Vísir - 25.05.1974, Page 1

Vísir - 25.05.1974, Page 1
64. árg. — Laugardagur 25. mal 1974. — 83. tbl. Hvernig fara kosningarnar í Reykjavík? — kosningastjórarnir svara spurningum Vísis — sjó bls. 3 GEYSILEGT FJÖLMENNI Á KOSNINGA- HÁTÍÐ D-LISTANS — sjá bls. 9 Borgarstjóri i ræöustól. Var það skemmdarverk? Fyrstu tölur klukkan ellefu Sjónvarp og útvarp munu hefja útsendingar frá talningu atkvæöa i bæjar- og sveitar- stjórnarkosningunum um klukkan eliefu á sunnudags- kvöldiö og hafa allt i gangi hjá sér þar til talningu lýkur, en þaö er talið veröa um klukkan þrjú um nóttina. Hjá sjónvarpinu fengum viö þær upplýsingar, að útsending frá talningunni hæfist kl. 10.50.- „Við búumst við að fá fyrstu tölur úr Reykjavik skömmu eftir klukkan ellefu”, sagði Eiður Guðnason, sem mun stjórna þessari út- sendingu. „Eftir það fara þær að koma á færibandi. Við erum með menn á öllum stöðum, sem senda okkur tölur jafnóðum og þær koma fram I dags- ljósið, en við verðum með sima i upptökusalnum. Ekki er enn búið að ákveða, hvenær útsendingunni veröur hætt, en ætli það veröi ekki á milli klukkan tvö og þrjú um nóttina.” Kári Jónasson, sem hefur unnið að undirbúningi að kosningafréttum útvarpsins, sagði að útvarpið færi af stað með útsendingu frá talningu um leið og fyrstu tölur bærust. „Það verður liklega rétt upp úr ellefu, sem við fáum fyrstu tölur úr Reykjavik og Kópa- vogi, en um tólfleytið má bú- ast við að þær fari að streyma inn. Tölur koma frá um 50 stöð- um, og ætti það að taka um þrjá tima að fá þær, ef allt gengur að óskum, Menn frá reiknistofu Háskölans verða i útvarpssal og munu spá um úrslitin, um leið og fyrstu tölur fara að berast.” -klp Fyrirtaks kosninga- veður Það ætlar ekki að verða amalegt kosningaveðrið, að minnsta kosti voru allar likur á bezta veðri i Reykjavik, þegar við ræddum við Pál Bergþórsson veður- fræðing i gærkvöldi. Páll sagðist spá norðlægri átt og björtu veðri á Suðvestur- landi. Hlýtt verður i veðri og sólskin, svo ekki ætti veður að aftra mönnum frá þvi að drifa sig i að kjósa. Þeir, fyrir norðan ætla ekki að veröa eins heppnir. En liklega láta þeir dálitla vætu ekki heldurhindra sig i að kjósa. Þar verður að öllum likindum skýjað, en ekki mikil úrkoma, aðeins dálitil væta sem fyrr seg- ir. Og þessi spá gildir fyrir kosningadaginn á morgun -EA — Vél fró Iscargo missti tvo mótora í írlandi : „Bretar voru eitthvað að gera þvi skóna, að þarna væri um skemmdarverk að ræða. Þeir óskuðu eftir þvi að fá að rannsaka þetta, og rannsókn stendur yfir nú. En við höfum engar áreiðanlegar heimildir fyrir þvi, að þarna hafi verið skemmdarverk, ’ ’ sagði Arni Guðjónsson hjá iscargo, þegar Visir hafði samband við hann. Fyrir rúmri viku henti þaö óhapp vél frá Iscargo, sem var aö koma frá Dublin i lrlandi, aö hún missti tvo mótora eftir um það bil eins og hálfs klukkutima flug. Þar sem dimmt var yfir og veð- ur ekki upp á það bezta, tóku þeir það til bragðs að lenda á hervelli skammt þar frá sem þetta gerö- ist. Að sögn Árna var vélin þó ekki i hættu stödd og flaug vel ennþá. Verið var að flytja hross frá Ir- landi, og var ferðinni heitið til Esbjerg. Arni sagði, að Bretar teldu helzt, að hestamenn i Ir- landi væru að verki, ef um skemmdarverk væri að