Vísir - 22.02.1974, Blaðsíða 7

Vísir - 22.02.1974, Blaðsíða 7
7 Visir. Föstudagur 22. febrúar 1974. Hvernig er tízka í ár? Karlmennirnir eiga ekki síður kost á því á þessum siðustu timum að fylgjast með og klæða sig eftir nýjustu tízkuhugmyndum, ef þeir kæra sig þá um það. Þeir eru víst að verða nokkurn veginn jafnréttindaháir í tízkuheiminum, þó að enn sé samt sem áður frekar gert ráð fyrir því, að kven- fólkið hafi meiri áhuga á fötum og öðru til- heyrandi. skemmtilega tegund af armbandsúri, sem ætlað er kvenfólki jafnt sem karlmönnum Það er kannski pínulítið erf itt svona fyrst í stað að átta sig á þvi, hvað klukkan er ná- kvæmlega, því að ekki ein einasta tala eða mínútumerki er á úrinu. Til dæmis er lítið um tízkublöð sem ein- göngu eru gefin út fyrir karlmennina, en kannski það eigi eftir að rætast úr því von bráðar. Hvað um það, við birtum hér á síðunni í dag nýjasta karlmannafatnaðinn, og áreiðanlega finnur einhver eitthvað við sitt hæfi. Tweedfötin hafa þegar náð vindældum meðal karlmannanna hérna uppi á Islandi, enda eru þau geysivinsæl erlendis. Á mynd númer eitt sjáum við eitt dæmi um slíkan fatnað, en hugmyndin að þessum klæðnaði er sóttur nokkuð langt aftur í tímann, og það gildir jafnt um karlmannafatnaðinn, sem kvenfatnaðinn. Fötin eru í Ijósbrúnum lit og sömuleiðis sixpensarinn, sem fylgir með. Skyrtan er dökkbrún með hvítun doppum og þver- slaufan er svo hvít með dökkbrúnum dopp- um. Á mynd númer tvö sjáum við svo dæmi- gerðan íslenzkan klæðnað, lopapeysu og tref il. Þaðætti víst ekki að vera erfiðleikum bundið f yrir íslenzku karlmennina að ná sér í svona föt. Peysan er hvít með dökkbrúnu og beigelituðu mynztri og trefillinn er svo Ijósgrænn. Fatnaðurin á mynd þrjú er einnig dæmi- gerður fyrir tízkuna í ár. Hér er jakki, stakur, með fiskibeinamynztri svokölluðu. Hann er í brúnum og grænum lit. Buxurnar eru dökkbrúnar, en þetta skrautlega vesti er gult með brúnu mynztri. Skyrtan er rúst- rauð. Svo er það samkvæmisklæðnaðurinn á mynd númer f jögur. Jakkafötin eru í svört- um litog meðfylgjandi er vesti. Skyrtan er í Ijósbleikum lit og slaufan er úr flaueli í dökklilluðum lit. Á mynd númer fimm sjáum við svo Umsjón: Edda Andrésdóttir

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.