Vísir


Vísir - 06.06.1974, Qupperneq 2

Vísir - 06.06.1974, Qupperneq 2
2 Vísir. Fimmtudagur 6. júní 1974 VÍSDtSm: Hvaða bók lásuð þér siðast? Gunnar Gunnarsson, aOstoðar- maður i bókabil. Mig minnir, að það hafi verið bók um Perry Mason. Ég les yfirleitt þó nokkuð af bókum, stundum 4 á viku. Þetta eru bækur um allt mögu- legt. Júlia Margrét, 8 ára: Ég las Sesseliu siðstakk. Sesselia er ekkert sérlega sniðug stelpa, en hún er góð. Mér finnast allar bækur skemmtilegar. Jónina ómarsdóttir, barnapia: Ég las „Systir Angela” Hún var anzi skemmtileg. Ég vil helzt lesa spennandi bækur, ég byrja bara á einhverjum bókaflokki, og ef hann er spennandi, þá held ég áfram. Eyjólfur Magnússon, rafvirki: Ég er að lesa enska bók, sem heitir Accessory, og hún er hérna i vasanum. Þetta er ágætis glæpasaga. Annars er mér alveg sama, ég les allt, stundum fjórar bækur i viku. Annars er ég i veikindafríi og les þvi mikið núna. Elsa Antonsdóttir, húsmóðir: Ég hef lesið litið upp á siðkastið, annars les ég oft mikiö. Siðast las ég Brosið eftir hann Kristmann, Kiljan hef ég lika mikið lesið og yfirleitt les ég allt mögulegt. Sigurður Kristjánsson, járn- smiöur: Ég les nú frekar litið. Siðast las ég bók Sigvalda Hjálmarssonar, Að horfa og hugsa. Mér fannst hún ekkert sér- stök. Mér finnst einna skemmti- legast að lesa létt fræðirit og grip helzt i lesturinn um helgar. KAFFI LARSEN, - OG LARSEN KAFFI — Rabbað við Jónas stýrimann, formann nýs verkalýðsfélags, Rithöfundasambandsins Við hittum fyrir nokkru hinn nýkjörna formann Félags islenzkra rithöfunda, Jónas Guðmundsson. Aðalfundur félagsins var haldinn fyrir skömmu og baðst þá Þóroddur Guðmundsson skáld frá Sandi undan endurkjöri. Félag islenzkra rithöfunda, er það ekki hægri sinnaða rit- höfundafélagið? Þvi er oft haldið fram, aö svo sé, en ég tek skýrt fram, að stjórnmál eru aldrei rædd i þessu félagi. Við einbeitum okkur að félagsmálum. Hitt félagið Rit- höfundafélag Islands. Bæði félögin standa nú að Rithöfunda- ráði og Rithöfundasambandi Islands, er stofnuð voru á siðasta rithöfundaþingi. Nöfnum félaganna er oft ruglaö saman. Geta allir þessir frjóu menn ekki fundið frumlegri nöfn? Þetta er ekta norrænt fyrir- bæriogsannar ef til vill betur en nokkuð annað skyldLeika okkar við Norömenn. Komdu til Hammerfest I Noregi. Þegar ég kom þangað fyrst eftir striðið voru tvö kaffihús i bænum annaö hét Kaffi Larsen og hitt Larsen Kaffi. Var ekki ætlunin að leggja þessi félög niður við stofnun Rit- höfundasambandsins? Um það eru skiptar skoðanir. En i minu félagi er ekkert slikt á döfinni. Við teljum aðild að heildarsamtökum sjálfsagða. Hins vegar teljum við það veikja okkur fremur en styrkja að leggja niður gamalt og rótgróið félag. Það hefur ekki endanlega verið gengið frá skipulagi og lögum hins nýja Rithöfundasam- bands, en þetta samband er fyrst og fremst hugsað sem verkalýðs- félag, sem ætti að taka sér stöðu með félögum hinna lægst launuðu. En hvernig gengur persónu- lega? Ég var að ljúka við leikrit og skáldsögu. Skáldsagan er saka- málasaga. En sakamálasögur hafa nú tekið við af togarabók- menntum og Færeyingaskemmti- sögum, sem ásamt andatrúar- bókum hafa haldið uppi bókaút- gáfunni hér. En leikritið er hálf- gerður gamanleikur, til um- hugsunar fyrir þá, sem halda að allt sé list með þvi að hafa nóg að éta. Þú ert afkastamikill. Er það nauðsynlegt til að skrimta? Ekki mun það nú duga. Matthias Johannessen hefur haldið þvi fram, að islenzkur rit- höfundur þurfi að skrifa 9 bækur á ári til að draga fram lifið. Og svo ertu i útvarpinu? Mér datt það i hug var I gangi i fyrra, þá flutti ég aðeins tvo þætti. I sumar verð ég á dagskrá einu sinni i mánuði. Ég veit ekki fyrir vist, hverjir verða á móti mér með þáttinn. En ég vonast eftir Gisla J. Astþórs. aftur i sumar, þvi hann bar þáttinn að miklu leyti uppi I fyrra. Er ekki erfitt að hafa atvinnu af þvi að láta sér detta skemmtilega hluti I hug? Jú, þetta er eins og að leika i 19. launaflokki i Þjóðleikhúsinu. Rithöfundar eru töluvert að blanda sér i stjórnmál þessa dagana. Er þetta rétta stefnan. Ég tek undir það, sem Friöfinnur ólafsson sagði, þegar Helgi vinur hans Sæmundsson tók sér stöðu með vinstri jafnaðar- mönnum. „Mikið er að heyra þetta! Það verður að senda hann strax til Ameriku og setja gamla hjartað I hann aftur. Og I sumar? Ég ætla að helga mig barna- uppeldinu og passa landið þangað til i haust. Þá fer ég til Miinchen þar sem ég held málverka- sýningu i frægu málverkagallerii og einnig mun ég - vinna grafik þar og I Paris með hinum fræga listmálara og Islandsvini Rudolf Weissauer. —JB- Gjóbakkavegur: Vinna þar til milljónirnar eru uppurnar Bragi Jóhannsson verkstjóri. //Okkur gengur ágætlega", sagði Bragi Jóhannsson verkstjóri við Gjábakkaveginn, er Visir var austur á Þing- völlum í fyrradag. „Okkur er ætlað að vera 6 vikur við þessar framkvæmdir, og við erum þegar búnir að vera hér i hálfan mánuð. Við leggjum áherzlu á að ná endum saman, en siðan verður vegurinn hækkaður og lagaður eins og kostur gefst eða þangað til þessar frægu 25 milljónir eru búnar. Þessa daganaerum við aðal- lega að aka að vegarefni og erum með 13 bila i stöðugum flutningum frá 7 til 7. Það hefur ekki enn verið talin ástæða til að vinna lengur. Vegagerðin er einnig að vinna að gerð bilastæða á Þingvöllum fyrir þjóðhátiðina. Verða útbúin bilastæði fyrir samtals um 12.000 bila. Verða tvö stór bila- stæði við útsýnisskifuna við Almannagjá og einnig verður hægt að leggja bilum niðri á flötinni við Gjábakkaveginn. Borinn verður oliumöl á kaflann frá vegamótum Gjá- bakkavegarins og heim að Þingvallabænum, og er kominn stór oliumalarhaugur á staðinn i þessum tilgangi. Stöðugur straumur 12 tonna bíla flutti efni I nýja veginn. JB

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.