Vísir


Vísir - 25.05.1974, Qupperneq 14

Vísir - 25.05.1974, Qupperneq 14
14 Vísir. Laugardagur 25. mai 1974. Hvorf sem þér þurfiö aö gera viÖ gamalf — eöa fá yÖur nýf f! Komið við í Hjólbarðaverkstæðinu NÝBARÐA í GARÐAHREPPI, þar er opið alla Helgina. Við eigum flestar stærðir hjólbarða. Við jafnvægisstillum hjólin með fullkomnum tækjum. BARUM BREGZT EKKI. Við kappkostum að veita yður þjónustu og réttar leiðbeiningar um val hjólbarða. W HJÓLBARÐAVERKSTÆÐI í GARÐAHEPPI SÍMI 50606 Volvo 144 ’72 og ’70. Volkswagen 1302 ’71. Volkswagen 1300 ’72. Fiat 850 ’72. Ilillman Hunter ’71. Cortina 1300 ’70. Fiat 127, ’73. Opið á kvöldin kl. 6-10. — Laugardag kl. 10-4. Sumarblóm Erum byrjuð að selja sumarblómin. Gróðrarstöðin Birkihlið7, Kóp. Rösk stúlka óskast við afgreiðslu annan hvern dag á pylsu- bar. Uppl. i sima 84247 eftir kl. 6. Hús til leigu Til leigu er hús I miðbænum. Húsið er ein hæð og ris ásamt rúmgóðum geymslukjallara. A hæð eru þrjú herbergi og eldhús, en i risi 2-3 herbergi og eldunaraðstaða. Sameigin- leg snyrting er fyrir báðar hæðir. Húsið gæti hentað sem skrifstofuhúsnæði vegna legu sinnar, en lika til ibúðar. Tilboð sendist augld. VIsis merkt ,,Frakkastigur”. PASSA/VðYNDIR '16U6ÚJUÍ/1 œ, d> mívt'f -c ökjUtSkMiíeini, ~ náSrbskitáeuú, uefiOÁréS— skók&sfeítáöi/ú <,./!■ ^MATORVER/, IjUNÍN// LAUGAVEGI CC SIMI 22718 o Albert Guðmundsson: Fylkið ykkur um óklofínn fíokk Kjördagur nálgast nú og árásir minnihlutaflokkanna i borgar- stjórn harðna dag frá degi. Helzt virðast þeir leggja áherzlu á að lofa lausn á vandamálum aldr- aðra, og siðan reyna þeir að gera Sjálfstæðisflokkinn tortryggileg- an. Á þvi kjörtimabili, sem nú er á enda, hefur Sjálfstæðisflokkurinn haldið sinu fyrra striki og unnið málefnalega að lausn allra mála. Hins vegar er mér ekki minnis- stæð nein sjálfstæð tillaga frá vinstri mönnum, en aftur á móti hafa þeir, svo til allt kjörtfmabil- ið, elt okkur sjálfstæðismenn I til- lögusmiði, t.d. ef við berum fram tillögu um smiði ákveðins fjölda leiguibúða, þá bæta þeir við ibúðafjöldann. ef við leggjum til kaup á ákveðnum fjölda strætisvagna, auka þeir þann fjölda. ef við leggjum til hækkun á lán- um til íbúðakaupa, leggja þeir til hærri lán. Sjálfstæðar tillögur frá minni- hlutamönnunum eru svo sjald- séðar, að I augnablikinu man ég ekki eftir neinni. Ekki hefur staðið á þeim að halda uppi málþófi, t.d. I málefn- um aldraðra, enda fátt æst þá meira en sú tillaga okkar sjálf- stæðismanna, sem gerir vanda- mál aldraðra og sjúkra að for- gangs framkvæmdamáli, með samþykkt borgarstjórnarinnar á þvi að leggja 7 1/2% af heildarút- svörum borgarinnar til lausnar málefnum aldraðra, sem þýðir, að um 1000 milljónum króna verð- ur varið til þess að leysa þessi mál að fullu á næstu árum. Við gerum okkur glögga grein fyrir þessu vandamáli, og þvi hefur borgarstjórnarmeirihlutinn, und- ir stjórn Birgis ísleifs Gunnars- sonar, borgarstjóra, gert vanda- mál aldraðra að forgangsmáli á framkvæmda- og fjárhagsáætlun næstu ára. Þá hefur á þessu kjörtimabili oft verið átakanlegt að horfa upp á þennan sundurlausa hóp vinstri manna I borgarstjórn, sem eytt hefur öllu kjörtimabilinu i tal um samstöðu sin á milli, til þess að fella borgarstjórnarmeirihluta sjálfstæðismanna. Allt þeirra tal og öll þeirra fundahöld hafa verið árangurslaus, og eftir hvern fund þeirra hefur sama sterka og trausta fylking sjálfstæðismanna blasað við þeim, samstilltari og ákveðnari en nokkru sinni fyrr. Alþjóð veit, að aldrei hefur meiri sundrung rikt innan vinstri flokkanna, bæði i borgarstjórn og þjóðmálum. Við siðustu kosningar studdu kjósendur Framsóknarflokksins ekki sinn flokk, i þeim tilgangi að koma kommúnistum til valda, en þrátt fyrir litið fylgi kommúnista á Islandi, hafa þeir haft bróður- partinn af völdunum i rikisstjórn. Kommúnistar vinna þannig, að ná samstöðu með bændaflokkum, mynda með þeim meirihluta og gleypa þá siðan, um leið og þeir stefna að þvi að skapa upplausn i þjóðfélaginu, en