Vísir - 05.06.1974, Page 3
Visir. Miövikudagur 5. júni 1974.
3
„Þaö vantar ekkert nema húsgögnin”, sögöu smiöirnir, sem voru aö leggja siöustu hönd á
innréttingarnar. Ljósm. Bragi.
„Mildi að ekki
hafa orðið
stórslys"
Ibúar Hólahvems vilja gœzluvöll
„Slysahætta hér i hverfinu er
mikil, þar sem allar ibúöarblokk-
irnar eru i byggingu og mikið er
hér af ungum börnum, sem erfitt
er að fylgjast meö, svo aö vel sé.”
Þetta segir i áskorun til borgar-
ráðs, sem nær allir fullorðnir ibú-
ar I Hólahverfi i efra Breiðholti
hafa undirritaö.
íbúarnir fara þess eindregið á
leit við borgaryfirvöld, að komið
verði upp bráðabirgðaleikvelli,
starfsvelli, með gæzlu i hverfinu
sem allra fyrst, þar til endanlegir
leikvellir verði tilbúnir. Hverfið
er i byggingu, en fólk hefur flutzt
þangað mun hraðar en búizt hafði
verið við. Þetta er yfirleitt
barnafólk, börnin yfirieitt korn-
ung, á „hættulegasta aldri” 4-6
ára. Foreldrar eru yfirleitt
ungir.og margar mæðurnar vinna
úti.
Gert er ráð fyrir gæzluvelli
fyrir haustið, en ibúarnír álita
það of seint að telja mikla mildi,
að ekki skuli haf orðið stórslys á
börnum að leik við hálfbyggð hús-
in, undir vinnupöllum, við Elliða-
árstifluna og svo framvegis. Bent
er á, að stutt er niður að EUiðaár-
stiflu, þar sem engin gæzla sé
nema yfir iaxveiðitimann.
Undir áskorunina hafa ritað
rúmlega 390 ibúar, sem eru nær
allir fullorðnir ibúar i hverfinu.
— HH
REYNT AÐ
STÖÐVA
HAMSTRIÐ
,,Það er nú ekki hægt
að kalla það skömmtun
á kjöti til kaupmanna.
Hins vegar gengur
erfiðlega að koma
svona miklu kjöti i
bæinn, svo að kaup-
menn hafa fengið
svipað magn og þeir
hafa vanalega keypt
undir eðlilegum
kringumstæðum”.
Þetta sagði Guðjón Guðjóns-
son, deildarstjóri hjá Afurða-
sölu SÍS, þegar við spjölluðum
við hann i morgun.
Hann sagði okkur, að þetta
værikannskeekkinógkjöt fyrir
kaupmenn, þar sem töluvert
bæri á hamstri. Nógar birgðir
ættu samt að vera til i landinu
fram að næstu sláturtið.
Um mánaðamótin april-mai
var til 700 tonnum meira kjöt en
á sama tima i fyrra. Svarar það
til u.þ.b. mánaðarneyzlu á kjöti
yfir allt landið.
Afurðasala SIS hefur nú hætt
sölu til almennings I heilum
skrokkum frá og með siðast-
liðnum föstudegi. Sagðist
Guðjón búast við þvi, að kaup-
menn myndu hætta að selja kjöt
i heilum skrokkum og selja þá
t.d. lærin, framparta, kótilettur
o.s.frv. sér.
—EVI—
FYLKINGIN
KOSTUÐ
AF CIA
—EÐA HVAÐ?
Þjóöviljinn gerir þvi skóna i
leiöara sinum á laugardaginn,
að bandariska leyniþjónustan,
CIA, kosti starfsemi Fylkingar-
innar, KSML og annarra vinstri
afla, sem bjóða nú fram til
þingkosninga
Segir svo i leiðara Þjóð-
viljans: „Alkunna er, að banda-
rlska leyniþjónustan hefur
ótæpilega veitt fjármagn til alls
konar flokka og flokksbrota,
sem undir yfirskyni róttækni
reyna að gera sig dýrlega i
augum kjósenda. Sem betur fer
hafa tslendingar ekki kynnst
þessum vinnubrögðum. Hinu
hafa menn kynnst siðustu
dagana, hvað Morgunblaðið
fagnar innilega framboðum
Fylkingarinnar, KSML og slikra
flokka. Fögnuðurinn er einna
llkastur þvi, er foreldrar horfa
stoltir á afrek afkvæma sinna.
Þaðmá vera vinstri mönnum til
marks um klofningshópa þessa,
hversu fögnuður Morgunblaðs-
ins er eindreginn”.
Þess má geta i leiðinni, að á
listum Alþýðubandalagsins,
KSML og Fylkingarinnar má á
öllum finna blaðamenn frá
Þjóðviljanum, svo blaðið ætti að
geta fengið greiðar upplýsingar
um fjármögnun framboða þess-
ara aðila
—JBP—
Lax lœkkar um helming
„Það litur vægast sagt ákaf-
lega illa út með sölu á laxi nú i
sumar”, sagöi Ólafur Jónsson hjá
Unex I viötali viö Visi i morgun.
Olafur hefur selt ferskan lax úr
landi undanfarin ár. Hann sagði,
að Norðmenn seldu langmest af
laxi og að þeir ættu i fórum sinum
hundruð tonna af frystum laxi frá
þvi i fyrra. Einnig væri töluvert
magn til hér á landi, sem ekki
hefði tekizt að selja.
Ólafur fræddi okkur á þvi.að i
fyrra hefðu Kanadamenn sett
óhemju magn af laxi á mark-
aðinn, hinum svokallaða Kyrra-
hafslaxi, og er hann seldur fyrir
um helmingi lægra verð en
Atlantshafslaxinn, sem við
veiðum hér.
Árið 1972 var metár i sölu á laxi
hér,og seldust þá um 40 tonn.
Kostaði stærsti fiskurinn i kring-
um 600 kr. hvert kg. I ár er boðið i
kringum 320 kr. fyrir stærsta
laxinn. Er þá miðað við 7 kg og
yfir. 3-5 kg lax er á 200kr.,5-7 kg á
260 kr. Ólafur sagði okkur, að
mikill munur væri á, hve Atlants-
hafslaxinn væri betri en Kyrra-
hafslaxinn, en þvi miður vissu
neytendur það ekki almennt.
I ár hefur verið spáð góðri lax-
veiöi hér á islandi. Bændur i
Borgarfirði eru þegar byrjaðar
veiðar og hefur gengið vel. A
Suðurlandi er veiði að hefjast.
„Islenzki laxinn fer mest á
markað i Noregi, nánar tiltekið i
Osló. Það kann að þykja ein-
kennilegt, en ástæðan er sú, að
Norðmenn hafa bezta dreifi-
kerfið”, sagði Ólafur að lokum.
—EVi
í