Vísir - 11.05.1974, Blaðsíða 6
6
Vfsir. Laugardagur II. maf 1974.
VÍSIR
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
Fréttastjóri:
Ritstjórnarfulltrúi:
fréttastj. erl. frétta:
Auglýsingastjóri:
Auglýsingar:
Afgreiösla:
Ritstjórn:
Reykjaprent hf.
Sveinn R. Eyjólfsson
Jónas Kristjánsson
Jón Birgir Pétursson
Haukur Helgason
Björn Bjarnason
Skúli G. Jóhannesson
Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611
Hverfisgötu 32. Simi 86611
Siðumúla 14. Simi 86611. 7 línur
Askriftargjald 600 kr. á mánuöi innanlands.
1 lausasölu 35 kr. eintakiö.
Blaöaprent hf.
Andstæðurnar miklu
Reykvikingum og ibúum annarra byggða, sem
hafa meirihlutastjórn sjálfstæðismanna, er nú
boðið upp á vinstri stjórn sem oftar áður. í
Reykjavik hafa vinstri flokkarnir komið sér sam-
an um málefnaskrá og sækja sameiginlega gegn
þessu trausta virki sjálfstæðismanna. Eru flestir
sammála um, að mjög tvisýnar borgarstjórnar-
kosningar séu framundan i Reykjavik.
En reynslan sýnir, að vinstri flokkunum nægir
ekki að gera með sér sáttmála um samstarf.
Sundurþykkjan er svo mikil meðal forustumann-
anna, að þeir geta ekki unnið saman til lengdar.
Þetta sýna dæmin frá siðustu tveimur rikis-
stjórnum vinstri flokkanna. Vinstri
stjórnin árin 1956-1959 lifði með
harmkvælum i hálft þriðja ár, og nú-
verandi vinstri stjórn er að flestu
leyti endurtekning hinnar fyrri.
Munurinn er helzt sá, að núverandi
vinstri stjórn hefur tekizt að fram-
lengja dauðastrið sitt um hálft ár um
fram hina fyrri. Hún er búin að vera án meiri-
hluta á alþingi siðan fyrir áramót, og þessa sið-
ustu daga hefur hún verið i minnihluta. Fyrst
hljóp Bjarni Guðnason frá samstarfinu og siðan
flokkur Hannibalista, að Magnúsi Torfa frátöld-
Góö stjórn
um.
Allt þetta stutta æviskeið hefur ekki gengið á
öðruenerjum innan rikisstjórnarinnar. Ráðherr-
arnir hafa verið skjótir til að reka
hnifinn i bak hvers annars og bera
heimilisböl sitt á torg. Á meðan hefur
landsstjórnin verið látin reka á
reiðanum með þeim herfilegu
afleiðingum, sem nú eru öllum kunn-
ar.
óstjórn Menn geta gert sér i hugarlund,
hvernig ástandið yrði i Reykjavik, ef vinstri
borgarstjórn kæmist til valda. Fjáraustur og
fjármálaóreiða mundu halda innreið sina, ásamt
aukinni skriffinnsku og stefnuleysi i framkvæmd-
um.
Meirihluti sjálfstæðismanna i borgarstjórn er
vissulega búinn að sitja mjög lengi að völdum. En
mikil endurnýjun verður á borgarfulltrúum
þeirra að þessu sinni. Af átta efstu mönnum
framboðslista sjálfstæðismanna eru fjórir nýir.
Og Reykvikingar hafa fengið nýjan borgarstjóra,
sem hefur farið prýðilega af stað og Reykviking-
ar vilja gjarnan láta spreyta sig áfram.
Þeir, sem vilja endurnýjun i borgarstjórn
Reykjavikur, þurfa þvi ekki að kalla yfir sig neitt
vinstra slys. Þeir hafa endurnýjunina hjá Sjálf-
stæðisflokknum og spara sér jafnframt alla
áhættu. Þeir vita, að þar hafa þeir saman reynslu
og áræði, festu og framtak. Þeir muna eftir hita-
veitunni og malbikunarátakinu og vita, að
áætlunin um útivist og umhverfi muni lánast jafn
vel.
