Tíminn - 08.01.1966, Síða 5
safsnfó
LAUGARDAGUR 8. jar.úar ll'S6
Utgefandi: FRAMSOKNAR F1.0KKURINN
Framitvæmdastjórl Kristján Benediktsson Kitstiórar porarmn
Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson lón Helsason 02 Indriði
G. Þorsteinsson Kulltrúi ritstjómar Tómas Karlsson Aug
lýsingastj.: Steingrlmui Gíslason ttitstj skrifstofut 1 i.ddu
húsinu, sfmai 18300—18305 Skrifstofur Bankastræti 7 Af
greiðsiusími 12323 Auglýsingasími 19523 Aðrai sknfsiofur
sími 18300. Áskriftargjald kr 95.00 á mán. innaniands — í
lausasölu kr. 5.00 eint - Prentsmiðjan EDDa- h.f
\ , ■ ' ■
Ráðleysið við stýri
höfuðhorgarinnar
Reykjavík er og á að vera að mörgu leyti stolt lands-
ins og fyrirmynd um framsókn, upbyggingu og ráð-
deild, svo að hún geti miðlað öðrum byggðarlögum
þrótti á sama hátt og hún nærist af lífi og menningu
byggðanna úti um allt land. Hin unga Reykjavík er
líka vissulega mjög falleg borg, og hún ber dugmiklum
íbúum sínum gott vitni. En þegar vel er að gáð, stafar
sú reisn, sem borgin á, fyrst og fremst af dugnaði og
myndarskap borgara hennar í byggingum, fegrun heim.
ila og garða, vinnusemi og smekkvísi.
Hlutur stjórnarvalda borgarinnar liggur hins vegar
mjög eftir, og því sjást falleg íbúðahverfi oft standa upp
úr svaði götuleysisins. Við stýri höfuðborgarinnar situr
því miður dugleysi og ráðleysi þess flokks og manna,
sem haft hafa þar öll völd allt of lengi og hafa lengi
litið á borgina sem óðalseign sína.
í fyrrinótt stóð yfir aðalumræða í borgarstjórn um
fjárhagsáætlun höfuðborgarinnar árið 1966 • Þar sætti
íhaldsmeirihlutinn mjög harðri og rökstuddri gagnrýni,
ekki sízt af hendi beggja borgarfulltrúa Framsóknar-
flokksins. Kristján Benediktsson flutti aðalræðuna um.
fjárhagsáætlunina, og var hún birt hér í blaðinu í gær.
í þeirri ræðu voru gögnin lögð málefnalega og með
glöggum rökum á borðið og sýnt fram á það með mörg-
um ljósum dæmum, hvernig dugleysið og ráðleysið fer
með stjórn höfuðborgarinnar. Hann sýndi fram á, hvern-
ig álögumar á borgarana, jafnt almennar skattabyrðar
sem gjöld til þjónustustofnana hafa þvngst um 2—400%
síðustu árin, en fr^nkvæmdir ekki nándar nærri að sama
skapi, nema helzt til gatnagerðar en auknii^g þar hef-
ur beinlínis verið tekin af framkvæmdafé skóla og
barnaheimlia, sem eru alveg sérstakar hornrekur í nú-
verandi fjárhagsáætlun. Hann sýndi með Tjósum tölum,
hvernig sjálft skrautblómið, gatnagerðin, er, að hlut-
fall gatna með varanlegu slitlagi er nú minna í heildar-
götulengd borgarinnar en var árið 1940.
Hann benti á, að þrísetning í barnaskólum, sem heit-
ið var að lyki 1963, er enn mjög miki] og fer vaxandi en
ekki minnkandi. Hann sýndi fram á, hvernig algert
skipulagsleysi ríkir um verklegar framkvæmdir borgar-
innaí og engar áætlanir standast í þeim efnum. Hann
minnti á hitaveituáætlunina, sem Ijúka átti í fyrra og
veita skyldi öllum íbúum borgarinnar vestan Elliðaáa
heitt vatn, en á enn langt í land. og enn eru stór borg-
arhverfi vatnslaus og vatnslindir fullnýttar en undir-
búningur að nýrri hitaveitu enginn enn. Sjúkrahúsið
hefur verið í byggingu í 13 ár, fyrsta áfanga ólokið enn.
