Vísir - 30.05.1974, Qupperneq 15

Vísir - 30.05.1974, Qupperneq 15
Vísir — Ferðablað 1974 15 Ameríkuferðir nú orðnar hagstœðari Það er orðið miklu hag- stæðara fyrír íslenzka ferðamenn að ferðast til Bandaríkjanna en fyrir nokkrum árum. Yfirleitt hugsa Islendingar til annarra landa en Banda- rikjanna, er þeir velta fyrir sér ferðalögum erlendis. Miklu veldur, að til skamms tima hefur verðlag i Bandarikjunum verið til mikilla muna hærra en iEvrópu. Þetta bil hefur smám saman jafnazt, með þvi að verðbólgan i Evrópu hefur verið meiri en i Bandarikjunum, að öllu jöfnu, og þó mest á Islandi siðustu árin. Það munar nú til dæmis litlu á verðlagi á matvælum i Reykjavik og i Bandarikjunum umreiknað á núverandi gengi, að minnsta kosti gætu menn etið sig sadda á þvi, sem þeir eyða að jafnaði i matinn i Reykjavik. Einnig er hótel- gisting ekki orðin neitt dýrari i Bandarikjunum en hér. Meðal Bandarikjamaður hefur miklu meiri laun i islenzkum krónum en meðal íslendingur. Auðvitað verður að vara sig i Bandarikja- ferð að lenda ekki á hóteli eða matsölustöðum, þar sem verðlag er miklu hærra, og vissulega er þessi kostnaður minni i islenzkum krónum viða i Evrópu. Hins vegar er ekki lengur frágangssök fyrir meðal Islending að sækja Bandarikin heim, ef hann skipu- leggur ferðina vel. Loftleiðir hófu fyrir ári að fljúga beint til Chicagoborgar, auk áframhaldandi ferða til New York. Með þessu gætu Bandarikin „opnazt” fyrir islenzka ferða- menn, þvi að i Chicago eru þeir komnir inn i mitt landið. Það er til dæmis hagstætt að halda til Kaliforniu, þess sólrika og fagra fylkis. Ferðalög fyrir 24 þúsund krónur Björn Matthiasson hag- fræðingur, formaður Islenzk- ameriska félagsins, sagði blaðinu frá hópferðum, sem félagið . gengst fyrir i vor. Ferðin á að kosta 15.500 krónur báðar leiðir. Hún er ætluð félagsmönnum en félagið er öllum opið. Farið verður til New York og gert ráð fyrir, að hver ferðamaður kaupi sér hótelþjónustu fyrir 100 dollara á vegum félagsins, en fyrir það ættu menn að geta gist svo sem 7- 8 daga á hóteli. Ferðin má ekki standa lengur en þrjár vikur, og greiða menn að sjálfsögðu það, sem til þarf framyfir þessa 100 dollara. 100 dollarar eru rúmlega 9000 krónur. A þessu sést, að ferðast má til Bandarikjanna fyrir tiltölulega hafstætt verð. Ferðirnar verða væntanlega 17. og 31. mai og 14. og 28. júni, þó gæti haggazteitthvaðum dagana, þvi skipulagning ferðanna var rétt i burðarliðnum, þegar blaðið ræddi við Björn Bandarikin eru vitt land og viða fagurt. Það mundi æra óstöðugan að reyna að gera i stuttu máli grein fyrir þvi helzta, sem þau hafa að bjóða ferðafólki. Allmargir íslendingar hafa farið til Flóridaskaga einkum á vegum ferðaþjónustu Loftleiða. Þar er sól að kalla allt árið. Benda má á, að flugfélög og Greyhound-lang- ferðabilafélagið bjóða oft furðu- hagstæð kjör fyrir langferðir um þver og endilöng Bandarikin. Þannig hafa menn getaö greitt nokkur þúsund krónur fyrir ferð- ir, sem felst i þvi, að menn fara t.d. með langferðabilum, dveljast á einhverjum stað eins og þeim sýnist og taka siðan annan bil eitthvað annað án frekari greiðslu. Svipuðu máli hefur stundum gegnt hjá flugfélögum, en þetta „kerfi” er nokkuð breyti- legt, og skyldu menn kanna það vel, áður en þeir leggja af stað, á hverju kostur er af þessu tagi. Rétt er að mæla sérstaklega með þvi, að fólk fari, ef mögulegt er, akandi frá Chicago vestur til Kaliforniu, um Klettafjöll. Þetta mættifara á 4-7 dögum með þægi- legu móti. Mótel eru hvarvetna. Þó er rétt að panta fyrirfram á aðalferðatimanum. Reyndar má aka frá New York til Chicago á svo sem sólarhring með þindarlausri keyrslu, þannig að fólk skiptist á að keyra. Frá Chicago til Kaliforniu mætti aka á litlu lengri tima, ef mönnum lægi lifið á. Á móti hinu geysilega landflæmi koma af- burðavegir. Bandarikin eru ekkert óvin- gjarnlegri en önnur lönd, en sizt skyldu Islendingar flandra ofur- ölvi einir um nætur i banda- riskum borgum, ef þeir vilja halda peningum sinum og limum. Einnig skyldi ekki ferðazt „á puttanum” þar um slóðir, þótt sumir hafi lifað það af. —HH MALLORCA 1974 Meó Sunnu 1 sólina á Mallorca FERÐASKRIFSTOFAN SUNNA BANKASTRRTI ^ 1640012070

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.