Vísir - 05.06.1974, Qupperneq 10
tþróttafélag Reykjavíkur, ÍR,
hefur nú á að skipa meistara-
flokki i knattspyrnu og leikur I 3.
deild, en nú munu um 25 ár siðan
ÍR var með keppnisflokk í eizta
aldursflokki. Á laugardag lék ÍR i
sinn fyrsta leik i 3. deild við annað
Breiðholtsféiag, Leikni. Leikið
var á Háskólavelli og vann ÍR
með 6-0. Myndina hér að ofan tók I
Bjarnleifur fyrir leikinn og má
þar sjá, að margir af meistara-
flokksmönnum liðsins i handboit-
anum leika þarna. Þeir eru i nýj-
um búningum, sem Jón Bjarni
Þórðarson i Breiðholtskjör gaf til
félagsins — og eru ÍR-ingar með
auglýsingu frá verzluninni á bún-
ingi sinum.
ÉG ÆFI OG LEIK MEÐ
ÞRÓTTI NÆSTA VETUR
íþróttablaðið býður iþróttafélögum og
flokkum sérstök sölustörf fyrir bláðið.
Tilvalið fjáröflunartækifæri.
Sérstaklega góð sölulaun.
Upplýsingar hjá íþróttablaðinu, Lauga-
vegi 178, R.
leika með Val i 1. deild, yrði
enginn timi aflögu fyrir
fjölskylduna, þvi öll kvöld færu I
þetta.
Hún verður að fá að vera með I
ráðum, þvi handboltinn hefur
næstum þvi gengið fyrir hjá mér
á undanförnum árum. Þar fyrir
utan tel ég mig ekki vera það
góðan leikmann, að ég geti þjónað
báðum liðunum þannig, að allir
séu ánægðir.
Við hjá Arhus KFUM erum
þegar byrjaðir að æfa fyrir næsta
vetur. Við tökum þátt I mótum I
Sviþjóð I ágúst og september og
siðan I stórmóti, sem verður
hérna dagana 6.-7. og 8. sept. Þá
förum við I keppnisferðalag til
Þýzkalands og Póllands og ýmis-
legt annað er á döfinni.
Þá munum viö taka þátt I
Evrópukeppninni, og reikna ég
með, að ég leiki með liðinu þar —
a.m.k. I fyrstu umferðinni, og
jafnvel meir ef við komumst
áfram.
Skólinn hjá mér verður búinn
um miðjan október, og ég stefni
að þvi að vera kominn heim I
byrjun nóvember og taka þá
strax við að þjálfa og leika með
Þrótti. Vona ég svo sannarlega,
að mér takist að. standa mig
sæmilega i þvi starfi”. —kip
— sagði Bjarni Jónsson í viðtali við Vísi í morgun
Eins og áður hefur komið fram i
fréttum gerði Bjarni Jónsson,
fyrrum handknattieiksmaður
með Val, samning við Þrótt um,
að hann þjálfaði 2. deildar liö
félagsins, er hann var hér i
kepp n isferða la gi með
Danmerkurmeisturunum Arhus
KFUM I vor.
Ekki mun hafa verið á hreinu,
með hvoru liðinu Bjarni ætlaði að
leika er hann kæmi heim, Þrótti
eða sinu gamla félagi Val. Voru
skiptar skoðanir um þaö, og báðir
aöilar héldu þvi fram, að hann
ætlaði að leika með þeim, en
ekkert var talað við Bjarna.
I siðustu viku hringdi formaður
handknattleiksdeildar Vals,
Þórður Sigurðsson, I Bjarna til að
fá ákveðið svar, en hann sagðist
þá ekki vera búinn að gera það
upp við sig, með hvoru liðinu
hann ætlaði að leika.
1 morgun tókum við af skarið og
höfðum samband við hann I
Arósum. Þá tjáði hann okkur, að
hann væri búinn aö ákveða að æfa
og leika með Þrótti I vetur.
,,Ég sá fram á það, að ef ég
ætlaði að þjálfa Þrótt og siðan að
Loftleiðamenn
gegn mðnnum
Noregskóngs
Það fyrsta, sem sjóliðarnir af
norsku skipunum, sem fylgja
Ölafi Noregskonungi, gerðu I
morgun, var að skora á Islenzka
knattspyrnumenn I kappleik
Leituðu þeir til starfsmanna
Loftleiða, en þar er ágætt firma-
liö fyrir hendi. Tóku Loftleiða-
menn boðinu og keppa á Mela-
velli á morgun kl. 18 við menn
Ölafs Noregskonungs.
