Vísir - 22.02.1974, Blaðsíða 2

Vísir - 22.02.1974, Blaðsíða 2
2 Visir. Föstudagur 22. fcbrúar 1974. vtensm: Skrifuöuö þér undir listann Varið land? Kristinn Bencdiktsson, ljós- mvndari. Já, ég hef sennilega verið einn af þeim fyrstu. Ég' skrifaði undir á fyrsta degi, en það var eiginlega bara tilviljun. Sjállurhef ég ekki haft lista undir höndum. Sveinn Gústafsson, prentari. Já, ég skrifaði undir á fyrstu dögunum. Sjálfur var ég ekki með lista. Áslaug Asgeirsdóttir, skurðstofu- hjúkrunarkona. Já, það gerði ég núna um mánaðamótin siðustu. Ég er hiklaust fylgjandi setu varnarliðsins hér á íslandi. Hólinfriður Kristjánsdóttir, húsmóðir. Nei, ég skrifaði ekki undir. Satt að segja fékk ég aldrei listann i hendur, og ég heföi samt ekki skrifað, þó ég hefði fengið hann. Mér er eiginlega nokkuð sama um það hvort varnarliðið er hér eða ekki. Ólafur Gústafsson, lögfræðingur. Já, það gerði ég strax á fyrstu dögunum. Reyndar var ég sjálfur aldrei með lista, en ég er tvi- mælalaust fylgjandi veru varnar- liðsins hér á landi. Birgir Þórmóðsson afgreiðslu- maður. Ég gerði það já. bað er reyndar ekki langt siðan, en ég er hiklaust fylgjandi veru varnar- liðsins hérna. Það vannst ekki timi hjá mér til þess að fara að ná i lista sjálfur og láta hann ganga, annars hefði ég kannski gert það. JÓLATRÉÐ ER ENN GRÆNT — í stað þess að fölna eftir jólin grœnkaði jólatréð og skýtur nú sprotum Jólatrc siðan á jólunum, sem er cnn grænt núna i lok fcbrúar. Ótrúlegt, en þó áþreifanleg staðreynd hjá Óskari Sandholt, sem býr i Sólheimum lfi. Úti i bilskúr hjá honum stend- ur jólatré fjölskvldunnar, sem var inni i stofu á jólunum. Tréð er iðgrænt, og sprotar eru farnir að skjóta sér út. — ,,Ég tók eftir þvi að óvenju- lftið af nálum féll af trénu. Konan min hafði sprautað úr heilli hárlakksdós yfir það, og tréð drakk einnig i sig óhemju mikið af vatni. Mér datt þess vegna i hug að athuga, hvort það héldist lengi i svona ástandi og fór eftir jólin með það út i bilskúr. Siðan eru liðnir tæpir tveir mánuðir, og tréð dafnar vel. Það hefur meira að segja hækkað um tæpa tvo sentimetra”, sagði Óskar, er Visismenn litu á tréð hjá hon- um. begar tréð var inni i stofu, þurfti að hella vatni þrisvar á dag i skálina undir jólatrés- fætinum. svo mikið drakk það i sig. Nú er vatni bætt i skálina einu sinni á dag. ,,Ég hef ekki sett nein næringarefni i skálina, bara vatn. Ég er nú bara næstum farinn að halda, að ég geti sett það upp i stofunni á næstu jólum,” sagði Óskar ennfremur. Við spurðum Guömund Marteinsson formann Skóg- ræktarfélags Reykjavikur, hvernig gæti staðið á biþma þessa rauðgrenitrés. „Liklega hefur það innihaldið óvenju mikinn næringarforða, þegar það var höggvið,” sagði Guðmundur. ,,Svo má vera, að með þvi að sprauta hárlakkinu yfir barrið hafi útgufun verið hindruð. Ég hef hins vegar aldrei séð neitt þessu likt og finnst þetta ákaflega merkilegt. Þó eru þess dæmi, að jurtir, eins og t.d. viðir, lifi i vatni, þótt stönglar séu skornir af og settir i vatn.” Guðmundur sagði, að það væri þó vonlaust að planta trénu i von um, að það skyti rótum. Hann sagðist álita, að það gæti staðið þó nokkuð lengi enn, ef það væri vökvað og þvi jafnvel gefin næring. -ÓH Jens Sandholt, einn ibúa i Sólheimum 16, sýnir hér hvað hefur bætzt ofan á jólatréð siðan á jólunum. Sáralitið af náium hefur fallið af trénu, og það er fagurgrænt. Ljósm. Visis: BG. LESENDUR HAFA ORÐIÐ Þriðju gróðu yfirheyrsla Guðrún Hákonardóttir skrifar: ,,1 Visi 15. janúar er sagt eftir Keflavikurlögreglunni: ,,Það eru þessar eftirlegukindur, sem við erum aðreyna aðlosa okkur við”. Mánuði seinna, eða 15. feb., fór ég og vinkona min meðáætlunar- bil frá BSl kl. 22 til Keflavikur. Þegar rútan kom að sýslu- mörkunum, var hún stoppuð og tveir óbreyttir lögregluþjónar komu inn með einhverjar svaka luktir (vasaljós) og lýstu framan I okkur og spurðu okkur nokkra krakka, hvort við hefðum smakkað áfengi. Nei, sögðum við, eins og lika satt var. — Þeir spurðu þá, hvort við værum með nafnskirteini. Það vildi svo óheppilega til, að með nafnskirteini var ég ekki, en flest alliraðrir voru þó með skir'- teini. Jæja.'