Vísir - 25.05.1974, Blaðsíða 15
Vlsir. Laugardagur 25. mai 1974,
15
SVONA EIGA FÍNIR
HVOLPAR AÐ VERA!
Aaaaahhhh, þetta er gott! Aöeins ofar og örlítið
lengra til hægri...já, þarna...Aaahahaaaaa!! Þetta
mætti ætla, að sjálfur Lord Wellington sé að segja
við frökenina, sem er að strjúka honum öllum og
klappa. En Lord Wellington er hundur, sem við fæð-
ingu var skírður þessu virðulega nafni. Það var að
-sjálfsögðu í Bandaríkjunum. I Englandi bera menn
meiri virðingu fyrir lordanafninu en það. Myndin
af lordinum er tekin skömmu f yrir hvolpasýningu í
Bandaríkjunum og er þarna verið að snyrta hann og
pússa. Þó fólk trúi því ekki, þá er það nú samt rétt,
að Lord Wellington er hvolpur.
Fólkið á myndinni til vinstri þekkja vist flestir tslendingar, sem komnir eru eitthvað til ára sinna. Þetta
eru þau Fred Astair og Ginger Rogers, sem heilluðu alla I dansmyndum sinum, sem gerðar voru á árun-
um 1936 til 1940. Hér eru þau I einu atriði myndarinnar ,,I Won’t Dance” frá árinu 1936. Myndin til hægri
er tekin af þeim nú, 38 árum siðar. Þá dönsuðu þau saman á góðgerðaskemmtun, sem haldin var I til-
efni frumsýningar á myndinni „That’s Entertainment,” og vöktu fádæma hrifningu hinna rúmlega 1000
gesta.
Stofnfundur
íþróttafélags fatlaðra
verður haldinn i Vinnu- og dvalarheimili
Sjálfsbjargar, Hátúni 12, II hæð, fimmtu-
daginn 30. mai kl. 20,30 e.h.
Að stofnun félagsins standa félög og
styrktarfélög öryrkja i Reykjavik, og
I.S.Í.
Á fundinum verður sýnd kvikmyndin
íþróttir fyrir fatlaða.
Undirbúningsnefndin.
Kassagerð Reykjavíkur
auglýsir
Okkur vantar nú þegar lyftaramann, vél-
gæslumann og nokkra menn til annara
verksmiðjustarfa.
Mötuneyti á staðnum. ódýrt og gott fæði.
Talið við Halldór simi 38383.
Kassagerð Reykjavikur Kleppsvegi 33.
Laus staða
Dósentsstaða I liffærameinafræði I læknadeild Háskóla ís-
lands er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur til 20. júnl
1974. Um er að ræða hlutastöðu, og fer um veiting hennar
og tilhögun samkvæmt 2. gr. laga nr. 67/1972, um breyting
á lögum nr. 84/1970, um Háskóla tslands, m.a. að þvl er
varðar tengsl við sérfræðingsstöðu við opinbera stofnun
utan háskólans.
Laun samkvæmt gildandi reglum um launakjör dósenta 1
hlutastöðum I læknadeild.
Umsækjendur um dósentsstöðu þessa skulu láta fylgja
umsókn sinni rækilega skýrslu um visindastörf þau, er
þeir hafa unnið, ritsmiðar og rannsóknir, svo og námsferil
sinn og störf.
Mennta má la ráðuney tið,
20. mai, 1974.
Tilkynning til
launþega um orlof
Ákveðið hefur verið að orlofsávisanir að
upphæð kr. 10.000,00 eða lægri skuli
undanþegnar áritun vottorða, sbr. til-
kynningu Félagsmálaráðuneytisins dags.
21. þ.m. Orlofsféð fæst greitt á póststöðv-
um. Hafið meðferðis persónuskilriki.
Reykjavik, 24. mai 1974
Póstgiróstofan
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 187., 88. og 90. tbl. Lögbirtingabiaðs 1973 á
Dvergabakka 28, talinni eign húsfélagsins, fer fram eftir
kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavlk á eigninni sjálfri,
miðvikudag 29. mai 1974 kl. 15.00.
Borgarfógetaembættið I Reykjavlk.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 87., 88. og 90 tbl. Lögbirtingablaðs 1973 á
Ferjubakka 14, talinni eign húsfélagsins, fer fram eftir
kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavik á eigninni sjálfri,
miðvikudag 29. mai 1974 kl. 16.30.
Borgarfógetaembættið I Reykja vik.