Vísir - 25.05.1974, Blaðsíða 11

Vísir - 25.05.1974, Blaðsíða 11
Visir. Laugardagur 25. mai 1974. n * v A ♦ ♦ ¥ ieimsmeistara- í sveita- Ikeppni nýhafið Heimsmeistaramót i sveitakeppni hófst fyrir stuttu, og eiga sex þjóðir þátttakendur. Liklegt er, að úrslitin standi á milli Banda- rikjamanna og Itala en að auki spila sveitir frá Frakklandi, Indónesiu, Nýja-Sjálandi og Brasiliu. í sveit ítala, sem eru núverandi heimsmeistarar, er hinn gamli kjarni bláu sveitar- innar Belladonna, Garozzo og Forquet, ásamt Bianchi, Franco og de Falco. Þeir tveir siðastnefndu eru ungir 'menn, nýbakaðir Evrópumeistarar frá þvi i fyrra. 1 sveit Bandarikjamanna eru Hamman og Wolff, nýbakaðir Ólympiumeistarar i tvi- menningskeppni, Goldman og Blumenthal, ásamt Kanada- mönnunum Murray og Kehela. Mótið fer fram i Feneyjum á ítaliu og stendur fram að næstu helgi. Nánari fréttir og spil verða i næsta þætti. Eins og sagt var frá i siðasta þætti spiluðu 192 pör um Ólympiumeistaratitilinn i tvi- menning, og fór fyrst fram sex umferða undankeppni. Að þeim loknum komust 60 efstu pörin i úrslit. Arangur islenzku þátttak- endanna var þessi: Hjalti Eliassson — Karl Sigurhjartarson nr. 68 með 15804. Einar Þorfinnsson — Jakob Ármannsson nr. 108 með 15223. Þórir Leifsson — Lárus Karlsson nr. 111 með 15157. Ólafur Lárusson — Sigurjón Tryggvason nr. 128 með 14917. Hörður Arnþórsson — Þórarinn Sigþórsson nr. 179 með 13778. Björn Eysteinsson — Ólafur Valgeirsson nr. 187 með 13285. t kvennaflokki sigruðu Markus og Gordon frá Bretland-i með miklum yfirburðum, en islenzka parið, Halla Bergþórsdóttir og Vigdis Guðjónsdóttir, varð nr. 67 af 74 þátttakendum. Sagnir gengu þannig: Jafnvel Garozzo gat ekki sloppið betur en með 300, en fyrir það fékk hann aðeins 19 stig, en Belladonna 171. Austur Suður Vestur Norður Garozzo Mondolfo Mayer Belladonna P 1 4 24 D P 34 3 4 D 3 M p p D P P P Hér er spil frá undankeppn- inni, þegar heimsmeistararnir, Belladonna og Garozzo, mættust. Staðan var n-s á hættu og austur gaf. A * A-G-10-4-3 V K-G-10-8-5 fc 0 6-5 A K-D-9-8-6-2 * V ekkert ♦ A-K-8-2 A-8-4 4 7-5 V D-9-7-6-4-3-2 . ♦ G * 9-7-6 4k enginn V A ' A D-10-9-7-4-3 A K-D-G-5-3-2 Firmakeppni BSI að Firmakeppni Bridgesam- bands islands verður spiluð dagana 28. og 29. mai i DOM- US MEDICA. Keppnin er jafnframt íslandsmót i ein- men.ningskeppni, og er öllu bridgefólki heimil þátttaka. Þátttökugjöld eru epgin, en þátttakendur greiða veitingar sjálfir. Áriðandi er, að sem flestir hefjast bridgemenn spili i þessu siðasta opna móti BSt á bridgevertiðinni, og eru væntanlegir þátttakendur beðnir um að mæta kl. 19,45 stundvislega. i fyrra sigraði OLÍU- FÉLAGIÐ H.F. I firma- keppninni, en það hefur um langt skeið styrkt starfsemi Bridgesambands tslands. Það er svo fjári gaman að kyssa kerlingarnar Láttu ganga Nú þegar tvénnar kosningar ru i nánd, er vel við hæfi að drta nokkrar kosningavisur. Það tiðkast trúlega ennþá að agitera yírir kosningar. Slikt virðist þó aðallega ilgið i þvi að tala við samherjana, en kki hinu að reyna að snúa andstæðingun- m frá villu sins vegar. Kankvis yrkir. i næsta sumri ótal margar ferðir verða farnar. á fiskar hver og einn á slna pólitisku linu. •að er svo fjári gaman að kyssa kerlingarnar, g klappa svo á vangann á atkvæðinu sinu. Eftir að Alþýðuflokkurinn hafði neitað amstarfi við Framsókn 1949 um jórnarmyndun, var kveðið. lermann veikur var í trúnni, insemd krata pantaði. In hér tókst ekki að halda kúnni- æðarmuninn vantaði. Næsta visa er ort eftir alþingis- asningarnar 1946. Það ár tapaði Fram- ikn allmiklu fylgi, og tapaði Hilmar tefánsson þingsætinu i Vestur-Skafta- dlssýslu. úrðu snjallar fréttir kallast, —Framsókn varla réttir við: tysteinn fallinn, Hermann hallast, ilmar skall á rass.... Björn Kristjánsson talaði eitt sinn á amboðsfundi um einræðið i Rússlandi. ar væri mönnum sagt fyrir um það, hvað úr ættu að kjósa. Um þetta var kveðið. Lýðræðið er sem ljós I vindi litið er þar um skjól og vörn. Þó eru mikil mannréttindi, að maður þarf ekki að kjósa Björn. 