ræða, en pólitiskt ofbeldi kæmi ekkert nálægt þessu. Astæöan fyrir þvi, aö þeir telja þetta skemmdar- verk, er sú, að þetta er i fjóröa skiptið sem eitthvað svipað þessu kemur fyrir. Virðast hestamenn- irnir á móti þvi, að hestar séu fluttir út. Talið var, að sandi hefði jafnvel verið mokað inn á mótorana, og er nú málið i rannsókn. — EA Þeir búa sig, strákarnir, undir sumarið. Það á að fara i út- gerð, eins og margir friskir menn á landi hér hafa gert frá ómunatið. Og báturinn þeirra heitir Reykvikingur, eign Æskulýðsráðs Reykjavikur. Þessi þáttur i starfi ráðsins er nýr af nálinni. Það á að róa með stráka (og stelpur) þegar vel viðrar. Haldið verður á miðin i Faxaflóa og veitt með ýmsum aðferðum. Þess á milli vcrða kennd ýmis vinnubrögð landsmanna. V AÐ KJOSA Á LAUGARDÖGUM? Er kominn timi til að breyta til og láta kosningar heldur fara fram á laugardegi en sunnudegi, eins og verið hefur til þessa? „Þessa spurningu hefur maður svo sem heyrt fólk varpa fram og þvi þá með um leið, að með þvi fyrirkomulagi væri hægt að vaka yfir sjónvarpi og kosningaúrslit- um fram eftir nóttu, án þess að slikt kæmi niður á vinnunni dag- inn eftir,” sagði Guðmundur Vignir Jósefsson hæstaréttarlög- maður, þegar blaðamaður Visis færði þetta i tal við hann. — Guð- mundur Vignir á sæti i yfir- kjörstjórninni. „Aðrir hafa spurt, hvi endilega þurfi að hafa kosningar á al- mennum fridegi — hvi ekki bara að gefa fri á virkum degi til þess að kjósa, eins og þekkist viða er- lendis. En mér vitanlega hefur enginn velt þvi fyrir sér i alvöru að breyta þessu. Það stendur svona i lögunum, að það skuli kosið til sveitastjórna siðasta sunnudag i mai. — Það er ekki svo langt sið- an kjördagur var færður til úr janúar fram i mai. En á sunnu- degi hefur hann alltaf verið. Ætli ástæðan sé ekki sú, að menn halda ennþá i þessa gömlu venju, án þess að hugsa neitt út i það, hvers vegna. — Viðhorfið kann svo sem að breytast eftir þvi sem það breytist, að laugardagar verði almennir fridagar. Kann að vera, að siðar verði stungið upp á þvi að kjósa fremur á laugardegi. En ennþá hefur það sem sé ekki verið hugleitt i alvöru, eftir þvi sem ég bezt veit,” sagði Guð- mundur Vignir. I svipaðan streng tók Björgvin Sigurðsson hæstaréttarlögmaður, en hann er oddviti yfirkjörstjórn- ar. „Við i yfirkjörstjórn höfum ekki rætt þetta okkar i milli, enda ekki á valdi yfirkjörstjórnar að breyta þessu, þvi að það þarf lagabreytingar til. Mér virðist að eðlilegast sé að efna til kosninga á þeim degi, sem flestir eiga fri, eins og sunnudegi. — Bæði til þess að flestir eigi sem auðveldast með að komast að kjörborðinu, og svo einnig vegna þess, að það þarf mikið starfsfólk viö kosningarnar sjálfar — bara framkvæmdina. Þá kemur sér betur, að fólk sé laust frá öðrum störfum til þess að vinna við ...tja, kjörstjórn og annað. — Og töluvert af fólki vinnur enn að sin- um fastastörfum á laugardögum, eftir þvi sem ég bezt veit, svo að breyting væri óhentug fyrir þær sakir. Annars þarf ekki kosninga- úrslit til þess að fólk vaki fram eftir nóttu, ef sá gállinn er á mönnum á annað borð. Það finn- ur sér einhverja aðra ástæðu til, ef þvi sýnist svo,” sagði Björgvin að lokum. — GP

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.