Tíminn - 08.01.1966, Síða 10

Tíminn - 08.01.1966, Síða 10
10 ÍÞRÓTTIR TÍMINN ÍÞRÓTTIR LAUGARDAGUR 8. janúar 1966 FH hefur 4ra marka forskot - sigraði Fredensborg 19:15 í hörkuleik. Betra úthald, hraði og markvarzla Hjalta færði FHsigur. Alf—Reykjavík. , Hátt á þriðja þúsund áhorfend ur í Laugardalshölllnni í gær- kv. urðu vitni að æsispennandi baráttu fslandsmeistara FH og norsku meistaranna frá Fredens borg, og þegar yfir lauk', voru FH-ingar mf " pálmann í höndun um, sigruðu með 19:15, og hafa Jí*í fjögurra marka forskot, þeg- ar síðari leikur liðanna hefst á sunnudaginn. Síðustu tíu mínútur leiksins í gær voru sérstaklega spennandi, og þá sýndi Hjalti Einarsson í FH-markinu einhverja þá beztu markvörzlu, sem sézt hefur hér- lendis í lengri tíma. FH hafði 18:15 og Birgir bætti því 19. við með fallegu skoti. Norðmennimir reyndu árangurslaust að jafna metin og áttu hörkuskot á FH- markið, en alltaf varði Hjalti. Og hann lét sig ekki muna um það að verja tvö vítaköst við mikla hrifningu áhorfenda. Þátt ur Hjalta í markinu var stór lið ur í sigri FH í gærkvöldi, en segja má, að þrennt hafi gert sigurinn að staðreynd, \ í fyrsta lagi meira úthald, sem FH hafði meiri hraði og markvarzla Hjalta. Mikil harka var í leiknum allan tímann, og áttu Norðmennirnir meginsökina, því að þeir léku mjög harðan varnarleik, og tók danski dómarinn Ovdal alltaf of vægt á þeim brotum, vísaði t-d. engum norskum leikmanni af velli þrátt fyrir margar áminning ar en tveir FH-ingar fengu „reisu passann”. Fyrri hálfleikur var allt ann að en árangursríkur fyrir FH- inga, þótt þeir næðu eins marks forskoti, 10:9, það var alHof lít- ið fyrir hina sterku einstaklinga í FH-lðinu, sem hafa meira úthald hraða og tækni en mótherjarnir. Leikur liðsins var tilviljunar- kenndur og breidd vallarins illa notuð. Hvað gæti FH ekki gert, ef skipulagið væri fyrir hendi? Ragnar Jónsson bar af á vellin um í fyrrj hálfleik. Sjálfur skor aði hann tvö mörk, og fiskaði að auki tvö vítaköst. í síðari hálfleik náði FH sér betur á strik og þá kom í ljós, hvor aðilinn hafði betra uthald. Vörnin hjá Norðmönnunum var eki eins sterk, og nú þutu lanS skot FH-skyttanna hvert á fætur öðru í mark, án þess að norski markvörðurinn, Klepperás, kæmi vörnum við. Staðan breyttist í 13:10, en litlu síðar skoraði einn bezti •ieikmaður Fredensborg í síðari hálfleik Ingar Egum 13:11. En FH svaraði með þremur góð um mörkum. Fyrst skoraði Birgir 14:11, og litlu síðar skoraði hann aftur 15:11 og Ragnar skoraði 16:11. Fimm marka munur, og síðari hálfleikur rúmlega hálfn- ÍSLANDSMÓTIÐ j KVÖLD íslandsmótið í handknattleik hefst í kvöld að Hálogalandi með tveim ieikjum í 1. deild. Fyrst leika Fram og Valur og síðan Ár- mann og KR. Fyrri ieikurinn hefst kl. 20.30. aður. Ekkert gat breytt úrslitun- um úr þessu. Síðustu 10 mínúturnar einkennd ust af mikilli hörku á báða bóga, en sem Norðmennimir áttu upp- tökin að . Markvarzla Hjalta Ein arssonar verður öllum þeim, sem á horfðu, eftirminnileg hann vann sannarlega hug og hjörtu áhorf- enda með frábærri markvörzhi. Ekkert skot Norðmannanna síð- ustu mínútumar fór framhjá hon um í netið, vel af sér vikið Hjalti’ Tæplega er hægt að segja um þennan leik, að hann hafi verið vel leikinn. Til þess var hraðinn of mikill allan tímann og harkan sömuleiðis. FHingar voru meiri keppnisrtíenn, hraðari, úthaldsbetri og sigurvissir. Hjá