Vísir - 13.03.1974, Blaðsíða 16

Vísir - 13.03.1974, Blaðsíða 16
L JL Miðvikudagur 13. marz 1974. „Þórbergur er ekkert fyrir svona logað" — „en dagurinn í gœr var yndisleg. ur", segir Margrét, kona skáldsins sem varð 85 ára í gœr „Þetta var yndislegur dagur hjá okkur i gær. Það kom hingaö fjöldi fólks að heiðra Þórberg og hylla á margvislegan hátt,” sagði frú Margrét Jónsdóttir, eiginkona Þórbergs Þórðar- sonar. „Þórbergur er nú orðinn það fullorðinn, að hann er þreyttur eftir eril gærdagsins. Og ég er þaö reyndar lika. En þetta var afskaplega gaman. Þórbergur hefur aldrei verið neitt fyrir svona lagaö, en það er vist ekki um það að tala núna. Þetta byrjaði með þvi, aö einn bekkur úr Háskólanum kom og hyllti hann i gærmorgun. Þau sungu lag við ljóð eftir Þórberg og færðu honum svo blóm. Svo komu þeir, átta prófessorar úr Háskóianum, og heimsóttu okkur. Færðu Þórbergi um leið skjal, þar sem hann er sagður heiðursdoktor í bókmenntum. Svo var blysförin og það allt — það var fólk hérna langt fram á nótt.” — GG Seig dýpra og dýpra í eðjupyttinn — tveir smóstrókar hœtt komnir er þeir festust í eðju „Þegar ég kom að forarpytt- inum, var sonur minn talsvert langt úti, fastur með annan fót- inn og seig neðar og neðar. Vinur hans þriggja ára, sem var þarna, var einnig fastur, en hann var nær þurru iandi, og tókst okkur að losa hann án mikilla erfiðleika,” sagði Ingibjörg Bjarnadóttir, i viötaii við Visi i morgun. Hún býr við Völvufell, og það var i nálægri eðjutjörn, sem sonur hennar og annar drengur voru hætt komnir, er þeir fest- ust svo rækilega i gær, að þeir gátu sig hvergi hrært. 5 ára gamall sonur Ingibjargar seig sifellt dýpra, þar sem grjót lá á öðrum fætinum á honum. „Ég fór þarna niðureftir, þegar einn kunningja strákanna kom heim, án þess að þeir væru með honum. Hann sagði, að þeir væru fastir i tjörninni. önnur kona fór með mér. Okkur gekk vel að losa þann minni, þar sem við gátum kippt honum upp úr stigvélunum. En það gekk erfiðlegar með son minn. Það var ekki fyrr en hin konan kom með skóflu, að við gátum losað hann. Við urðum fyrst að ná grjótinu ofan af fætinum á hon- um,” sagöi Ingibjörg. Hún sagði, að þetta væri ekki i fyrsta sinn, sem börn lentu i hættu eða vandræðum þarna. Tjörnin er i lægð, sem var grafin til að hægt væri að sturta uppgreftri húsgrunna þar ofan i. Fyrr i vetur var mikið vatn i henni, og sóttu krakkar þangað til leikja á flekum og öðru þess háttar. En seinustu vikurnar hefur mikil eðja myndazt i tjörninni „Krakkarnir hafa sótt mikið i þessa tjörn, og foreldrar hafa kvartað yfir henni við borgina. Fyrir stuttu kom jarðýta til að útbúa afrennslisskurð, en það gekk ekki,” sagöi Ingibjörg að lokum. Gisli Guðmundsson, öryggis- vörður borgarinnar, sagöi i við- tali viö blaðið i morgun, aö búið væri að útvega stóra jarðýtu, og ætti hún að slétta yfir lægðina, þar sem tjörnin myndaöist. En ástæöan fyrir myndun tjarnar- Þetta er forarpytturinn, þar sem strákarnir festu sig i gær. Hann er á flatlendi og þvi erfitt um vik með að ræsa hann fram Ljósm:Bj.Bj. innar væri lltill jarövegshalli og einnig, að vatn hefur ekki sigið niður i jarðveginn vegna klaka i honum. — óH Borhola i Svartsengi —nú er að hefjast handa og leiða jarðhitann til Suðurnesjabúa. Þeir fó hitaveitu ó Suðurnesjum: Grindavík í ór, hinir á nœstu tveimur Frá Svartsengi við Grindavik á hann að koma, jarðhitinn sem notaður verður til að hita með hús á Suður- nesjum. Áætlað er, að hitaveita komist til Grindvikinga seinna á þessu ári. Á næsta ári, 1975, eiga Keflvikingar og Njarðvikingar að fá hitann inn i sin hús, og 1976 bætast þeir i hópinn, ibúar i Sand- gerði og Garði. Eirikur Alexandersson, sveitarstjóri Grindavíkur, tjáði Visi, að unnið væri nú að undir- búningi útboða og hönnunar.og stæði til að byrja i Grindavik i sumar. Ekki er enn annað að sjá en upphafleg áætlun muni standast, einkum vegna þess, að vinna sér- fræðinga Orkustofnunar i Svarts- engi hefur gengið mjög vel. Þeir hafa fundið aðferð til að flytja hita úr þeim heita sjó, sem spýtist nú út i loftið i Svartsengi yfir i ferskt vatn. —GG Bílasalan: Danir óttuðust sölu- tregðu — bílarnir fóru til Islands „Nú erum við aö setja á göt- una Mini-bila, sem áttu að fara á markaðinn I Danmörku. Umboðið þar afþakkaði þá af ótta við að bilasalan mundi stöðvazt vegna oliukreppunnar. Hér voru langir biðlistar eftir Mini-bilum og þvi voru þeir sendir hingað,” sagði Sigfús Sigfússon, forstjóri hjá P. Stefánsson h.f. i viðtali við VIsi i morgun. „Framleiðendur Austin-Mini treystu sér upphaflega ekki til að lofa hingað meira en 100 bil um á árinu, en á tveim fyrstu mánuðum ársins hefur okkur þó tekizt að ná hingað 255 bilum þeirrar tegundar aö meðtöldum bilunum, sem áttu að fara til Danmerkur,” hélt Sigfús áfram. Hann upplýsti jafnframt, að núna væri 41 bill á leiðinni til viðbótar. Þeir eru allir seldir og biðlistar i þarnæstu sendingu. „Við eigum sömuleiðis von á sendingum annarra Ley- land-bila,” sagði Sigfús næst. „Það eru Morris Mini, Land Rover og Range Rover. Þegar þessar sendingar eru allar komnar, höfum við fengið hingað samtals 447 Leyland-bila frá þvi bara um áramót. Það er þó hvergi nærri til að sinna eftirspurninni.” Sagði Sigfús, að nú væri svo komið að það væri hálfs árs bið eftir Land-Rover og tveggja ára bið eftir Range-Rover. Eftirspurnin væri svo mikil, að verksmiðjurnar hefðu ekki und- an. „Þeir eru geysilega margir, sem ekki hafa biðlund og snúa sérað næsta bilaumboði, ef ekki er hægt að fá bilinn strax á götuna,” sagði Sigfús. „Við höfum sé á eftir æði mörgum af þeim sökum,” bætti hann við. — ÞJM

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.