægar í kröfu-
gerð á næstu árum, en seinustu
árin, og sköpum þá festu, sem
nægir til að halda áfram öflugri
uppbyggingu“.
Það er sem sagt eina leiðin,
sem íhaldið sér að halda niðri
kaupi launafólks og telur það
hafa hækkað of mikið síðustu
ár. Samt er það staðreynd, að
kaupmáttur launa nú er ekki
mciri en 1959. Hefur þjóðin
Framhald á bls. 14.
Jenka Bargeirs (Emilía Jónasdóttir), tánjngar (Nína Björk og Alli Rúts) og á bak við þá Jökull farmenni
(Lárus Ingólfsson) og Brúsi barmenni (Hjálmtýr Hjálmtýsson). .
Alþjoðleg frímerkjasýning í Washington