Tíminn - 13.01.1966, Blaðsíða 2
T
FIMMTUDAGUR 13. janúar 1966
TÍMINN
Borgarstjóri lék fyrir Böök
SJ—Reykiavík, þriðj'udag.
Reykjavíkurmótið i skák 1966 I
var s_ett í Lídó í kvöld af Ásgeiri
Þór Ásgeirssyni, forseta Skáksam
bands íslands. Auk hans tók til
máls Geir Hallgrímsson, borgar I
stjóri, og þakkaði hann forstöðu
mönnum mótsins Þeirra störf og
bauð hina erlendu gesti sérstak
lega velkomna. Þar næst setti
hann mótið með því að leika fyrsta
leik fyrir hinn fínnska skákjöfur
Böök, sem er nú formaður finnska
skáksambandsins.
Meðal áhorfenda voru þrír heið
ursgestir mótsins: Ari Guðmunds
son, fyrsti formaður sambandsins,
Jón Sigurðsson, fyrsti ritari sam
Á myndinni hér aS ofan eru (f. v.) Jón SigurSsson, Ari Guðmundsson og Þorsteinn Thorlacius. (Tímam. GE.)
FYRSTA DEILD BORGARSJUKRAHUSSINS
TEKUR TIL STARFA EFTIR 2-3
HZ—Reykjavík, föstudag.
Tíminn hafði í dag samband við
Jón Sigurðsson borgarlækni og
spurði um framkvæmdir í sam-
bandí við nýja borgarsjúkrahúsið
í Fossvogi, en áætlað er að nokkr
ar deildir þess taki til starfa á
árinu.
— Er búið að ráða í margar
stöður?
— Ekki er búið að ráða í allar
stöður, enda era þær margar við
svona stóra stofnun. Búið er að
ráða hjúkrunarkonur og annað
starfslið, sem kemur til með að
vera ráðgefandi og vinnur að und
irbúningi.
— Hvenær tekur fyrsta deildín
til starfa?
— Röntgendeildin, sem verður
Það var ung stúlka, Nanna
Sígurðardóttir Þingholtsbraut
41 Kópavogi, sem hlaut Volks
vagninn í happdrætti Lög-
reglukórs Reykjavíkur, en GE
tók meðfylgjandi mynd af
Nönnu og bílnum, þegar henni
var afhentur hann. Vinnings
númerin í happdrættinu voru
sem hér segir:
1. v. Volkswagen-bifr. nr. 654
2. — S j ónvarpsviðtæki — 4119
3. — Saumavél — 6666
4. Flugferð. USA — 9044
5---Tveir farm. R.sk. — 2958
6. —Farm. Gullfoss —3601
7. — Flugf. Kaupmh. —8426
8. — Herraföt — 5768
9. — Herraföt ' — 7619
10. —Bílfar — 7582
Vinninganna skal vitjað hjá
aðalumboðsmanni happdrættis-
íns Guðbirni Hanssyni, Skeggja
götu 14, Reykjavík, sími 11883.
fyrst til að flytja í húsið mun
flytja þangað í vor að öllum likind
um. Unnið er að undirbúníngi til
að setja upp tækin en það mun
taka 2—3 mánuði.
TVÖ BÍLSLYS
HZ—Reykjavík, miðvikudag.
Tvö alvarleg bifreiðaslys urðu
í Reykjavík í fyrrakvöld og í gær
morgun. f fyrra slysinu varð harð
ur árekstur á horni Kringlumýrar
brautar og Miklubrautar og kastað
ist kona úr öðrum bílnum og slas
aðist allmikið en þó ekki lifshættu
lega að sögn lækna.
í því seinna varð fótgangandi
piltur fyrir sendiferðabifreið, sem
ók í sömu átt og pilturinn gekk.
Hlaut hann mikið höfuðhögg og
var meðvitundarlaius er að var
komið kl. hálf níu í gærmorgun,
en var kominn td meðvitundar um
hádegisbilið í gær.
bandsins og Þorsteinn Thorlacius,
sem var fyrsti ritstjórí íslenzks
skákblaðs.
