Vísir - 11.05.1974, Blaðsíða 7

Vísir - 11.05.1974, Blaðsíða 7
Vísir. Laugardagur 11. mai 1974. 7 Frá alþingi mánudaginn 6. mai. Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra tekur sér smáhvfld eftir aö hafa lýst þvíyfir, aö stjórn sín eigi tveggja kosta völ: segja af sér eöa rjúfa þing. A myndinni meö Ólafi eru þeir Bjarni Guönason og Garöar Sigurösson. Ljósm. B.G. starfinu. Vill Hannibal, aö for- sætisráðherra biðjist lausnar og mynduð verði stjórn, sem geti tekið á efnahagsvandanum. Mótmælir hann þingrofi. Magnús Torfi Ólafsson segist hafa fellt niður störf I þingflokki SFV og muni sitja áfram i stjórninni. Ólafur Jóhannesson segir rikis- stjórnina standa frammi fyrir þvi, að hún hafi ekki meirihluta á alþingi. Hún hafi um það að velja að rjúfa þing og efna til kosninga eða biðjast lausnar án ástæðu- lausrar tafar. Geir Hallgrimsson segir, að rikisstjórnin sé ekki lengur þingræðisstjórn. Sjálf- stæöisflokkurinn muni flytja van- traust á hana og efna beri til kosninga svo fljótt sem kostur er og allar aðstæöur leyfa. Ragnar Arnalds telur að rjúfa eigi þing og efna til nýrra kosninga, en minni- hlutastjórn stjórnarflokkanna sitji fram að konsingum. Gylfi Þ. Gislason segir, að rikisstjórnin eigi að segja af sér og efnt skuli til kosninga svo fljótt sem kostur er. 7. mai: Formenn stjórnmálaflokkanna koma saman til viðræðna i sjónvarpssal. Ólafur Jóhannes- son segist ekki skýra frá þvi hvorn kostinn hann hafi valið — að rjúfa þing eða segja af sér. Enginn nema Hannibal Valdi- marsson dregur stjórnskipulega heimild forsætisráðherra til þing- rofs I efa. Geir Hallgrimsson og Gylfi Þ. Gislason segja, að stjórn- in eigi að biðjast lausnar, leita eigi samstöðu gegn efnahags- vandanum og efna fljótlfga til kosninga. Um kvöldið flytja þeir Geir Hallgrimsson, Gylfi Þ. Gislason og Hannibal Valdimars- son þingsályktunartillögu um vantraust á rikisstjórnina. 8. mai: I upphafi fundar I neðri deild alþingis spyr Gylfi Þ. Gislason um það utan dagskrár, hvort for- sætisráðherra hafi I hyggju að rjúfa þing á þann veg, að umboð alþingismanna falli niður frá og með þingslitadegi eða hvort umboðiö eigi að falla niður frá og með kjördegi. Ólafur Jóhannes- son svarar þessu ekki, en segir, ef rikisstjórn þarf ,,að losa sig við þingið strax” þá sé þaö rofið frá þingslitum en ekki kjördegi. Gylfi mótmælir þvi harðlega, ef svipta eigi þjóðina alþingi. Hannibal Valdimarsson tekur undir þessi mótmæli og segir einnig að hann liti svo á, að minnihlutastjórn ólafs hafi ekki heimild til þing- rofs, framkvæmi hún það búi landið við einræðisstjórn. Siðar um daginn tekur Gunnar Thoroddsen einnig til máls utan dagskrár I neðri deild. Hann skýrir frá þvi, að 31 þingmaður hafi ritað undir áskorun til for- seta sameinaðs þings þess efnis,. að hann heimili umræður um vantrauststillöguna, áður en for- sætisráðherra rýfur þing. Hann spyr Eystein Jónsson, hvort hann verði við þessari áskorun. Gunn- ar beinir þeim eindregnu tilmæl- um til forsætisráðherra að hann rjúfi þing frá kjördegi en ekki þingslitadegi. Eysteinn Jónsson segist munu skýra frá ákvörðun sinni um þetta erindi frá forseta- stóli siöar. Kl. 17.45 hefjast umræöur um grunnskólafrumvarpið I neðri deild, Sverrir Hermannsson talar I 5 klukkustundir og Pálmi Jóns- son I tvær. Fundi neöri deildar lýkur 01.55. Þá er boðað til fundar isameinuðu þingi. Eysteinn Jóns- son skýrir frá þvi, að hann muni ekki taka tillit til óska 31 þing- manns um umræður um van- traustið. Forsætisráðherra megi flytja þingrofsboðskap sinn, þeg- ar honum hentar og önnur mál verði að vikja fyrir honum. ólaf- ur Jóhannesson rýfur siðan þing frá og með þingslitadegi, umboð þingmanna fellur niður, þegar hann hefur lokið máli sinu. Þing- menn geta þvi hvorki skipzt á kveðjuorðum I sameinuðu þingi né hyllt fósturjörðina eins og venja er við eðlilegar þinglausnir. Þingmenn hverfa úr þingsal rúm- lega tvö. Enginn fer lengur með löggjafarvald i landinu fram að kjördegi 30. júni, nema minni- hlutastjórn