Vísir - 11.05.1974, Page 8
8
Vlsir. Laugardagur 11. mai 1974.
iii VINNUSKÓLI
w REYKJAVÍKUR
Vinnuskóli Reykjavikur tekur til starfa,
um mánaðamótin mai-júni n.k. og starfar
til 15. ágúst. í skólann verða teknir ungl-
ingar fæddir 1959 og 1960 þ.e. nemendur
sem eru i 7. og 8. bekk skyldunámsins i
skólum Reykjavikurborgar skólaárið
1973-’74.
Gert er ráð fyrir 8 stunda vinnudegi og 5
daga vinnuviku hjá eldri aldursflokkum,
en 4 stunda vinnudegi og 5 daga vinnuviku
hjá yngri aldursflokkum.
Umsóknareyðublöð fást i Ráðningarstofu
Reykjavikurborgar Hafnarbúðum við
Tryggvagötu og skal umsóknum skilað
þangað eigi siðar en 22. mai n.k.
Umsóknir, sem siðar kunna að berast
verða ekki teknar til greina. Áskilið er að
umsækjendur hafi með sér nafnskirteini.
Skrifstofustúlka óskast
Stúlka með Verzlunarskólapróf eða hlið-
stæða menntun, óskast til starfa nú þegar,
eða eftir samkomulagi. Einhver reynsla
er æskileg.
Umsóknir með upplýsingum um umsækj-
anda og fyrri störf, sendist til undirritaðra
sem fyrst.
Skýrsluvélar rikisisins og Reykjavikur-
borgar
Háaleitisbraut 9,
Reykjavik
★ Forskóli
fyrir prentnám
Verklegt forskólanámiprentiðnhefst i Iðn-
skólanum i Reykjavik, að öllu forfalla-
lausu hinn 4. júni n.k. Forskóli þessi er
ætlaður nemendum, er hafa hugsað sér að
hef ja prentnám á næstunni og þeim, sem
eru komnir að i prentsmiðjum, en ekki
hafið skólanám. Umsóknir þurfa að berast
skrifstofu skólans i siðasta lagi föstudag-
inn 24. mai.
Umsóknareyðublöð og aðrar upplýsingar
verða látnar i té á sama stað.
Iðnskólinn i Reykjavik
í rAijili
INNER-WHEEL, — nýr
félagsskapur kvenna
Nú nýlega hlaut kvenfélags-
skapurinn Inner-Wheel alþjóða
staðfestingu við athöfn að Hótel
Esju. Frú Hedvig Hert-Hansen
kom frá Danmörku til að afhenda
félaginu staðfestingarbréf al-
þjóðasamtakanna. Félagið var
stofnað fyrir einu ári fyrir for-
göngu frú Ingibjargar Guð-
mundsdóttur og eiginkvenna
manna úr Rotaryhreyfingunni.
Félag þetta er þó óháð Rotary að
öllu leyti og hefur sin eigin lög og
reglur. Félagið afhenti i hófinu
100 þús. krónur til skógræktar i
landinu, og tók Hákon Bjarnason
við gjöfinni. Mun fénu varið til
gróðursetningar i sérstökum
lundi I Skorradal. Á myndinni er
Ingibjörg Guðmundsdóttir i
ræðustól, en til vinstri er frú Hert-
Hansen.
Brúsapallarnir
hverfa óðum...
Sú var tiðin, að brúsapallar
bóndabæjanna voru einhver
punktur i tilveru sveitafólksins.
Við brúsapallinn beið heimasæt-
an „Bjössa á mjólkurbflnum”
o.s.frv. En nú eru þeir semsé að
hverfa óðum, pallarnir, en tankar
heima á bæjunum koma I staðinn.
1 Eyjafirðinum gengur tank-
væðingin svo vel, að henni á að
ljúka endanlega árið 1977. Er
mjólkin sótt á tankbilum tvisvar i
viku á veturna, en 3-4 sinnum á
sumrin.
