Tíminn - 25.01.1966, Blaðsíða 12

Tíminn - 25.01.1966, Blaðsíða 12
12 ÍÞRÓTTIR TÍMINN ÞRIÐJUDAGUR 25. janúar 1966 Þorbergur sigr- aði ó ÍR-iuótinu Norðmaður- urinn hlaut 7 daga bann Norski knattspyrnumaSurinn Roald „Kniksen“ Jensen, sem leik ur með skozka 1. deildar liðinu Hearts, var í gær dæmdur í sjö daga keppnisbann af dómstóli skozka knattspyrnusambandsins. Roald Jensen hefur hegðaii scr fremur illa á leikvelli að undan förnu og hvað eftir annað lent í sennu við dómara, sem þrívegis hafa gefið honum áminningar. Þrátt i^rir mikinn kulda var margt fólk á skíðum i nágrenni Reykjavíkur um heigina. Skíðadeild ÍR gekkst fyrir innanfélagsmóti við skíðaskála sinn í Hamragili, og sigraði Þorbergur Eysteins son í svigkeppninni, hlaut samanlagðan tíma 55.2 sek. en hlið voru 30 í öðru sæti varð Guðni Sigfús son, í þriðja sæti Haraldur Páls son og fjórði Þórir Lárusson. Fær ið var sæmilegt, en kuldinn setti svip sinn á keppnina. Var frostið um 20 stig. Margt fólk var við skíðaskála Þorbergur Eysteinsson KR á sunnudaginn, en þar var skíðafæri gott. Sömu sögu var að segja í Jósefsdal við skíðaskála Ármatms,. Þar var allmargt fólk við skíðaiðkanir um helgina. Jón Þ. stökk 2.05 m. á innanfélagsmóti ÍR - glímir við heimsmetið í hástö án atrennu á ÍR-mói n.k. laugardag Ákvörðun skólastjórans raskar fslandsmótinu Alf-Reykjavík, mánudag. Fresta vaið nokkrum leikj- um í íslandsmótinu í hand- knattleik um helgina, þar sem Vestmannaeyja-liðin gátu ekki mætt til leiks í kvennaflokki. Ástæðan fyrir því, að Vest- mannaeyjastúlkurnar gátu ekki mætt, var sú, að skólastjóri Gagnfræðaskóla Vestmanna- eyja synjaði þeim um leyfi frá shólanum, en í þessari viku eiga þær að ganga undir próf. Leikskráin mun hafa borizt Framhald á 6. síðu. Innanfélagsmót í frjálsíþrótt- um var haldið í f.R. húsinu 22. jan. sl. Keppt var í hástökki með atrennu og larigstökki án at- rennu og enn sem fyrr á innan- félagsmótum f.R. undanfarið, var Jón Þ. Ólafsson í sérflokki, og sigraði í báðum greinum. Stökk hann 2,05 m í hástökki, með atrennu, sem er prýðisárang- ur. Jón er orðinn nokkuð örugg- ur að stökkva 2,03—2,05 . og er það mest að þakka geysiöflugu uppstökki, en hann hefur ekki góðan stíl yfir ránni. Hinn nýi þjálfari f.R.inga, Jó- hannes Sæmundsson, segir, að ekki sé til of mikils ætlazt, að hann nái 2,15 m. með betri stíl en þá verður hann að leggja mjög hart að sér við æfingar. Árangur annarra keppenda var ekki góður í hástökkinu, en í langstökki var keppnin mjög jöfn milli 2.3. og 4. manns, og árangur með sæmilegur, en Jón sigraði 3,31 m stökki. Þeir fyrstu í hástökkinu urða þessir: 1. Jón Ólafsson, Í.R. 2,05 m, 2. Bergþór Halldórsson, HSK. 1,70 m, 3. Páll Dagbjartsson, HSÞ. 1,60 m, Fimm fyrstu í langstökk inu urðu þessir: 1. Jón Þ. Ólafsson, Í.R. 3,31 m, 2. Ólafur Ottósson, Í.R. 3,02 m, 3. Bergþór Halldórsson, HSK. 2,99 m, 4. Þórarinn Amórsson, Í.R. 2,96 m, 5. Ólafur Unnsteinsson, HSK. 2,85 m. Næsta laugardag verður svo síðasta innanfélagsmótið, af þeim sem auglýst hafa verið hjá Í.R. Verður þá keppt í þrístökki án atrennu og hástökki án atrennu, og verður gaman að sjá, hvernig Jóni gengur að glíma við heims- metið í hástökki án atrennu. 