Vísir - 30.05.1974, Síða 5
Vlsir — Feröablaft 1974
5
Ættum að líta okkur nœr í leit að sumarleyfisferðum
í FÓTSPOR EIRÍKS RAUÐA
Þegar fólk ætlar að
bregða undir sig betri
fætinum og bregða sér
út fyrir landsteinana i
sumarleyfi, þá leitar
hugurinn mjög oft upp á
meginland Evrópu, og
þá helzt suður til sólar-
stranda. En það eru
vissulega aðrir ferða-
möguleikar fyrir hendi,
bæði styttra og lengra
út i heim.
„Maftur littu þér nær”, stendur
ritaft einhvers staðar. og það á
svo sannarlega við, þegar litift er
til þeirra ferðamöguleika sem vift
eigum i næsta nágrenni vift
okkur.
Næsti nágranni okkar i vestri er
Grænland. Eflaust er þaft nú svo,
aft flestir Islendingar telja sig
kunna nokkur deili á landi og
þjóft, en ef nánar er kannaft, þá
mun þar vera um næsta litla
þekkingu aft ræða.
Samskipti Islands og Græn-
lands hafa verið næsta litil, frá
dögum þeirra Eiriks raufta og
Leifs heppna fram að allra
siftustu árum, er Flugfélag Is-
lands hóf þangað skipulagftar
skoftunarferftir.
I dag er boftið upp á tvo mögu-
leika á ferðum til granna okkar á
Grænlandi, og samkvæmt þeim
upplýsingum sem við fengum hjá
skrifstofum SAS og Flugfélags Is-
lands eru þeir þessir: 1 fyrsta lagi
er um aft ræða fast áætlunarflug
til Narssarssuaq og eins dags
skoöunarferftir til Kulusuk.
Narssarssuaq:
Þangað bjófta SAS/FI upp á
tvær vikulegar ferðir frá 27. mai,
en fjórar ferftir á viku frá og með
26. júni. — Fargjald báftar leiðir
er 18.226.00 en völ er á svokölluftu
17 daga fargjaldi, og er þá verðið
15.063 báðar leiðir Gisting: Hótel
Arctic i Narssassuaq býður
gistingu i 2 til 3 manna herbergj-
um. Hver tvö herbergi eru með
sameiginlegu bafti. Gisting með
hálfu fæfti, þ.e. morgun- og há-
degismat kostar um 2150 kr. fyrir
manninn, en kvöldverftur um kr.
300. Þess ber þó að geta, að þessi
verð eru miðuð við það verðlag,
sem gilti siðastliðift ár. Að sögn
þeirra, sem til þekkja, er matur-
inn i sama gæðaflokki og bezt
gerist á hótelum i Danmörku.
Feröir: Þar eð Narssarssuaq
stendur i miftri „Eystribyggft”, i
botni Eiriksfjarðar, þá er vifta
hægt aft fara i ferðir frá hótelinu á
söguslóftir Eiriks rauða og manna
hans. Skal nú gerð grein fyrir
nokkrum þeim möguleikum sem
bjóftast.
Brattahlið (Kagssiarssuq): Siglt
meft báti þvert yfir Eiriksfjörð til
byggftar Eiriks raufta. Þarna
gefur að lita rústir fyrstu kirkju á
vesturhveli jarðar, Þjóðhildar-
kirkju, en hún fannst vift uppgröft
1961. Einnig eru þarna aðrar
rústir frá timum Eiriks og Leifs,
og ennfremur rústir fornra
Eskimóabyggða. 1 dag búa um
200 manns i Brattahlift.
Garftar (Igalikio): Þarna var á
sinum tima biskupssetur nor-
rænna manna á Grænlandi. I
þeirri ferft er siglt út Eiriksfjörft
til Itvdlek, stigiö þar á land og
gengift yfir hæftarhrygg, sem skil-
ur aft Eiriksfjörð og Einarsfjörft
þar sem Garðar eru. 1 Görðum
eru I dag ýmsar rústir frá timum
norrænna manna og þeirra helzt-
ar rústir dómkirkjunnar.
