Vísir - 30.05.1974, Qupperneq 9
Visir — Ferðablað 1974
9
fr ekki mál til komið að
heilsa upp á nágrannana?
Hvað sem veldur, þá þekkja ís-
iendingar likiega Mallorca, Costa
del Sol og aðra slika suðlæga
sólarstaði miklu betur en ná-
grannalöndin og frændþjóðirnar.
Reyndar hafa lika ferðaskrif-
stofurnar upp á miklu fleiri ferðir
að bjóða á þær slóðir heldur en
hér yfir til frændþjóðanna.
En ferðir til Norðurlandanna
eru samt sem áður i boði, og þá
höfum við helzt i huga Sviþjóð,
Noreg og Finnland, þó litið sé um
skipulagðar ferðir á siðastnefnda
staðinn.
,,JU, ég mundi ráðleggja fólki
að fara til Noregs i sumarfriinu
sinu. Ég hef að visu ekki komið
mikið lengra en til Oslóar, en þar
var ég i fyrrasumar. 1 Osló er
mjög þrifalegt og friðsælt. Það er
einhver sveitabragur yfir allri
borginni, enda er Osló kölluð
stærsti sveitabær i heimi.”
Þetta sagði 21 árs gömul stúlka,
Anna Guðjónsdóttir, sem dvaldist
I Osló við vinnu i fyrrasumar.
Hún kynntist þjóðlifinu og norsk-
um nokkuð vel, enda var hún þar
á eigin spýtur og hafði á litið
annað að treysta en sjálfa sig. Við
forvitnuðumst hjá henni um
Noreg og hvernig það er fyrir is-
lenzkan ferðalang að koma þang-
að.
„Það er nokkuð dýrt i Noregi.
Matur er dýrari þar en hér. Föt
eru á svipuðu verði, en ef menn
skyldu vera svo heppnir að lenda
á haust- eða vorútsölum þar, þá
eiga þeir von á alveg nýjum fatn-
aði, en ekki gömlum sem hefur
verið geymdur langa lengi.
Maður hittir býsn af Islending-
um, enda allt yfirfullt af islenzk-
um stúdentum. Það finnst mörg-
um ágætt, en annars eru Norð-
menn ágætir. Þeir eru opnari en
við, lifsglaðari og drekka kynstur
af bjór. Þeir drekka litið af sterk-
um vinum, og maður sér sjaldan
fullan mann.
Ef ég ætti að ráðleggja ein-
hverjum að skoða eitthvað sér-
stakt i Osló, þá mæli ég með Vige-
landsgarðinum. Ég held, að allir
hefðu gaman af að sjá styttur
Vigelands, sem eyddi allri ævi
sinni i að koma þeim upp. En ann-
ars er óskaplega margt að skoða i
Noregi. Það er erfitt að mæla með
einhverri sérstakri vöru að
kaupa. Það er allt frekar dýrt og
verð á vörum fyrir túrista oft
sprengt upp.”
Verzlanir i Osló eru opnar frá
8.30 f.h. til 5 e.h. á mánudögum,
miðvikudögum og föstudögum. A
fimmtudögum frá 8.30 til 7, nema
i júli og ágúst, þá til 5. A laugar-
dögum eru þær opnar frá 8.30 til 2
e.h.
Þá vitum við það um Noreg. En
hvað um Sviþjóð? Við leituðum
upplýsinga um Sviþjóð og Finn-
land. Til Finnlands er litið um
skipulagðar ferðir héðan. Þó býð-
ur Útsýn upp á ferðir þangað i
gegnum Tjæreborg.
1 Sviþjóð er dýrt. En þar ér
hægt að fá mjög vandaða vöru.
Fatnaður er til dæmis einkar
vandaður og vörur yfirleitt i mjög
háum gæðaflokki. En fötin i Svi-
þjóð eru ekki mikið ódýrari en
hér, segja þeir, sem eru kunnug-
ir. Ef menn ætla að kaupa sér
eitthvað i soðið, þá mega þeir
eiga von á háum upphæðum, en
þó er hægt að fá ódýra vöru, en
hún tilheyrir þá sjaldnast lifs-
þurftum.