FH báru þeir Hjalti og Ragnar af, en Birgir og Öm (í síðari hálfleik) voru nokk uð góðir. Þegar einstaklingar lið anna em bomir saman stendur FH miklu betur að vígi, þess vegna finnst mér 4ra marka mun ur of lítm sigur fyrir FH, en eftir gangi leiksins, vora þessi úrslit sanngjöm. Með Því að nýta breidd vallarins betur, reyna leik skipulag einstaka sinnum, fá ekki mörk á sig fyrir það hve leikmenn imir era seinir aftur í vörnina, væri FH eitt af toppliðum Evrópu Mörk FH skoruðu: Örn, Ragnar og Birgir 4. hver, Jón G., Páll og Geir 2 hver og Guðlaugur 1. Fred ensbo rga r-1 i ðið lék nú betur en fyrir 2 áram, þegar það var hér á vegum Víkings. Klepperás í markinu stóð sig mjög vel í fyrri hálfleik, en annars vou R. Yssen, Engum og Inge Hansen beztir í liðið vantaði eínn bezta leik- mann þess, Kjell Svestad, en hann mun að öllum líkindum verða með á sunnudaginn. Danski dómarinn Ovdal dæmdi fyrri hálfleikinn vel, en missti nokkuð tökin á honum í síðari hálfleik og fór heldur illa með teagnar Jónsson. Sex af 10 beztu íþróttamönnum 1965: Frá vlnstri: GuSmundur Gíslason, Ragnar Jónsson, Gunnlaugur Hjálmars son, Valbjörn Þorláksson, íþróttamaður ársins, Jón Þ. Ólafsson og Eyleifur Hafsteinsson. Valbjörn Þorláksson kjör- inn íþróttamaður ársins - 27 íþróttamenn á lista íþróttafréttamanna Alf—Reykjavík. föstudag. Valbjörn Þorláksson, KR, var kjörinn íþróttamaður ársins 1965 af íÞróttafréttamönnum, Það er orðin föst venja hiá ísl. íþrótta- fréttamönnum að velja um áramót þann fþróttamann, sem að þeirra áliti hefur skarað fram úr á liðnu ári, sem íþróttamann ársins, og er þetta í 10. skipti, sem það er gert. Valbjörn Þorláksson hlaut lang- flest stig í atkvæðagreiðslunni að þessu sinni, eða 64 stig, en mest er hægt að fá 66 stig. Á árínu 1965 vann Valbjörn Það afrek að sigra í tugþrautarkeppn inni í Norðurlandamótinu í frjáls íþróttum, og var með því eini ís- lendingurinn, sem hreppti sigur á þeim vettvangi. Valbjörn er óþarfi að kynna fyrir lesendum. Hann hefur um mörg undanfarin ár verið í hópi snjöllustu frjáls- íþróttamanna okkar, snjall stang arstökkvari, en hefur síðari árin lagt meiri áherzlu á tugþrautina. Valbjörn hefur einnig náð ágæt um árangri sem spretthlaupari. Sigurður Sigurðsson, formaður Samtaka íÞróttafréttamanna. af- henti Valbirni hina fögru styttu, sem íþróttamaður ársins fær hverju sinni, í hófi, sem haldið var að Hótel Borg í gær. í hófinu voru mættir flestir hinna 10 efstu íþróttamanna í atkvæðagreiðsl- unni, en viðstaddir voru einnig, auk íþróttafréttamanna, þeir Her mann Guðmundsson, framkvæmda stjóri ÍSÍ, og Benedikt G. Waage heiðurforseti ÍSÍ. AIls hlutu 27 íþóttamenn stig ♦ atkvæðagreiðslu íþróttafrétta- manna. og hafa ekki áður svo margir íþróttamenn komizt á list ann. Tíu efstu menn á listanum urðu Þessir: 1. Valbjörn Þorláksson, KR. 64 stig. 2. Jón Þ. Ólafsson, ÍR 45 stig 3 Gunnl. Hjálmarss. Fram 25 stig 4. Hrafnhildur Guðrli. ÍR 23 stig 5. Þorsteinn Hallgrímss. ÍR 18 stig 6. Eyleifur Hafsteinss. ÍA 17 stig 7—9. Guðm. Gíslason, ÍR 15 stíg 7—9. Ragnar Jónsson, FH 15 stig 7—9. Magnús Guðm. ÍBA, 15 stig 10. Ellert Schram, KR 12 stig Aðrir, sem stig hlutu: Kristinn Benediktsson, ÍBÍ, Karl Jóhanns son KR, Hrafnhildur Kristjánsdótt ir, Ármanni Ármann J. Lárusson, Breiðabliki, Árdís Þórðardóttir, ÍBS, Hermann Gunnarsson. Val Erlendur Valdimarsson ÍR, Davíð