7. umferð Vasjúkof—Böök 1—0 Friðrik—0‘Kelly Vz—Vi Björn—Guðmundur %—Vi Jón Kr. — Guðm. Sig Vz—Vi Freysteinn — Kieninger bið Jón Hálfdánars. — Wade 0—1 Með sigri sínum yfir Böök í þess ari umferð tókst Vasjúkof að brúa bilið, sem var á milli hans og Frið riks. Nú eru einungis fjórar um- ferðir til loka mótsins og verða úrslitin vart ráðin fyrr en í tveiim ur síðustu umferðunum. Vasjúkof — Böök. Vasjúkof beitti hægfara uppbyggingu spánska leiksins og Böök virtist ekki almennilega vita hvernig hann ætti að bregðast við. Hann fylkti meginhluta liðs síns til sóknar á drottningarvængnum, en skildi kóngsvænginn eftir óvarðan. Með samræmdum aðgerðum á báðum vængjum tókst Vasjúkof að notfæra sér liðsfæð andstæðings ins kóngsmegin, og skapa sér hættuleg sóknarfæri. Böök var ekki nógu fljótur að koma liði til varnar og Vasjúkof batt enda á skákina með snaggaralegri manns fórn. Mát var þá óverjandi. Friðrik—0‘Kelly. Friðrik fékk liðlegri stöðu upp úr byrjuninni og blés til atlögu á kóngsvængnum. Hann eyddi miklum tíma í sókn araðgerðimar, en tókst ekki að finna neinn snöggan blett h and stæðingi sínum. í 22. leik bauð Friðrik jafntefli og þáði 0‘Kelly það, enda átti Friðrik þá kost, á þrátefli. Staðan var þá að vísu hagstæðari fyrir Friðrik, en tím inn orðinn það naumur, að frekari taflmennska hefði getað orðið örlagarík. Björn—Guðmundur Pálmason. Tefld var Sikileyjarvörn og hóf Björn mikla peðasókn á kóngs- vængnum þegar í 9. leik. Guðmund ur svaraði þessu með að hrókera á hinum vængnum og fór þá allur broddurinn úr kóngssókn Björns. Guðmundur virtist ná betri stöðu í flækjum miðtaflsins, en staðan var vantefld og krafðist mikillar umhugsunar. Fór svo að báðir lentu í tímahraki. f tíma hrakinu vænkaðist talsvert hagur Björns og virtist hann standa betur i biðstöðunni, en Guðmund ur sýndi fram á, þegar tekið var við skákina að nýju, að hann átti örugga jafnteflisleið. Jón Kristinsson — Guðmundur Sigurjónsson. Skák þessi var tíð indalaus lengi framan af, enda virtist hvorugur teflenda hafa á- huga á að stofna til beinna átaka. Úr þessu rættist þó, þegar Jón lagði til atlögu á miðborðinu, en Guðmundur svaraði henni með gagnárás á kóngsvængnum. Mögu leikar beggja virtust vega nokkuð jafnt í sviftingunum, sem á eftir fylgdu, en jafnvægi raskaðist. þeg ar Guðmundur fórnaði manni á allvafasaman hátt. Með tilliti til hinnar slæmu stöðu Guðmundar í mótinu er skiljanlegt, að hann skuli vilja knýja fram hrein úr- slit í skákinni, en fórnin stóðst ekki og Guðmundur fékk tapað tafl. Skákin fór að vísu tvis^ar í bið vegna harðskeyttrar móttöðu Guðmundur en Jóni tókst að knýja fram vinning að síðustu. Freysteinn — Kieninger. Frey- steinn fákk strax í upphafi mun rýmri stöðu, en engir vevkleikar voru í stöðu Kieningers og því erfitt fyrir Freystein að færa sér yfirburði sína í nyt. f miðtaflinu tók hann þá ákvörðun að opna línu í miðtaflinu, en þessi ákvörðun reyndist ekki vel og Kieningar náði góðum tökum á taflinu. Þeg ar Kieninger var um það bil að ná frumkvæðinu varð honum á sú meinlega skyssa, að láta Frey stein loka inni fyrir sér hrók og eft ir það má raunverulega segja, að hann hafi teflt með manni minna. Það var Kieninger hins vegar til bjargar, að staðan var mjög lok uð og ekki auðvelt fyrir Freystein að notfæra sér innilokunina. Þeg ar þesar línur eru ritaðar hafa ver ið tefldir rúmlega 100 leikir í skákinni, en ekki hefur Frey- steini enn tekizt að knýja fram úrslit sér í hag, og óvíst að svo verði. Jón Hálfdánars. — Wade Jón fékk betra tafl strax í upphafi og tókst fljótlega að vinna peð, en Wade fékk í staðinn nokkrar sóknarhorf ur