Vísir - 22.02.1974, Blaðsíða 10

Vísir - 22.02.1974, Blaðsíða 10
Sú ósigrandi Sovézka skíðakonan Galina Kulakova hefur þegar tryggt I sér tvo heimsmeistaratitla á mótinu i Faiun — sigraði naum- I lega i 5 km skiðagöngunni eftir hörkukeppni við tékkneska I skiðakonu, en i 10 km skiða- göngunni hafði hún mikla yfir- 1 burði. Þar náði hún betri tima en nokkru sinni áður hefur náðst á vegalengdinni hjá konum. Kulakova hefur alla möguleika l á þvi að bæta þriðja heims- meistaratitlinum við þá þrjá, sem hún hafði fyrir. Hún verður i sovézku sveitinni i 4x5 km skiðaboðgöngu og sú sveit er talin örugg um sigur. A Olympiuleikunum i Sapporo 1972 varð Kulakova þrefaldur Olympiumeistari — sigraði á öllum vegalengdum, sem hún keppti i — það er 5 km , 10 km ogskiðaboðgöngunni. Hún er nú 31 árs að aldri og myndin að of- an var tekin, þegar hún fagnar sigri eftir 5 km skiðagönguna i Falun. fmmmm^mmmmmmmmm . Kertastjakar Þessir sænsku kertastjakar eru nú komnir i þremur stærðum og fjórum litum. Þessir stjakar seldust allir upp fyrir jól. Verð frá kr. 95.- kr. Bjóðum yður fjölbreyttasta úrval landsins af kertum i öllum stærðum og litum. Hjá okkur eruð þið alltaf velkomin. Skólavörðurstig 8 og Laugavegi 11 (Smiðjustigsmegin) 35 þusund ahort- endur við skiðabrautina i Falun bjuggust við miklu, þegar skiðaboð- gangan hófst i gær. Gull var það, sem þeir vildu fá hjá sænsku sveitinni — nýjan heims- meistar atitil fyrir Thomas Magnusson og félaga hans. Keppnin hófst — en eftir aðeins 30 metra skeði óhappið hjá sænska skiðamannin- um, Hans Erik Larsson, sem gekk fyrsta sprett fyrir Sviþjóð. Hann missti af sér annað skið- Bréf til íþróttasíðunnar: Körfubolti - söluvara íþróttasíðu Vísis barst nýlega eftirfarandi bréf frá stúlku, sem biður um að nafn hennar birtist ekki með bréfinu — held- ur nafnnúmerið 0310-6152. Bréfið er þannig: ,,Ég vil byrja á þvi, að þakka fyrir ágæt skrif á iþróttasíðu Visis, svo langt sem þau ná. Til- efni þessara skrifa er það hversu mishátt hinum ýmsu iþróttagreinum er gert undir höfði. Hef ég þar sérstaklega i liuga körfuknattleik og hina ungu iþrótt blak. Ég minnist þess, að 2-3 undan- farinárhafa verið birt skrif um leiki i körfubolta, en nú i vetur bregður svo við, að úrslitum leikja i 1. deild körfuboltans er holað niður milli langloka úr til dæmis löngu útbrunnu hand- boltamóti og skiðamótum er- lcndis. Þetta gildir lika um blakið. Þessu til staðfestingar get ég bent á, að það tekur drjúgum lengri tima að leita að skrifum um Polar Cup, en að lesa þau. AUir vita um áhrifamátt fjöl- niiðla á fólk. Er ætlunin með þessari hlutdrægni að kæfa blakið i fæðingu eins og reynt hefur verið að gcra við körfu- boltann? Með fyrirfram þökk fyrir birtingu, 0310-6152. Það er útbreiddur mis- skilningur og þá einkum meðal forustumanna i iþróttum — að iþróttasiður séu til þess að styðja við bakið á einhverjum iþróttagreinum. íþróttasiður Visis eru — eins og allt annað efni blaðsins — söluvara og sama gildir um önnur dagblöð hér. Þess vegna er leitazt við að skrifa um þær iþróttir, sem mestum vinsæld- um eiga að fagna hverju sinni. Við höfum gert könnun hér á Visi i sambandi við iþróttaskrif blaðsins og þar kom i ljós, að greinar um körfuboltaleiki var það efni, sem langminnst var lesið. Innan við 2% af þeim