Vísir - 04.06.1974, Síða 9

Vísir - 04.06.1974, Síða 9
Visir. Þriðjudagur 4. júni 1974. Islandsmeistararnir eru heldur að nó sér ó -----Keflavík sigraði Akureyri með 3-0 í 1. deildinni á laugardag- strik! Allt virðist benda til þess/ að l-deildarkeppnin ætli að verða tvísýnni í sumar en oft áður, ef dæma má eftir úrslitum fyrstu leikjanna. Liðin reita stigin hvert af öðru IBA sigrar KR, sem síðan sigrar IBK, og hvernig ætli leikur ÍBK og iBA hafi farið, svo einn þráður deildarinnar sé rakinn? í fáum orðum sagt, Kefl- vikingar sigruðu með nokkrum yfirburðum, skoruðu þrjú mörk gegn engu. Eftir frammistöðu Keflvikinga að undanförnu var það hald manna, að liklega færu Akur- eyringarnir með bæði stigin norður, — enda vantaði IBK tvo af sinum máttarstólpum, þá Guðna Kjartansson og Einar Gunnarsson, sem báðir eru meiddir. En raunin varð önnur. Áfall hjá Brazilíu Heimsmeistarar Braziliu léku i gær við Basel, svissneska 1. deildarliðið, i Basel og sigruðu með 5-2. Staðan i háifleik var 2-2. Balmer skoraði bæði mörk Basel, en þeir Rivelino (3), Jairzinho og Vadomiro skoruðu mörk Braziliu. Yfir 40 þúsund áhorfendur sáu leikinn — og þeir voru litt hrifnir af leik heim smeistaranna. Brazilia varð fyrir miklu áfalli i leiknum. Clodoaldo lék með og tóku meiðsli hans sig upp á ný — þannig, að eftir leikinn var hann tekinn út af lista Braziliu yfir HM-leikmenn landsins. Hann verður þvi ekki með i heims- meistarakeppninni — en Clodo- aldo er einn af kunnustu leik- mönnum Braziliu, varð heims- meistari 1970. Keflvikingar sóttu svo til allan leikinn, en hann var liður í hátiðahöldum vegna 25 ára afmælis bæjarins — sem gerir mest allra bæja á fslandi fyrir knattspyrnumenn sina, — svo að norðanmenn komust ekki upp Sautjón óra meistari Hinn 17 ára sænski tennisleikari, Björn Borg, vann sinn stærsta sigur á sunnudag, þegar hann varð italskur meistari. Sigraði hinn fræga Rúmena Ilie Nastase með yfirburðum I úrslitum 6-3, 6-4 og 6-2. Borg er yngsti maður — verður 18 ára í þessum mánuði — sem sigrað hefur á meiriháttar móti i tennis, — og þó þetta sé fyrsta stórmótið, sem hann sigrar i, hefur hann undanfarna mánuði lagt alla beztu tennisleikara heims að velli. Fyrir sigurinn hlaut hann 16 þúsund dollara á opna mótinu i Róm, sem flestir beztu tennisleikararnir voru þátt- takendur á. Hann missti af veizlunni! i leik KR og Vikings i 1. deild á föstudaginn meiddist einn hinna sterku varnarmanna Vik- ings, Heigi Helgason, sem meðal félaga sinna gengur undir nafninu „Basli”, illa á fæti, og varð að yfirgefa völlinn. Helgi, sem lék með Breiðablik i 1. deild i fyrra, var fluttur upp á Slysavarðstofu eftir leikinn, þar sem fóturinn var settur i gifs, og mun hann þvi ekki geta leikið með Víkingi næstu vik- urnar. Sama daginn og leikurinn fór fram útskrifaðist Helgi sem stúdent úr Kennaraskólanum. Einnig útskrifaðist Björn Pét- ursson úr KR þennan sama dag úr sama skóla. Hann komst ómeiddur i veizluna, sem beðið var með heima hjá honum þar til eftir leikinn, en Helgi varð að sjá af sinnl i þetta sinn. —-klp- með neitt múður. Attu aðeins tvö markfæri leikinn út. Potturinn og pannan i leik ÍBK var Hörður Ragnarsson, sem tók fram skóna i vor eftir árshlé. Auk þess að vera lykilmaður sóknar- aðgerða liðsins, skoraði hann fyrsta markið, þegar nokkuð var liðið á fyrri hálfleik. Tókst Herði að teygja sig upp úr þvögunni, sem myndaðist fyrir framan mark IBA, og skalla knöttinn hnitmiðað i markið, — úr sendingu frá Karli Hermanns- syni, sem með harðfylgi tókst að spyrna knettinum, áður en hann fór út fyrir endamörk. Rétt fyrir hlé bættu heimamenn öðru marki við, reyndar með góðri aðstoð mótherjanna. Ólafur Júlfuss. var að kljást við vinstri bakvörðinn, sem hugðist leysa vandann með þvi að senda knött- inn i áttina að marki, en Steinar Jóhannsson var þar óvart fyrir og lét jafn gullið færi ekki ónotað: sendi knöttinn fram hjá Samúel Jóhannssyni i markið, 2:0. Akureyringar tóku smásprett i byrjun seinni hálfleiks, en siðan ekki söguna meir. Keflvikingar sóttu án afláts, en vörn IBA varðist af miklum móð, undir stjórn