Vísir - 13.03.1974, Side 6

Vísir - 13.03.1974, Side 6
6 Vlsir. Miðvikudagur 13. marz 1974. ,/ VÍSIR tJtgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: Fréttastjóri: Ritstjórnarfulltrúi: Fréttastj. erl. frétta: Auglýsingastjóri: Auglýsingar: Afgreiðsla: Ritstjórn: Reykjaprent hf. Sveinn R. Eyjólfsson Jónas Kristjánsson Jón Birgir Pétursson Haukur Heigason Björn Bjarnason Skúli G. Jóhannesson Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611 Hverfisgötu 32. Simi 86611 Siðumúla 14. Simi 86611. 7 linur t lausasöiu kr. 25 eintakið. Blaðaprent hf. Skerum nú Velta rikissjóðs á þessu ári kemst upp i 33 milljarða króna, ef skattbreytingafrumvarp rikisstjórnarinnar nær fram að ganga. Það er töluverð aukning frá fjárlögum, sem gerðu ráð fyrir 29 milljarða króna veltu. Þessi hækkun stafar sumpart af verðbólgunni og sumpart af þeirri auknu skattheimtu, sem felst í skatt- breytingafrumvarpinu. Talan 33 milljarðar, sem komin er frá efna- hagssérfræðingum rikisstjórnarinnar, er meðal annars athyglisverð fyrir þá sök, að hún felur í sér þreföldun fjárlaga á aðeins þremur árum vinstri stjórnarinnar. Það er þvi kominn timi til að staldra við og undirbúa stórtækar aðgerðir gegn þenslunni á rikisbákninu og gegn verðbólg- unni almennt. Flestir geta verið sammála um, að nú sé kominn timi til að skera niður útgjöld rikisins. Rikissjóður má ekki lengur hafa forustu i að kynda undir verðbólgunni. Mikill niðurskurður rikisútgjalda i einu vetfangi getur að visu valdið nokkurri röskun, svo að heppilegt getur verið að framkvæma hana i áföngum. Mætti þá byrja með um 5% niðurskurði á þessu ári og halda siðan áfram næsta ár. 5% niðurskurður mundi spara einn og hálfan milljarð króna og tvö söluskatt- stig. Stjórnmálaflokkarnir eru ekki sammála um, hversu mikið þurfi að hækka söluskattinn til að kosta tekjuskattslækkunina, sem rikisstjórnin samdi um við Alþýðusambandið. Hafa þeir þó allir látið efnahagssérfræðinga kanna málið. Rikisstjórnin heldur sig við fimm söluskattstig, Alþýðuflokkurinn er með þrjú og hálft stig og Sjálfstæðisflokkurinn tvö stig. Þessi tvö stig vilja svo þingmenn Sjálfstæðis- flokksins losna við með þvi að skera niður rikis- útgjöldin. Jafnframt vilja þeir nota tækifærið og ganga miklu lengra i lækkun tekjuskatts en frumvarp rikisstjórnarinnar gerir ráð fyrir, þótt sú lækkun valdi þvi að taka verði aftur inn þau tvö söluskattstig.sem hverfa við 5% samdrátt rikisútgjalda. Þessi stefna er i samræmi við frumvarp, sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins lögðu fyrir Alþingi i vetur. Það liggur í augum uppi, að mikilvægt er að finna leiðir til að sporna gegn hækkun söluskatts. Slikar leiðir ættu að bera árangur i varanlegri kjarabótum, minni verðbólgu, stöðvun á útþenslu rikisbáknsins, og meiri vaxtarmöguleikum at- vinnulifsins. Rikisstjórn, sem ekki hefur meirihluta i báðum deildum Alþingis, verður að bita i það súra epli að taka tillit til sjónarmiða stjórnarandstöðunnar og sætta sig við minnkaða útþenslu rikisbáknsins, og mildari skattheimtustefnu. Brjóti hún ekki odd af oflæti sinu, bregzt hún þvi, sem hún lofaði launþegasamtökunum, og sýnir með áþreifanlegum hætti að hún er ekki fær um að stjórna landinu. Siðferðilega ber henni þá skylda til að efna til nýrra kosninga, en það þorir hún ekki fyrir sitt litla lif. -JK. Skœrur og smástrfð Stórveldin hafa setið á sér að striða hvert á öðru frá lokum siðari heimsstyrjaldar 11945. Siðan hefur átt að heita friður, en ef litið er á al- heimskortið sést, að hann er viða rofinn. Hér og þar er rekinn skæruhernaður, annars staðar er rambað á barmi styrjaldar og sums staðar eru upp- reisnir og byltingar. Sumt af þessu höfum við hér nyrðra látið fram hjá okkur fara, án þess að gefa þvi gaum. En fréttir af þessum átökum berast þó annað veifið hingað, svo að eft- ir verður tekið. Þessi átök eru helzt I Afríku, Asíu og Austurlöndum nær. Þótt þau séu fjarlæg, og i orði kveðnu innbyrðis bræðravig flest hver, þá eru margar þessar skærur Suður-Vietnamskir hermenn i eftirlitsleiðangri. í