AUir vilja tryggja...
Það er lagt hart að fólki i aug-
lýsingum stærri tryggingafélag-
anna að tryggja sig og sitt. Og
vitaskuld er slikt nauðsyn. Og
tryggingafélögin eru fleiri en
nokkurn grunar. Tryggingaeftir-
litinu bárust umsóknir alls 21
aðila til að hafa með hendi skaða-
tryggingastarfsemi frá innlend-
um aðilum, ein frá erlendum
aðila, og þrjár til að stunda lif-
tryggingastarfsemi og til að
stunda endurtryggingar. Fjórir
aðilar tilkynntu, að þeir sæktu
ekki um starfsleyfi, þar eð þeir
byðu ekki nýtryggingar.
Fagfélag sem ræðir
ekki hagsmunamálin!
Klúbbur matreiðslumanna er
fagfélag, sem hefur ekki á stefnu-
skrá sinni að huga að kjaramál-
um stéttarinnar éða hagsmuna-
málum svokölluðum. Markmið
klúbbsins er að auka faglega
þekkingu almennings og kynna
matreiðslu innbyrðis meðal
meistara i faginu. Hyggst
klúbburinn standa fyrir kynningu
á matreiðslu i fjölmiðlum og hef-
ur þegar hafið þá kynningu, m .a. i
sjónvarpi. I janúarmánuði sátu Ib
Wessman, forseti klúbbsins, og
Hilmar Jónsson stjórnarmaður
norrænt þing yfirmatreiðslu-
manna i Þrándheimi. Þar var
m.a. samþykkt ályktun um nauð-
syn þess að sérhæfa menn i með-
ferð sjúkrafæðu, sérstaklega
vegna sykursjúkra og þeirra, sem
þurfa á megrunarfæðu að halda.
,, Vitaminspr auta ’ ’
til sjúkrahúsanna
Um þessar mundir hafa 33 nýjar
hjúkrunarkonur komið á vinnu-
markaðinn, útskrifaðar úr
Hjúkrunarskóla íslands. Þetta er
sannkölluð vitaminsprauta fyrir
sjúkrahúsin okkar, sem skortir
stöðugt hæfar hjúkrunarkonur.
Stærsti skóli landsins
stækkar i sifellu
Umferðarskólinn Ungir vegfar-
endur hefur um mörg undanfarin
ár verið stærsti skóli landsins. Nú
eru nemendur orðnir 16.298 börn,
sem fá sina undirstöðuþekkingu á
umferðarmálum frá skólanum,
sem er bréfaskóli. Hafið er 6.
starfsár skólans og er áætlað, að
send verði út i ár um 90 þúsund
verkefni til barnanna. Alls eru 37
sveitarfélög eða byggðir, eins og
það heitir vist nú, aðilar að
skólanum, en nýlega bættust við
Neskaupstaður, Búðahreppur,
Flateyrarhreppur, Grimsnes-
hreppur, Laxárdalshreppur,
Norðfjarðarhreppur og Vatns-
leysustrandarhreppur.
Kanadadekkin að slá
þau japönsku út?
Vörur frá Japan hafa hækkað all-
mikið i verði að undanförnu. Seg-
ir t.d. frá þvi i Sambandsfréttum,
að draga muni mjög úr innflutn-
ingi frá Yokohama-verksmiðjun-
um. Hefur SIS i staðinn gert
samning við Atlas-hjólbarða-
verksmiðjurnar og kaupir frá
þeim sumarhjólbarðana I ár.
LAUGARNES-
LANGHOLTS- VOGA-
OG HEIMAHVERFI
12. maí sunnudagur kl. 15.00
Laugarósbíó.
Fundarstj.: Gunnar J. Friðríksson, frk.stj.
Fundarrit.: Gunnar Hauksson, vorzlunarstj.
Hulda Valtýsdótfir, húsmóðir