Tíminn - 12.01.1966, Side 13

Tíminn - 12.01.1966, Side 13
FH tapaði fyrir Haukum í 1. deildar keppninni í gærkvöldi með einu marki, 17:18. Alf—Reykjavík. Þau óvæntu úrslit urðu að Há- logalandj í gærkvöldi, að Evrópu bjkarli® FH tapaði fyrir Haukum í 1. deild með einu marki, 17: 18. Og þessi úrslit voru alls ekki ósanngjöm eftir gangi Ieiksins. Haukar sýndu afar gott keppnis skap, og Vjðar Símonarson, reynd ist ofjarl FH-vannarinnar, en alls skoraðj Viðar 8 mörk og sýndi á köflum glæsilegan leik. Um tíma í síðari hálfleik liöfðu Haukar yf ir 16:10, en þá var síðari hálflejk ur hálfnaður. Bn á mínútunum, sem eftir voru söxuðu FH-ingar jafnt og þétt á fors.kot Hauka, og þegar rúmar 2 mjnútur voru eftir,' skoraði Auðunn Óskarsson 17. mark FH, eií þá höfðu Haukar skorað 18 mörk. Síðasta mjnútan var mjög æsandi, og reyndu FH-ingar leik aðferðina maður á mann. En án árangurs, og þegar flauta tíma varðar gall við, lustu hjnir fjöl mörgu áhangendur Hauka að Há logalandi upp fagnaðarópum. Á markatöflunni blöstu við tölustaf irnir 18:17 Haukum í hag. Þessi úrslit koma mjög á óvart, og má segja, að FH-ingar hafi fengið þarna svo rækjlegan skell, a® þeir séu komnir úr skýjunum niður á jörðina aftur. FH sakn aði Ragnars Jónssonar og Geirs Hallsteinssonar, og munaði vissu lega mikjð um þá. En hins vegar á fjarvera tveggja leikmanna ekki að þurfa að hafa svo mikil áhrif á lið íslandsmeistaramna, að það sé eins og vængbrotinn fugl á eftir. FH-jngar geta litjð á þessi úrslit sem þarfa áminn ingu, áminningu um það, að ein staklingshyggja í flokkaíþróttum á sér enga framtíð. Sannleikur inn var sá, að nokkrjr leikmenn, aðallega Örn Hallsteinsson, eyði lögðu mikið fyrir með ótímabær um skotum allan leiktímann. Og ofan á þetta bættist, að líklega hafa FH-ingar mætt of sigurviss ;r til leiks. Lið Hauka kom skemmilega á óvart. Frá fyrstu mínútu sýndu Haukarnir mikið keppnisskap og voru auðsjáanlega staðráðnir í að vjnna. Svo rækilega kom þessi sigurvjlji þeirra í ljós, að í öll um leiknum komst FH aldrei yfir. Og þag eitt út af fyrir sig er merkilegt atrjði. Viðar og Ásgejr voru drýgstu skotmenn í fyrri hálfleik og skoruðu hvor um sig 3 mörk. Hjá FH var Guðlaugur aðalskyttan og skoraði 4 mörk. í Friðrik skrifar fyrir TÍMANN um Rvíku rmótið Eins og sagt er frá annars stað ar í blaðinu í dag, hefst Reykja víkurmótið svonefnda í skák í Lídó í kvöld, en meðal þátttakcnda eru kunnir erlendir skáksnilling ar, auk flestra beztu skákmanna okkar, þ. á. m. Friðriks Ólafsson ar stórmeistara og Guðmundar Sig urjónssonar, núverandi íslands meistara í skák. Þegar síðasta Reykjavíkurmótið í skák fór fram með þátttöku sovézka stórmeistarans Tals, Glig orioh frá Júgóslavíu, skrifaði Frið- rik Ólafsson um mótið eftir hverja umferð hér á síðunni. Og það sama verður upp á teningunum í sam- bandi við mótið, sem hefst í kvöld. Friðrik Ólafsson mun skrifa stuttar yfirlitsgreinar, sem munu birtast eftir hverja um- ferð. Munu þau skrif örugglega verða skákunnendum mikill feng ur. hálfleik var staðan 10:8 fyrir Hauka. Fyrstu 15 mjnúturnar í síðari hálfle;k voru bezti kaflj Hauka, og á þejm voru úrslit leiksins ráðin. Viðar skoraði 3 mörk á þessurn mínúbum, Ásgeir 2 og Stefán 