Vísir - 06.06.1974, Page 6

Vísir - 06.06.1974, Page 6
6 Vlsir. Fimmtudagur 6. júnf 1974 visir Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: Fréttastjóri: Ritstjórnarfulltrúi: Fréttástj. erl. frétta: Auglýsingastjóri: Auglýsingar: Afgreiösla: Ritstjórn: Askriftargjald 60« kr. Reykjaprent hf. Sveinn R. Eyjólfsson Jónas Kristjánsson Jón Birgir Pétursson Haukur Helgason Björn Bjarnason Skúli G. Jóhannesson Ilverfisgötu 32. Simar 11660 86611 Hverfisgötu 32. Simi 86611 Slðumúla 14. Simi 86611. 7 linur á mánuði innanlands. t lausasölu 35 kr. eintakið. Blaðaprent hf. Hreinar linur Nú geta Islendingar loksins kosið um varnar- málin i þingkosningum. Vinstristjórnin hefur leitt varnarmálin i slikar ógöngur, að kosning- arnar 30. júni eru siðasta tækifæri þjóðarinnar til að segja: Hingað og ekki lengra. Ljóst er, að Alþýðubandalagið og hin nýja út- gáfa Samtaka frjálslyndra og vinstri manna vilja, að varnarliðið verði tafarlaust látið fara úr landi. OrSamtökunum eru farnir menn eins og Björn Jónsson, sem einkum höfðu áhuga á verkalýðs- málum og engan áhuga á brottför varnarliðsins. 1 staðinn eru komnir hópar hernámsandstæðinga úr Framsóknar- og Alþýðuflokknum. Samtökin eru orðin að endursköpuðum Þjóðvarnarflokki. Þessir menn telja, að hér eigi ekki að vera her á friðartimum og að nú séu friðartimar. Þeir telja hættulegt sjáifstæði og menningu þjóðarinnar að hafa erlendan her hér á landi. Svipaðra sjónarmiða gætir hjá mörgum fylgis- mönnum Alþýðubandalagsins. En þar i flokki eru lika þeir menn, sem hafa svo mikið dálæti á stjórnarháttum i Austur-Evrópu, að þeir vilja færa tslendinga yfir á það áhrifasvæði. Framsóknarflokknum er ekki að treysta i varnarmálunum. Þótt sá flokkur sé yfirleitt tæki- færissinnaður, er hann þó hvergi tækifæris- sinnaðri en einmitt i varnarmálunum. Framsóknarflokkurinn hefur vissulega losnað við Möðruvellinga úr flokknum. En hann hefur lika losað þingflokkinn við tvo af þremur þing- mönnum flokksins, sem vildu hafa varnarliðið áfram, þá Björn Fr. Björnsson og Björn Pálsson. Og hann hefur einnig losað þingflokkinn við vara- þingmanninn Tómas Karlsson, helzta stuðnings- mann stefnu Varins lands i forustusveit flokksins. Og i varnarmálunum geta kjósendur haft til hliðsjónar, að það er yfirlýst stefna Framsóknar- flokksins að halda áfram vinstri stjórn eftir kosningar, ef þingfylgi verður nægilegt. Með þvi að styðja Framsóknarflokkinn i kosningunum stuðla kjósendur að framhaldi vinstri stjórnar og endanlegri brottför vamarliðsins á einu eða tveimur árum. Sem stendur virðist Alþýðuflokkurinn fremur en hitt styðja framhald landvarna, þótt hann hafi lagt fram tillögur um, að dregið verði úr þeim. En hin veika staða flokksins eftir byggðakosning- arnar hefur gert hann næman fyrir róttækum breytingum, jafnvel tilboði um að verða fjórða hjólið undir nýrri vinstri stjórn, sem mundi láta varnarliðið fara. Sjálfstæðisflokkurinn er eini flokkurinn, sem kjósendur geta treyst til að vinna að framhaldi varna á íslandi. Þeir, sem vilja varið land, hljóta að styðja Sjálfstæðisflokkinn til þeirra áhrifa, er dugi til að tryggja framgang málsins. Þar með er ekki sagt, að sjálfstæðismenn og aðrir landvarnamenn vilji hafa varnarliðið hér um aldur og ævi. Ef sú ósk rætist, að stórveldin komi sér saman um samdrátt i vigbúnaði og standa við það samkomulag, er — þá en ekki fyrr — unnt að undirbúa brottför