slika upplausn telja þeir bezta jarðveginn til endanlegrar valdatöku. íslenzka þjóðin verður að gera sér það ljóst, að svo mikil hætta stafar af kæruleysi á þessum al- varlegu timum, að ég bið kjósendur að skoða hug sinn vel, áður en þeir greiða öðrum flokk- um atkvæði I komandi kosning- um. Til dæmis um samstarf vinstri manna I borgarstjórn og rikis- valdsins til að knésetja Sjálf- stæðisflokkinn I Reykjavik má benda á, hvernig rikisstjórnin hefur með tilskipunum reynt að hafa áhrif á borgarmálin. Þegar borgarstjórn þurfti að nota 1% álagningaheimild við álagningu útsvara leyfði rikis- stjórnin það gegn þvi, að fast- eignagjöld i Reykjavik yrðu hærri en sjálfstæðismenn töldu æski- legt. Þegar hafnarstjórn þurfti að hækka vörugjöld, kom samþykkt rikisstjórnarinnar, gegn þvi, að fyrst yrðu tekin aflagjöld af báta- flotanum, gjöld, sem aldrei áður hafa verið innheimt. Þegar borgarstjórn hefur sótt um leyfi til að hækka gjaldskrár þjónustufyrirtækja borgarinnar, vegna sihækkandi útgjaldaliða og óskiljanlegra ráðstafana rikis- stjórnarinnar i efnahagsmálum, þá hefur ábyrgðarleysis gætt i svörum rikisstjórnarinnar til borgarráðs: ,,Þið megið taka erlend lán — rekstrarlán — til að komast yfir erfiðleika augnabliksins” — rétt eins og aldrei komi að skuldadög- um. Kommúnistum i rikisstjórn hefur tekizt betur upp en búizt var við I þeirri iðju sinni að skapa hér glundroða og brjóta niður það þjóðfélagskerfi, sem lýðveldið Is- land byggir á. Forustumenn þeirra hafa lýst þvi yfir, að þetta kerfi henti þeim ekki. Það er þó sannarlega rétt. Ég vil leyfa mér að bæta við, að þjóðfélagskerfið, sem við búum við, hvorki þolir kommúnista né vill þá, og ég lýsi ábyrgð á hendur þeim flokkum, sem láta nota sig til þess að skapa þessum boð- berum erlendrar stjórnmála- stefnu valdaaðstöðu á Islandi. Ég skora á alla tslendinga, og þá sérstaklega Reykvikinga, að berjast gegn þessu óheillaafli. Sjálfstæðisflokkurinn er eini is- lenzki stjórnmálaflokkurinn, sem hefur ekki erlendar fyrirmyndir á sinni stefnuskrá, hann er hreinn islenzkur stjórnmálaflokkur. Þvi ber okkur að styrkja hann og styðja, bæði i borgarstjórnar- og alþingiskosningum. Berjumst hlið við hlið gegn vinstri öflunum. Við verkalýðinn vil ég segja þetta: Gerið ykkur það ljóst, að verkalýðsforingjar vinstri manna eru ekki lengur til. Hugsjóna- mennirnir, sem börðust fyrir bættum kjörum fólksins, eru horfnir. 1 þeirra stað er komin ný stétt. Menn, sem skipuleggja fylkingar ykkar i ákveðnum, pólitiskum tilgangi. Þeir, sem komu I stað foringja ykkar, eru nú kallaðir verkalýðsrekendur. Hristið af ykkur blekkinga- mennina og fylkið ykkur bak við verkalýðsforustu sjálfstæðis- manna. Æsku Reykjavíkur, sem nú gengur til kosninga i fyrsta sinn, óttast ég ekki. Sú æska, semég hef kynnzt, er fullfær um að mynda sér heilbrigða skoðun á borgar- og þjóðmálum og gera sér glögga grein fyrir þvi, hvað bezt er fyrir þjóðina. Ég ber fullt traust til hinnar glæsilegu islenzku æsku, sem innan tiðár tekur sjálf við stjórn borgarinnar og landsins. Aðeins samstillt sjálfstæðisfólk getur skilað nútið til framtiðar i góðu ásigkomulagi. Ég vil að lokum skora á allt sjálfstætt fólk, að fylkja sér i rað- ir þess eina flokks, Sjálfstæðis- flokksins, sem ekki er klofinn. Sjálfstæðisfólk, sækið fram i órjúfandi fylkingum á kjördag. Kjörorð okkar er: Gjör rétt — þol ei órétt. Stöndum vörð um Reykjavik. Myndum skjaldborg um hið unga, islenzka lýðveldi. 1. deild Laugardalsvöllur KR - ÍBK Leika í dag kl. 14 KR Bifreiöar á kjördag : Si; U D-listann vantar fjölda bifreiða til aksturs frá hinum ýmsu bifreiðastöðvum D-listans á kjördag. Frambjóðendur heita á stuðningsmenn B listans að bregðast vel við og leggja listanum lið m.a. með þvi að skrá sig til aksturs á kjördag 26. mai næstkomandi Vinsamlegast hringið i sima 84794. Skráning bifreiða og . sjálfboðaliða fer einnig fram á skrifstofum hverfa- félaganna. ■ jlj-lislinn

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.