1 mark. Og á meðan skor aðj FH aðeins 2 mörk. Staðan var„því 16:10. Haukar slökuðu svo á 15 síðustu mínúturnar og þá munaði mjnnstu, að FH tækist að jafna. En allt kom fyrir ekki, og Haukar voru sjgurvegarar. Leikinn dæmdi Valur Bene- diktsson og tókst vel upp. Pólska landsliðið vænt- anlegt á laugardaginn - leikur á sunnudag og þriðjudaginn. Á laugardaginin er væntanlegt hingað til lands eitt sterkasta lands lið Evrópu í körfuknattleik, pólska landslrtöff, en hér leikur ljffiff tvo landsleiki gegn íslandi. Fyrri lekurinn fer fram sunnudagjnn 16. janúar, sama dag og íslenzka landsliffiff í handknattleik leikur gegn Pólverjum ytra, og síðarj leikurinn fer fram briffjudaginn 18. janúar. Eins og áður hefur verið frá sagt hér í Tímanum, hafa 15 leik menn verið valdir til landsliðsæf, inga, og af þessum 15 lejkmönn um verða valdir 10 í landsliðið. Friðrik Ólafsson Verður landsliðið valið á morg un, fimmtudag. Helgi Jóhannsson hefur þjálfað landsliðjð. Báðir leikirnir farn að sjálf- sögðu fram í íþróttahöllinni í Laugardal og hefst leikurinn á sunnudag kl. 16, en leikurjnn á þriðjudag hefst kl. 20.15. Forsala aðgöngumiða verður í Bókaverzl un Lárusar Blöndal í Vesturveri og á Skólavörðustíg. Körfuknattleikssambandi ís- lands hafa borizt upplýsingar um pólska landsliðið, en hér á eftjr verður getið um helztu upplýs- jngar, sem KKÍ hafa brotizt. Körfuknattleikur var fyrst leik inn í Póllandi árið 1909, og má af því sjá, að hann er engjnn nýgræðingur í polskum íþróttum. Körfuknattleikssamband var ekki stofnað fyrr en mörgum árum síð ar í Póllandi, eða 1928. í dag eru 17 héraðssambönd körfuknatt- leiksliða innan pólska sambands- ins en félög. sem stunda körfu knattleik eru 450 talsins, og tala lejkmanna um 30 þús. Á s. 1. árj tóku 938 lið þáft í meistara keppni Póllands frá hinum 450 félögum, en meistarakeppninni er skipt í sex deildjr. sem hingað kemur á laugardag- inn, er Witold Zagoriskj, 35 ára gamall, sem áður fyrr var meðal snjöllustu leikmanna Pólland*. Hann tók við þjálfun landsliðs ins árið 1961. Hann er talinn einn bezti körfuknattleiksþjálf- ari Evrópu, góður skipuleggjari, sem leggur mikla áherzlu á vamarleik. Um sjálfa leikmennina hafa borjzt nokkrar upplýsingar, og má geta þess, að fjórjr leikmanP anna, sem hingað koma, eru úr liðinu Wisla, sem s. 1. sumar lék gegn úrvalsliði Evrópu og sigr aði 78:70. eÞtta sama lið sigraði einnig Evrópubikarmeistarana Real Madrid með 85.70. Samtals hafa leikmennimjr, sem hingað koma, 1202 landslejki að baki, og tveir þeirra, sem flesta leiki hafa að baki, hafa hvor um sjg leikið 182 landsleiki! Hér á eftir verður getið um leikmennina: Nr. 4 J. Wjchowski, 30 ára, 196 cm. 87 kg. 182 landsleikir, hefír skorað 2275 stig í þessum lejkj um. nr. 5 A. Pstrokonski, 29 ára 186 cm. 89 kg. 182 landsl. 1253 stig nr. 6 C. Malec, 24 ára 194 sm. 83 kg. 37 landsl. 