Narssaq: Utarlega I Eiriksfirfti
stendur Narssaq, 1500 manna
bær. Þar gefur að lita andstæftur
tveggja tima, niftursuðuverk-
smiftju, þar sem rækja er soðin
niftur, frystihús og fiskverkunar-
stöftvar. En einnig má þar sjá
tæki frá gamla timanum, kajaka
og önnur veiftitæki i lendingunni,
sem notuö var allt fram að okkar
dögum.
Gönguferð aft Grænlandsjökli: I
þessari ferð gefst gott tækifæri til
aft kynnast stórbrotinni náttúru
Grænlands vel. Gengift er um gró-
in og grýtt svæfti, yfir litla læki og
meftal villtra blóma. Gengift er aft
rótum Grænlandsjökulsins og
smáspöl inn á hann.
Aftrar ferftir út frá Narssarssuaq:
Ef verftur og isar leyfa, er unnt
aft fara i bátsferft i Qoroqfjörðinn.
Þar steypist skriftjökull i sjó
fram, og gefst þar gott tækifæri
aft sigla meðal fljótandi jakanna.
Flugsamgöngur á Grænlandi
eru eingöngu meft þyrlum, og er
þaö mjög dýrt aft ferðast meft
þeim. T.d. kostar um 1000 kr.
danskar aft fljúga frá
Narssarssuaq til Godthaab (tæp-
lega 15 þús. fsl.)
Julianehaab: Fyrir þá, sem vilja
kosta aðeins meir til ferða út frá
Narssarssuaq, má benda á ferft til
Julianehaab. Þangaft er bæfti
hægt aft komast með þyrlu og sjó-
leiftina. Reglubundnar strand-
ferftir eru fyrir hendi, og nokkuft
öruggt, aft hægt sé að komast
þangaft' a.m.k. aðra leiftina meö
skipi, en þá fljúga hina. Flugfarift
aftra leiftina kostar um 130 kr. d.
efta um 1800 kr. isl. Litift gisti-
heimili er i Julianehaab, ef kosift
er aft dvelja þar lengur.
Verft og lengd ferfta:
Brattahlift 4 timar, verð um 860
kr.
Garftar 7 timar, verft um 1400 kr.
Narssaq 8tfmar, verft um 3200 kr.
Gönguferft að jöklinum, heils-
dagsferö, verð um 780 kr.
Sigling i Qoroqfjörft, 3 timar, verð
um 1250 kr.
Veiðiferðir: Þaft hefur færzt i
vöxt að ferðamenn komi til Græn-
lands með það sérstaklega i huga
aft stunda þar lax og silungaveifti.
Hægt er aft fá fyrirgreiftslu meft
veiftileyfi og aftrar leiftbeiningar á
Hótel Arctic i Narsassaruaq.
Skoðunarferð til
Kulusuk.
Flugfélag Islands hefur nú
um nokkurra ára skeift boftift upp
á eins dags skoðunarferðir til
Kulusukeyju i nágrenni
Angmagsalik á austurströnd
Grænlands.
Frá flugvellinum á Kulusuk er
um einnar klst. ganga til Kap.
Dan, litils Eskimóaþorps en þar
gefst gott tækifæri til aft kynnast
lifnaftarháttum Eskimóa, bæfti
fyrrog nú. íbúar á Angmagsalik-
svæftinu voru ókunnir Evrópubú-
um allt fram til 1884 og mjög
einangraðir fram á siftustu ár. 1
dag er Ángmagsalik helzta
byggftin á austurströndinni. Skoft-
unarferftin til Kulusuk kostar um
kr. 9.300. JR
Ferða-
Ætétö þéh
aðfíehðast
slysa og farangurstryggingar
BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS
LAUGAVEG 103 • REYKJAVÍK • SÍMI26055