Vísir - 30.05.1974, Side 13

Vísir - 30.05.1974, Side 13
Visir — Feröablað 1974 13 Moldaviu-vínin eru heimsfræg, en veOurlag þarf að vera gott, til að vinrækt geti blómgazt Ódýrasta land Evrópu Austantjalds hafa menn á undanförnum ár- um beint augum að ferðamannabransanum og hafið samkeppni við sólarlöndin um að laða að sér ferðafólk. Eitthvað á annað þúsund Is- lendingar fóru til Júgóslaviu og Rúmeniu i fyrra, og þó stærri hópurinn til Rúmeniu. Horfir til þess, að enn fleiri leggi þangað leið sina á þessu ári. Vinsældir Rúmeniu sem ferðamannalands byggjast á þvi, að það þykir vera ódýrasta land Evrópu að dvelja i. — Verðbólga er þar gersamlega óþekkt fyrirbrigði. Rúmenia er auðug af land- gæðum og náttúruauðlindum. Oliuiðnaður þar stendur orðið á gömlum merg. bar hefur verið ör þróun á undanförnum 5 árum á ýmsum sviðum, og hefur Rúmenia haft samvinnu við fyrirtæki ýmissa vestrænna rikja til að flýta fyrir uppbygg- ingunni. Ferðalög til Rúmeniu hófust upp úr 1953, en þá réðu hótel landsins yfir um 5 þúsund gisti- rúmum, en i dag eru þau orðin um 125 þúsund. Svartahafið hefur verið að- dráttaraflið. Enda var það fyrsta skref Rúmena i uppbygg- ingu ferðamannaiðnaðarins að koma sér þar upp baðströndum með gistirými á ströndinni. Þeir hafa smám saman byggt upp þrjá slika staði á ströndinni. Sá fjórði kemur i gagnið i sumar og nefnist Aurora, og þar hafa is- lenzkir aðilar tryggt sér gisti- rými fyrir þá, sem hug hafa á orlofsferðum héðan. Það þykir mörgum kannski lygilegt, að hægt sé að koma fyrir slikum sælunnar sólbáðs ströndum i næsta nágrenni við hafnarborg á borð við Kon- stanza, sem er eina hafnarborg Rúmeniu, 200 þúsund manna byggð. bar er m.a. mikil skipa- smiðastöð. — En svo ótrúlega, sem það hljómar, þá hefur ekki örlað á mengun frá höfninni. Enda voru i upphafi gerðar um- fangsmiklar ráðstafanir til þess að það yrði ekki. Munar þó mest um það, sem náttúran lagði sjálf til þarna, þegar hún hagaði straumum á þann veg, að það berast frekar hlutir frá bað- ströndinni til hafnarinnar heldur en öfugt. Sandurinn þarna fjörunum er framburður Dónár, þeirrar miklu móðu. Svartahafið fær stöðugt nýtt vatn úr henni, en er þó brimsalt með afbrigðum. En þetta salta vatn þykir hafa mjög heilsubætandi áhrif. Frá nágrannaþjóðum okkar á Norðurlöndunum hafa verið siðustu árin skipulagðar heilsu- bótarferðir á þessar slóðir og fer af þe'im gott orð. Þykir ekki litill fengur að geta slegið 1 einu höggi heilsubótar- ferð og svo orlofsferð með sólar- strandavist og skoðunarferðum. Prófessor Ane Aslan, 76 ára gömul kona, sem i tugi ára hefur helgað sig rannsóknum á elli og hrörnunarsjúkdómum, er ein af þeim, sem gefur Rúmeníu heilsubótarstimpillinn. Henni hefir verið þakkað langlifi ým- issa þjóðhöfðingja álfunnar. Til stofnunar hennar, sem reyndar hefur deildir um land allí, leitar fjöldi fólks árlega, sem telursig fá góða bót af heimsóknum þeirh. Það er þó af og frá, að einung- is gamalmenni og heilsutæpt fólk stefni til Rúmeniu. Náttútu- skoðarar finna þar nánast sitt fyrirheitna land, enda eru vel skipulagðar ferðir fyrir slikt fólk, og þá ekki sizt fuglaskoð- ara. Dýralif landsins ber keim af veðursæld þess, sem er mikil eins og má sjá t.d. af vinyrkju landsmanna, en þeir eru kunnir að léttvinum sinum. Magnaliu- vin eru t.d. flutt til Frakklands, og eru Frakkar ófeimnir að selja þau aftur sem sina eigin framleiðslu. Rúmenum er viðbrugðið fyrir hagleik á sviði byggingarlistar, og klaustrin i Moldaviu þykja talandi vottur þess. Vikulangar ferðir eru skipulagðar frá Þýzkalandi, þar sem fólk tekur sér ferð á hendur til þess eins að skoða þessi klaustur, svo mikið þykir til þeirra koma. En mest lokkar þó litill ferða- kostnaður. Hafa t.d. augu Bandarikjamanna opnazt fyrir ódýrum ferðalögum til Rúmeniu, og hafa þeir gert samninga við Rúmena, þar sem Bandarikjamönnum gefst kostur á farmiða fram og til baka, vikudvöl á fyrsta flokks hóteli með mat og öllu fyrir átján þúsund krónur. Standa um þessar mundir einmitt yfir samningaumleitan- ir islenzkra aðila til að komast inn i þessar ferðir, en flugvélar, sem flytja fólk milli Rúmeniu og Bandarikjanna mundu milli- lenda hér á Keflavikurflugvelli. Rúmenia er fræg fyrir m.a. heilsulindir sinar og margir túristar leggja þangað leið sina þeirra vegna einvörðungu.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.