302 stig nr 7 C. Hanryk nr. 8 S. Olejniczak, 27 ára 193 sm 82 kg. 103 leik-Jr. 448 stig. nr. 9 W. Langiewicz, 25 ára, 183 sm 77 kg. 48 lejkir, 368 stig. nr. 10 J. Piskun, 27 ára, 199 sm, 79 kg. 140 leikir, 783 stig. nr. 11 Z. Ljkszo, 25 ára 200 sm 103 kg. 85 leikir, 1104 stig. nr. 12 M. Lopstka 26. ára, 197 sm 97 kg. 94 leikir 1011 stjg nr. 13 K. Frelhiewice 25 ára, 181 sm. 72 kg. 82 leikir, 277 st;g. nr. 14 E. Grzyuna, 21 árs, 195 sm. 92 kg. 28 leikir, 167 s'tig. nr. 15 Z. Dregier, 30 ára 180 sm 76 kg. 143 lejkir, 778 stig. 43. sambandsþing Ungmenna- sambands Kjalarnessþings - innan sambandsins eru nú sex félög 43. Sambandsþing Ungmenna- sambands Kjalarnesþings, var haldið að Hlégarði, Mosfells- sveit, sunnudaginn 12. desemb er s; 1. Sambandsformaffur Úlf- ar Ármannsson setti þingiff og bauð Þingfulltrúa og gesti vel komna á þingið. 29 fulltrúar sóttu þingið, auk gesta sem voru Ármann Péturs son gjaldkeri UMFÍ og Hermann Guðmundsson framkv.stj. ÍSÍ. Fluttu þeír ávarp á þinginu. Forsetar þingsins voru Jón M. Guðmundsson, Sigurður Geir dal og Lárus Halldórsson og þing ritarar Ólafur Þór Ólafsson og Haraldur Jónsson. Úlfar Ármannsson form. sam- bandsins flutti skýrslu stjórnar um starfsemi sambandsins á síð asta ári, og gjaldkeri Sigurður Skarphéðinsson gerði grein fyrir reikningum sambandsins. Sam- bandið hélt mörg íþróttamót og tók þátt í flestum íþróttamótum sem haldin voru í Reykjavík á síðasta sumri, með Umf. Breíða blik í broddi fylkingar. Á Lands mót UMFÍ að Laugarvatni voru sendir 41 þátttakendur með góð um árangri. Þingið tók fyrir mörg mál og gerði margar ályktanir til eflingar íþrótta- og æskulýðsmála á sambandssvæðinu. Þingfulitrúar lögðu áherzlu á uppbyggingu og gott skipulag íþróttamála á næsta ári, fyrst og fremst með meiri þátttöku yngstu félaganna. Innan sambandsins eru nú 6 fé- lög, það eru Umf. Drengur Kjós, Umf. Kjalarness, Kjalarnesi, Umf. Afturelding, Mosfellssveit, Umf. Breiðablik, Kópavogi, Umf. Stjarn an, Garðahreppi og Umf. Bessa- staðahrepps Álftanesi, með sam- tals um 875 meðlimi, Stjórn samþandsins skipa nú: Úlfar Ármannsson, formaður, Gestur Guðmundsson, varaform. Aðrir í stjórn: Sigurður Skarphéðinsson Þórír Hermannsson, Birgir Guðmundsson, Gísli Snorrason. Það mun hafa verið árið 1935, sem Pólland lék sinn fyrsta lands leik í körfuknattlejk. Síðan hefur orðstír pólska landsliðsins sífellt farifj vaxandi, sérstaklega síð- ustu arin. Má geta þess, afi á Olympíuleikunum í Róm árið 1960, hlaut pólska liðið 7. sæt; — og á OL í Tókíó varð liðið í 6. sæti. í Evrópu er pólska landsljð ið meðal sterkustu liða og lenti í 3. sæti í síðustu Evrópukeppnj landsliða, sem háð var j Sovét ríkjunum á s. 1. ár;. Þjálfari pólska landsliðsjns. Valur vann með 27:24 í gærkvöldj sigrffi Valur Ár- mann í 1. deildar keppninnj í handknattleik meff 27:24, en í hálfleik var staffan jöfn 15:15. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann. Dregiö í dag I dag, miðvíkudag, verða lið í 8-liða keppninni í Evrópubik- arkeppninni í handknattleik dregin saman, en eins og kunn ugt er, þá er FH meffal hinna 8 liða. Drátturinn fer fram i París og verður spennandi að vita hvaða lið dregst á móti FH. í blaðinu í gær var ekki al- veg rétt meff fariff hvaða 8 lið eru eftir í keppninni, en sam- kvæmt NTB-frétt eru þaff eftir- talin lið: Redbergslid (Svíþjóð), Honved (Ungverjaland), Slick (Pólland), Dukla Prag (Tékkó- slóvakía), Grashoppers Z. (Sviss), FH (ísland), DFH Leipzig (A-Þýzkal.) og Zagreb (Júgóslavía).

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.