Glatað stig
á ísafirði!
Þróttur náði þar aðeins jafntefli í 2. deild
Þróttur tapaði einu
dýrmætu stigi i
baráttunni um efsta
sætið i 2. deild á ísafirði i
gærkveldi.Leiknum lauk
með jafntefli — hvorugu
liðinu tókst að skora
mark, en ísfirðingar
voru nálægt þvi að hirða
bæði stigin á siðustu
minútunum.
Þróttarar byrjuðu leikinn með
krafti, en þegar markið vildi ekki
koma, dofnaði yfir þeim, og leik-
urinn jafnaðist.
Bæði liðin áttu nokkur tækifæri
á að skora, en það urðu aldrei
neitt annað en tækifæri.
Rikki er
frábœr!
Á júni-leikunum I Stokkhóimi I
gærkvöldi náði Ricky Bruch mjög
góðum árangri i kringlukasti —
kastaði 65.96 metra, sem var
mesta afrek keppninnar. Mike
Boyt frá Kenýu sigraði I 800
metra hlaupi á 1:46.6 min., og i
hástökki sigraði Sviinn Rune
Almen, stökk 2.16 metra. Danski
Norðurlandamethafinn Jesper
Törring stökk sömu hæð. í 5000
metra hlaupi sigraði Jos
Hermens, Hoilandi, á ágætum
tima, 13:36.4 min.
Athygli áhorfenda beindist
mest að kringlukastinu. Annar
þar varð Finninn Marrku Tuokko
með 62.36 m. Mac Williams, USA,
varð 3ji með 61.84 m og Lars
Haglund, Svíþjóð, fjórði með 59.70
1. deild
Eftir leik Fram og Vikings i 1.
deildinni i gærkvöldi er nú staðan
þannig:
Akranes 3 2 1 0 6-1 5
Keflavik 3 2 0 1 5-2 4
KR 3 2 0 1 3-2 4
ÍBV 3 1 I 1 3-3 3
Vikingur 3 1 1 1 4-4 3
Valur 3 0 2 1 2-3 2
Akureyri 3 1 0 2 1-7 2
Fram 3 0 1 2 3-5 1
Fjórða umferð verður háð um
helgina. Þá leika Fram-Vest-
mannaeyjar á Laugardalsvelli kl.
tvö á laugardag, og sama dag
leika Akranes-Keflavik á Akra-
nesi kl. 4 og Akureyri-Vikingur á
Akureyri kl. 2. — A mánudag
leika KR-Valur á Laugardais-
velli.
ísfirðingar voru „heitir” seint I
leiknum, er gott skot þeirra
small i þverslánni hjá Þrótti, og
var það það næsta, sem þeir
komust að skora.
Með þessu jafntefli lyftu
Isfirðingar sér af botninum i
deildinni — Armenningar eru þar
nú einir eftir — en Þróttur er
áfram með I baráttunni milli
efstu liðanna.
—klp—
Búlgaría
sigraðil
Búlgaria sigraði i
UEFA-keppni unglingalandsliða,
leikmenn 18 ára og yngri — vann
Júgóslaviu I úrslitaleiknum i
Sviþjóð með einu marki gegn
engu
t keppninni um þriöja sætið
vann Skotland — liðið, sem ísland
gerði jafntefli við á mótinu —
Grikkland, einnig með einu marki
gegn engu.
íslandsmót
í kvöld
isiandsmótið i sundknattieik
hefst i Laugardalslauginni i
kvöld. Þrjú lið taka þátt i mótinu,
Ármann, KR og Ægir og verður
leikin tvöföid umferð.
Fyrsti leikurinn milli Ægis og
Ármanns verður kl. 9.301 kvöld og
dæmir Sigmar Björnsson
ieikinn. Á mánudag leika Ármann
og KR og hefst leikurinn einnig kl.
9.30. Dómari verður Halidór
Hafliðason. Siðasti ieikurinn í
fyrri umferðinni verður föstu-
daginn 14. júni kl. 9.30. Þá leika
KR og Ægir og dæmir Gunnar
Kjartansson þann leik.
Opna mótinu
frestað
Opnu golfkeppninni hjá GR,
Coca Cola-keppninni, sem átti að
hefjast á morgun á Grafarholts-
velli, hefur nú veriö frestað til
27.-29. júni.
Ástæðan er sú, aö Grafarholts-
völlurinn er enn ekki kominn i
nægilega gott stand til að halda
svona stórt mót.