Við hittum Ara Guðmundsson
rétt að máli og sagðist hann enn
taka eina og eina skák við kunn
ingja — menn frá fyrri tíma, en
Ari er nú orðinn 75 ára.
— Eg fylgist með og kaupi
skáktímarit, sagði Ari, og tefli
oft upp góðar skákir mér til dægra
styttingar.
Þegar borgarstjóri heilsaði Ara,
barst talið að stofnun Skáksam
bands íslands á Blönduósi og kom
fram í samtali þeirra að einhverjar
væríngar hefðu verið með norð
an og sunnanmönnum, en síðar
féll allt í Ijúfa löð.
Ari starfaði á Akureyri fram
til 1930, en fluttist síðan til Reykja
víkur og tók til starfa hjá Tóbaks
einkasölu ríkisins og starfaði þar
Framhald á bls. 14.
Beið bana í bílsiysi
GE—Reykjavík, miðvikudag.
Maðurinn, sem lézt í bifreiðar
slysinu við Silfrastaði í fyrrinótt
hét Jóhannes Jónsson. Hann var
bóndí á Tyrfingsstöðum í Akra-
hreppi, 43 ára að aldri, kvæntur
en bamlaus.
Sveinn Björnsson
sýnir í Bogasai
HZ—Reykjavík, miðvikudag.
Sveinn Bjömsson, lögregluþjónn
í Hafnarfirði er orðinn þekktur
fyrir myndir sem hann hefur mál
að. Nú hyggst hann halda sýningu
á þeim í Bogasal Þjóðminjasafns
ins og verður hún opnuð kl. 8.30
á föstudagskvöldið.
Sveinn hefur haldið allmargar
sýningar og síðast hélt hann sýn
ingu í Danmörku með tveim öðr
um íslenzkum listmálurum og fékk
góða dóma. Myndirnar sem á sýn
íngunni verða em tuttugu talsins
og var meiri hluti þeirra á sýn
ingunni í Danmörku. Þetta era
allt olíumálverk og verða þau til
sölu í Bogasalnum. Myndirnar eru
málaðar á tímabilinu 1963—1965.
Sýníngin mun standa í 9 daga og
verðu„ opin daglega frá 2—10.
Fredeil Lack
8. tónleikar
Sinfóníunnar
GE—Reykiavík, miðvikudag
Á morgun, fimmtudag
verða 8. tónleikar Sinfóníu
hljómsveitar íslands. Stjórn
andi verður dr. Róbert A.
Ottósson og einleikari með
hljómsveitinni verður banda
ríski fiðluleikarinn Fredell
Lack. Þessir tónieikar eru
hinir síðustu á fyrra miss-
eri.
Á efnisskránni eru þrjú
verk, Leíkhússtjórinn, for
leikur eftir Mozart, Fiðlu
konsert nr. 3 í G-dúr einn
ig eftir Mozart og sinfónía
nr. 3 í d-moll eftir Bruckn
er. Fredell Lack fiðluleík
ari er talinn mjög mikil iista
kona. Hún þótti undrabam,
byrjaði að leika á fíðlu
fjögurra ára gömul og fjór
um árum síðar kom hún
fyrst fram opinberlega.
Fyrstu tónleika sína hélt
hún í Town Hall í New York
1943, og var þá lýðum ljóst
að hér var um að ræða mikla
listakonu, og Það er engum
efa undirorpið, að hún er
nú í fremstu röð allra þeirra
kvenna, sem leika á fiðlu.
Hún hefur farið tónleika-
ferðir víða um heim og
einnig hefur hún gegnt al-
mennum hljómsveitarstörf-
um sem konserfmeistari í
kunnri hljómsveit. Fredell
Lack býr í Houston í Tex
as, störf hennar þar eru
margþætt m. a. kennir hún
Framhald á bls. 14.
Sveinn Björnsson og sonur hans ÞórSur, 2 ára, við hliðina á mynd sem
heitir „Andlit ættarinnar og lífsins blóm". Eins og sjá má var ekki lokið
við að hengja upp myndirnar.