Vísir - 25.05.1974, Side 6

Vísir - 25.05.1974, Side 6
6 Visir. Laugardagur 25. maí 1974. visir ÍJtgcfandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: Fréttastjóri: RitstjórnarfuIItrúi: Fréttastj. erl. frctta: Auglýsingastjóri: Auglýsingar: Afgreiðsla: Ritstjórn: Reykjaprent hf. Sveinn R. Eyjólfsson Jónas Kristjánsson Jón Birgir Pétursson Ilaukur Helgason Björn Bjarnason Skúli G. Jóhannesson llverfisgötu 22. Simar 11660 86611 Hverfisgötu 22. Simi 86611 Siðumúla 14. Simi 86611. 7 linur Askriftargjald 600 kr. á mánuði innanlands. t iausasölu 25 kr. eintakið. Blaðaprent hf. Stoltir borgarbúar Menn verða stoltir af að sýna Reykjavik er- lendum gestum. Þeir dást i einlægni að tæra Gvendarbrunnavatninu i krönunum og dást á sama hátt að hreinu og ómenguðu andrúmslofti borgarinnar. Þessir kostir Reykjavikur byggjast á vandaðri þjónustu borgarinnar. Vatnsbólin hafa nýlega verið endurbætt og stórátök gerð i hitaveitu og lagningu varanlegra og ryklausra gatna. Margir hlógu, þegar meirihluti sjálfstæðis- manna i borgarstjórn lofaði að leggja hitaveitu i borgina á skömmum tima og þegar hann lofaði að malhika göturnar á skömmum tima. En þeir hlógu ekki, þegar loforðin stóðust á réttum tima. Hinir erlendu gestir dást lika að þvi, hve opin og frjálsleg Reykjavik er, hve mikið opið rými er i borginni. Og þeir verða forviða, þegar þeim er sýnd áætlunin um útivist og umhverfi borgarinnar. Svo framsýnum hugmyndum eru þeir ekki vanir i stórborgum heimalanda sinna. Foringjar vinstri flokksbrotanna segjast brosa að grænu byltingunni sem hverri annarri kosningablöðru. En það er gretta i þessu brosi, þvi að þeir. óttast, að meiri- hlutinn geti framkvæmt þessa áætlun á réttum tima eins og aðrar slikar. Reykjavik er ekki fullkomin og verður það aldrei. En hún er að mörgu leyti til fyrirmyndar, bæði öðrum kaupstöðum á íslandi og borgum úti i heimi. Einmitt vegna þessa eru vinstri flokks- brotin fátæk af kosningamálum og leggja höfuð- áherzlu á, að timabært sé orðið að skipta um meirihluta i borgarstjórn. En kjósendur taka eftir, að innan meirihlutans er mikil endurnýjun. Borgarstjórinn okkar er nýr i starfi. Og fjórir af átta efstu frambjóðendum sjálfstæðismanna eru nýir i þeim sætum. Reyk- vikingar endurnýja þvi borgarstjórnina með þvi að kjósa D-listann. Sú endurnýjun er áhættulaus. Menn geta endurnýjað án þess að kjósa yfir sig sundrað lið ótal vinstri flokksbrota, sem eiga i stöðugum ill- indum innbyrðis. Kjósendur geta auðveldlega gert sér i hugarlund, hvernig stjórn borgarinnar færi i höndum sliks meirihluta. Vinstri flokksbrotin bjóða ekki upp á neitt borgarstjóraefni. Fái þau meirihluta, verður mikil styrjöld milli þeirra um embættið. Það yrði upphafið að stórkostlegri hrossakaupaöld i stjórn Reykjavikur. Siðan mundu bræðravigin halda áfram eins og hjá rikisstjórninni og málefni borgarinnar látin reka á reiðanum. Reykvikingar þurfa nú að hindra, að ástandið i landsmálunum færist lika yfir á borgarmálin. Þeir þurfa að verja borgina gegn árás vinstri flokksbrotanna. Aldrei hafa úrslit borgar- stjórnarkosninga verið i jafnmikilli óvissu. í þeim hildarleik má enginn bregðast i vörninni. Reykvikingar. Varizt vinstri slysin og standið vörð um traustar framfarir i borginni hér eftir sem hingað til. Við