Vísir - 16.03.1974, Side 5

Vísir - 16.03.1974, Side 5
Visir. Laugardagur 16. marz 1974, 5 AP/NTB ÚTLÖNDI MORGUN UTLOND I MORGUN UTLÖND Umsjón: BB/GP Konung- legir áhorf- endur Norska kóngafólkið hefur mikinn áhuga á skiðaiþróttinni eins og öðrum iþróttum. Hér sést Ólafur Noregskonungur ásamt Sonju prinsessu fylgjast með skiðamóti á Holmenkollen. Með þeim eru konunglegir gest- ir frá Hollandi: Beatrix erfða- prinsessa og Claus von Amsberg, maður hennar. Þau eru til hægri á myndinni. Heljorstökk Ofurhuginu Dar Robinson sést hér stökkva ofan af 6 hæöa húsi i New York. Hann er að reyna nýja öryggisdýnu, sem slökkvilið borgarinnar gerir nú tilraunir með. Sifellt berast fréttir af þvt, að fólk farist i eldsvoðum eða vegna þeirra, þegar það stekkur út úr háhýsum. Þessi öryggisdýna á að gera manni kleift að stökkva ofan af 10. hæð og ganga óslasaður af vettvangi. Ósammála Þeir leiðtogarnir, Leonid Brezhnev og George Pompidou, Frakklandsforseti, áttu fund saman á Krim- skaga við Svartahaf núna i vikunni. Var þessi mynd tekin af þeim saman við það tækifæri. Vel fór á með þeim i upphafi, en ekki fékk Brezhnev talið Pompidou á sitt mál, þegar hann stakk upp á hátiðarfundi leiðtoga Evrópurikjanna að lok- inni öryggisráðstefnu. FYRSTA LENDING Stærsti flugvöllur Evrópu var tekinn i notkun á miðvikudag, þegar Boeing 747 risaþota frá TWA lenti á Charles de Gaulle flugvelli við Paris. Ahöfninni var fagnað af starfsstúlkum valiarins, sem sjást hér halda á spjöldum, sem sýna upphafs- stafi John Fitzgeraid Kennedy flugvallar I New York, en þaðan kom fyrsta flugvélin, og Charles de Gaulle vallar. Talið er, að það hafi kostað TWA um 2 milljónir dollara eða tæpar 200 milljónir islenzkra króna að flytja starfsemi sina og 500 starfsmenn frá Orly flug- velli til nýja vallarins. Fyrst um sinn er áætlað, að 27.000 manns fari um Charles de Gaulle völl daglega og þar lendi og fari á loft 130 flugvélar.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.