Vísir - 05.06.1974, Qupperneq 13
Vísir. Miðvikudagur 5. júni 1974
13
Einn blómavasi á
93 milliónir króna!
Þessi vasi, sem hér sést á London fyrir skömmu á 1,008,000
myndinni, var seldur á uppboði i Bandarikjadollara, sem jafngild-
ir liðlega 93 milljónum islenzkra
króna.
Vasinn, sem sjálfsagt verður
ekki notaður undir blóm, er einn
af fjórum, sem talið er að séu til i
heiminum. Þetta eru svokallaðir
Ming-vasar og eru frá árunum
1403 til 1424. Þeir eru gerðir i Kina
og kemur nafnið á þeim þaðan.
Ekki þótti þessi vasi neitt sér-
lega fallegur. Hann er hvitur að
lit, og á hann er málaður dreki i
bláum lit svo og örlltið blóma-
skraut. En hann er gamall og að-
eins þrir aðrir slikir til I heimin-
um og það er fyrir öllu hjá þvl
fólki, sem safnar svona gripum...
og á aura til að borga fyrir þá.
Uppboðshaldarinn sló vasann
enskum manni, sem ekki vildi
láta nafns sins getið, né fyrir
hvern hann var að kaupa hann.
— klp—
Þœr elska hann allar -
litlu stúlkurnar!
Donny Osmond, sem þarna er
lengst til hægri á myndinni, er
nú ekki lengur litli sæti strákur-
inn, sem þúsundir stúlkna út um
allan heim hafa elskað af öllu
sinu litla hjarta. Hann er orðinn
myndarlegur ungur maður,
bráðum 18 ára gamall, og
stúlkurnar elska hann nú enn
meir en áður. Fyrir skömmu
kom hann fram I sjónvarpsþætti
Perry Comos ásamt systur
sinni, Marie, sem varð 15 ára
fyrir skömmu. Þar sungu þau
hvert lagið á fætur öðru ásamt
leikkonunni Debbie Reynoids og
að sjálfsögðu Perry Como, og
gerðu mikla lukku eins og
venjulega.
Fyrir 18 ára og yngri, er störfuðu fyrir
D-listann á kjördag, miðvikudagskvöld 5. júní frá
kl. 9—1 í SIGTÚNI
Hljómsveitin Islandia, söngkona Þuríður Sigurðardóttir.
Sœmi og Didda rokka. Halli og Laddi skemmta með eftirhermum.
| Fyrir 18 ára og yngrí
Boðskort
verða afhent á skrifstofu
fulltrúaráðsins
Siðumúla 8 og Galtafelli,
Laufásvegi 46 i dag og á
morgun kl. 9-5.
Fjölbreytt skemmtiatriði —
Aðgangur ókeypis