1 alþingiskosningunum 1959 féll Jón á Akri fyrir Birni á Löngumýri. Sendi Rós- berg G. Snædal þá Jóni þetta skeyti. Heyri ég norður héraðsbrest, hlakkar i Framsókn görnin. Lagði þig, er lá við mest Löngumýrar-Björninn. 1 kosningunum 1956 þegar hið svo- kallaða Hræðslubandalag var stofnað, börðust þeir Bragi Sigurjónsson og Jón á Akri um þingsætið. Húnvetninga heiðri barg, haldið velli gat 'ann Af sér hristi eins og varg. Akursbóndinn kratann. Ásgeir Bjarnason felldi Þorstein sýslu- mann Dalasýslu i kosningunum 1933. Þá var kveðið. Heyrðu I Dölum höldar skell. Hristist sérhver staður. Þéttur á velli, þegar féll Þorsteinn, sýslumaður. Þegar Ragnar Arnalds fór i framboð á Norðurlandi, fékk hann það mikið fylgi, að Birni á Löngumýri stafaði hætta af. Blástur Arnalds vonir vakti og viðreisn hló. Löngumýrarljósið blakti, en lifði þó. Undanfarnar vikur hefur um fátt verið meira talað en þingrof vinstri stjórnar- innar. Eftirfarandi visa var ort um svipað efni 1943. Stjórnin brellin beið hér skell, beitti spellum laga. Engan hrellir: feig hún féll fyrir ellidaga. Fólk hafði einnig gaman af að tala um maraþonræður nokkurra þingmanna á þessum tima. En það hefur gerzt áður að menn töluðu lengi á Alþingi. Arið 1943 hélt Pétur Þórðarson langa ræðu þar og hafði langar þagnir i milli. Langt er nóttu liðið á, — lopann flestir teygja. Menn ættu ekki að meina þá mér að standa og þegja. Það fór þá sem nú, að menn gerðust syfjaðir, og gengu af þeim sökum margir úr salnum. Þó að liði þessi nótt, þrjóti kaldan vetur, og þingmenn sofi sætt og rótt, — samt ei þagnar Pétur. Ekki hafa allir þingmenn verið mjög málglaðir. Hjörtur Snorrason sat á þingi i niu ár og flutti aldrei ræðu nema á fyrsta þinginu. Fátt til mála flestra lagði ’ann, i fáum smáum nefndum sat. A hundrað daga þingi þagði ’ann. — Það var meira en nokkur gat. Nú i seinni tið hefur það færst i vöxt að flokkar hefðu prófkjör til að ákveða röð manna á listum. Manni nokkrum var boðið að kjósa i sliku prófkjöri. Hann neitaði og var spurður hvers vegna. Hann svaraði. Leit ég yfir lista þann, litið þar af góðu fann, vildi finna einn viðsýnann, þá vantaði þann góða mann. Ronald Reagan fylkisstjóri i Banda- rikjunum var mikil sjónvarpsstjarna, áður en hann fór út i pólitikina. Þegar Magnús Bjarnfreðsson hvarf úr sjónvarpi til að taka sæti á lista i Kópavogi var kveðið. Framsóknar og frjálslynt lið i fylkingu sér skipar loks. Þann flokk skal reyna að rétta við Ronald Reagan Kópavogs. Um kvenframbjóðanda einn i Kópavogi er næsta visa kveðin. Vifið snjalla er veðrað mjög I valdastreitu kifsins. Renta sig i Iengstu lög ljósir kostir vifsins. Maður nokkur, sem heyrði þessa visu, var ekki alveg á sama máli. Vifið snjalla er veðrað mjög I valdabrallsins dáðum. í metorðshjallans mýrardrög mun þó falla bráðum. Eflaust munu einherjir verða að bita i það súra epli að falla i kosningunum á morgun. Ég ætla þó að óska þess að allir komist að. Ég ætla einnig að vona að allt hið góða, sem þetta fólk vill gera fyrir okkur, komist til framkvæmda sem allra fyrst. Mikið óskaplega mun okkur þá liða vel næstu fjögur árin. Ben. Ax. Ijóðaskrá

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.