Vísir - 04.06.1974, Blaðsíða 7

Vísir - 04.06.1974, Blaðsíða 7
Visir. Þriðjudagur 4. júni 1974. 7 immiim umsjón G.P. barna auðið. Prinsessurnar Ragnhildur og Astriður, og Har- aldur krónprins, sem kom hingað til lands i heimsókn fyrir nokkr- um árum. Var það ekki litið fagn- aðarefni norsku þjóðinni, þegar krónprinshjónunum, Olafi og Mörtu, fæddist sonurinn 1937, en það var i fyrsta sinn i nær 600 ár, sem Noregi fæddist konungsefni. Var þetta mjög samrýnd fjöl- skylda, sem naut óskiptrar hylli þjóðarinnar, og varð ekki úr huga hennar slitin , ekki einu sinni þótt Þjóðverjar hernæmu Noreg og þau yrðu að flýja land. Þeir Hákon konungur og ölafur krónprins fylgdu norsku hersveit- unum þá tvo mánuði, sem landið veitti viðnám, en eftir uppgjöfina i júni fóru þeir með rikisstjórn Noregs yfir til Stóra-Bretlands, þar sem þeir voru til styrjaldar- loka sem tákn um frjálsan Noreg. Það hafði þó ekki verið krón- prinsinum unga að skapi að flýja land, og hafði hann boðið rikis- ráðinu að gerast fangi hernáms- liðsins, en þvi boði var hafnað, þvi talið var, að hann gæti orðið þjóð sinni að meira gagni sem frjáls maður. Marta krónprinsessa og börn þeirra hjóna voru i Washington striðsárin og komu með Hákoni konungi til Noregs aftur I júni 1945, en þá var ólafur búinn að vera nær mánuð heima, þvi að hann hafði snúið heim strax 5 dögum eftir að Þjóðverjar gáfust upp. Til þess þurfti hann að visa á bug ráðum varfærnari manna, sem óttuðust, að Þjóðverjavinir einhverjir kynnu að sýna honum banatilræði. Ok hann um götur i opinni bifreið, tilvalið skotmark, hverjum sem vildi, en var alls staiar fagnað með blómum. í sama látlausa andanum, sem Ólafur krónprins hafði verið alinn upp, ól hann sin börn upp við eins venjulegar aðstæður og við varð komið. Af þvi leiddi svo að kon- ungsfjölskyldan hefur ávallt átt létt með að blanda geði við al- menning. — „Sumum finnst kannski að við höfum átt of létt með það”, spaugaði Ólafur kon- ungur i brúðkaupsræðu, sem hann flutti syni sinum Haraldi krónprins, þegar hann valdi sér maka af borgaralegum ættum, rétt eins og báðar prinsessurnar, systur hans, höfðu gert á undan honum. Þessari samrýndu fjölskyldu var ekki lltill harmur kveðinn, þegar Marta prinsessa andaðist 5. april 1954 eftir langvarandi veikindi og aðeins nokkrum vik- um áður en þau hjónin gátu hald- ið hátiðlegt silfurbrúðkaup sitt. Sfðan hefur Ólafur konungur ver- ið ekkjumaður. Eins og nafni hans og forveri, Tryggvason, var Ólafur konungur vel íþróttum búinn. Enda var hann stundum nefndur „iþrótta- konungurinn”. Þriggja ára göml- um voru honum gefin skiði, sem hann lék sér á i brekkunum i hall- argarðinum, og hefur hann alla daga haldið tryggð við þá iþrótt. Þótt hann stökkvi ekki lengur af pallinum við Holmenkollen, þar sem hann vann til verðlauna ung- ur maður, þá bera þegnar hans oft kennsl á hann brunandi niður skiðabrekkur innan um annað skíðaáhugafólk, þegar stund gefst til. Og sjaldan lætur hann sig vanta I áhorfendastúkuna, þegar iþróttamót fara fram. Þegar hann gegndi herskyldu sinni, þjónaði Ólafur krónprins i flotanum, og siglingar eiga ávallt mikil itök i honum. Nafnbótina „iþróttakonungur” hlaut hann einnig fyrir það, að hann var með beztu kappsiglingamönnum heims, og vann hann gullverð- launin fyrir land sitt i ólympiu- keppninni i Amsterdam 1928, þar sem hann keppti. Hvert sumar bregður hann sér að stýri „Nornu X”, sem er 5,5 metra löng kapp- siglingarskúta, og ekki er lengra en siðan i september 1971, að hann keppti á alþjóðlegu siglinga- móti við Long Island fyrir Noregs hönd. Frá honum hefur Haraldur krónprins siglingaráhuga sinn. cyWenningarmál FRETTIR OG FJOLMIÐLAR: Pólitík í útvorpi í prentaraverkfalli i vor gáfust nóg tækifæri til að hlusta á útvarpið. Ætli flestir hafi ekki komist að þvi að út- varpsíréttir væru alveg nægjanlegar tii að fylgjast nokkurn