þégar þeir svo voru búnir að fá það á hreint, spurðu þeir, hvert við værum að fara — 1 Keflavik á dansleik, sögðum við — Og eruð þið viss um að komast i bæinn aftur? — Þá spurði ég hvort það væri ekki okkar vanda- mál — Þá varð hann hann vondur og sagði.að það þýddi ekki fyrir okkur að reyna að koma aftur suður eftiránþess að hafa passa. Mér finnst orðið anzi hart, ef manni er ekki orðið óhætt að fara frá Reykjavik til Keflavikur, án þess að maður sé lýstur upp eins LYFSEÐILL \ HRAKNINGUM Éinn lesendu blaðsins kom inn á ritstjórnina i gær, veifandi um- slagi og lyfseðli, er hún vildi að við kæmum til skila. Stúlkan sagði þetta: ,,Ég fann þetta umslag á Hlemmtorgi snemma i morgun. Aftan á var bréfhaus læknis hér i gær, svo ég gizkaði á, að þetta væri lyfseðill. Þar sem það getur verið afdrifarikt fyrir t.d. hjarta sjúklinga að týna sliku og um- slagið hvort eð er hálfopið sakir bleytu og þvælings, tók ég lyf- seðilinn úr og leit á. Sá ég þar, að nafn sjúklingsins var jafnólæsi- legt þar og utan á bréfinu, en heimilisfangið greinilegra. Húsiö er frægt „partihús” hér i borg og seðillinn hljóðaði upp á 30 amfetamintöflur, sem erörvandi lyf (mjög vinsælt á vissum börum borgarinnar, þar sem það er keypt og selt af mikilli viðskipta- gleði). Þessar staðreyndir og svo það, að ég hef sjálf horft upp á þann hrylling að sjá marga fullorðna og nokkra ágæta unglinga eyði- leggja sig með þessu lyfi og öðrum sem þau gabbal?) út úr læknum, og það oftast sömu lækn- unum aftur og aftur. Þar sem þetta er svona, vil ég ekki verða til að skila þessu og e.t.v. stuðla þannig að eyðileggingu mann- legrar veru, heldur legg þetta hér inn á Visi og legg til, aö hlut- aðeigandi nái i seðilinn sjálfur, ef hann lifir ekki bara betra lifi án hans. og einhver glæpamaður, hvort sem við erum að fara á dansleik eða til að hitta kunningja okkar. Mér finnst það lita öðru visi út, ef það eru sætaferðir, en ekki áætlunarbillinn á sinni vanaferð. Þá finnst mér allt i lagi að taka áfengi af þeim, sem eru undir lög- aldrú Hins vegar ætti bilstjórinn fremur að sjá um það en lög- reglan. hvort senda eigi rútuna i bæinn aftur. En að manni skuli ekki vera óhætt að fara i áætlunarbil frá Reykjavik til Keflavikur án þess að verða hrelldur af hranalegum lögregluþjónum, sem krefjast skirteina og hefja þriðju gráðu yfirheyrslur um, hvert ferðinni sé heitið o.s.frv. — þaö er ótækt. Ekki tollÞJÓNN heldur vörður Arni Eiriksson, toilvörður simaði: ,,1 Morgunblaðinu og Visi er greint frá prófkjöri Sjálfstæðis- manna til borgarstjórnarkosn- inga. Þar er starfsheiti mitt talið verá tollþjónn. Þetta kemur okkur i minni stétt nokkuð spánskt fyrir sjónir. Við vitum ekki til að toll þjónastéttin sé til. 1 lögum erum viðtitlaðir tollverðir, og félag okkar heitir Tollvarða- félag. Vildu blöðin ekki gera það fyrirokkur i framtiðinni að halda sér við þetta lögverndaða starfs- heiti? ”, Valdatofl Er í valdatafl lifsins við leggjum af stað, löngum er allt sett að veði. Þá sama er, ef teflt er á tæpasta vað, livort tapað cr kóngi eða peði. Að fullyrða slikt skal þó fara að með gát, sú fullyrðing getur þvi beðið. Eitt peð getur kónginum komið i mát, en kóngurinn mátar ei peðið. Ben Ax. —SG

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.