varnarliðsins. Þeir, sem virða kaldar staðreyndir heimsmál- anna og hafa öryggi þjóðarinnar efst á blaði, munu skipa sér i sveit landvarnamánna og styðja Sjálfstæðisflokkinn i alþingiskosningunum. — JK Ekkert markvert gerist ó öryggis- róðstefnu Evrópu Brátt líður að þvi, að öryggis- ráðstefna Evrópu hafi staðið I eitt ár. Hún hófst formlega með fundi utanrikisráðherra þátt- tökurikjanna i byrjun júli sl. Eftir að þeir höfðu gefið hátlðlegar yfirlýsingar um frið og bætta sambúð, tóku sérfræöingar að ræða málin. Þeir hafa I allan vet- ur setið á fundum I Genf. Fremur litið hefur miðað og allar llkur benda til þess, að ekki verði unnt að ljúka ráðstefnunni i sumar, eins og Sovétrikin hafa lagt mikla áherzlu á. Lokaþátturinn í fundahöldum sérfræðinganefndanna hófst 22. april sl. að loknu páskafrii. Verður nú reynt til þrautar að ná samkomulagi milli fulltrúa Varsjárbandalagsins annars veg- ar og fulltrúa Vesturlanda og þeirra rikja, sem ekki eru i bandalögunum hins vegar um ágreiningsmálin. 1 skýrslu utanrikisráðherra ts- lands um utanrikismál, sem lögð var fram á alþingi 29. april sl. segir svo um gang mála á ráð- stefnunni: „Allt fram yfir siðustu áramót voru langdregnar umræður um málsmeðferð en i febrúar hófst ráðstefnan handa um samningu texta lokasamþykkta. Enn sem komið er hefur verki þessu miðað hægtáfram. Augljóst má vera, að samningar, sem snerta viður- kenningu landamæra, grundvöll mannlegra samskipta og upp- lýsingaskipti i Evrópu, hljóta að verða erfiðir. Á hinn bóginn ber minna á milli I efnahags- og Nixon og Brezhnev skála i kampavini, þegar þeir hittust siðast, I Washington 19. júni si. Brátt geta þeir fagnað aftur, þegar £iixon kemur til Moskvu undir lok þessa mánaðar. viðskiptamálum, enda e.t.v. ekki mikils nýs að vænta á þeim sviö- um. Jafnhliða samningum um þessi atriði, eða með tilliti til niöurstaðna þeirra, verður slöan að ákveða framtiðarfyrirkomulag marghliða viðræðna og samninga allra rikja Evrópu með þátttöku Bandarikjanna og Kanada.” Það er ekki björt lýsing, sem utanríkisráðherra gefur á fram- gangi mála á þeirri ráðstefnu, sem m.a. hefur verið notuð sem ein af röksemdunum fyrir þvi, að svo friðsamlegt sé orðið i heimin- um, að tsland megi verða varnar- laust. Eftir tæplega eitt ár hafa viöræður á ráðstefnunni ekki leitt til samkomulags um önnur atriði en þau, sem ekki snerta öryggi þátttökurikjanna. Samkomulag II hefur sem sé tekizt um efnahags- ' og viðskiptamál og nú siðast um umhverfisvernd, en raunveruleg öryggismál eru þrætuepli. Þau riki á ráðstefnunni, sem ekki lúta stjórn kommúnista, II hafa ekki fallið frá kröfum sinum '* um það, að samningur verði gerður um aukin mannleg tengsl milli austurs og vesturs. Þau vilja, að kommúnistarikin hætti að banna innflutning á blöðum, bókum og kvikmyndum inn fyrir landamæri sin. Þau fara fram á það, að ferðafrelsi verði aukið I báðar áttir, truflunum á útvarps- sendingum verði hætt Qg aðstaða fréttamanna i kommúnista- ( rikjunum verði bætt. 011 þessi Myndin er tekin I Helsinki 3. júll 1973, þegar Ahti Karjalainen, utan- rikisráðherra Finna, setti öryggisráðstefnu Evrópu. mál eru eitur i beinum stjórnenda kommúnistarikjanna, sem telja, að slikt frelsi muni grafa undan veldi sinu. t hernaðarmálefnum hafa Vesturlönd og hlutlausu rikin lagt áherzlu á, að samkomulag takist um atriði, sem gætu stuðlað að auknu trausti milli rikja. Þar hef- ur