Vísir - 04.06.1974, Qupperneq 3
Vlsir. Þriðjudagur 4. júni 1974.
3
Svalt og blautt
í Svartsengi
- fœstir gistu
nóttina
„Hér hafa sennilega verið
mest um 1500 manns”, var
ojíkur sagt, er við könnuðum
gang mála á Svartsengi við
Grindavík. Þar hélt ungmenna-
félagið á staðnum útihátið um
hvitasunnuna. Veðrið seinni
partinn á laugardaginn var þar
mcð ágætum og á útidans-
leiknum þá um kvöldið var fjöl-
mennast.
Fæstir gistu um nóttina, en þó
var nokkuð um tjöld. ,,Ef
nokkuð er hægt að tala um
drykkjuskap að ráði þá var það
þarna á laugardagskvöldið”,
sagði lögreglumaður. „Við
buðum nokkrum hópi unglinga
upp i lögreglubilana og ókum
þeim i fangageymslur i Kefla-
vik og á Keflavikurflugvelli.
Einnig var þó nokkru magni af
vini hellt niður. Það þykir vist
hæfa á ungmennafélags-
skemmtunum að taka vin af
unglingunum. En um litra-
fjöldann sem við helltum niður,
vitum við ekki”.
Eftir dansleikinn á laugar-
dagskvöldið fór að rigna, og
gekk þá nokkuð brösótt að koma
þeim, sem vildu i bæinn.
Klukkan 2,15 um nóttina varð
eina alvarlega slysið á há-
tiðinni. Ók þá bifreið úr
Reykjavik aftan á unglinga,
sem voru á leið gangandi til
Grindavikur og slösuðust piltur
og stúlka, pilturinn mjög alvar-
lega.
Á sunnudaginn var rigning
meiri hluta dagsins og fór þá að
fækka tjöldum og fólki. Lög-
reglan vargreinilega búin undir
það versta á þessari hátið og i
fámennum hópi gesta á sunnu-
dagskvöldið var mergð lög-
reglumanna mest áberandi.
Dansleikurinn á sunnudags-
Það þótti hæfa að leita að vini við hliðið. Ljósm. Visis JB.
Veðreiðar Fáks
í gœrdag:
KÓNGUR
bar nafn með rentu
Það var margt um manninn á
kappreiðum Fáks á Viðivöllum á
annan I hvitasunnu, enda ekki
amalegt veðrið.
Mikið var af krökkum og ekki
laust við að mörg hefðu löngun til
að eignast hest. „Ég er að safna
mér fyrir hesti” varð einni litilli 5
ára hnátu að orði, þegar við
spurðum, hvort hún ætti nokkurn
hest.
Mótið gekk fljótt fyrir sig. t 350
m hlaupi stökkhesta tókum við
eftir þvi, að einn hesturinn tók á
rás um það bil, sem hlaupið var
að hefjast. Knapinn togaði og
togaði I beizlistaumana, en réði
ekki við neitt. „Það er naumast
hann er viljugur”, varð einum að
orði þarna. Þetta var nú samt
ekki einleikið, enda kom i ljós, að
mélið (gúmmi) hafði farið i
sundur up.pi i hestinum og
knapinn, sem reyndist vera
Svanur Guðmundsson, hélt bara i
tóma taumana. Hesturinn hét
Glæpur, i eigu Steins Einars-
sonar.
Mest spennandi keppni var
vafalaust milli skeiðhesta á 250
m. Þar sigraði Máni, eigandi
Sigurbjörn Eiriksson, knapi:
Sigurður Sæmundsson, á 23,3, no.
2 Selur, sem bezta tfmann átti i
fyrra, eigandi Sigurbergur
Magnússon, knapi: eigandi, 23.7
no. 3. Hvinur, eigendur Sigurður
og Aðalsteinn Sæmundssynir,
knapi Sigurður Sæmundsson,
23,9.
350 m stökkkeppnin var mjög
tvisýn og mátti varla á milli sjá,
hver myndi sigra, en no. 1 varð
Vinur Hrafns Hákonarsonar,
knapi: Ragnar Björgvinsson, á
26.2, no. 2 Sörli Reynis
Aðalsteinssonar, knapi:
Aðalsteinn Aðalsteinsson, á 26.2,
þarna var aðeins sjónarmunur.
No. 3 var Blakkur Arnar Einars-
sonar, knapi: eigandi, á 26.4.
I 250m stökki vann Sörli Reynis
Aðalsteinssonar, knapi: eigandi,
á 19,3 no. 2 Sörli Ólafar Ólafs-
dóttur, knapi: eigandi, á 19.4 og
no. 3 Reykur Guðna Kristins-
sonar, knapi: Kristinn Guðnason,
á 19.5.
t 800 m stökki vann Stormur
Odds Oddssonar, knapi: eigandi,
á 64,0,no. 2 Breki, eigandi Trausti
Þór Guðmundsson, knapi:
eigandi, á 64.0, aðeins sjónar-
munur var á þessum hestum. No.
3 var Gráni Gisla Þorsteinssonar
á 64.4.
t 1500 m stökki vann Lýsingur
Baldurs Oddssonar, knapi: Oddur
Oddsson, á 2.18.6, no. 2 Veddi
Guðna Krstinssonar, knapi:
Kristinn Guðnason, á 2.25.5, no. 3
Húni Sigursteins Guðbrands-
sonar, knapi: Garðar Sigur-
steinsson, á 2.30.8.
t A-flokki góðhesta fékk Kóngur
Hjalta Pálssonar einkunnina 8.52,
Háfeti Halldórs Eirikssonar 8.42.
1 B-flokki fékk Hrimnir Matt-
hildar Þórðardóttur 8.60 og
Demantur Halldórs Sigurðssonar
einkunnina 8.34.
—EVI
Stormur er hér sjónarmun á undan Breka 1800 m stökkkeppninni, en þeir höfðu sama tima
Þessum hafði þó tekizt að lauma flösku inn. Ljósm. Vísis JB.
kvöldið var heldur sóðalegur i
rigningu og for. Voru hreyf-
ingar gesta likari þvi sem þeir
væru að berja sér til hita en
dansa.
Hjá lögreglunni lágu svefn-
pokar og bakpokar i óskilum,
gleraugu og jafnvel heyrnar-
tæki. „Það þýðir vist litið að
kalla upp eiganda heyrnar-
tækjanna, hann heyrir ekkert,
það væri helzt að hengja upp
auglýsingu”, sagði ungur lög-
regluþjónn um leið og við
hurfum út i rigninguna.
Klukkan var orðin eitt, kaldir
gestirnir að tinast heim og
skemmtuninni i Svartsengi
lokið.
—JB
Höfum verið
taka upp mjög mikið
af nýjum vörum,
t.d. handskornum
kristal, og ekta finnskum
kristal með silfri.
Við viljum vekja
athygli á mjög
skemmtilegum
koníaks og líkjörs
drykkjarpípum
sem eru nýkomnar
Gjörið svo vel og lítið
á okkar mikla vöruúrval
Gjafavörur
Skólávörðustíg 16 simi 13111