Vísir - 05.06.1974, Síða 5
Vlsir. MiAvikudagnr 5. Jtai 1*74.
■
UN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND I MORGUN UTLÖND í MORGUN UTLÖND
Umsjon: BB/GP
Jarlinn af Donoughmore, sem rænt var f nótt ásamt konu sinni frá heimili
þeirra i irska lýöveldinu.
Brezka rikisstjórnin hefur fyrirskipaö rannsókn á ástæöum sprengingar-
innar i efnaverksmiöjunni I Flixborugh i Noröaustur-Engiandi. Sprengingin
varö á laugardaginn og leiddi til dauöa 28 manns. Þar aö auki særöust 105
menn i eldsvoöanum, semtalinner sá mesti i Bretlandi frá striöslokum.
Verksmiöjan framleiddi hráefni i nælon. Talið er, aö eldurinn eigi upptök
sin aö rekja til þess, aö kviknaö hafi I mjög eldfimu gasi, sem nauösynlegt er
viö þessa framleiðslu. Þaö tók tvo sólarhringa aö ráöa niöurlögum eldsins og
þaö munu Ifða margir dagar, þar til unnt veröur aö komast aö þvi meö nokk-
urri vissu, hvernig eidsvoöann bar aö.
Rœndu jarli
—vilja fanga
í hans stað
Grimuklæddir menn
rændu irskum aðals-
manni, jarlinum af
Donoughmore, og konu
hans i nótt. Innan fárra
klukkustunda frá þvi að
ránið var framið,
handtók lögreglan þrjá
menn, sem grunaðir eru
um hlutdeild i þvi.
Donoughmore lávarður er einn
af framámönnum i hópi mót-
mælenda i írska lýðveldinu og
fyrrverandi þingmaður á brezka
þinginu. Hann er 71 árs gamall.
Ránið var framkvæmt á þann
veg, að þrír grimuklæddir menn
réðust inn á heimili bilstjóra
lávarðarins, sem er i grennd við
óðalssetur hans. Eftir að hafa yf-
irbugað bilstjórann komust
rænmgjarnir inn á landareign
lávarðarins og sátu þar fyrir
honum og konu hans, þegar þau
komu úr kvöldverðarboði.
Irska lögreglan lét i ljós
áhyggjur yfir þvi, að irski
lýðveldisherinn stæði á bak viö
ránið og hygðist nota lávarðs-
hjónin sem gisla i baráttu sinni
fyrir þvi, að fimm föngum verði
sleppt úr fangelsum á Bretlandi.
Þessir fangar hafa verið i
hungurverkfalli I fangavistinni,
og baráttan fyrir frelsun þeirra
magnaöist til mikilla muna,
þegar sjötti fanginn lézt I fangelsi
i gær. Hann hét Michael Gaughan
og var 24 ára gamáll.
Irski lýðveldisherinn hefur
gefið til kynna, að hann muni
gera útför Gaughans að sam-
einingar- og baráttudegi. Rikis-
stjórn Irska lýðveldisins hefur
ekki enn veitt samþykki sitt við
fjöldasamkomum á útfarar-
daginn. '
I gær blöktu sex rauðir fánar
fyrir utan pósthúsið i Dublin og
var einn þeirra með svörtum
sorgarborða. Fánarnir áttu að
tákna fangana, sem efnt hafa til
hungurverkfallsins i brezkum
fangelsum. Þvi er spáð, að fleiri
þeirra verði með svörtum sorgar-
borða innan tiðar, ef brezka
stjórnin gripur ekki til nýrra
ráða.
Heróínsmyglarar
reyna nýjar leið-
ir frá Hong Kong
Franska lögreglan upplýsti I
gær, aö komizt heföi upp um
smygl á heróini i nýrri mynd eöa
svonefndum „brúnum sykri”.
Hafa veriö handteknir i Frakk-
landi 11 Kinverjar, sem grunaöir
eru um að hafa smyglað þessu frá
Hong Kong til Amsterdam.
Þetta nýja efni er framleitt I
Hong Kong, sennilega vegna
þess að alþjóðlegt samstarf lög-
reglu i fikniefnavörnum kreppti
mjög að verzlun „hvits” eða
hálfhreinsaðs heróins.
„Brúni sykurinn” er nær 33%
heróin i föstu formi, 60% koffein
og 7% morfln og kókain — Hann
er seldur I „heildsölu” I Amster-
dam á 10 til 12 þúsund dali kilóið.
Slðan er hann eimaður og unninn
til dreifingar i smásölu.
Lögreglan segir að þessi nýja
útgáfa af heróini sé Hfshættuleg,
ef það er tekið undir ákveðnum
kringumstæðum. Þó hefur það
komizt á markaði I Þýzkalandi,
Bretlandi og Frakklandi.
