Vísir - 25.05.1974, Page 3
Vísir. Laugardagur 25. mai 1974.
Þeir œttu að vita það bezt,
kosningastjórarnir:
Hvernig fara
kosningarnar í
REYKJAVÍK
Hvernig fara kosningarnar? Þvi mundu margir viija vita svar við, nú þegar taugar þeirra titra og
spennan vex. Fáir eru spámenn, en þó ættu þeir að þekkja bezt „hljóðið I borginni”, sem starfa linnu-
laust við kosningarnar, safna upplýsingum um, hvað þessieða hinn mundi helzt ætla að kjósa. Mennirn-
ir, sem hafa setið sveittir og merkt á blöð, hvar talið er, að þessi eða hinn kjósandinn muni merkja við á
kjörseðlinum. Forvigismenn á kosningaskrifstofum flokkanna vita meira en aðrir, og við lögðum leib
okkar I skrifstofur allra listanna i Reykjavík og reyndum af þefa uppi, hvað er á seyði I kollinum á þess-
um mönnum.
„Alþýðubandalagið
vinnur sœti af
sjálfstœðismönnum"
— segja
framsóknarmenn
I miklu húsi i byggingu við
Rauðarárstig, sem átti að verða
hótel, en verður kannski mest
eitthvað annað, eru aðalskrifstof-
ur B-listans, lista framsóknar-
manna. Þar hittum við fyrir Pál
Jónsson, kosningastjóra þar i
sveit.
„Ég spái þvi, að Sjálfstæðis-
flokkurinn missi meirihlutann og
Alþýðubandalagið bæti við sig
manni i Reykjavik,” segir Páll.
Spá Páls er þessi: Sjálfstæðis-
flokkur 7, Framsóknarflokkur 3,
Alþýðubandalagið 3, Jafnaðar-
menn 2 og Frjálslyndi lokkurinn
0.
B-listamenn eru með fjórar
skrifstofur fyrir kosningastarf. t
hverri er ef til vill aðeins einn
maður i fastri vinnu, en fjöldi
fólks mun vinna siðustu dagana,
að sögn Páls.
„Sjálfstœðis
flokkurinn heldur
meirihluta.
Alþýðubandalagið
vinnur sœti af
Framsókn" — segja
D-listamenn
v I I
„Mér finnst raunhæfast að spá 1
þvi, að sjálfstæðismenn fái 8
borgarfulltrúa áfram Alþýðu-
bandalagið 3, Framsókn 2, J-list- -
inn 2 og Frjálslyndir 0, „segir
Jón Gunnar Zoé'ga, fram-
kvæmdastjóri fulltrúaráðs Sjálf-
stæðisflokksins. Hann var i fyrir-
Páíl Jónsson spáir þvi, að Framsókn haldi sinu.
svari i aðalskrifstofu D-listans i
nýbyggðu húsi við Slðumúla.
Honum fannst liklegast, að Al-
þýðubandalagið færi upp fyrir
Framsókn i fylgi og ynni þvi
mann af B-listanum.
Jón spáði þvi, að Frjálslyndi
flokkurinn hans Bjarna Guðna-
sonar fengi um 1500 atkvæði og
yrði þvi mjög langt frá þvi að fá
einn mann kjörinn.
D-listinn hefur 11 kosninga-
skrifstofur i hverfunum, og
starfsmenn eru hátt á annað
hundrað, segir Jón Gunnar
Zoega. A kjördag býst hann við að
hátt á þriðja þúsund manns verði
i starfi fyrir D-listann i
Reykjavik.
„Fáum alla vega
þrjá" — segja
G-listamenn
„Viðfáum allavega þrjá kjörna
i Reykjavik,” sagði Sigurður
Magnússon, sem var i fyrirsvari i
skrifstofu G-listans, Alþýðu-
bandalagsins, i gömlu húsi við
Grettisgötu.
„Ég held, að eina vonin til að
fella ihaldið sé, að menn forðist
aö dreifa atkvæðum sinum. Sjálf-
stæðisflokkur hefur haldið meiri-
hluta borgarfulltrúa á minnihluta
atkvæða vegna þess hvernig at-
kvæðin hafa dreifzt á hina flokk-
ana,” segir Sigurður.
G-listinn hefur tvær stórar
kosningamiðstöðvar á kjördag,
en hefur aðeins skrifstofuna við
Grettisgötu þangað til. Þar eru 3-
4 fastir starfsmenn og allmargir
aðrir við störf.
„Óráðnustu
kosningar, sem
ég hef kynnzt",
segir starfsmaður
J-listans
„Þetta eru óráðnustu kosning-
ar, sem ég hef nokkru sinni
kynnzt, og er ég þó búin að vera i
„Frjálslyndi flokkurinn fær 1500 atkvæði,” segir
Jón Gunnar Zoéga og spáir óbreyttum meirihluta.
þessu, siðan ég var 17 ára,” segir
Sigriður Hannesdóttir, sem við
hittum I kosningaskrifstofu J-
listamanna i gömlu húsi við
Laugaveg. „Ég tel helzt að Sjálf-
stæðisflokkurinn tapi einum full-
trúa, og þar með meirihlutanum,
og vona, að hann fari til okkar,”
segir hún. Hún áleit þó, að Fram-
sókn kynni að vinna á, jafnvel
mann. „Það hljóta að verða mikl-
ar breytingar á fylgi flokka i
þessum kosningum,” segir Sig-
riður.
J-listinn, sameiginlegur listi
Alþýðuflokksins og Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna,
hefur 5 kosningaskrifstofur i
borginni, auk Alþýðuhússins. Þar
eru viðast 1-2 fastir starfsmenn
og allmargir aðrir lausari.
I
„Orðnir nokkuð
vissir um, að við
fáum mann",
segir starfsmaður
V-listans
„Svo margir eru óráðnir i dag,
að enginn getur sagt um úrslitin.
Baráttan virðist standa um
hvort Sjálfstæðisflokkurinn haldi
meirihlutanum. Ég er nú orðinn
nokkuð viss um, að við fáum
mann,” segir Bjarni Sigtryggs-
son, sem stýrir kosningaskrif-
stofu Frjálslynda flokksins, V-
listans, i gömlu húsi við Lauga-
veg.
Þetta er eina skrifstofa flokks-
ins. Þar eru tveir fastir starfs-
menn.
Erfitt er að draga ályktanir af
spádómum þessara manna, nema
þá það, að úrslitin i Reykjavik séu
tvisýn.
Fulltrúar minnihlutaflokkanna
I borgarstjórn i þessum skrifstof-
um nefndu, að „hundruð” og
„þúsund” manna mundu starfa á
vegum þeirra i kosningum. Engin
leið er að vita það, en sennilega
verða um fimm þúsund manns
starfandi, meira og minna, fyrir
listana i Reykjavik á kjördag.
—HH
„Hef verið i þessu, siðan
ég var 17 ára. Aldrei
eins óráðið og nú,” segir
Sigriður Hannesdóttir.
„Margir enn óráðnir,” segir Bjarni Sigtryggsson „Eina vonin, að atkvæðin dreifist ekki,” segir Sigurður Magnússon (til
(til vinstri á myndinni). vinstri á myndinni).