veginn með daglegum tiðindum. Ef menn söknuðu blaða sinna, og það voru vist marg- ir farnir að gera um það, er lauk, var það út af einhverju öðru en þeirra daglegu tíðinda- sögn. Prentaraverkfallið var ekki bara lærdómsríkt dæmi um misheppnaða og marklausa kjarabaráttu. Hin langastöðvun á útkomu dagblaðanna er sagt að hafi stofnað þeim I fjárhags- lega kreppu, sem langan tima taki að ráða fram úr að nýju, ef hún ekki riður einhverju þeirra að fullu. Sjálfsagt þarf þó meira að koma til svo að hin langvinna uppdráttarsýki Alþýðublaðsins, til dæmis, verði að fullkomnu helstriði. En ætli það láti ekki nærri að sameigin- legt tap dagblaðanna hafi étið upp hinn riflega fjárstyrk sem alþingismenn veittu blöðunum I vetur? Mjög trúleg saga? Einhvern tima i verkfallinu birtist I sjónvarpi dálltið yfirlit yfir hag dagblaðanna og þar með tölur um núverandi upplag þeirra. Eftir þeim að dæma er Morgunblaöið enn sem fyrr langsamlega stærst, meöal- upplag þess aö sögn komið yfir 40.000 eintök á dag, Tlminn og Vísir koma næst með um þaö bil helmingi minna upplag, Visir nokkru stærri, en Þjóöviljinn og Alþýðublaðið reka lestina með meira en helmingi minna upp- lag en Visir og Timinn. Þessar tölur benda til að stöðvast hafi hin mikla aukning, sem varð á upplagi VIsis fyrir nokkrum árum, þegar blaðiö ruddi sér til rúms sem næst- stærsta blað á markaðnum.Það mun lika láta nærri, aö með meöal-upplagi um og yfir 20.000 eintök sé mettaður markaður blaðsins i Reykjavlk og grennd. A hinn bóginn er ekki aö sjá að hin miklu umsvif sem fylgdu nýjum framkvæmdastjóra á Timanum, hafi aukið upplag blaösins til neinna verulegra muna — hvernig sem gengur að ná tekjum upp I aukinn til- kostnað af stækkun blaðsins. En upplagstölur Morgun- blaðsins eru einkennilegar Ef gert er ráð fyrir þvi, sem oft er gert, að 3 lesendur séu um hvert eintak að jafnaði nær Morgunbl. með upplagi yfir 40.000 eintök til þvi sem næst allra uppkominna lesenda á landinu. Samkvæmt þeim upplýsingum sem blaðið hefur sjálft birt um útbreiðslu sina verður hins vegar alveg reglu- bundin aukning á upplaginu frá ári til árs. Er það mjög trúleg saga að Morgunblaðiö sé orðið I vitund beinlinis allra lands- manna viölika nauðsynjavara og mjólk eða brauð? Fréttir og pólitik En prentaraverkfallið var Ihugarvert um hlutverk, gildi og áhrif dagblaðanna fyrir þá sem áhuga hafa á þvl efni, ekki sist af þvi að einmitt I verkfallinu gerðist mestöil hin pólitiska at- burðarás sem leiddi til þingrofs og kosninga I vor. Ætli þeir at- burðir hefðu orðið á nokkurn hátt öðurvisi en raunin varð þótt blöðin hefðu komiö við sögu með öllum tilbeyrilegum æsingum i málafylgju? Um það er likast til þarflaust að spá, en spyrja má um hitt i staðinn, hvort al- menningur hefði á einhvern hátt átt hægara að fyljgast með at- burðum, gera sér grein fyrir þvi sem var að ske, ef menn hefðu haft blöð sin eins og endranær. Eða hefði hlutverk blaðanna einvörðungu verið að kynda undir auknum æsingum út i frá kringum atburðina á þingi? Það hygg ég að ekki veröi véfengt að eftir aö atburöir tóku að gerast á þingi og I flokkunum hafi útvarp og sjónvarp staðið vel i stykkinu, flutt skjótar og skilmerkilegar fréttir af þvi sem fram fór og jafnframt gert stjórnmálamönnum og flokkunum kleift að koma sinum sjónarmiðum og skýr- ingum_ fram i fréttaaukum og viðtalsþáttum. Nú var lika brugðið á þá nýlundu, sem oftar mætti þegar fréttnæmir at- Fyrsta grein eftir Ólaf Jónsson burðir gerast, að flytja efni beint úr þingsölunum i útvarp og sjónvarp. A hitt hefur aftur á móti verið bent að fréttir af að- draganda þessara atburða hafi verið óeðlilega takmarkaöar. einkum vegna þeirrar dular er af opinberri hálfu var dregin á hina frægu skýrslu hag- rannsóknastjóra um efnahags- ástandið. Til þurftu að koma blaðamenn i sérstökum frétta- auka til að gera þessa frétt uppskáa I útvarpinu — þeir sem ekki kusu að þegja um hana. En þarna gafst fyrir vikið svipsýn af málHutningi blaðanna um þessi efni, ef þau hefðu komið út þessa dagana. Meiri pólitik i útvarpið! En bæði af þvl sem útvarpið gerði I verkfallinu og þvi sem var ávant fréttaflutninginn hygg ég að draga megi þá ályktun að bæði væri svigrúm og þörf fyrir aukinn pólitiskan fréttaflutning I útvarpinu — vitaskuld innan þess ramma, sem settur er af starfsreglum útvarps um „óhlutdrægni” gagnvart mönnum og málefn- um. Þær reglur segja vel að merkja ekki að pólitisk skoðun megi ekki koma fram I útvarp- inu, né heldur að allar skoðanir á hverju tilteknu máli þurfi endilega að koma allar fram i einu, heldur einungis það sem sjálfsagt er, að jafnvægi skuli vera I fréttaflutningnum I heild. Útvarpsfréttir um verkfalls- timann held ég að hafi sýnt að slikan fréttaflutning væri út- varpið fullfært um að leysa af hendi. Vera má að útvarpið sé þegar komið út á þessa braut meö aukningu pólitiskra frétta I fréttatimum, og með sinum sér- stöku þingmálaþáttum I útvarpi og sjónvarpi sem oft hafa verið furöu áheyrilegir, alveg öfugt við hinar fyrri þingfréttir út- \ varps. En þá þætti mætti vita- skuld gera að að miklu fjöl- breyttari vettvangi pólitiskra frétta og umræðu. Aukinn pólitlskur frétta- flutningur i útvarpi og sjónvarpi mundi sjálfsagt verða til þess að draga enn úr pólitisku frétta- gildi og þar með trúlega áhrifa- mætti dagblaðanna. En þótt margt sé talað um pólitisk áhrif blaðanna, og af trú manna á þau helgast auðvitað hinir riflegu opinberu fjárstyrkir til biaöanna, er áreiðanlega næsta torvelt að mæla þau eða aHa annarrar áreiöanlegrar vit- neskju um það hvernig þeim sé farið. Ætli reynslan af verk- fallstimanum bendi ekki til að áhrif blaða á raunverulega skoðanamyndun séu oft mjög ofmetin, hvaða gagn sem þau svo gera flokkunum við að halda fylgi kjósenda eftir að þeir eitt sinn hafa skipað sér I flokk. Minnsta kosti varð það ekki séð, af sveitarstjórnakosningunum að Sjálfstæðisflokkurinn hafi neins i misst þótt hann nyti ekki sinna miklu yfirburða I blaða- kosti um svo langan tima svo skömmu fyrir kosningar. Eða halda menn að úrslitin hefðu oröið önnur ef verkfall hefði staðið fram yfir kosningar eins og farið var að spá um tíma? Áróður og áhrif. Hið sameiginlega framboð jafnaðarmanna sem mest af- hroð beið i kosningunum hafði Hka við minnstan og lakastan blaðakost að styðjast, og ekki varð séð að jafnræði þeirra við aðra flokka i útvarpi og sjón- varpi rétti þeirra hlut. Aftur á móti unnu samtök frjálslyndra og vinstri manna sinn stóra sigur árið 1971 án svo sem neins blaðafylgis, og það þótt mál- gögn og málsvarar annarra flokka létu á þeim ganga I kosningabaráttunni að framboð þeirra væri misheppnað og fyrirfram vonlaust. Og sú rök- semd er þegar á lofti gegn sam- tökunum i sinni núverandi mynd i þeirri kosningabaráttu sem er að hefjast. Það má vel vera að kosningabarátta I útvarpi og sjónvarpi sé i raun áhrifameiri en barátta blaðanna um hin heiðruðu atkvæði. En kosningabaráttan i þessum fjölmiðlum I vor, eða það sem ég sá og heyrði af henni, fannst mér furðu daufleg, nokkurn veginn fastlæst i venjubundnu formi útvarpsumræðna um þingmál og stjórnmál. Það hlýtur samt að vera skylda út- varps og sjónvarps viö hlustendur sina, að þvi leyti, sem fengist er við pólitik , aö búa einnig þessu efni eins að- gengilegt og útgengilegt form eins og unnt er. Upplag blaðanna samkvæmt þeirra eigin upplýsingum i sjónvarpinu: Morgunblaðið yfir 40.000 eintök, Visir rúmlega en Timinn tæplega 20.000 eintök. Þjóðviljinn innan við 10.000 en Alþýðublaðið um það bil 5000 eintök á dag. Ætla má að upplag minni biaðanna sé rétt áætlað, en tölur Morgunblaðsins eru skrýtnar. Af þeim má ætla að yfir 120.000 manns lesi blaðið daglega. Getur það verið satt?

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.