1 staðinn fer fram Slazenger
keppnin á föstudag og laugar-
dag. Þetta er tviliðaleikur — tveir
menn leika með einum bolta og
slá annað hvert högg. Mótið hefst
á föstudag kl. 17,00 og síðan fram
haldið á laugardag eftir hádegi.
Meistarar MH!
Þriðjudaginn 23. april lauk skólamóti K.S.t. með úrslitaieik á Mela-
vellinum. Áttust þar við lið frá Menntaskólanum við Hamrahlið og
Menntaskólanum IReykjavík. Lauk leiknum með sigri M.H. 3:2.
Þetta er i fyrsta sinn sem Menntaskólinn við Hamrahiiö sigrar I þess-
ari keppni.
Lið M.H. ásamt rektcr skólans:
Aftari röð: Gísli Torfason, Hafliði Loftsson, Sigurður Haraidsson
(fyrirliði), Jón Gisiason, Gylfi Arnason og Sverrir Gestsson.
Fremri röð: Hannes Lárusson, Bjarni Guðmundsson, Hörður Sverris-
son, Guömundur Arnlaugsson rektor, Björn Arnarsson, Kristinn
Kristjánsson og Magnús Magnússon.
A myndina vantar: Arniaug Helgason, Adóif Guðmundsson, Hauk Haf-
steinsson og Daniel Gunnarsson.
Miðherji Vikings, Kári Kaaber,
skallar knöttinn yfir Arna Stefáns-
son, markvörð Fram, algjörlega
óvaldaður af varnarmönnum Fram.
Fyrra mark Vikings var staðreynd.
Liósmynd Bjarnleifur.
sömu mistök og kostuðu tvo mörk
gegn Val.
Eftir markið þéttu Vikingar enn
vörn sina — greinilega ákveðnir að
halda þvi, sem þeir höfðu náð. Fram
sótti þvi mun meira — en árangurinn
var sáralitill. Hinu megin varð hins
vegar hætta — Jóni Péturss. urðu á
mistök og Kári komst einn frir með
knöttinn að markinu. Árni varði skot
hans — knötturinn hrökk til Hafliða
Péturssonar, sem spyrnti framhjá
opnu marki Fram. Rétt á eftir
skoraði Vikingur sitt annað mark —
og hvilikt mark! — Gunnar örn tók
aukaspyrnu um 30 metra frá marki
— spyrnti þrumufleyg á markið og
knötturinn hafnaði efst i vinkli
Frammarksins. Snilldarlega útfærð
aukaspyrna — og markið svo fallegt,
að jafnvel hörðustu Framarar
hrifust með.
Þungi sóknar Fram jókst eftir
þetta mark — en Diðrik var þeim
erfiður. Hann hirti knöttinn af tám
Rúnars Gislasonar, varði frá Kristni
með góðu úthlaupi, en knötturinn
hrökk til Guðgeirs. Hann vandaði sig
— spyrnti neðst i markhornið, en
Diðrik var þá þar kominn og varði i
horn. Frábært. Þegar ein min. var til
leiksloka komst Kristinn frir inn
undir markteig — Diðrik bjargaði,
en knötturinn barst af honum aftur
til Kristins. Þá greip Diðrik liggjandi
um fætur hans og vitaspyrna var
dæmd, sem Marteinn Geirsson
skoraði úr. En mark Fram kom of
seint til að bjarga einhverju.
Vikingur sigraði i þessum leik á 1
miklum baráttuvilja — góðum
markverði og bakvörðum. En það 1
má greinilega laga leik Vikings —
einkum sóknarleikinn. Unglinga- I
landsliðsmaðurinn Óskar Tómasson
sýndiþannstutta tima, sem hann lék '
með, að þar er mikill framtiðar-
maður á ferð. Öskiljanlegt, að hann '
skuli ekki vera fastur leikmaður —
og flestir sakna Stefáns Halldórs- I
sonar, þess fljóta og leikna pilts, sem
var aðalskorari Vikings i fyrra. I
Hann hlýtur einnig að geta bætt ,
slakan sóknarleik liðsins. I
En hvað með Fram?. — Já, þar er ,
pottur brotinn og Framliðið hefur I
ekki fengið það út úr leikjum sinum, ,
sem efni standa til. Röng leikaðferð I
auk þess sem varnarleikur liðsins, ,
er nú mun gloppóttari en áður. I
Guðgeir er langbeztur, og án hans ,
væri liðið ekki upp á marga fiska. I
Dómari var Þorvarður Björnsson ,
—hsim.'
