Vísir - 06.06.1974, Page 1

Vísir - 06.06.1974, Page 1
64. árg. —Fimmtudagur 6. iúnl 1974. — 91. tbl Skutu á sumarbústaði og skynlausar skepnur — hœttulegir byssumenn handteknir _ baksíða FERÐA- SKRIF- STOFAN VANN STÓRA MÁLIÐ — Baksíða Fuglinn og fram- kvœmdirnar — baksíða • Peron herðir sóknina gegn vinstri mðnnum ^ 5 Ekkert markvert gerist á öryggisráðstefnu Evrópu sjá grein á bls. 6 Berjast gegn ein- hliða fœkkun í herafla Bandaríkjanna sjá bls. 5 Hermenn SÞ komnir á milli Sýrlands og w Israels sjá bls. 5 Þreyttur á Fischer — sjá bls. 3 „Höfum ekki ef ni á gullinu" — sagði Hákon Bjarnason, þegar hann afhenti Noregskonungi minnispeninga að gjöf í morgun Hákon Bjarnason heilsar konungi vi6 komuna að Mógilsá. Á myndinni sést einnig Hákon Guðmundsson, form. Skógræktarfélags Islands. Ólafur konungur virðir fyrir sér plöntur I gróöurhúsinu að Mógilsá. Rannsóknarstööin þar var einmitt byggð fyrir hluta af norsku þjóðargjöfinni, sem hann færði tslendingum 1961. — Ljósm: Bragi. ,,Nú getið þér séð, hvers gjöfin, sem þér færðuð okkur frá norsku þjóðinni fyrir þrettán árum, hefur orðið megnug”, sagði Hákon Bjarnason skógræktar- stjóri, er hann ávarpaði Ólaf V. Noregskonung á Mógilsá i morgun. Við það tækifæri afhenti Hákon konungi að gjöf tvo minnis- peninga. Annars úr silfri'og hinn úr bronsi. „Ég hafði ekki efni á að láta geraeinnúrgulli”, sagði Hákon. Það hafði verið unnið að þvi langtfram á siðustu nótt að ljúka við gerð þessara minnispeninga og var það með naumindum, að þeir yrðu tilbúnir i tæka tið. Þetta eru fyrstu eintökin af minriispen- ingum, sem á að gefa út á næstunni i tilefni af 75 ára afmæli skógræktar á Islandi. í för með konungi i morgun voru m.a. forseti íslands og fjár málaráðherra. Sátu þeir saman i fremstu bifreiðinni, en á eftir fylgdu þrjár svartar og gljáandi bifreiðar með ýmsum embættis- mönnum. Lögreglubifreiðar voru svo i bak og fyrir auk lög- reglumanna á bifhjólum. Var heldur þröngt orðið á planinu við skógræktarstöðina, þegar öll hersingin var komin i hlað. Eftir að hafa skoðað skóg- ræktarstöðina var haldið yfir að laxeldisstöð rikisins, sem stendur spottakorn þar frá. Ók hin virðu- lega bilalest með miklum „elegans” þangað yfir, en Þór Guðjónsson veiðimálastjóri tók á móti þjóðhöfðingjunum og sýndi þeim stöðina. Var konungur hress i bragði og gerði ósDart að gamni sinu. 1 há- deginu sat hann hádegisverðar- boð að Kjarvalsstöðum, en um klukkan þrjú er ráðgert, að hann fljúgi til Akureyrar, þar sem hann skoðar sig um. Kvöldverö snæðir hann að Hótel KEA. Er það virðulegt samkvæmi með helztu mönnum bæjarins — öllum i smoking. Til Reykjavikur verður væntanlega komið aftur fyrir miðnætti. ÞJM Vísað úr Framsóknarflokknum „Ég hygg, að fram- kvæmdastjórnin geti ekki á eigið eindæmi visað félögum úr Fram- sóknarflokknum. Það er aðeins á valdi félaganna sjálfrá?’, sagði Andrés Kristjánsson fyrr- verandi ritstjóri TÍMANS og um margra ára bil einn af aðal- málsvörum Fram- sóknarflokksins. Hann er i hópi þeirra, sem ályktun framkvæmdastjórnar Framsóknarflokksins nær til, en hún birtist á forsiðu Timans i morgun. Þar segir, að fram- kvæmdastjórnin „liti svo á, að framsóknarmenn, sem tekið hafa sæti á framboðslistum annarra flokka, hafi með þvi gengiö úr Framsóknarflokknum og geti þar af leiðandi ekki lengur gegnt trúnaðarstörfum á hans vegum”. „Það má vera, að fram- kvæmdastjórnin geti látið til sin taka, hverjir gegni trúnaðar- störfum á vegum flokksins, enda hafði ég t.d. áður skrifað henni bréf, þar sem ég legg niður um- boð mitt I miðstjórn Framsóknar- flokksins”, sagöi Andrés Kristjánsson, sem er i framboöi fyrir Samtök frjálslyndra og vinstri manna I kosningunum, er fara i hönd. Meðal annarra, sem fram- kvæmdastjórn Framsóknar- flokksins sendir þessa kveðju á forsiðu Timans i morgun, eru Kristján Thorlacius (forseti BSRB), ólafur Ragnar Grims- son, prófessor, Elias Snæland Jónsson, formaöur Sambands ungra framsóknarmanna, Baldur Óskarsson, fyrrverandi formaður SUF, Magnús Gislason frá Frostastöðum, varaþingmaður Framsóknarflokksins. — GP.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.