Vísir - 05.06.1974, Page 20
vísir
__il___
Miövikudagur 5. júni 1974.
Tísasm:
Hlakkar þú til aö sjá kúnginn?
Kristín Pétursdóttir, 8 ára: Ég
hlakka voöa til aö sjá kónginn,
)vl ég hef aldrei séö hann áöur.
Ég held hann sé meö svart hár,
en enga kórónu.
Brynjar Pétursson, 5 ára. Ég
held þaö veröi skemmtilegt.
Þetta er I fyrsta sinn, sem ég sé
kóng. Nei, hann er ekki meö
kórónu, bara i svörtum fötum og
meö svart hár.
Helga Bertelsen, 6 ára: Já, ég
hlakka til. Ég held hann veröi i
gullfötum, kannski rauöum. Ég
hef bara séö kónga i blööum.
Arngeir Hreiöar Hauksson, 5
ára: Ég hlakka til, af þvl aö ég
held aö hann sé svo fallegur. Ég
veit ekki, hvort hann veröur
meö kórónu.
Georg Mikelson, 5 ára: Þetta
veröur voöa gaman, af þvi ég
hef aldrei séö kóng áöur. Ég
vona bara, aö hann veröi meö
kórónu.
Gunnhildur Einarsdóttir, 5 ára:
Ég hlakka mikiö til, þvi aö afi er
- nefnilega norskur. Ég hef
aldrei séö alvöru kóng áöur.
I
GLÓANDI SÍMALÍNUR
HJÁ NORSKUM
Slmalinurnar frá norska sendi-
ráöinu voru sannarlega glóandi I
gær. Sendiráöiö þurfti aö hafa
samband viö 300 Norömenn á
Reykjavikursvæöinu og reyndar
vlöar um landiö til aö tilkynna
þeim um breytinguna á móttöku,
sem Ólafur Noregskonungur
hefur fyrir Norömenn á islandi.
Þótti vissara aö hafa samband
viö hvern og einn til aö komast
hjá leiöindum, sem ella kynnu aö
skapast. Naut sendiráöiö I þessu
góörar samvinnu viö formann
Nordmannslaget I Reykjavlk,
Else Aass, og var þvl komizt hjá
vandræöum, aö þvl er NTB sagöi I
morgun. —JBP
Þjóösöngvar Noregs og Islands leiknir. ólafur heldur á blómvendi,
sem litla telpan haföi fært honum. Hún heitir Sigríöur Asta Haröar-
dóttir. Yzt til vinstri sést utanrikisráöherra, Knut Frydenlund. A
myndinni hér til hliöar sjást þjóöhöföingjarnir veifá til mann-
fjöldans af svölum Ráöherrabústaöarins viö Tryggvagötu
Noregskonungur
ólafur Noregskonungur hélt til
Bessastaöa klukkan tóif á hádegi
Þar snæddi hann hádegisverð, en
móttökunni þar átti aö Ijúka um
klukkan hálfþrjú
Konungur leggur blómsveig aö
minnismerki norskra hermanna
klukkan fjögur I dag, en stundu
siðar mun hann taka á móti
sendiherrum erlendra rlkja og
frúm þeirra I Ráöherrabú-
staðnum. Þar veröa ásamt
konungi utanrlkisráðherra
Noregs og Pétur Thorsteinsson
ráöuneytisstjóri.
1 kvöld er svo kvöldveröarboö
aö Hótel Sögu fyrir konunginn, og
mætir konungur til veizlunnar
klukkan hálfátta.
Mikill fjöldi boðsgesta situr
veizluna, en allir salir annarrar
hæðar hótelsins verða þá I notk
un. Ekki fékkst upplýst, hvaö
yröi á borðum, en Vlsir haföi
spurnir af stórinnkaupum á
lambakjöti, sem sett eru I sam-
band viö veizluna...
ÞJM
Flugslysið í Dölunum:
DAUTT A
HREYFLINUM
— segir vitni
„Raunar er ekkert nýtt komiö
fram um tildrög flugslyssins i
Dölunum”, sagöi Grétar Óskars-
son forstööumaöur loftferðaeftir-
litsins I morgun. ,,Þaö er komið
fram vitni, sem telur, aö dautt
hafi veriö á hreyfllnum, en ekki
er búiö aö taka af honum skýrslu
enn.
Þegar flugvélar eru I beygju
eins og þessi var, missa þær hæö,
hvort sem dautt er á hreyflinum
eða ekki. Ef hún hefur flogiö lágt,
þarf ekki mikiö til aö hún rekist á
slmallnu eða annaö jaröfast.
Þaö voru þrjár vélar i samfloti
yfir Stykkishólmi, síöan fljúga
þær austur yfir Hvammsfirði. Sú
fyrsta, sú sem fórst, finnur ekki
skýjagat, en er aö lóna yfir
Búðardal með vél tvö. Vél tvö
finnur siðan gat og flýgur áfram
suður, en mætir skýjabakka
suður á Mýrum og snýr þá til
baka. Þriöja vélin finnur einnig
skýjagat og kemst klakklaust til
Reykjavikur.
Fyrsta vélin er slöan komin I
sjálfheldu og ferst eins og öllum
er kunnugt”. —JB
Kjöt, smjör og kaffi renna út
Gamla góða krónan í fullu gildi
Við hringdum i
nokkra kaupmenn i
gær út af kaffi-
skortinum, og voru
svörin flest á þá leið, að
heldur væri nú litið til
af þvi. Jón Júliusson i
Nóatúni sagðist enn
eiga nokkrar tegundir,
en töluvert vantaði inn
i.
1 Sláturfélaginu viö Háaleitis-
braut sagði Guðjón Guöjónsson
verzlunarstjóri okkur, aö heldur
væri að slga á seinni hlutann hjá
þeim. Þeir heföu veriö svo
heppnir aö fá miklar birgöir á
miövikudaginn var og heföu
búiö aö þvl.
,,Ja, nú eru góöir tlmar,
gamla góöa krónan I fullu verö-
gildi, kjöt og smjör og kaffi
rennur út”, sagöi Guöjón.
1 Kjörbúð Laugaráss fengum
viö þær upplýsingar, aö ekkert
kaffi væri til. Þeir heföu fengiö
sendingu á laugardaginn, sem
heföi þegar selzt upp.
Talsvert ber á hamstri I
kaupum á kaffi, voru kaupmenn
sammála um.
Viö höföum samband viö Her-
mann Jónsson á skrifstofu verö-
lagsstjóra I gær. Sagði hann
okkur þá, aö enginn fundur
heföi veriö haldinn urn máliö og
ekki enn veriö boöaöur.
Sennilega veröum viö aö fara
að drekka te, sem er miklu
ódýrara. Liklega myndu nú
margir sakna þess þá aö fá ekki
molasopann sinn.
—EVI—