Valgarðsson, ÍBK. Sigríður Sig urðardóttir, Val, Hörður Kristins son Ármanni Ríkharður Jónsson, ÍA, Þorsteinn Björnsson, Fram, Matthías Hallgrímsson, fA, Björk Ingimundardóttir, UMSB, Guðni Sigfússon, ÍR Jón Árnason TBR og Kolbeinn Pálsson. KR. Eins og fyrr segir, er þetta í 10. skipti, sem ísl- íþróttamenn kjósa íþróttamann ársins. Aðeins fimm menn hafa hingað til hlot- ið nafnbótina „íþróttamaður árs- ins“. en það eru Vilhjálmur Ein arsson. sem langoftast hefur unnið til hennar. eða 5 sínnum, en aðrir eru Valbjörn Þorláksson (tvisvar), Guðmundur Gíslason, Jón Þ. Ólafs son og Sigríður Sigurðardóttir, sem hlaut styttuna árið 1964. PUNKTAR í hófi því, sem íþróttafréttamenn héldu. í gær vegna kosningu íÞrótta manns ársins, drap Sigurður Sig urðsson, form. Samtaka íþrótta- fréttamanna, á viðkvæmt mál, sem varðar mjög íþróttastarfsemina, en hann sagði m. -a.: ,,Áður en ég tilkynni um úrslit atkvæðagreiðslunnar að þessu sinni langar mig að víkja lítillega að svonefndri ,,stjömudýrkun“, sem íþróttunum er samfara, og þessi verðlaunaveiting okkar er liður í. Ýmsum finnst, og ég er þeirra á meðal, að athygli íÞrótta forastunnar og blaðanna, beinist um of að þeim, sem fram úr skara, en of lítið að útbreiðslu íþrótta iðkana almennt. Það var í upp- hafi svo, að „stjömurnar" áttu að vera til þess, að vekja áhuga ungs fólks á íþróttum, laða menn að, en ekki fæla frá. Mér finnst þetta, Því miður, hafi snúist illa í hönd um íþróttaforastunnar og félag- anna, íþróttafélögin leggi of mik ið í sölurnar fyrir þá, sem fram úr skara, eða geta orðið að liSi, en sýni næsta litinn áhuga á. að fá fólk til að iðka íþróttir. Eg hef rætt við marga unga menn, sem sennilega hefðu getað orðið ágætir íþróttamenn, hefði þeim verið sinnt, en Þeim hefur góðlát lega verið stjakað t51 hliðar, ég vil ekki segja reknir heim, en allt að því. Þjálfararnir og félögin heimta afrek, skjótfengin afrek og sigra, Þess vegna beinist athygli þeirra fyrst og fremst að afreks mönnum." Svo mörg voru þau orð. Eflaust eru þeir margir, sem hafa út á þessá skoðun að setja, og svo var um Hermann Guðmundsson. fram kvæmdastjóra ÍSÍ, sem talaði á eftir Sigurði, og benti á, að ÍSÍ ræki stórfelldan áróður fyrir út- breiðslu íÞrótta meðal almennings. Sannleikurinn er sá, að hér er um mjög viðkvaemt mál að ræðá. „Stjörnudýrkun" er og verður með an íþróttir Iifa. Eg hefd, að það sé fulldjúpt í árinni tekið, þegar sagt er, að blöð (líklega útvarp einnig) og íþróttaforustan beini augunum um of að afreksmönnun um. Herferð ÍSÍ fyrir því að al- menningur taki þátt í íþróttum hefur að vísu hingað til lítinn árangur borið, en vissulega er þó um viðleitni að ræða- En rtka virkilega íþróttafélögin fólk, sem ekki er líklegt til afreka, á dyr? Þúsundir unglinga, sem taka þátt í íþróttastarfinu hér í Reykjavík bera ekki vitni u.m það. Hin svo' kallaða „old boys“ starfsemi félag anna ber heldur ekki vitni um það. Hér eru til íÞróttagreinar, sem menn á öllum aldri geta stundað, t. d. golf og badminton. Árlega er efnt tli námskeiða í báðum þessum greinum fyrir byrjendur á mismunandi aldri og allir velkomn ir. Og þannig má nefna miklu fleiri greinar. Afreksmenirnir varða veginn. Blöðin, útvarp og íþróttaforustan hjálpast og við að byggja afreks mennína. Vissulega ber að varast of mikla dýrkun á þeim, en þa8 Framhald á bls. 14.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.