Gunnars Austfjörð, hins öfluga brimbrjóts, og hratt hverri sóknarlotunni af annarri þar til á 40. minútu, að Hilmari Hjálmarssyni, sem kom inn á um miðjan seinni hálfleik, — tókst með naumindum hálf sitjandi að krafla i knöttinn og senda til Ólafs Júliussonar, sem stóð i hálfgerðri hvildarstöðu óvaldaður á mark- teig og afgreiddi óvænta sendingu snarlega i netið, 3:0. Keflvikingar eru greinilega að ná sér á strik. Hörður Ragnars- son er óefað sá hlekkur, sem Enskir unnu Búlgarana! Enska landsliðið I knattspyrnu, sem nú er i keppnisför i Austur-Evrópu, sigraði HM-lið Búlgariu i Sofiu á laugardag 1-0. Búlgarar, sem töldu þetta aðal- leik sinn fyrir HM, voru ekki minna með knöttinn, en komust ekkert áleiðis gegn sterkri vörn Englands. Siðan náði England alveg yfirtökum á miðjunni þar sem Brokking, Dobson og Bell léku mjög vel. 1 framlinunni voru Channon og Worthington hættu- legastir, og það var einmitt Worthington, sem skoraði eina mark leiksins rétt fyrir hlé. Kevin Keegan skallaði þá knöttinn fyrir fætur Leicester-Ieikmannsins og fast skot hans af 16 metra færi i mótstætt horn réð Rumen Goranov ekki við. 65 þúsund áhorfendur sáu leikinn og piptu þeir á eigin leikmenn I leikslok. England leikur við Júgóslaviu á miðvikudag. Sama golfmótið sam- tímis á tveim völlum! Á morgun fer fram undan- keppni i Replogle golfkeppninnar hjá tveim golfklúbbum samtimis. Er það hjá GK i Hafnarfirði og GN á Seltjarnarnesi. A báðum stöðunum hefst keppnin kl. 17.00 en hægt verður að komast út allt til kl. 19.30. Leiknar verða 18 holur — án for- gjafar — en siðan halda 16 beztu frá báðum áfram i holukeppni, sem öll fer fram á Nesvellinum. Keppnin er öllum kylfingum opin og geta þeir valið um á hvor- um vellinum þeir vilja leika i undankeppninni. Búizt er við, að flestir af beztu kylfingum i Reykjavik og nágrenni verði með að þessu sinni, en þetta er i 3ja sinn sem keppnin fer fram. vantaði i liðskeðjuna. Lúðvik Gunnarsson fyllir ótrúlega vel skarð Guðna, þrátt fyrir ungan aldurog litla reynslu, en hann var ásamt Gisla Torfasyni, Ástráði Gunnarsyni svo og Herði einn bezti maður liðsins. Lið Akureyringa er skipað fljótum léttum og leiknum piltum, sem verður þvi miður ekki jafn ágengt og efni standa til. Eirðarleysi og fum er mjög áberandi i sóknarleiknum, sem af þeim sökum rennur jafnan út i sandinn, þegar nálgast markið. Liðið þarf að temja sér meiri festu og yfirvegun, ef árangur á að nást. Auk Gunnars Austfjörðs áttu þeir Steinþór Þórarinsson og Jóhann Jakobsson ágætan leik. Dómari var Guðmundur Haraldsson og gerði það með miklum ágætum, alveg óaðfinnanlega. Beckenbauer meiddur Angist greip um sig í Vestur-Þýzkalandi i gær, þegar sú frétt barst, að Franz Beckenbauer, fyrirliði vestur-þýzka iandsliðsins i knattspyrnu, hefði meiðzt á æfingu — tognað illa i maga- vöðva. Hann verður alveg i hvild næstu daga og alls ekki vist, að þessi lykilmaður landsliðsins verði með i ' fyrstu leikjunum á HM. Þá er annar kunnur leikmaður landsliðsins, Uli Hoeness, einnig meiddur. Víkingur og Fram í kvöld 1 kvöld verður leikinn einn leik- ur i 1. deild Islandsmótsins i knattspyrnu. Fram mætir Vikingi á Laugardalsvellinum kl. 20.00. Þessi leikur ætti að geta orðið skemmtilegur og spennandi — enda hressileg lið sem mætast. Úrslitin hafa mikið að segja fyrir bæði liðin, þau hafa ekki fengið mörg stig i sarpinn, það sem af er mótinu, og hvert stig er dýrmætt úr þessu. Þá fer einn leikur fram i 2. deild i kvöld. Isfirðingar fá Þróttara i heimsókn og etja kapp við þá á Isafjarðarvelli kl. 20.00. —klp- PUMA gaddaskór ^jj P| I Hlaupaskór, lang- I stökksskór, þri- | stökksskór, kúlu- I varpsskór, kringlu- 1 | kastsskór, hástökks- 1 skór. Verð frá kr. 1940 - 5500. PUMA — | ÆFINGAGALLAR | Verð frá kr. 3000 - I 5400 Póstsendum. 1 Sportvöruverzlun Insólfs Óskarssonar Klapparstig 44 — Simi 11783 — Revk>avík KíRJAz óumdeilanlega ómissandi alls staðar, þar sem kerti eru höfð um hönd. Ennþá á gömlu, góðu verði. H^oiocur eitu5> Skólavörðustig 8 og Laugavcgi 11. (Smiðjustigsmegin )

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.