Áætlunin um græna Reykjavik er raunhæf
framkvæmdaáætlun, sem er borginni ekki fjár-
hagslega ofviða. Framkvæmd þessarar djörfu
áætlunar mun gerbreyta svip Reykjavikur á
næstu árum. Það er mikilvægt, að þessi fram-
kvæmd takist sem bezt. öruggasta leiðin til þess
er að tryggja framhald meirihluta sjálfstæðis-
manna i Reykjavik.
Hin farsæla stjórn Reykjavikurborgar er skin-
andi andstæða ringulreiðar og innri úlfúðar
vinstri rikisstjórnarinnar. _JK
Minnihlutastjórn
sviptir alþingi
umboði þess
— fer ein með öll völd í landinu til kjördags 30. ]úní
Hér verður stiklað á stóru og getið helztu at-
burðanna á siðustu 13 dögunum, sem alþingi
starfaði, áður en minnihlutastjórn ólafs Jó-
hannessonar rauf þing og svipti alþingismenn
umboði sinu.
Þessi mynd var tekin viö lok fundar f neöri deifd afþingis, þegar Gils
Guömundsson, forseti deildarinnar, flutti Eysteini Jónssyni sérstakar
kveöjur. Eysteinn hverfur nú af þingi eftir aö hafa setiö 41 þing. Hann
ætlar ekki aö gefa kost á sér f kosningunum 30. júnf. Meö Eysteini á
myndinni er Matthias A. Mathiesen. Ljósm. Bj. Bj.
26. april:
Ölafur Jóhannesson forsætis-
ráöherra flytur ræöu á miöstjórn-
arfundi Framsóknarflokksins,
sem hefst þennan dag. í ræöunni
gerir hann grein fyrir hugmynd-
um sinum um lausn efnahags-
vandans. Hann segir, aö þessar
hugmyndir hafi hann fyrst kynnt I
rlkisstjórninni 18. marz og þar sé
samstaöa um, aö eitthvaö þurfi
aö gera. Stjórnarflokkarnir eru
ekki sammála um lausn efna-
hagsvandans. Segir Ólafur, aö
flokkur sinn eigi að leggja fram
tillögurnar einn, ef ekki fáist
samstaöa um það, en ákvöröun
um þetta verði tekin á miöstjórn-
arfundinum. Þegar forsætisráö-
herra er spurður um þaö i út-
varpi, hvort liklegt sé, að þingrof
veröi telur hann það óliklegt. Hins
vegar gefur hann i skyn, aö ef til
vill verði kosningar næsta haust.
Aö kvöldi þessa dags eru
umræður formanna þingflokk-
anna urn efnahagsmálin og
stjórnmálaviðhorfið i sjónvarps-
sal. í þættinum eru menn spurðir
um það, hvort kjósa eigi strax.
Hannibal Valdimarsson telur þaö
algjört ábyrgöarleysi að efna til
kosninga, sem gætu ekki fariö
fram fyrr en i júli, eftir aö hol-
skefla verðbólgunnar heföi skolliö
yfir. 1 stað þess veröi aö mynda
nýja stjórn, ef þessi fellur, gera
efnahagsráðstafanir og efna siö-
an til kosninga. Ragnar Arnalds
telur aö efna eigi til kosninga, ef
stjórnin fellur. Gunnar Thorodd-
sen segir, að allar likur séu fyrir
þvi, aö stjórnin falli. Allir séu
sammála um, að kosiö sé á þessu
ári i byrjun júli, I september eöa
október. Hvenær sem kosið er, þá
veröi aö leysa efnahagsvandann.
Strax við fall stjórnarinnar verö-
ur aö mynda stjórn, segir hann, —
utanþingsstjórn óæskileg, meiri-
hlutastjórn æskilegri en minni-
hlutastjórn. Hannibal Valdimars-
son segir, aö flokkur sinn hafi
gert tillögur til breytinga á tillög-
um forsætisráöherra um efna-
hagsvandann. Meginbreytingin
sé um þaö, aö leitaö veröi sam-
ráös viö aöila vinnumarkaöarins,
áöur en tillögurnar séu lagðar
fram. Bjarni Guönason telur
nauðsynlegt að ganga til kosn-
inga. bórarinn Þórarinsson telur
það geta fariö saman, aö sam,-
þykkja frumvarp rikisstjórnar-
innar og ganga til kosninga,
stjórnin fellur ekki nema hún fái
vantraust eða geri efnahags-
frumvarpiö aö fráfararatriöi.