Víkingur sigraði Fram 2-1 í 1. deildinni í gœrkvöldi
Vikings létu slaka miðherja Fram
litið leika á sig. Ögnun Fram varð
þvi litil — og Vikingur vann, þó svo
framlina liðsins sé meö afbrigðum
slök.
Fyrri hálfleikur i gærkvöldi er það
slakasta, sem sézt hefur 11. deildinni
i vor — bókstaflega ekkert, sem hægt
er að tala um, utan þess, að á siðustu
minútu hálfleiksins þurfti Arni
Stefánsson, markvörður Fram, að
sýna snilldarmarkvörzlu til að
bjarga sjálfsmarki. Marteinn Geirs-
son gaf knöttinn aftur, en tókst ekki
betur en að knötturinn stefndi efst I
markhornið — en Arna tókst sem
sagt að bjarga. Vikingur lék undan
snarpri golu og var mun meira með
knöttinn.
Mikil breyting varð i siðari hálf-
leiknum — og spenna mikil. Strax i
byrjun komst Asgeir Eliasson i
„dauðafæri” við Vikingsmarkið eftir
fyrigjöf Kristins, en spyrnti yfir af
2ja metra færi. Atti þó Diðrik
Ólafsson eftir — og markvarzla
Diðriks i þessum leik var vissulega
frábær. Ekki er þvi að vita hvað skeð
hefði ef Ásgeir hefði hitt á markið.
En þarna fór gott tækifæri og svo
skoraði Vikingur. Það var á 12.min.
Vikingur fékk hornspyrnu — Gunnar
örn renndi knettinum til Eiriks, sem
gaf mjög vel fyrir, beint á koll Kára
Kaaber, sem óvaldaður af Fram-
vörninni skallaði auðveldlega i
mark. Þarna urðu Framvörninni á
Það hefðu vist fáir getað spáð þvi,
þegar keppnin 11. deild hófst i vor, að
bikarmeistarar Fram yrðu i neðsta
sæti eftir þrjár fyrstu umferðirnar.
En þetta er nú staðreynd — Fram-
liðið er eitt á botninum eftir tapleik
gegn Viking á Laugardalsvelli I gær-
kvöldi og er þvi útlitib allt annað en
gott hjá liðinu. En Framliðið er alltof
gott lið — miðað við flest önnur i
deildinni — tii þess að skipa þetta
óhugnanlega sæti lengi áfram. Það
hlýtur fijótiega að fara að rifa sig
upp úr meðalmennskunni og vinna
ieiki.
Sigur Vikings var að mörgu leyti
verðskuldaður I gærkvöldi, þó svo
knattspyrna sú, sem Vikingar sýndu,
væri litt til fyrirmyndar eða eftir-
breytni. En baráttuvilji flestra leik-
manna liðsins var meiri en
Framara — það var barizt af
miklum ákafa mjög á kostnað knatt-
spyrnunnar. Sparkað sem fyrst án
þess að yfirleitt sé leitað að
samherja. Þetta er talsvert ein-
kennilegt, þvi það var spil I Vikings-
liðinu, sem nú hefur verið látið
vikja. Þetta riðlaði þó algjörlega leik
Fram, og liðinu tókst sjaldan að ógna
verulega — en á stundum sýndi
Framliðið nettan leik.
Megingalli Fram i leiknum lá þó i
leikaðferðinni — það var litið reynt
að brjóta niður Vikingsvörnina, þar
sem hún er veikust. Beztu menn
Fram, Guðgeir Leifsson og Ásgeir
Eliasson, léku úti á köntunum sem
áður — einmitt þar sem Vikingur er
sterkastur fyrir, en þeir Magnús
Þorvaldsson og Eirikur Þorsteins-
sonar eru án efa sterkasta bak-
varðaparið i 1. deildinni. Þeir höfðu I
fullu tré — jafnvel betur en það — I
viðureigninni við Guðgeir og Asgeir
og þar með stóð Víkingur með pálm-
ann i höndunum, þvi miðverðir
Gunnar örn Kristjánsson, Viking,
skoraði fallegasta mark islands-
mótsins á Laugardalsvelli i gær-
kvöld. Þrumuflcygur hans af 30
metra færi flaug efst i markhornið —
algjörlega óverjandi. Þarna er
Gunnar örn með knöttinn í leiknum i
gær. Ljósmynd Bjarnleifur.