Vísir - 30.05.1974, Qupperneq 3
Visir — Ferðablað 1974
3
Lapp-
arnir
eftir
„Minn hugur leitar
á þær slóðir, sem
munu kannski ekki
þykja i samræmi við
þær, sem ég býð við-
skiptavinum minum
dags daglega til,”
sagði Steinn Lárus-
son, forstjóri ferða-
skrifstofunnar úr-
vals.
„Norðurslóðir eiga nefni-
lega minn áhuga. Ég hef farið
á undanförnum árum til
Grænlands og Færeyja, og mi
hefur það verið minn draumur
að skipuleggja ferð — ekki
bara fyrir sjálfan mig, heldur
lika fleiri — til Lappanna
nyrzt i Skandinaviu.
Ég veit ekki, hvað veldur
þessari forvitni minni á fólk-
inu, sem býr hérna nær okkur
Islendingum á norðurhveli
jarðar. Þessum þjóðum, sem
við höfum svo litið lagt okkur
eftir að kynnast. — Ég hef
kynnzt frændum okkar Fær-
eyingum og likar mjög vel við
þá. Ég hef lika kynnzt all-
mörgum Grænlendingum og
fengið á þeim dálæti.
Nú langar mig til að kynnast
Löppum og Lapplandi. — ís-
lendingar þykja áreiðanlega
sjaldséðir hrafnar þar.”
Steinn Lárusson, Urval
Tif að losna
við símann
— Ég fœri til
Grœnlands,
hvenœr sem ég
œtti kost á því...
„Þvi er fljótsvarað,” sagði
Birgir Þorgilsson sölustjóri Flug-
félags tsiands, og hló við, þegar
við spurðum hann, hvert hann
mundi leggja land undir fót, hvert
væri óskaferðalagið hans.
„Þangað sem ég hef fariö á
hverju ári núna að undanförnu.
Ég færi til Grænlands, hvenær
sem ég ætti vöi á þvi. — Þvl oftar,
þvi betra. Og þvi lengur sem ég
get verið, þvi betra,” sagði Birg-
ir, sem i starfi sinu hefur ferðazt
um fjölda landa.
„Hvað er það við Grænland,
sem heillar þig frekar en önnur
lönd, Birgir?”
„Það er þarna þessi ró, sem
maður finnur varla orðið hér. Þvi
verður ekki lýst I Örfáum orðum,
hvernig kyrrð óbyggðanna þarna
orkar róandi á allt. — Þó hlýtur
að blasa við, að þarna er maður
laus við simann, sem eitt út af
fyrir sig er ægilegur léttir. Maður
er laus við útvarpið. Sem sé laus
við þennan ys og þys og skarkala,
sem menn gera sér kannski ekki
almennt grein fyrir, hvað fer ann-
ars illa með þá.
Þarna er algert næöi, og ég hef
hvergi hvilzt eins vel.
Fólkið, sem býr I þessu landi,
laðar mann á vissan hátt að sér.
Mér llkar vel við það. — Það er
svo hreinlynt.
Já, ég færi þangað, hvenær,
sem ég ætti þess kost.V
Birgir Nrfhiin, f.í. ^
hvert,sem
Ferdatryggingar okkar eru ódýrar og viótækar. Þær greiða bætur
vió dauóa af slysförum og vegna varanlegrar örorku. Einnig dag
peoinga, þegar hinn tryggói veröur óvinnufær vegna slyss.
Gegn vægu aukagjaldi greiðir tryggingin einnig sjúkra-
kostnaó, sem sjúkrasamlag greióir ekki.
Farió ekki ótryggð i feróalagió.
Tryggió yóur og farangur yóar hjá Aöalskrifstofunni eða næsta umboói
SAMVINNUTRYGGINGAR
Anwft 3 - sM 3S500