tug- um þúsunda, sem lesa Visi dag- lega, hafa áhuga á gangi-Ieikja i körfubolta — láta sér nægja að lita á úrslitin, varla það einu sinni. Með þvi að vera með „langlokur” um körfubolta er þvi verið að reyna að selja vöru, sem sárafáir vilja. Þetta er ein- föld staðreynd. Hins vegar er ótrúlega mikill áhugi á hand- knattleik — já einnig á erlend- um skiðafréttum, einkum þó keppninni um heimsbikarinn. Viðskulum taka annað dæmi, sem sýnir hve körfuboltinn á litlum vinsældum að fagna, þvi iniður, og hve slæm söluvara greinar um hann eru. Á leik Gróttu og KR i 2. deild hand- boltans sl. sunnudag troðfylltist iþróttahúsið á Seltjarnarnesi. Aðeins á þennan eina hand- boltaleik komu miklu fleiri áhorfendur, en mætt hafa á alla leiki i 1. deild tslandsmótsins i körfubolta, sem leiknir hafa verið i sama húsi, i vetur. „Hlutdrægni” blaða i iþrótta- skrifum stafar aðeins af þvi hvað er hægt að selja og hvað er ekki söluvara. t Danmörku er leikinn körfubolti með svipuð- um árangri og hér heima — og áhugi almennings er sáralitill. Dönsk blöð minnast varla á körfubolta — en fylla iþrótta- siður sinar af „langlokum” um handbolta. Fyrirbrigðið er að finna i mörgum löndum. -hsim. Heimsmeistaratitillinn blasti við' framundan — stutt I markið. En þá skeði óhappið hjá Austur-Þjóðverjanum Gerhard Grimmer I 15 km skíðagöngunni. Hann steyptist framfyrir sig og tapaði dýrmætum tima — varð sekúndu á eftir Magne Myrmo I mark. Silfurverðlaun I stað gullsins. Enn gullstraumur til A-Þjóðverja í Falun! ið. Bindingin hafði bilað. Hans Erik flýtti sér aftur að rásmarkinu, en Sviar voru ekki með iiein varaskiði — en Vestur- Þjóðverjinn Hannes Braun lánaði sin. En þetta tók tima — og það sem verra var, það var ekki leyfi- legt. Sænska sveitin var þvi dæmd úr leik — en Hans Erik fékk að vita það eftir að hafa gengið nokkra kilómetra. En keppendur annarra þjóða kepptu að miklum krafti og sænsku áhorfendurnir sneru sér að þvi — eftir vonbrigðin — að styðja norsku sveitina. Eftir fyrstu skiptingu i 4x10 km skiða- boðgöngunni var sovézka sveitin i fararbroddi — Ivan Garanin náði beztum tima. Sviss var óvænt i öðru sæti — þá kom Austur- Þýzkaland, siðan Noregur, en þar gekk Olympiumeistarinn sjálfur, Magne Myrmo og tókst ekki betur upp en þetta. Gekk á 36 sekúndum lakari tima en Garanin. Odd Martinsen tók við af Myrmo — og gekk mjög vel, en timar urðu lakari eftir þvi, sem brautin grófst. Sovézka göngu- manninum á öðrum spretti, Fedor Simasjov, mistókst alveg — var með næstum tveimur minútum lakari millitima en Martinsen. Norðmaðurinn vann einnig upp bilið á Austur-Þýzka- land — og betur þó. — Eftir annan sprettinn var Noregur i fyrsta sæti — niu sekúndum á undan A- Þýzkalandi. Sviss var i þriðja sæti — þá Finnlandi, en sovézka sveitin var komin niður i fimmta sæti. Noregur hafði enn forustu eftir 3ja sprett. Ivar Formo jók á bilið á austur-þýzku sveitina — náði sjö sekúndum betri tima en Ger- hard Grimmer, sem misst hafði gullið i 15 km göngunni á svo sorglegan hátt (sjá mynd). En að baki þeim gekk Vasilij Rotsjev mjög vel i sovézku sveitinni og kom henni upp i þriðja sætið — en sveitin var þá með næstum minútu lakari tima en norska sveitin. Lokaspretturinn — og þá brást allt hjá Norðmönnum. Oddvar Bra náði slökum tima og norska sveitin féll