Lóðaúthlutun var nær engin s.l. ár í höfuðborg íslands.
Framlög til skólabygginga eru fjórðungi minni árið 1966
miðað við heildarupphæð fjárhagsáætlunar heldur en
árið 1959. Framlög til leikvalla og barnaheimila hækka
ekkert frá fyrra ári. Svona er ástandið.
Þessi er mynd dugleysis- og óreiðustjórnar höfuð-
borgarinnar í aðaldráttum þessar mundir Framsókn-
armenn lögðu fram allmargar tillögur í þvi skyni að
auka framkvæmdirnar en draga úr rekstrareyðslu, en
þær voru að sjálfsögðu allar felldar.
ERLENT YFIRLIT
Kennedybræður fá keppinaut
Verður svertingi öldungadeildarþingmaður fyrir Massachusetts?
í BYRJUN nóvember næstk.
fara fram í Bandaríkjunum
kosningar til fulltrúadeildar
þingsins, en kosíð er til
hennar annað hvert ár.
Jafnframt verður kosið til
þriðjungs öldungadeildarinn-
ar. Þar er kjörtímahilið sex
ár, en kosningum til dcildar-
innar er háttað þannig, að
þriðjungur hennar er kjörinn
annað hvert ár.
Þótt enn séu 10 mánuðir
til þessara kosninga, má seg.ia
að kosningabaráttan se á viss
an hátt hafin. í sumu.n kjör-
dæmum byrja flokkarnir að á-
kveða frambjóðendur sjna síð
ari hluta vetrar, en annars
staðar dregst það fram í sept
ember. Baráttan innan ilokk
anna um framboðin hefs' hins
vegar miklu fyrr. í mörgum
kjördæmum er hún þegar haf-
in.
Átökin innan flokkann^ um
val frambjóðenda, vekja oft
ekki minni athygli en sjálfar
kosningarnar. Einkum gildir
þetta ef litríkar og sögulegar
persónur eiga hlut að máli.
Að þessu sinni þykir senni-
legt að athyglin muni ekki
sízt beinast að Massachussetts
heimaríki þeirra Kenned.v-
anna. Margt bendir til, að
siT'-'SBgnleþi atburðnr geti
gerzt þar, að svertingi nái
kosningu til öldungadeildni-
innar. Hann myndi þá verða
fyrsti svertinginn, sem h’.yti
sæti þar. Hann yrð,i þa, fuJl-
trúi eins hvítasta ríkis’js í
Bandaríkjunum, ef svo mætti
að orði kveða, því að svert-
ingjar eru ekkí nema rúm 2%
af íbúum Massaehusseíts.
Hann yrði jafnframt fuitrúi
fyrir flokk repúblikana, sem
er að vinna sér fylgi hægri
sinnaðra demókrata í Suður
ríkjunum vegna þess, að sum
ir leiðtogar hans, eins og
Goldwater vilja fara hægt í
réttindamálum svertingja.
Kjör hans sem öldungadeildar
manns myndi því ekki draga
úr andstseðunum innan flokks
repúblikana.
Maður sá, sem hér um ra=3
ir heitir Edward William
Brooke. Hann er dómsmálaráð
herra í Massachussetts, og er
það æðsta virðingarstaða, sem
svertingi hefur gegnt í Banda
rjkjunum.