Það er nokkuð gott að ferðast i
Sviþjóð upp á málið að gera. Is-
lendingar eiga ekki mjög erfitt
með að gera sig skiljanlega, en
eiga kannski frekar erfitt með að
skilja Sviana. Ef einhver orð vefj-
ast fyrir okkur, þá er alveg eins
gott að gripa til islenzkunnar.
Sviar skilja islenzk orð furðuoft.
Sviar eru kurteisir, og ef maður
er það sjálfur, þá ætti bara að
ganga vel i sumarleyfinu.
Verzlanir eru opnar frá 9 eða 9.30
til 6 e.h. Á laugardögum til 2 e.h.
A veturna eru stærstu verzlanir
oft opnar til 8 e.h. á mánudögum
og föstudögum og til 4 e.h. á
laugardögum.
Það er ekki lögð mikil áherzla
á, að við islenzkir sjáum og skoð-
um Finnland. Viðgetum þó fengið
ferðir i gegnum Tjæreborg, og
svo þegar komið er út til Norður-
landanna. 1 Finnlandi er sömu
sögu að segja og annars staðar á
Norðurlöndum, þar er nokkuð
dýrt. Hægt er að fá bilferðir I tvo
til þrjá daga, jafnvel lengur, þeg-
ar komið er til Helsinki, þ.e.á.s.
þaðan og til annarra staða i ná-
grenninu eða lengra.
Sunna og Útsýn bjóða upp á
ferðir til Norðurlandanna og
sömuleiðis Úrval. Sunna er eina
ferðaskrifstofan sem býður upp á
hópferðir til Noregs og Sviþjóðar.
Hinar ferðaskrifstofurnar tvær
eru með ferðir i samráði við ýmis
félög, svo sem Verzlunarmanna-
félag Reykjavikur og Norræna
félagið.
Sunna býður upp á 11 daga ferð.
Sú ferð kostaði i fyrra 30 þúsund
krónur. Endanlega ákveðið verð
hefur ekki fengizt nú, en þessar
ferðir verða þó ekki undir 38 þús-
und krónum. Farið er til Kaup-
mannahafnar og þaðan til Svi-
þjóðar, t.d. Stokkhólms og fleiri
staða. Þá er farið til Noregs, þar
á meðal Oslóar og fleiri staða.
Þessar ferðir verða farnar 2. júli,
7. júli og 4. ágúst.
Útsýn verður með eina ferð til
Oslóar 4. júli, sem kostar 12 þús-
und krónur. Sú ferð er á vegum
Norræna félagsins. Ferðin er
bundin við mánuð og er ekki hóp-
ferð eða skipulögð að einu eða
neinu leyti, nema hvað viðkemur
flugáætlun fram og til baka.
Siðan verður farin ferð til
Stokkhólms 1. júli, sem kostar 15
þúsund. Sama fyrirkomulag er á
þessari ferð og til Osló. útsýn er
siðan með umboð fyrir Tjære-
borg-ferðir. Þannig er til dæmis
hægt að panta 14 daga ferð til
Finnlands og Lapplands. Þar er
allt innifalið. Og ferðirnar kosta
frá 21 þúsund kr.
Ferðir Úrvals eru alveg bundn-
ar við félög og félagsmönnum
einum ætlaðar.
—EA
Hefjið ekkri ferðalagrið
án íerðaslysa-.
tryggingar SJOVA
Ferðaslysatrygging SJÖVÁ greiðir bætur við
dauða af slysförum, vegna varanlegrar örorku
og vikulegar bætur, þegar hinn tryggði verður óvinnufær vegna slyss.
Ferðaslysatrygging SJÖVÁ er nauðsynleg,
ódýr og sjálfsögð öryggisráðstöfun allra ferðamanna.
Suðurlandsbraut 4 ‘S 82500.