skulum áfram byggja upp borg, sem við getum verið stolt af. Þess vegna skulum við kjósa D-listann á morgun. —JK Þorsteinn Sæmundsson afhendir ólafi Jóhannessyni, forsætisráöherra, og Eysteini Jónssyni, þáv. for- seta sameinaðs alþingis, undirskriftaskjöl Varins lands. Þegar forsætisráðherra var spuröur aö þvi, hvort viiji 55522 islendinga I varnarmálunum mundi hafa einhver áhrif á stefnumótun rikisstjórnarinnar i þeim efnum, svaraöi hann: ,,Ne-hei.” Bjðrn Bjarnason: Hvað gera framsóknar- mennirnir 170 og kjós- endur krata? ,,Hinir ágætu samverkamenn okkar i Framsóknarflokknum, þeir, sem fyrir nokkrum dögum buöu íhaldinu upp á þjóðstjórn, munu taka ákvaröanir sinar eftir kosningar einvöröungu eftir árangri Alþýöubandalagsins. Vinni Alþýöubandalagið stórsigur mun vinstri stefna veröa ofan á i Framsóknarflokknum, að öðrum kosti fá þau öfl, sem virk eru i Varðbergi og Vöröu landi kost á aö spilla flokki sinum á nýjan leik.” Þannig lýsti Magnús Kjartans- son herleiöingu Framsóknar- flokksins i ræöu, sem hann flutti skömmu eftir þingrofiö á fundi Alþýðubandalagsins. Að hans mati fer það eftir fylgi Alþýðu- bandalagsins, hvaöa stefna verö- ur ofan á i varnarmálunum i Framsóknarflokknum. Magnús mun I ræöu sinni fyrst og fremst hafa verið aö fjalla um úrslit þingkosninganna 20. júni, en orö hans eiga ekki siöur viö um úrslit borgarstjórnarkosninganna á morgun. Siöan iðnaöarráöherra mælti þessi spádómsorö, hafa þeir at- buröir gerzt, að vinstri öflin i Framsóknarflokknum hafa sagt skiliö við flokkinn. Möðruvalla- hreyfingin leitar nú eftir sam- stööu meö Magnúsi Torfa og Samtökum jafnaöarmanna. Engu aö siður er viö þvi aö búast, að forysta Framsóknarflokksins sé svo heillum horfin i öryggismál- um landsins, aö hún muni laga sig að vilja Alþýöubandalagsins i þeim, veröi þess þörf til að halda völdunum i landinu. En hvað gera þeir 170 framsóknarmenn úr öllum lands- fjóröungum, sem á sinum tima undirrituöu og sendu forsætisráð- herra áskorun um aö fara sér hægt i varnarmálunum? Timinn lýsti- þessum mönnum þannig á forsiðu: „1 hópi þeirra eru ýmsir forustu- og framámenn Framsóknarflokksins, er' gegna trúnaöarstörfum fyrir flokkinn.” Ætla þessir menn aö greiöa þeim flokki atkvæöi sitt, sem aö kosningum loknum fer að vilja Alþýöubandalagsins i varnar- málunum? i áskorun sinni segja þeir: ,,Við teljum aö aöild tslands aö Atlantshafsbandalaginu hafi reynzt islandi til góös.... Viö telj- um enn fremur, að samvinna ts- lands viö Bandarikin um öryggis- mál... hafi stuðlað.... að öryggi og sjálfstæöi Islands.” Framsóknar- mennirnir 170 lýsa sig „andviga uppsögn hans (varnarsamnings- ins) nú og telja ekki timabært að gera grundvallarbreytingar á nú- verandi öryggismálasamstarfi viö Bandarikin og Altantshafs- bandalagiö, sem að þeirra dómi hefur reynzt íslendingum vel og ekki sýnt, að annað fyrirkomulag I grundvallaratriðum henti is- lendingum betur, miðað viö þá reynslu, er þeir hafa fengið, og þaö ástand, er enn rikir i alþjóða- málum.” Þeir menn, sem stóðu að þessari yfirlýsingu, hljóta að vera óánægöir með forystumenn flokks sins, eftir að þeir hafa lagt algjörlega ábyrgöarlausar tillög- ur i varnarmálunum fram sem stefnu sina i viðræðunum viö Bandarikjamenn. A sinum tima lýsti þingflokkur Alþýöuflokksins yfir stuöningi sinum viö undirskriftasöfnun Varins lands. Við borgarstjórnar- kosningarnar I Reykjavik býður Alþýðuflokkurinn fram J-lista i samvinnu viö Samtök frjáls- lyndra og vinstri manna er voru enn óklofin, þegar það framboö var ákveöið. 