Sex kinversku sendiboðanna,
sem teknir voru á Orlyflugvelli,
voru með 2 kiló af brúnum sykri.
Soares og skœruliðar:
Rœða framtíð
Mosambique
Mario Soares, utanrikisráö-
herra Portúgal, hittir I dag
fulltrúa frá skæruliöahreyfing-
unni Frelimo I Mosambique.
Verður fundurinn haldinn I
Lusaka, höfuöborg Zambiu.
A fundinum mun utanrikisráð-
herrann halda fram svipuðum
sjónarmiöum og I viðræðunum
við Guineumenn fyrir rúmri viku.
Telur Soares, að ekki sé timabært
að ræða beinlinis um sjálfstæði
portúgölsku nýlendnanna á þessu
stigi, heldur séu þessir fyrstu
fundir til þess fallnir að kynnast
sjónarmiðum.
Aður en Soares hélt frá Lissa-
bon, itrekaði hann fyrri yfirlýs-
ingar um, að rikisstjórn Portúgal
mundi reyna að gæta hagsmuna
allra ibúa Mosambique — án til-
lits til litarháttar. Það fer eftir
þvi, til hvers samningarnir i
Afriku leiða, hvernig Portúgal
tekst að koma á stjórnmálasam-
bandi við önnur riki i Evrópu,
Afriku og annars staðar, sagöi
utanrikisráðherrann.
Þvi er spáð, að mun erfiðara
verði að semja við Frelimo i
Mosambique en sambærilegar
hreyfingar i öðrum portúgölskum
nýlendum. Samora Machel, leiö-
togi Frelimo, hefur hvað eftir
annað sagt, að hann muni ekki
sætta sig við annað en fullt sjálf-
stæði Mosambique. Það komi alls
ekki til greina að stofna til nokk-
urs konar sambandsrikis með
Portúgal.
Sinatra smellti
fingrum og...
Réttarhöld hefjast um miðj-
an júli i Salt Lake i máli trygg-
ingamanns, sem höfðaði mál á
hendur söngvaranum Frank
Sinatra og nokkrum vina
hans. Krefst maðurinn 2,5
milljón dala skaðabóta eftir
ryskingar, sem hann lenti I 5.
mai fyrra á hóteli i Kaliforniu.
Maðurinn segir, að einn vina
söngvarans hafi farið á fjörur
við konu hans fyrir Sinatra, og
þegar tryggingamaðurinn
mótmælti, fóru þeir að stæla.
Lauk þvi með þvi, að
Sinatra smellti fingrum og
sagði: „Okay, boys”. — Skipti
þá engum togum, að tiu menn
úr fylgdarliði hans tóku til við
að lúskra á tryggingamannin-
um.
Lögfræðingar Sinatra kröfö-
ust þess fyrst, að málinu yrði
visað frá, en dómarinn hafn-
aði þvi og ákvað málflutnings-
dag þ. 15. júli.
Fleiri ó móti
Andstæðingar aðildar Dan-
merkur að Efnahagsbanda-
lagi Evrópu eru i fyrsta sinn i
meirihluta i landinu, ef marka
má skoðanakönnun, sem
Observa-stofnunin fram-
kvæmdi fyrir blaðið Jyllands-
Posten.
43% ætluðu að segja nei við
spurningunni um aðild Dana
að EBE, ef aftur yrði kosið um
haua i þjóðaratkvæða-
greiðslu, 41% ætluðu að segja
já, 6% höfðu ekki skoðun.
I þjóðaratkvæðagreiðslunni
1972 sögðu 57% já og 33% nei.
s
SHARIF GEKK ILLA
Italska parið Faccini og
Zucchelli unnu núna i vikunni
á ítaliu það mótið i Evrópu,
sem veitir mestu peninga-
verðlaunin — eða 480 þús. kr.
Þetta sama par varð númer
tvöá nýafstöðnu ólympiumóti,
og vann þar áður Sunday
Times-tvimenninginn i
Lundúnum.
Annað italskt par, Abate og
Burgay, varð númer tvö i
þessu móti, en þeir voru lika i
öðru . sæti I Sunday
Times-keppninni og i 3. sæti á
olympiumótinu.
Meðal þátttakenda voru
Hamman og Wolff úr Dallas-
ásunum, Braziliumennirnir,
Chagas og Assuncao, og svo
Ferreira og Ferreira (i fjórða
og fimmta ' sæti). —
Kvikmyndaleikarinn Ómar
Sharif var þarna með, en
vegnaði ekki vel.
Enginn úr Bláu sveitinni
itölsku, se'm varð heims-
meistari i siðustu viku, tók
þátt i þessu móti.