Framsóknarflokks- ins, Alþýðubandalagsins og Magnúsar Torfa Ólafssonar. — BB — Gunnar Thoroddsen krefst þess utan dagskrár I neöri deild á miövikudag, aö forseti sameinaös þings taki kröfu 31 þingmanns um umræöur um vantrauststillögu á rikisstjórnina til greina. Ljósm. B.G. Búiztvið 10 millióna „tapi" af listahótíð Listaverk fyrir tugmilljónir koma að utan með „varðmanni ii /#' Það er eins og i reyfara. Gömul islenzk listaverk koma til landsins, vátryggð fyrir milljónir og með „varðmanni”. Verið er að safna þessum listaverkum frá útlöndum vegna listahátiðarinnar. Eitt hið markverðasta i listahátið- inni verður yfirlitssýning yfir þróun islenzkrar myndlistar i 1100 ár, sem verður aö Kjar- valsstöðum og hefst 7. júni. Frá Kaupmannahöfn eru komin tvö teppi og rúmfjalir, og vá- tryggingarupphæð þeirra hluta er samtals rúmlega 15 milljón krónur. Aðrir munir berast frá söfn- um i Bergen, Osló, Stokkhólmi, Paris, London, Hollandi og Austur-Þýzkalandi. Listahátið i Reykjavik á að standa frá 7. til 21. júni. Gert er ráð fyrir, að „tapið” kunni að verða 10 milljónir króna af þessari hátið, það er að segja kostnaðurinn umfram tekjur. Þetta verður greitt meö styrk frá norræna menningarmála- sjóðnum, framlögum rikis og borgar (3,5 milljónir á fjárlög- um hjá hvorum) og fleira. Þetta tap yrði meira en var fyrir tveimur árum, er listahátið var haldin, en þá voru framlög rikis og borgar 2,7 milljónir hjá hvor- um. Samt yrði þetta minna tap, ef miðað er við verðbólguna þessi tvö ár. Linnulaus lestur 20 skálda Ýmis „stór nöfn” utan úr heimi setja svip á hátíðina. Óperusöngkonan Renata Tebaldi er kannski stærsta stjarnan. Hún syngur einsöng með Sinfóniuhljómsveit Islands, er Vladimir Ashkenazy stjórnar i það skipti. Sinfóniuhljómsveit Lundúna kemur i fullri dýrð með hinum heimsfræga stjórn- anda André Previn. Frumflutt verður Islenzk ópera, sem mun vera sú fyrsta að frátöldum barnaóperurn, og er um Þrymskviðu. Um tuttugu Islenzk ljóðskáld lesa úr verkum sinum að Kjar- valsstöðum, linnulaust frá klukkan tvö og langt fram eftir degi hinn 9. júni. Brúðuleikhús um Sæmund fróða Brúðuleikhús frumsýnir dag- skrá um Sæmund fróða i Iðnó hinn 13. júni. Leikfélag Reykja- vikur stendur að sýningunni. Konunglega leikhúsið Dramaten i Stokkhólmi heim- sækir Þjóðleikhúsið og sýnir Vanja frænda eftir Tjechov. Kabarett, sem nefnist Litla flugan, flytur dagskrá úr verk- um Sigfúsar Halldórssonar i Þjóðleikhúskjallara. Leikfélag Reykjavikur frum- sýnir nýtt íslenzkt leikrit, Selur- inn hefur mannsaugu, eftir Birgi Sigurðsson. Þannig mætti lengi enn rekja stórmerka viðburði á listahá- tiðinni. Islenzki dansflokkurinn mun dansa nýja dansa eftir Alan Carter, sem stjórnar, og koma þá fram sem gestir Svein- björg Alexanders og Wolfgang Kegler, sem dansa dansa eftir Gray Veredon. Þrennir kammertónleikar veröa á listahátið. 1 Háskólabiói veröa 13. júni „jasstónleikar”, sem flytjendur vilja þó siður kalla þvi nafni. Þar verða frægir menn, John Dankworth, André Previn, Cleo Laine, Arni Egilsson og fleiri. Daniel Barenboim leikur á pianó i Háskólabiói. Danskir listamenn, Lone Hertz, Bonna Söndberg og Torben Petersen, flytja ljóð og tónlist i Norræna húsinu. Hinn finnski bassa- söngvari Martti Talvela syngur einsöng við undirleik Ashkenazys. Norsk hjón flytja gamla norska tónlist og kveð- skap, og verður leikið á Harðangursfiðlu. Sinfóniu- hljómsveit Islands frumflytur 7. júni á opnunarhátiðinni „At- hvarf” eftir Herbert H. Ágústs- son. Hinn franski Alain Lom- bard stjórnar leik Sinfóniu- hljómsveitarinnar. Leiksýningar á vinnustöðum Fyrirhugað er, að danskur leikflokkur, Banden, komi á listahátið og haldi nokkrar sýningar i Norræna húsinu og einnig á vinnustöðum i borginni. Listasafn Islands sýnir verk Ninu Tryggvadóttur, meðal annars sum, sem hafa aldrei sézt nér fyrr, nýjar myndir frá New York. SÚM sýnir alþýðu- list. Útihöggmyndasýning verður i Austurstræti. Og margt er ótalið. —HH Vladimir Ashkenazy

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.