Vísir - 22.02.1974, Blaðsíða 13
Visir. Föstudagur 22. febrúar 1974.
13
— já, segja leikkonur og enskur lœknir
— slœmt fyrir kvenfólk, en gott fyrir
karlmenn, segja danskir leeknar
,,Það er hollt fyrir
karlmenn að sofa nakt-
ir, en það er ekki eins
hollt fyrir kvenfólk”,
segja danskir læknar
eftir langar rannsókn-
11 • Þeir benda á, að
kvenfólk sé mun
viðkvæmara fyrir hita-
breytingum, og ef þeim
verði kalt í svefni, þa
vakni þær pirraðar, og
ekki eins hressar og
ella.
Ekki virðast þó allar konur
fylgja þessu ráði dyggilega,
heldur tala þær fjálglega um,
hversu dásamlegt það sé að sofa
nakin.
Norska fegurðardrottningin
Julie Ege segist ekki sofa i
neinu i rúminu, ef það sé heitt.
„En ef það er kalt og hráslaga
' X
Julie Ege á „náttfötunum einum”. Hún sefur alltaf nakin og sama
er að segja um þær ieikkonurnar Anitu Ekberg, Diönu Rigg og
Elisabetu Taylor.
legt úti, þá sef ég i slopp og
ullarsokkum”, segir hún.
Kollegarnir úr kvikmynda-
iðnaðinum, Anita Ekberg, og
Liz Taylor, sofa einnig naktar.
Leikkonan Diana Rigg iætur
sér ekki nægja að sofa nakin.
Hún framkvæmir einnig öll
heimilisstörfin allsber, ef hún
mögulega kemur þvi við.
„Það er þó aðailega á
sumrin”, segir hún. „En ég geri
það einnig á veturna, ef það er
heitt inni”.
Hún ráðleggur þó engum að
vinna að matargerð án fata.
„Pönnui; sem verið er að steikja
á, geta verið varasamar.”
Það þýðir þó ekki fyrir neinn
að fara i heimsókn til stúlkunn-
ar til að hjálpa henni við
heimilisstörfin, þvi við gesta-
komur sveipar hún slopp utan
um sig.
Ein mest ljósmyndaða
fyrirsæta i heimi er Vivien
Neves. Hún er aðallega i nekt-
armyndatökum.
,,Ég vakna i slæmu skapi, ef
ég klæðist einhverju fyrir svefn-
inn”, segir hún. „Náttklæði
flækjast fyrir, og manni liður
illa i þeim”.
Þrátt fyrir kenningar dönsku
læknanna hefur einn enskur
kollega þeirra sagt, að það sé
meira afslappandi að sofa nak-
inn. „Likami, sem svalt loft
leikur um, bregzt þannig við, að
blóðrásin út i húðina örvast.
Þetta þýðir, að þar sem blóðið
fær allt of litið að streyma,
vegna þess hve fólki er alltaf
heitt, rennur nú nóg af blóði.
Þetta virkar afslappandi,
hverjar sem ástæðurnar eru.”
Það er staðreynd, að meiri
kuldi kemst að likamanum,
þegar fólk sefur nakið, heldur
en þegar það sefur i náttfötum.
Dönsku læknarnir telja kuldann
valda tapi á orku, sem hefur
byggzt upp yfir daginn i kven-
mannslikömum. Slikt komi þó
ekki til hjá karlmönnum. Þeir
hafi næga orku og tapi engu.
Og ekki virðist nakinn nætur-
svefn hafa rænt nokkru frá þeim
Burt Reynolds, Anthony Quinn,
Tony Curtis og Peter
„Colombo” Falki Þeir sofa
allir naktir.
Nýtt frá Berkemann
Tegund 56-459.
Falleg, nýtizkuleg, gerð úr mjúku skinni i þrilitri litasam-
setningu, dökkbrúnu, grænu og ljósbrúnu, úr léttu póler-
uðu tré og að sjálfsögðu með hinu þægilega innleggslagi
frá Berkemann, nr. 36-41, kr. 1699/-
Tegund 36-245
barnatréskór úr léttu tré ineð hinu þægilega og holla
innleggi frá Berkemann úr rauðu lakkskinni i nr. 26-30 á
kr. 968.- og 31-34 á kr. 1.016,-
Á meðan á verkfallinu stendur, munum
við reyna að hafa verzlunina opna i
það minnsta frá kl. 10-12 og e.h. kl. 3-6.
Póstsendum samdægurs.
Domus Medica,
Egilsgötu 3.
Pósthólf 5030.
Simi 18519.