SKÖMMU fyrir áramótin
tilkynnti Leverett Saltonstall
sem hefur verið annar af öid-
ungadeildarmönum Massachus
ettes í meira en 20 ar að
hann myndi ekki gefa kost á
sér til endurkjörs. enda orð-
inn 73 ára gamall. SaltonstaJl
hefur notið mikils álits. Hann
hefur verið í hópi hinna frjáls
lyndari republikana í öldunga
deildinni. Oftast var góð sam
vinna milli hans og John F
Kennedy, meðan þeir atru
sæti þar, þó'tt ekkj væru þeir
flokksbræður. Af hálfu Kennr-
dybræðra hefur aldrei verið
lagt til harðrar baráttu gegn'
honum, en vafalaust fnun það
verða sótt fast af hálfu þeirra,
að demókratar nái nú sæti
hans. Repúblikanar geta því
viart haldið sætinu, nema
þeim heppnist val frambjóð-
andans því betur. Brooke gei
ur með miklum rétti haidið
því fram, að hann sé öðpim
repúblikönum ljklegri ti’ sig
urs því ag hausfið 1964 var
hann endurkjörinn dómsri.ála
ráðherra með meiri atkvæða-
mun en nokkur repúblikani
hefur áður náð í Massachus
etts. Hann var þá einn aí
þeim fáu frambjóðendum
repúblikana, sem ekki lýstu
stuðningi vig Goldwatei
í samræmi við þetta varð
Brooke fyrstur manna til að
gefa kost á sér til framboðs
fyrir repúblikana í öldunga-
deildarþingkosningunum á
hausti komandi. Hann gerði
það fáum dögum effir að Sait
onstall tilkynnti, að hann yiði
ekki aftur í kjöri.
EDWARD BROOKE er 46
ára gamall. fæddur í Wash-ng
ton, þar sem faðir hans var
lögfræðingur Hann hóf laga
nám við Howard-háskólann í
Washington, en varð að fresta
því, er hann var kvaddur í
herinn rétt eftir að siðaii
heimsstyrjöldin , hófst. Á
stríðsárunum vann hann sá'
verulega frægð, er hann Oarð
ist með skæruliðum á ítatiu
og hlaut hann mörg heiðurs-
merki fyrir framgöngu sina
þá. Hann var orðinn liðsfor
ingi, þegar stríðinu lauk. Á
Ítalíu kynntist hann hinni
hvítu konu sini, sem er af
ítölskum ættum. Þau nata
eignazt fvær dætur, og er ónn
ur ljós eins og móðirin en
hin dökk eins og faðir nennar.
Eftir að styrjöldinni ,auk,
hóf Brooke laganám að nýju
við háskólann í Boston og
lauk því með góðum vitnis-
burði. Að námi loknu opna^i
hann málaflutningsskrifstofu
en jafnframt hóf hann sf-
skipti af stjórnmálum. Á ár-
unum 1950—60 var hann oft
í framboði fyrir repúbl’kana,
en náði aldrei kosningn Ár-
ið i961 skipaði Volpe ríkis-
stjóri hann formann fjármála
legrar effirlitsnefndar í Bod
on. Verke^ni hennar va- m.
a. að athuga ýmis viðskipri
hinna ýmsu stofnana Boston-
borgar við einkafyrirtæki.
Brooke gekk ötullega til
verks og afhjúpaði margþætt
fjárbrall, sem hafði átt sér
sfað í þessum efnum. Fyrir
þetta varð hann svo þekktur
að repúblikanar gerðu hann
að dómsmálaráðherraefni sínu
í kosningunum 1962. Hann
náði kosningu og reyndist írá
bærlega ötull. og einbeittur
sem dómsmálaráðh. Árið 1964
var hann endurkjörinn dóms-
málaráðherra og hlaut þá
hærri atkvæðatölu en nokkur
repúblikani hefur hlotig í
Massachusetts fyrr og síðar.
Brooke lætur mör gmál
önnur en stjórnmál og dóms-
mál til sín taka. Hann er mik
ill unnandi fagurra lista og
hefur t.d. um skeið verið for-
Framhald á bls. 14.
Edward w. Brooke og fjölskylda hans.