Vísir - 05.06.1974, Page 4

Vísir - 05.06.1974, Page 4
4 Vísir. Miðvikudagur 5. júni 1974 AP/INITB, ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MO r Operusöngvar- ar í verkfalli Siðari hluta óperunnar Don Carlos eftir Verdi seinjcaöi um rúma klukkustund i óperuhöll- inni i Róm, þegar söngvararn- ir fóru i skyndiverkfall til aö knýja fram kaupgreiðslur. Þaö haföi verið gert 25 mlnútna hlé, en svo dróst, aö söngvararnir kæmu fram á sviðiö, og áheyrendur létu i ljós óánægju slna. Kom i ljós, aö söngvararnir vildu fá kaup- iö sitt i hléinu, eins og venja væri, og ekkert múður meö þaö. Sættir tókust þó, svo að óperan var flutt til enda, en ekki var látið uppi, hvort kaupiö var greitt. 2000 brandarar Ken Dodd, grinisti, telur sig eiga heimsmetið I að hafa skemmt látlaust 3 stundir, 7 minútur og 30 sekúndur. Metið setti hann i gær i konunglega leikhúsinu i Liverpool. Sagði hann 2000 brandara á þessum tima. 1 metregnabók Guinness er hvergi vikið að þvi, hvað menn hafa staðið lengst á sviði frammi fyrir leikhúsgestum. r Astralir fá bœtur vegna thalidomide 1 Astraliu hafa foreldrar 17 fórnarlamba thalidomide lyfsins tekið boði um 250 milljón króna skaðabætur frá lyfjaframleiðandanum, sem setti lyfið á markað. Þar með er svo til lokið átta ára mála- þrasi ástralskra foreldra vegna thalidomide, og þó..Enn er nefnilega beðið læknisúrskurðar um 25 önnur börn, sem talin eru hafa beðið tjón af thalidomide, sem mæður þeirra tóku inn á meðgöngutimanum. Marjory hœtt komin Marji Wallace, sem svipt var titlinum „Ungfrú Al- heimur”, var lögð skyndilega inn á sjúkrahús i Indianapolis i gær. Hún hafði tekið inn of stóran skammt af barbiturat- lyfjum, en það eru lyf, sem mikið eru misnotuð. A sjúkrahúsinu var sagt, að Marji, sem var trúlofuð kappakstursmanninum, Peter Revson, sem fórst fyrr á þessu ári, þyrfti að ganga undir nýrnaaögerð. — Ekkert hefur verið látið uppi um, hvort stúlkan hafi ætlað að fyrirfara sér eða tekið inn of mikið i ógáti. Marji Wallace var svipt fegurðardrottningartititli sinum eftir full galsafengið lif I London, þar sem hún þótti vera i miður þokkalegum félagsskap. Þar var hún m.a. i tygjum við George Best, sem hún kæröi fyrir þjófnaö, þótt sú kæra væri siðar látin niður falla. Öfgamönnum kennt um stjórnleysið á frlandi Bjartsýnn um árangur haf réttarráðstef nu nnar Constantin Stavropoulos, einn af aðstoöarf ram- kvæmdastjórum Samein- uðu þjóðanna, spáði því í gær, að hafréttarráðstefna SÞ, sem hefst í Caracas 20. júní, mundi verða árangursrík, „endá þótt mikil undirbúningsvinna sé óunnin". Stavropoulos, sem verða mun sérlegur fulltrúi Kurt Waldheims á ráðstefnunni, sagði, að þar yrði að leysa deilur um, hvernig skipta eigi lögsögunni milli ein- stakra rikja, móta reglur um auð- lindalögsögu og um rétt til námu- graftar. ,,Ég ér mjög bjartsýnn á, að ráðstefnan verði árangursrik, þvi að það er engra annarra kosta völ”, sagði hann, „hvað er annað unnt að gera? Stjórnleysi mundi auðvitað leiða til ofbeldis”. Frá fagnaöarlátum mótmælenda á Noröur-lrlandi, þegar samstjórn kaþólskra og mótmælenda hafði sagt af sér. Onassis tapar á flugfélaginu Skömmu eftir aö samstjórn kaþóiskra og mótmælenda undir forystu Brians Faulkner haföi hrökklast frá völdum á Noröur-trlandi vegna allsherjar- verkfalls að frumkvæði mót- mæienda, sýnir skoðanakönnun, að meirihluti Noröur-tra vill ein- hvers konar slika samstjórn. Aðeins 24% þeirra, sem spuröir voru, sögðust vera andvigir þvi, að mótmælendur deildu völdum i landinu meö kaþólskum. 