1 2. sæti á þessum sameiginlega J-lista er Steinunn Finnbogadóttir frá SFV. Hún er ekki sammála þingflokki Alþýöu- flokksins I varnarmálunum. A meöan herstöövaandstæðing- ar héldu enn, að þeim tækist aö eyðileggja undirskriftasöfnun Varins lands, efndu þeir til fundar i Háskólabiói. A siðum Þjóðvilj- ans var auglýst, að Steinunn Finnbogadóttir yröi ræðumaður á þessum fundi, um leið og blaðiö jós úr skálum reiði sinnar yfir forgöngumenn undirskrifta- söfnunarinnar og undirritendur. Nú hefur kvarnazt út úr Alþýöuflokknum og verið stofnaö til Samtaka jafnaðarmanna undir forystu Njaröar P. Njarðvik, for- manns útvarpsráös. Fyrsta kjör- orö hinna nýju samtaka er, aö is- land skuli varnarlaust. Samtökin hafa gengið til samstarfs við Mööruv allahreyfinguna og Magnús Torfa Ölafsson viö undir- búning framboöa til alþingis- kosninganna. I blaöinu Þjóömál, sem gefiö er út af Samtökum frjálslyndra og vinstri manna, er á forsiöu lýst yfir stuðningi við J-listann i borg- arst jórnarkosningunum i Reykjavik, en á baksiðu er birt sameiginlegt kosningaávarp SFV og Möðruvallahreyfingarinnar. Þar segir meðal annars: „Aherzla er lögð á baráttuna fyr- ir brottför hersins. Náist ekki samkomulag við Bandarikin um framkvæmd þess stefnumiös i samræmi við tillögur rikisstjórn- ar tslands, skal varnarsamningn- um sagt upp.” Að þessu munu forvigismenn Samtaka jafnaðar- manna vilja ganga. t gær lýsti einn af framkvæmdanefndar- mönnum þeirra, Helgi Sæmunds- son.þvi yfir i Visi, að hann styddi J-listann i kosningunum i Reykjavik á morgun. Steinunn Finnbogadóttir er liklega sam- einingartákn allra þessara flokksbrota I borgarstjórnar- kosningunum. Hvað gerir þingflokkur Alþýðu- flokksins, er lýsti yfir stuðningi við undirskriftasöfnun Varins lands? Hefur ekki verið grafiö undan fylgi hans? Geta þeir, sem studdu þingmennina i siöustu kosningum, m.a. vegna ábyrgrar stefnu þeirra i varnarmálunum, lengurkosið lista þá, sem Alþýöu- flokkurinn og SFV standa að? Þetta eru spurningar sem margir hljóta að velta fyrir sér, áður en þeir greiða atkvæði sitt, t.d. J- listanum i Reykjavik. Þrátt fyrir það, að 55522 is- lenzkir kjósendur iýstu andstöðu sinni viö stefnu rikisstjórnarinnar I öryggis- og varnarmálum, gerir Alþýðubandalagið sér vonir um aö geta eftir kosningar ráðið stefnu Framsóknarflokksins i utanrikismálum. Stuðnings- mannalið Alþýðuflokksins er gagnsýrt af þeim, sem vilja land- iö varnarlaust. Þau öfl, sem nú hafa klofiðþann flokk, munu telja sér það til tekna, ef Steinunn Finnbogadóttir kemst I borgar- stjórn. Hvorki forsætisráðherra né utanrikisráðherra, leiðtogar Framsóknarflokksins, hafa hvik- að frá ábyrgðarlausum tillögum sinum, sem liggja nú til afgreiðslu i Washington. Áf framansögðu sést, að engum vinstri flokkanna er hægt að treysta i varnarmálunum, þegar gengið verður að kjörborðinu á morgun. Þeir, sem vilja festu i þessu mikilvæga sjálfstæöismáli þjóðarinnar, hljóta þvi ab kjósa Sjálfstæöisflokkinn.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.