Vísir - 13.03.1974, Qupperneq 3
Vlsir. Miðvikudagur 13. marz 1974.
3
Hœttir a
loðnunni
— og Grindvíkingar lögðu margir
fyrstu þorskanetin í gœrkvöld
Þeir eru í óða önn að
búa sig undir að veiða
þorskinn í net, Grindvík-
ingar.
Þegar Vísismenn áttu
leið um Grindavíkurhöfn
í gærdag, stóð þar hver
skipshöfnin við aðra á
bryggjum og greiddi úr
netatrossum niður á dekk
bátanna, hnýtti við
sökkum og hagræddi
stórum netahrúgum á
dekkinu.
„Við förum út með kvöldinu,”
sögðu þeir á Gylfa Erni, en sá
bátur hefur reyndar stundað
þann gula i allan vetur. Var á
linu i vetur og gekk misjafnlega,
þvi veðrið hamlaði oft veiðum.
f gærdag var vorblær i loftinu
i Grindavik og veiðisvipur á
sjómönnum. Þeir á Gylfa Erni
fengu tvo Færeyinga til liðs við
sig og einn Fransmann.
„Það er ævinlega
mannahörgull á báta — hefur
verið svo undanfarin tiu ár,”
sagði einn hásetanna, „en þeir
eru ágætir þessir strákar.”
Grindavikurbátar hafa fengið
ágætan afla i net siðustu daga,
bátarnir hafa komið með 4-15
tonn i róðri.
Flestir eða allir stærri bát-
anna, þeirra sem voru á loðn-
unni, eru nú hættir loðnu-
veiðinni, og þeir fyrstu lögðu net
sin fyrir þorskinn skammt und-
an landi i gærkvöldi.
Albert' GK var i höfninni, og
þeir voru að handlanga siðustu
netatrossuna niður i bátinn,
þegar við smelltum af þeim
mynd — „við fengum 4.600 tonn
á loðnunni — hásetahluturinn
var kringum 650 þúsund krón-
ur,” sagði einn hásetanna.
Það var ekki langt stoppið hjá
þeim á Albert. Þeir komu inn
með siðustu loðnuna á fimmtu-
daginn i siðustu viku og fóru út
að athuga með þann gula i
gærkvöldi, þriðjudag.
Svo er að vona, að þorskur-
inn gefi færi á sér og vorblærinn
reynist ekki blekking ein. En
Fransmaðurinn á Gylfa Erni
virtist svolitið kuldalegur, þótt
aðrir töluðu um hlýjan andvara.
— GG
Þeir voru að greiða úr netatrossum og handlanga þær um borð. 1
gær lögðu þeir fyrstu þorskanetin. Hættir á loðnunni fyrir viku
siðan.
375 milljóna höfn í Gríndavík
— framkvœmdum lýkur að mestu í haust
— 100% aukning á viðleguplássi
Bryggjusmíð og dýpkun
hafnarinnar í Grindavík
gengur samkvæmt áætlun.
Reiknað er með að allt
athafnasvæðið við höfnina
verði malbikað í sumar, en
þá á jafnframt að vera
lokið byggingu viðlegu-
plássa, sem auka athafna-
getu haf narinnar um 100%.
EÍtir Vestmannaeyjacgosið i
fyrra hófust framkvæmdir i
Grindavik, og lánaði Viðlaga-
sjóður i byrjun 50 milljónir króna
til hafnargerðar i Grindavik.
Siðan kom Alþjóðabankinn til
sögunnar, en hannlánar um 60%
af öllum kostnaði við fram-
kvæmdir, en áætlað er að heildar-
kostnaðúr verði um 375 milljónir
króna.
Daniel Gestsson, yfirverk-
fræðingur Vita- og hafnamála-
skrifstofunnar tjáði Visi, að i
Grindavik ætti i haugt að vera
lokið gerð 75 metra langrar
bryggju með stálþili. Einnig 160
metra bryggju með viðlegu —
plássi beggja megin — en sú
bryggja er byggð inni á Hópinu
austast. 1 þriðia lagi verður byggt
stálþil að vestanverðu með
viðleguplássi.
Alþjóðabankinn hefur kynnt
sér það, sem gert hefur verið i
Grindavikurhöfn, og lagt blessun
sina yfir það. Venjan mun
reyndar vera,að bankinn krefst
þess að framkvæmdir, sem hann
lánar til, séu boðnar út. Daniel
Gestsson sagði, að það hefði ekki
verið hægt i Grindavik, og þvi
hefði bankinn að lokum fallizt á,
að Vita- og hafnamálastjórn ynni
verkið sjálf.
1 haust var byrjað að dýpka
innsiglinguna i höfnina, en horfið
frá þvi vegna veðurs. Nú er unnið
að þvi með dýpkunarskipinu
Gretti að dýpka höfnina að
austanverðu.
Þegar frágangi verður lokið við
athafnasvæðið i haust, það mai-
bikað, steypt eða sáð grasfræi i
svæðið, verður svæðið alveg til-
búið — allar lagnir tilbúnar,
lýsing og annað.
Þá verður og byggt tveggja
hæða hafnarstjórnarhús i Grinda-
vik, þarsem verða i skrifstofur og
aðstaða til almennrar þjónustu
við báta i höfninni.
—GG
Nýja 160 metra bryggjan I Grindavík. Viðlegupláss verður beggja megin við hana, en auk þessarar bryggju verða byggðar tvær bryggjur
með stálþili.
réttir
Konsó-
starfinu
hjálpar-
hönd
— nœr 5
milljónir hafa
þegar safnazt
„Það hefur aldrei verið svona
almenn þátttaka i nokkurri söfn-
un sem ég hef annazt. Það er
fjöldinn, sem tekur þátt i þessari
söfnun. Fáir aðilar gefa mjög
stórar upphæðir, en peningarnir
koma þvi frá geysimörgum
aðilum,” sagði Páll Bragi
Kristjónsson hjá Hjálparstofnun
kirkjunnar, en nú hafa sáfnazt 4,8
milljónir i landssöfnunina til
þurrkasvæðanna i Konsó.
Söfnunin hefur þvi gengið mjög
vel, og vitað er um talsvert, sem
er á leiðinni. Upphæðin fer þvi
liklega yfir 5 milljónir króna.
Stærstu upphæðirnar, sem
komið hafa, eru frá Amaro á
Akureyri, 100 þúsund krónur, frá
Johnson & Kaaber 50 þúsund
krónurog frá einum einstaklingi,
sem gaf 30 þúsund krónur.
Enn er tekið á mótin peningum
á giróreikning 20000,-
—EA