Gylfi b. Gislason vill kosningar
strax.
29. april:
Magnús Kjartansson lýsir þvi
yfir I útvarpi aö allir stjórnar-
flokkarnir séu sammála um
heimild til forsætisráöherra til
þingrofs og kosninga i haust.
30. april:
Hannibal Valdimarsson segir
ummæli Magnúsar Kjartansson-
ar frá deginum áöur um þingrof
röng. ólafur Jóhannesson segir,
að Magnús Kjartansson hafi ekk-
ert umboð haft til aö skýra frá
niöurstöðu stjórnarflokkanna um
þingrof, engu siður sé rétt skýrt
frá.
2. mai:
Frumvarp rikisstjórnarinnar
um viönám gegn verðbólgu lagt
fram á alþingi. 1 greinargerð er
tekið fram, að stjórnarflokkarnir
séu óbundnir af einstökum atrið-
um. útvarpsumræöur um kvöld-
iö. Hannibal Valdimarsson lýsir
þvi yfir, að Björn Jónsson sé and-
vigur þvi aö frumvarpiö sé flutt
og þaö sé þvi ekki gert i hans
nafni.
3. mai:
Ólafur Jóhannesson fylgir efna-
hagsfrumvarpinu úr hlaöi I neöri
deild alþingis. Segir, að þeir ráð-
herrar, sem á siöustu stundu hafi
breyttum skoðun I svo mikilvægu
máli, hafi aðeins eitt úrræöi. Ráö-
gert aö ljúka 1. umræöu þennan
dag og afgreiöa máliö til nefndar.
1 ræöu Gylfa Þ. Gislasonar um
kvöldiö kemur fram, aö Alþýöu-
flokkurinn muni beita sér gegn
þvi, að frumvarpiö komist til
nefndar og fella þaö strax viö 1.
umræðu. Eftir þessa ræöu stend-
ur forsætisráöherra upp og boðar
frestun umræöunnar fram yfir
helgina, það er til mánudagsins 6.
mai. Kom þetta mjög á óvart.
4. mai:
Björn Jónsson tilkynnir afsögn
sina, bæöi vegna þess að efna-
hagsfrumvarpiö var lagt fram og
einnig vegna ummæla forsætis-
ráöherra I þingræðu. Segir hann i
sjónvarpi, aö Norölendingar séu
þannig skapi farnir, aö þeir láti
ekki sparka I sig tvisvar. Björn
Jónsson og Hannibal Valdimars-
son gefa báöir til kynna, aö Birni
hafi ekki veriö kunnugt um vUja
forsætisráöherra um aö hann
hætti i stjórninni, fyrr en þaö kom
fram á alþingi.
6. mai:
A mánudeginum eru boðaöir
fundir I báöum deildum alþingis.
begar þeir hafa staöiö I rúml.
tuttugu mínútur, er kallaður
saman fundur I sameinuöu þingi.
Hannibal Valdimarsson tekur til
máls utan dagskrár. Hann vitnar
i ræöu ólafs Jóhannessonar frá 3.
mai, þar sem hann hefði sagt, aö
Björn Jónsson ætti ekki nema eitt
úrræöi, sem af öllum heföi veriö
skilið svo, aö hann ætti aö segja af
sér. Þessi boö hafi forsætisráð-
herra látiö berast Ul Björns á
sjúkrabeöi i gegnum fjölmiöla og
ekki haft fyrir þvi aö tilkynna
honum þaö á annan hátt.
Hannibal segir, aö þá um morg-
uninn hafi þingflokkur Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna
komið saman og samþykkt meö 3
atkv. gegn 1 (Magnús Torfi
Ólafsson) aö slita stjórnarsam-