Vísir - 30.05.1974, Page 12

Vísir - 30.05.1974, Page 12
12 Vlsir — Feröablað 1974 Eins og aðrar perlur er perla austursins, Hong Kong, dálæti ferðamannsins. Um þetta sann- færðust blaðamaður og ljós- myndari Visis, er þeir voru þar á ferðalagi fyrir nokkru. Hvergi getur að líta jafn iðandi og fjöl- breytt mannlif eins og þar. Kin- versk börn i lörfum, sem hoppa milli júnkanna, cr liggja hundruöum saman i höfn i hafnarborginni Aberdeen og eru heimili þúsunda manna. Og i fjörunni og á gangstéttum hafa menn reist hreysi sin og þegar gengið er um göturnar ■ferður að gæta sin svo ekki sé stigið á hrisgrjónaskál hús- bóndans eða skott heimilis- hundsins. Og kinversk börn og konur elta ferðamanninn og bjóða honum siglingu um höfnina á „shampan” litilli róinni kænu. Aðrir eru blindir og betlandi eða sumir hlaupa á eftir ferðalangn- um og vilja selja honum far i hand ‘dreginni kerru. Og á meðan má eiga von á þvi að fram hjá aki svartur Benz eða gylltur Rolls Royce, annars vegar eru hreysi úr gömlum eplakössum og hins vegar gnæfir Peninsula hótelið, sem hefur 10 Rolls Royca til þess eins að sækja viðskiptavini sina út á flugvöllinn. Hér er hægt að búa ódýrt og hér er hægt að búa dýrt, en almennt er verðlagið hreint og beint hlægilega ódýrt jafnvel hættulega ódýrt fyrir is- lenzka ferðalanga, sem láta freistast af rafmagnsvörum, myndavélum, listmunum og klæðskerasaumuðum fötum, sem hvergi fæst ódýrara ef vel er prúttað. Ferðamennirnir láta ekki hjá liða að fara upp á úndinn og lita yfir sundið baðað ljósum skipanna á fögru kvöldi, ganga um Þjófamarkaðinn, þar sem þú getur örugglega fengið keypt aft- ur úrið, sem stolið var af þér i gær, heimsækja „næturklúbb fátæka mannsins” þar sem verkamennirnir gera innkaup sin undir berum himni að loknum vinnudegi. Og allir borga lika 2 krónur og taka sér ferð með ferjunni yfir sundið, yfir til Kowloon, þar sem skemmti- hverfið er og stóru hótelin og halda jafnvel enn lengra inn á meginlandið með lest og lita á kinversku landamærin úr góðri fjarlægð. Hong Kong verður vart lýst i orðum eða myndum, það er hið æpandi mannlif austursins, er umlykur gestinn, er fær hann seint til að gleyma Hong Kong. -JB-

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.