Vísir - 25.05.1974, Side 5
5
Visir. Laugardagur 25. mai 1974.
ERLEND MYNDSJÁ
Umsjón: BB/GP
RÆNDI
FIMM í
GAUTA-
BORG
Hér á siðunni eru i dag birtar
þrjár myndir af mannránum.
Sem betur fer hafði aðeins eitt
þeirra, ránið á skólabörnunum i
Maalot i israel, i för meö sér
blóðsúthellingar og mannfall.
Til hægri sjást 5 afgreiðslu-
stúlkur i apóteki i Gautaborg.
Siðdegis á mánudaginn kom
ungur maður inn í apótekið
vopnaður vélbyssu og ógnaði
konunum. Sagðist hann ekki
sleppa þeim, nema látnir yrðu
lausir alræmdir fangar úr
sænskum fangelsum.
Lögreglan sat yfir manninum
alla nóttina og reyndi að fá
hann til að gefast upp. Svo fór
snemma þriðjudags, að byssu-
maðurinn leiddi gisla sina út úr
apótekinu og afhenti lög-.
reglunni vopn sitt. Myndin var
tekin, þegar afgreiðslu-
stúlkurnar sneru aftur til
apóteksins, eftir að ræninginn
hafði verið handtekinn.
Fékk lOmánuði
Jeb Stuart Magruder, sem
var næstæðsti maðurinn i
kosningastjórn Nixons i forseta-
kosningunum 1972, sést hér
ásamt konu sinni, þegar þau
komu frá þvi að hlýða á
dómsúrskurð yfir honum. John
J. Sirica, dómarinn i Watergate-
málinu, dæmdi Magruder I 10
mánaða fangelsi fyrir hlutdeild
i innbrotinu inn á skrifstofur
Demókrata-flokksins i Water- i
gate-byggingunni.
Lögregla ó
nœrklœðum
Þessi lögreglumaður i Genf
varð að fara úr buxum og skóm,
þcgar hann bar mat og vatn til
tveggja bankaræningja, sem
höföu lagt bankaútibú i úthverfi
Genfar undir sig. Ræningjarnir
héldu tveimur bankameyjum i
sinni vörzlu og heimtuðu bil til
að komast undan. Ránið var
framið sl. mánudag, og komust
þrír ræningjanna undan, en lög-
reglan náði einum.
Ræningjarnir heimtuðu, að
lögreglumaöurinn kæmi á nær-
klæöunum, svo að það væri
öruggt, að hann væri óvopnaö-
ur.
4 Hryðjuverkið í Maalot
israelskir hermenn koma sér i skotstöðu við skólahúsið I Maalot,
þar sem arabiskir skæruliðar héldu um 90 skólabörnum gislum i
hálfan sólarhring fyrir rúmri viku.
israelsmenn létu ekki undan kröfu Arabanna um að láta 25 fanga
lausa. Þeir gerðu áhlaup á skólann og felldu hryðjuverkamennina.
Mörg skólabarnanna létust og hin særðust.
rr* f
Br l| 1*
mS i— -
-MT ís
|áf
'
í húsi Ole Bull
Ólafur Noregskonungur kem-
ur i opinbera heimsókn til is-
lands dagana 4.-6. júni i boði
forseta islands. Hér sést
konungur koma út úr húsi þvi,
sem áður var bústaður fiðlu-
leikarans Ole Bull.
Húsið þykir hiö fegursta, þar
sem það stendur á Lysö skammt
sunnan við Bergen. Það hefur
nú veriö gefið norska forn-
minjasafninu, og var Noregs-
konungur við hátiðlega athöfn
af þvi tilefni i húsinu á þriðju-
dag.