Vísir - 11.05.1974, Side 4

Vísir - 11.05.1974, Side 4
4 Visir. Laugardagur 11. mai 1974. Fasteignin Sóleyjargata 25 Óskað er eftir tilboðum i fasteignina Sóleyjargötu 25, Reykjavik. Tilboð er greini verð, útborgun og greiðsluskilmála z sendist Stefáni Péturssyni hrl. i lög- fræðingadeild bankans, og gefur hann all- ar nánari upplýsingar. Tilboðsfrestur er til 20. mai n.k. Landsbanki íslands. Akranes - Akranes Stangveiðimenn Flugukastæfing verður sunnudaginn 12. mai kl. 2.30. Mætið við íþróttahúsið að Laugarborg. Hafið stangir með. Kast- menn Stangveiðifélags Akraness. Tvœr afgreiðslustúlkur óskast Tvær hálfsdags stúlkur, ekki yngri en 25 ára, geta fengið framtiðarvinnu í Gjafa- húsinu, Skólavörðustig 8. Uppl. kl. 12-3 á Laugavegi 11, efstu hæð. Uppl. ekki gefnar i sima. Orðsending um lóðaúthlutun í Mosfellssveit Nokkrum byggingalóðum verður úthlutað nú i vor. Umsóknir verða að hafa borizt 21. mai á eyðublöðum, sem skrifstofan lætur i té. Athugið, að eldri umsóknir þarf að endurnýja. Sveitarstjórinn i Mosfellshreppi. Keflavík - Innheimtustjóri Staða innheimtustjóra hjá Keflavikur- kaupstað er laus til umsóknar. Laun sam- kvæmt kjarasamningum starfsmanna bæjarins. Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 21. mai n.k. Umsóknir sendist undirrituðum, sem veitir allar nánari upplýsingar. Bæjarstjórinn i Keflavik. Sumarbústaður til leigu I skóglendi við stöðuvatn, 45 min. akstur frá Reykjavik. Rúmgóður, i góðu ástandi, oliukynding, gas og vatn i hús- inu. Leigist i 1-2 ár. Fyrirsp. og tilboð sendist blaðinu merkt ,,56” fyrir 18. mai. Mólning Tilboð óskast i utanhússmálningu á blokk við Kaplaskjólsveg. Uppl. i sima 26808 og 10983 eftir kl. 18. Lokadagur Myndin hér var tekin af æfingu björgunarsveitarmanna við flutning á slösuðum ofan úr snjó- auðnum óbyggða, en hún minnir á, að til þess að halda uppi slikri Lækkunin breytti öllu til hins verra Unglingum verður ekki treyst fyrir áfengi, það virðist reynsla Kanadamanna sanna. A miðju ári 1971 var aldur til kaupa á áfengi lækkaður viða i Kanada i 19 ár, annars staðar i 18 ár. t frétt frá Áfengisvarnaráði segir, að af- leiðingarnar hafi verið rann- sakaðar að nokkru leyti, og ekki eru niðurstöðurnar fallegar: Niu sinnum fleiri ungmenni voru tek- in vegna ölvunar við akstur árið 1972 en 1970. Umferðarslysum, þar sem unglingar áttu hlut að máli, fjölgaði úr 179 i 457. Það þótti sannað, að ungmenni á aldrinum 15-17 ára hefðu nú greiðari aðgang að áfengi en fyrr. Fleiri unglingar drukku mikið og þurftu aðstoðar við. Ekki bara bilavarahlutir... Þarfasti þjónn siöustu aldar, hesturinn, er siður en svo aflagð- ur, þrátt fyrir bilinn. Stöðugt eykst hestamennskan, og svo er komið, að flytja þarf inn ýmislegt fleira en bilavarahluti, t.d. hringamél, istöð og hnakka ásamt tilheyrandi. Segir i Sam- bandsfréttum, að innkaupadeild- in kynni nú þessa vöru fyrir sölu- stjórum viðsvegar að af landinu. 1 Reykjavik einni eru nú rösklega 2500 hestar. Ahuginn á hestinum leynir sér þvi ekki. björgunarstarfsemi er ekki nóg, að mennirnir, sem að þeim vinna, eru haldnir eldmóði og áhuga. Fleira þarf til, eins og fjármagn til tækjakaupa og nauðsynlegs út- búnaðar. Lokadagur vertiðarinnar, 11. maí, sem er einmitt i dag, er al- mennur fjáröílunardagur Slysa- varnafélags tslands. Þá verða merki félagsins seld um land allt. Menn mættu vel minnast þess, þegar merkjasölubörn SVFl berja að dyrum hjá þeim, hvert starf félagið vinnur, og taka börn- unum vel.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.