74% kaþólskra, sem eru hálf milljón af 1.5 milljón Ibúum, sögðust vilja samstjórn og 33% mótmælenda vildu hana strax, en 32% einhvern tima I framtiðinni. Þegar spurt var um það, hvern bæri að sækja til saka fyrir þau vandræði, sem nú blasa viö Norður-lrum, sögðu 42% af þeim 640, sem spuröir voru, aö þaö væru öfgamenn i báöum trúar- hópunum. Þegar spurt var um sam- einingu Irlands i eitt riki, sögöu 81% mótmælenda, að þeir mundu aldrei styðja sameiningu. Hins vegar vildu 93% kaþólskra sam- einingu annaðhvort strax eða siðar. Mesti eldur eftir stríð Framtíð griska flugfélagsins Olympic Airways er ótrygg um þessar mundir eftir ágreining, sem sprottiö liefur upp milii eigandans, m argmilljónerans Aristoteles Onassis og Grikk- landsstjórnar. Stjórnin mun hafa neitaö Onassis um sérskiimáia vegna eldsney tiskaupa og synjaö félaginu um 10 milijón daia lán til aö vega upp tap siöasta árs. — Onassis ku þá hafa hótaö aö selja sinn hluta flugfélagsins. Stjórnvöld telja sig vel geta fundið aðra til aö kaupa af Onassis, ef hann vil hætta I félaginu. Verður sérstakur fundur haldinn i rikisráðinu i dag vegna þessarar deilu. Hefur stjórnin til þessa neitað að ræða um málið við sendifulltrúa Onassis og krafizt þess, að hann komi sjálfur til Aþenu til viðræðna. Lagt hefur veriö til, að flug- félagiö — til aö draga úr tapinu — fækki starfsliöi, lækki kaup viö æöstu menn fyrirtækisins og skeri niöur auglýsingakostnaðinn. — Fyrr á árinu haföi félagiö fækkaö mjög viö sig fólki. „Heimsvaldasinnar búa sig undir stríð" — segir sovézki varnarmálaráðherrann Andrei Grechko, sovézki varnarmálaráöherrann, varaði i gær þjóð sina við þvi ,,að striðs- hættan væri miskunnarlaus staðreynd vorra tima”. Grechko marskálkur sagði: „Heimsvaldasinnar eru nú að búa sig undir strið, og þeir auka vopnaframleiðslu sina og tækni- væðingu, auk þess sem þeir endurbæta stöðugt þá gifurlegu striðsvél, sem þeir hafa komið sér upp”. Og hann bætti við, að þótt árásaröflunum sé haldið i skefjum, hafi þau ekki verið gerð meinlaus. Hann hvatti sovézku þjóðina til að vera á verði gegn „sjálfsánægju” og þar með and- varaleysi. Fréttamenn i Moskvu vekja at- hygli á þvi, að i ræðu sinni hafi Grechko marskálkur enn einu sinni sett fram allt önnur sjónar- mið um horfur i alþjóðamálum en samherjar hans i stjórnmála- nefnd flokksins. Á meðan Brezhnev og fylgismenn hans leggja áherzlu á bætta sambúð við rikin i vestri, bendir Grechko á hætturnar alls staðar i heiminum. Afstaða Brezhnevs er sú, að kjarninn I utanrikisstefnu flokksins og þar með rikisins sé „friðarstefnan”, sem samþykkt var á 24. flokksþinginu fyrir þremur árum. Grechko varnarmálaráðherra flutti ræðu sina I sjónvarpi og var hún framlag hans til kosninga- baráttunnar um sæti i Æðsta ráðinu, sem nú fer fram.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.