niður i 3ja sætið. Juij Skobov, sem gekk fyrir Sovétrik- Hamingjuóskunum rigndi yfir Magne Myrmo, Noregi, eftir að hann varð heimsmeistari f 15 km skiðagöngu IFalun. Hér les hann skeyti frá vinnufélögum sinum. in, geystist áfram — Tók Norð- manninn og minnkaði bilið á endamann þýzku sveitarinnar, Gert Dietmar Klause. Hann vann upp 30 sek. á Klause — en það nægði ekki. Austur-Þýzkaland hlaut enn ein gullverðlaunin i heimsmeistarakeppninni — og Sviss féll úr fjórða sæti i sjötta á lokasprettinum. Úrslit. 1. A-Þýzkaland Gerd Hessler Dieter Meinel Gerhard Grimmer Gert Klause 2:03.15.85 29.33 31.04 31.09 31.27 2. Sovétrikin Ivan Garanin Fedor Simasjov Vasilij Rotsjev Jurij Skobov 3. Noregur MagneMyrmo O. Martinsen Ivar Formo Oddvar Bra Finnland varð 2:06.02.49. Þá 2:06.16.91 og 2:06.41.14. 2:03.25.31 29.14 32.19 30.53 30.57 2:03.46.03 29.50 30.39 31.02 32.13 i fjórða sæti á Tékkóslóvakia Sviss i sjötta Fjórtón glíma í Bikarglímu GLÍ Bikarglíma Glímusam- bandsins árið 1974 verður háð í iþróttahúsi Voga- skóla á morgun 23. febrúar og hefst kl. 13.30. Glimt verður i tveimur flokk- um. Annars vegar eru unglingar og drengir og hins vegar þeir sem eru 20 ára og eldri. I yngri flokknum glima: Árni Unnsteinsson Vikverja Ragnhildur í miðjum hóp í Osló Ragnhildur Pálsdóttir, hlaupa- konan kunna úr Stjörnunni i Garðahreppi, er nú i Noregi og um siðustu helgi tók hún þátt i norska mcistaramótinu i frjáls- um iþróttum innanhúss. Ragnhildur keppti I 800 mctra hlaupi og varð i miðjum hóp — i fjórða sæti. Hún hljóp á 2:27.0 min„ sem er tveimur sekúndu- brotum lakara en hún á bezt á vegalengdinni innanhúss. Sigur- vegari i hlaupinu varð Asa Svens- holt á 2:12.0 min. Friðrik Þór óskarsson, tR, keppti i þristökki á mótinu og stökk 13.92 metra. Ragnhildur mun fara með norska landsliðinu til Spánar 0g dvelur þar i nokkra daga við keppni og æfingar. Árshótíð Blikanna Þeir ætla að fagna nýju starfsári Breiðabliksmenn á laugardags- kvöldið. Þá halda þeir árshátið sina i félagsheimili Kópavogs og hefst hún með borðhaldi kl. 19. Þar munu hljómsveitin Plantan og Jörundur sjá um að viðeigandi fjör vcrði á hlutunum. Eru Breiðabliksfélagar af eldri gerð- inni sérstaklega hvattir til að mæta. að verða fastur og árviss þáttur i starfi Glimusambandsins. Glimustjóri verður Kjartan Berg- mann Guðjónsson og yfirdómari Guðmundur Freyr Halldórsson. Mótanefndin. Enn heims- met í snöruninni Sovézki lyftinganiaðurinn i yfirþungavigt, Leonid Zhabotinsky, bætti heims- metið i snörun i annað skipti á þremur mánuðum, þegar liann snaraði 185.5 kilóum á móti i Moskvu i gær — fimmtudag. Zhabotinsky setti heims- met i desember — eins og skýrt var frá hér i iþrótta- opnunni — snaraði þá 183.5 kilóum. Fyrir mánuði bætti . Finninn Kalevi Lashen- dranta það i 185 kiló — en Zhabotinsky gerði heims-' metið að sinu aftur i gær. Þessi sovézki lyftinga- maður hefur um langt árabil verið i fremstu röð. Hann varð olympiumeistari bæði á leikunum i Tokió 1964 og Mexikó 1968. Meistararnir töpuðu heima Það kom mjög á óvart á austur- riska meistaramótinu i alpa- greinum, sem nú stendur yfir, að i gær máttu heimsmeistararnir frá St. Moritz i bruni, þau Anna Maria Moser-Pröll og David Zwilling, bita i það súra epli að tapa i þeim greinum, sem þau höfðu orðið heimsmeistarar