einkum verið minnzt á reglur, sem skylda riki til að tilkynna með fyrirvara um heræfingar og liðsflutninga. Slikar reglur geta orðið til fyllingar samkomulagi um samdrátt herafla i Mið- Evrópu. En viðræðum um það efni miðar mjög hægt i Vinar- borg. Sovétrikin hafa lýst sig reiðubúin til að tilkynna her- IIIIIIIIIKII M) umsjón B.B. æfingar með fimm daga fyrir- vara, en vilja ekki enn skuldbinda sig til að skýra frá liðsflutning- um. Þetta samrýmist alls ekki kröfum Vesturlanda, sem vilja, að fyrirvarinn sé 60 dagar, bæði um æfingar og liðsflutninga. Auk þess kjósa þau helzt, að gefnar verði upplýsingar um fjölda her- manna i æfingum og tækjakost. 011 framkoma sovézku fulltrúanna á öryggisráðstefn- unni hefur aukið grunsemdir manna um það, að áhugi þeirra á þvi að halda hana hafi sprottið af viðleitninni til að slá ryki I augu Vesturlandabúa. Ráðstefnan hef- ur gefið þeim ágætt tækifæri til áróðurs á Vesturlöndum. Sovét- menn hafa talað hæst um frið og sættir milli austurs og vesturs. Með þessu tali hafa þeir getað haft áhrif á skoðanamyndun i þeim löndum, sem leyfa frjálsan fréttaflutning. Þeir hafa i ræðum reynt að skapa andvaraleysi meðal lýðræðisþjóðanna. En við samningaborðið hafa þeir ekki viljað gefa neitt eftir. Sovétmenn hafa reynt að beina allri athyglinni að „sinum mál- um” á öryggisráðstefnunni. Þau snerta annars vegar friðhelgi landamæra og hins vegar bann við ihlutun i innanrikismál annarra rikja. Þetta eru málefni, sem þau lönd, sem ekki lúta kommúnistastjórn, þurfa ekki að hafa miklar áhyggjur af. Hins vegar eru þau treg til að gera samninga um þessi atriði við Sovétrikin. Brezhnev, flokks- leiðtogi, hefur ekki enn dregið til baka kenninguna, sem kennd er viö hann og beitt var I Tékkó- slóvakiu ’68. í stuttu máli er efni hennar það, að fullveldi fylgirikja Sovétrikjanna I Austur-Evrópu sé takmarkað. Telji leiðtogarnir i Kreml, aö „sósialiskum ávinningi” fólksins i þessum löndum sé ógnað, segjast þeir hafa rétt til þess að gripa I taumana og vikja öllum öðrum til hliðar. Sovétmenn telja einnig, að það sé Ihlutun Vesturlandabúa i innri málefni kommúnista- rikjanna, ef þeir ætla að fara að senda þangað blöð sin, bækur og kvikmyndir. A næstunni mun Nixon, Banda- rikjaforseti, fara til fundar við Brezhnev I Moskvu. Þá verður skálað I kampavini og rætt um frið og bætta sambúð. Þar mun Brezhnev leggja á það áherzlu, að öryggisráðstefnunni ljúki sem allra fyrst. Hann vill einnig, að lokafundinn sæki þjóðaleiðtogar þátttökurikjanna, svo að hann fái aftur þá tækifæri til að skála við Nixon i kampavíni og tala til heimsins um frið. Sagt er, að Nixon þurfi nú, frekar en nokkru sinni, að ferðast um heiminn þveran og endi- langan til að auka virðingu sina i skugga Watergate-hneykslisins. Brezhnev þarf einnig að auka álit sitt heima fyrir og geta sýnt fram á, að „friðarstefna” sin leiði til einhvers árangurs i samskiptum austurs og vesturs. Siðast i fyrra- dag flutti Grechko, varnarmála- ráðherra Sovétrikjanna, ræðu i sovézka sjónvarpið, þar sem hann varaði við þvi,að Sovétmenn yrðu ekki andvaraleysinu að bráð i öryggismálum sinum. Ekkert mætti fara úrskeiðis i þeim efn- um, þvi að heimsvaldasinnár væru að búa sig undir styrjöld. Þessi ummæli ráðherrans og önnur svipuð hafa verið skýrð sem gagnrýni á stefnu Brezhnevs i samskiptum hans við Vestur- lönd.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.