Indókina eru þrjú strið háð samtimis, og sýnist ekkert lát ætla að verða á. sprottnar upp úr þessari tog- streitu austurs og vesturs, sem oft er kölluð „kalda striðið”. Fimm slik smástrið eru háð i Afriku (og reyndar þykir vera grunnt á þvi sjötta, þar sem eru kynþáttadeilurnar i Suður- Afriku). Þriú eru háð samtimis i Indókina-styrjöldinni i Asiu. Það logar enn allt i bardögum i Viet- nam, Kambodiu og Laos, heilu ári eftir brottför Bandarikjamanna þaðan, og er ekki séð framá, hvenær lát verður á. — Grunnt er á þvi góða milli Suður- og Norður-Kóreu, en ótraust vopnahlé hefur þó haldið friðinn þar nokkurn veginn. — 1 Ind- landsskaga má heita nokkurn veginn tryggur friður, eftir að m Umsjon: Guðmundur Petursson $ Skæruliðar I Norður-Afriku. endi var bundinn á Pakistan- styrjöldina. I Austurlöndum nær hafa menn staðið á öndinni, siðan vopnahlé var gert eftir októberstrið Araba og ísraelsmanna. Nokkurn veg- inn hefur verið saminn friður milli Israelsmanna og Egypta, sem enginn veit þó, hvað endist lengi. En bandamenn Egypta, Sýrlendingar, sem að visu hafa lofað griðum,.hafa hafnað öllum samningagerðum til þessa, með- an ísraelsmenn skila ekki hernumdum landssvæðum. Sifelldar skærur eiga sér stað á landamærum þeirra, og hvern morguninn, sem menn vakna, gæti hafa brotizt út styrjöld .Þetta ófriðarástand fyrir botni Mið- jarðarhafsins hefur nú varað i 26 ár. En ef við h'tum okkur nær, þá er ekki lengra en til trlands að gá. Þar hafa ofstækistrúarmenn haldið Norður-trlandi á barmi borgarastyrialdar um árabil. A Spáni hafa Baskar kynt undir logum kynþáttastriðs, sem ennþá er i formi hryðjuverka og skæru- hernaðar. Lengra I vestur eru skæruliðar friðað land eftir byltingu hersins gegn Allende heitnum. Á Filippseyjum hefur her Marcos forseta átt i strjði við Múhameðstrúarmenn siðustu ár- in vegna landnáms á eyjum, sem Múhameðstrúarmenn höfðu byggt og telja nú frá sér rænt. Þetta hefur verið borgara- styrjöld, þótt Marcos vilji ekki við það kannast opinberlega, meðan hann leitar eftir hagkvæmum samningum um oliukaup við trúbræður uppreisnarmannanna, oliufurstana i Arabalöndunum. Væringarnar á Filippseyjum og smástriðin i Afriku hafa ekki far- ið ýkja hátt. Þó hafa menn veitt samt eftirtekt þeirri baráttu, sem Portúgal hefur háð við Frelimo, eins og skæruliðahreyfing dökkra manna i Mozambique er kölluð eða baráttuna við sjálfstæðis- hreyfinguna i Portúgölsku Guineu. Portúgal, sem er siðasta ný- lenduveldi Evrópu, hefur átt við skæruliða að striða i Guineu siðan 1963, þegar skæruhernaðurinn hófst að fyrirmynd Viet- namstriðsins. Siðan hefur skæru- Þessi mynd var tekin við annað tækifæri af Ussurifljóti, þar sem rúss- neskir hermenn búa sig undir að veita kinverskum fljótafiskimönnum litt mildar móttökur, ef þeir stiga á sovézka grund. Suður-Amerikurikja ýmissa, eins og I Guatemala, Uruguay og sið- ast Argentinu, þar sem borgar- skæruliðar vaða uppi með mannránum. Chile á að heita Tvö stórvcldanna hafa sfðustu árin ögraö hvort öðru — oft á harla ósvifinn liátt. A landamærum Kina og Sovétrikjanna hefur friður þvi verið ótryggur. Þessi mynd er frá Ussuri-fljóti, þar sem Sovétmönnum hefur þótt kínverskir fiskimenn full ágengir. Varðbáturinn á myndinni dælir vatninu yfir bátskænuna. liðum vegnað svo, að þeir telja sig ráða yfir tveim þriðju hlutum nýlendunnar meðan hlutlausir segja það þó ýkt. t þessum skærum gætir tog- streitunnar milli rússneskra kommúnista og kinverskra. Kin- verjar og Rússar hafa keppzt við að vinna hylli Afrikurikjanna jafnharðan, sem þau hafa öðlazt sjálfsstjórn undan nýlenduokinu. Vopn sin hafa sjálfstæðishreyf- ingar þessar fengið frá þeim tveim. Svo er enn um skærulið- ana. Það beinir annars huganum að landamæraskærum Rússa ogKin- verja. Þeir hafa skipzt á skotum, vegið menn úr landamæravörzlu hvors annars og hafa siðustu árin safnað liði að landamærunum og eflt þar varnir sinar. Friöur hef- ur verið þar ótryggur siðan 1969 og á ekki litinn þátt i viðsjám Asiu.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.