i. i bruni kvenna sigraði Drexel, en Anna María varð i öðru sæti. Það er i annað skipti í vetur, sem hún tapar brunkeppni — banda- riska stúlkan Nelson vann hana i einni keppninni i bruni um heims- bikarinn. Verra varð það þó hjá ZwiIIing, sem svo óvænt sigraði i bruninu á HM hjá körlum i St. Moritz. Hann varð aðeins fimmti á austurriska meistaramótinu I gær. Sigurveg- ari varð Griesmann. Óskar Valdimarsson Vikverja Sigurjón Leifsson Gl. Ármanni Þóroddur Helgason Vikverja 1 flokki 20 ára og eldri: Guðni Sigfússon Gl.Armanni Gunnar Ingvarsson Vikverja Halldór Konráðsson Vikverja Hjálmur Sigurðsson Vikverja ÓlafurSigurgeirss. K.R. Ómar Úlfarsson K.R. Pétur Yngvason Vikverja Rögnv. Ólafsson K.R. Sigurður Jónsson Vikverja Þorsteinn Sigurjónss. Vikverja Þetta er II. Bikarglima GLI. — Vonandi á þessi glimukeppni eftir Unga skiðakonan Blanka Pauli, Tékkóslóvaklu, vakti gifurlega athygli I 5 km skiðagöngunni á heimsmeistaramótinu i Falun. Hún var með betri tima en sjálf Kulakova framan af — og tapaði aðeins með tveggja sekúndna mun. Myndin er af Pauli i keppn- Þór fallinn - hlé til 16. marz! Eftir leiki Þórs aö undanförnu — fyrsttapgegn iRfyrir norðan 18-19 og siöan gegn Ármanni i Laugar- dalshöll, 14-17 — verður það hlut- skipti liðsinsað leika í 2. deild næsta keppnistímabil. Hlé verður nú gert á 1. deildinni framyfir heims- meistarakeppnina — eða til 16. marz. Staðan i deildinni er þannig: FH 11 11 0 0 260-185 22 Fram 12 6 3 3 261-230 15 Valur 11 6 2 3 216-197 14 Vik. 12 5 2 5 262-260 12 Ármann 11 3 3 5 164-175 9 iR 12 3 3 6 232-254 9 Haukar 11 2 4 5 201-233 8 Þór 12 1 1 10 213-275 3 Markahæstu leikmenn eru nú: Axel Axelsson, Fram, 98/39 Einar Magnússon, Víking, 86/45 Viöar Símonarson, FH, 74/13 Höröur Sigmarss. Haukum, 73/25 Gunnar Einarsson, FH, 70/21 Sigtr. Guðlaugs., Þór, 62/29 Ágúst Svavarsson, ÍR, 61/1 Björgvin Björgvinss. Fram, 51 Vilhj. Sigurgeirsson, ÍR, 51/28 Guðjón Magnússon, Viking, 49 Gisli Blöndal, Val, 48/17 l Þorbjörn Jensson, Þór, 42 i Stefán Jónsson, Haukum, 40/4 Gunnl. Hjálmarssop, ÍR, 37/1 Vilberg Sigtr.son, Árm. 37/10 Aðalst. Sigurgeirsson, Þór, 33/9 Hermann Gunnarsson, Vaí, 32/13 Hörður Kristinsson, Árm., 32/12 Árni Gunnarsson, Þór, 31/1 ólafur H. Jónsson, Val 32 Stefán Þórðarson, Fram, 30 ólafur ólafsson, Haukum, 29/16 Björn Jóhannessson, Árm., 28 ? Þórarinn Ragnarsson, FH, 27/3 Ólafur Einarsson, FH, 26 Jón Ástvaldsson, Árm. 25 Bergur Guðnason, Val, 23/11 Benedikt Guðmundss., Þór, 23 Gunnst. Skúlason, Val, 23 Guðjón Marteinsson, ÍR, 22 j Ingólfur óskarsson, Fram, 22/1 Páll Björgvinsson, Viking, 22 Stefán Halidórsson, Víking, 22 Auðunn óskarsson, FH, 21 Ágúst Ögmundsson, Val, 20 Ásgeir Elíasson, IR, 20 Skarphéðinn óskarsson, Vík. 20 ólaf ur Friðriksson, Vík., 18 Ólafur Sverrisson, Þór, 18 Jón Sigurðsson, Víking, 17 Þórarinn Tyrfingssop, ÍR, 16 Guðm. Haraldsson, Haukum, 15 Stefán Gunnarsson, Val, 15 Arnór Guðmundss. Haukum, 15 Jón Karlsson, Val, 14/1 Sigurb. Sigsteinsson, Fram, 14 Arnar Guðlaugsson, Fram, 13 Birgir Björnsson, FH, 13 Ragnar Jónsson, Ármanni, 12 Þorst. Ingólfsson, Árm, 12/1 3 örn Sigurðsson, FH, 12 Olfert Naby, Ármanni, 11 } Sigfús Guðmundsson, Vík.. 11 ? Pálmi Pálmason, Fram, 10 ] Sig. Jóakimsson, Haukum, 10

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.