á kóngsvængnum. Með lagni hefði Jón átt að geta staðið af sér sóknaraðgerðir Wade, og síðan fært sér peð sitt í nyt, en honum fataðist vörnin og Wade náði af- gerandi sókn. Varð Jón að gefast upp í 33. leik. 8. umferð 0‘Kelly — Vasjúkof %—Vi Björn — Friðrik 0—1 Guðm. Pálmas. — Wade 1—0 Böök — Jón Kristinss. %—Vz Guðm. Sig. — Freysteinn 0—1 Kieninger — Jón Hálfd. bið Friðrik sigraði Björn i þessari umferð og náði aftur hálfs vinn ings forskoti, þar eð Vasjúkof og 0‘ Kelly gerðu jafntefli. Guð mundur Pálmason seig mjög á 0‘Kelly með sigri sínum yfir Wade O'Kelly — Vasjúkof. Vasjúkof svaraði drottningarpeðsbyrjun 0‘ Kelly með kóngs- indverskri vörn og beitti þar þeim aðferðum, sem nýjustu rannsóknir telja vænleg astar fyrir svart Náði hann frjáls legri stöðu upp úr byrjuninni og virtist um skeið hafa góða mögu leika á að valda 0‘ Kelly nokkrum búsifjum. en 0‘Kellv tefldi af ná- kvæmni og tókst að tryggja stöðu sína. Þegar Vasjúkof sá, að hann myndi ekki komast neitt áleiðis bauð hann jafntefli sem O'Kelly þáði. Björn — Friðrik. Tefld var Sik- ileyjarvörn og hrókeruðu báðir langt. Drottningarkaup urðu snemma í taflinu og var það fyrst og fremst Friðriki í hag, því menn hans voru allir betur staðsettir en þeir hvítu. Verkefni hans var þó engan veginn einfalt, því að hvíta staðan var traust og án veikleika. Með peðasókn á kóngsvængnum tókst Friðriki að opna nokkuð stöðuna sér í hag og náði síðan yfirburðastöðu eftir að Birni hafði yfirsézt bezta varnarleiðin. Biskup Björns lokaðist inni í öðru horn inu og voru þá úrslitin ráðin. Björn féll á tíma í 33. leik. Guðmundur Sigurjónsson - Frey steinn Tefld var frönsk vörn og fórnaði Guðmundur peði í byrjun inni til að skapa sér sóknarfæri. Ekki tókst Guðmundi að færa sér i nyt stöðu sína og náði Freyst. að síðustu undirtökunum. í miklu tímahraki lék Guðmundur svo af sér drottningunni, en staða hans var bá sennilega töpuð. Guðmundur Pálmason — Wade. Byrjunartaflmennska Wade í þess ari skák var ekki sérlega traust vekjandi, enda náði Guðmundur fljótlega mun betri stöðu. Hann jók yfirburði sína hægt og sígandi og lagði að síðustu til sóknar á miðborðinu eftir vandlegan undir- búning. Þesa atlögu tókst Wade ekki að standa af sér og var kom inn með tapað endatafl, þegar fram í biðskák var komið. Guð mundur sigraði svo örugglega. Böök — Jón Kristinsson. Byrjun in var óregluleg og snemma í tafl inu opnaðist miðborðslína og eft- ir henni skiptist upp á drottning um og hrókum og var staðan eft- ir það svo jafnteflisleg, að hvor ugur keppenda áræddi að tefla til vinnings, og sömdu því jafntefli. Kieninger — Jón Hálfdánarson. Tefld var gamalkunn byrjun, sem er ekki mikið notuð nú á dögum, en bersýnilega á vel við Kieninger. Mikið var um þóf í skákinni og virtist hvorugur komast neitt á- leiðis, þar til Jón að síðustu tók af skarið og lagði til atlögu á miðborðinu. Hann náði nokkurri 9Ókn og tókst að koma frípeði nið ur til e3 og í biðstöðunni virðist hann standa betur að vígi, en ekki er gott að sjá hvort honum tekst að brjóta niður varnarmúra hvíta taflsins. Staðan eftir þessar 8 umferðir er þannig: 1. Friðrik 7v. 2. Vasjúkof 6% v. 3. 0‘Kelly 5% v. 4. Guðmundur P. 5 v. 5. Freysteinn 4 og biðsk. 6. Jón Kr. 4 v. 7. Böök 3Vz v. 8. Kieninger 3 og 2 biðsk. 9. Björn 3 v. 10. Wade ZV2 11. Guðm. Sig. IV2 v. 12. Tón Hálfd V, na hi»ct

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.