Vísir - 06.06.1974, Síða 10
10
Vísir. Fimmtudagur 6. júni 1974
Vísir. Fimmtudagur 6. júni 1974
'ftsi
■
Guömundur Sigurösson,
lyftingamaður úr Ár-
manni, varð áttundi í milli-
þungavigt á Evrópu-
meistaramótinu í lyfting-
um, sem haldið er i Verona
á Spáni um þessar mundir.
1 snörun lyfti Guðmundur 142,5
kilóum og i jafnhendingu 180,0
kilóum. Samtals var hann þvi
með 322,5 kiló, sem er jafnt gild-
andi íslandsmeti hans i milli-
þungavigt. 1 snörun er þetta einn-
ig jafnt þvi bezta, sem hann á i
milliþungavigt, og i jafnhendingu
er Hann rétt við sitt bezta.
Eins og fyrr segir varð Guð-
mundur áttundi i sinum flokki, en
þar kepptu 22 menn — einn frá
hverju landi. Gústaf Agnarsson
átti að keppa i þungavigt i gær-
kveldi, en fréttir af árangri hans
höfðu ekki borizt, er blaðið fór i
prentun. -klp-
Enginn vill
Asa Hartford
West Bromwich hefur enn ekki
fengið tilboð i skozka landsliðs-
manninn Asa Hartford, sem félagið
setti á sölulista í vor.
Asa, sem er með hjartagalla, hefur
verið einn af beztu mönnum West
Brom undanfarin ár, en nú vill félagið
fara að iosa sig við hann.
,,Það er útiit fyrir, að Asa verði með
okkur, þegar keppnistimabilið hefst
afturi ágúst”, sagði Don Howe, fram-
kvæmdarstjóri West- Brom, þegar
hann var spurður um, hvort hann
héldi, að ekkert lið vildi kaupa hann.
„Asa er frábær leikmaður i alla
staði. Klúbbarnir vilja sjálfsagt sjá
hann betur áður en þeir koma með til-
boð, og þau mun ekki skorta, þegar
að þvi kemur”.
18 œfa með
unglinga-
landsliði
í golfi!
Ákveðið hefur verið að senda
unglingalandslið tsiands í golfi á
Evrópumeistaramót unglinga, sem
fram fer i Finnlandi i lok júli i sumar.
Þar niunu sexmanna lið frá um 20
þjóðum keppa, og eru aldurstakmörk
miðuð við 21 árs aldur.
Unglinganefnd Golfsambands Is-
lands hefur nú valið 18 pilta til æfinga
fyrir þessa keppni svo og annað, er
upp kann að koma fyrir þá yngri á
þessu sumri. Piltarnir eru þessir:
Atli Arason GR, Konráð Gunnarsson
GA, Þórhallur Hólmgeirsson GS,
Ragnar Ólafsson GR, Elvar Skarp-
héðinson GL, Marteinn Guðnason GS,
Jón Sigurðsson GK, Loftur ólafsson
GN, Hallur Þórmundsson GS, Jóhann
Ó. Jósepsson GS, Jóhann Ó.
Guðmundsson GR, Jóhann R. Kjærbo
GS, Sigurður Hafsteinsson GR, Guðni
örn Jónsson GL, Björgvin Þorsteins-
son GA , Ársæll Sveinsson GV,
Sigurður Thorarensen GK og Geir
Svansson GR.
Piltarnir á Stór-Reykjavikur-
svæðinu munu hafa sameiginlegar
æfingar a.m.k. einu sinni i viku undir
stjórn Þorvaldar Ásgeirsson golf-
kennara, en hinir munu fá sérstakt
æfingaprogram til að fara eftir auk
þess sem Þorvaldur mun taka þá i
tima, þegar hann heimsækir klúbbana
þeirra hverju sinni.
1 þessum 18 manna hópi eru nokkrir
piltar, sem einnig eru i karialands-
liðinu i golfi, sem nú þjálfar m.a. fyrir
Norðurlandamótið, er fram fer hér á
landi i lok ágúst. Má þar t.d. nefna
Jóhann Ó. Guðmundsson, Ragnar
Ólafsson, Loft Ólafsson og Björgvin
Þorsteinsson.
Umsjón: Hallur Símonarson
Sterkir
Fmnar!
Finnar eiga sterka frjáls-
Iþróttamenn. Á móti i Helsinki á
þriðjudagskvöld kastaði Hannu
Siitonen spjóti 87.50 metra — og
Pentti Kahma þeytti kringlunni
64.26 metra.
Aðalgrein mótsins var 5000 m
hlaupið og þar" voru margir
stór h 1 auparar . Pekka
Pæiværinta, Finnlandi, sigraði
á 13:47.8 min. Annar varð
Anders Gærderud, Sviþjóð, á
13:48.1 min. Evrópumeistarinn i
1500 m Arese, italiu, varð fjórði
á 13:49.4 min. og annar Evrópu
meistari, Belginn Karel
Lismont (maraþon, Arese 1500
m) varð áttundi 13:53.6 min.
Olympiumeistarinn i 1500 m
hlaupi, Pekka Vasala, Finn-
landi, varð 12. á 13:55.6 min, og
hinn finnski Olympiumeistarinn
Lasse Viren varð 13. á 13:55.8
min. Myndin til hliðar er frá
fyrsta hring hlaupsins. Þar eru
Arne Kvalheim, Noregi, til
vinstri, og Finnarnir Seppo
Tuominen og Viren.
Roy Rees
Heppnist hugmyndirnar á Vík-
ingur stórkostlega framtíð!
— segir Roy Rees, hóskólamenntaður íþróttakennari, sem safnar hér efni í doktorsritgerð
- aðstoðar Viking við þjólfun og athugar framtíðaróœtlanir félagsins.
Það er margt líkt með is-
lendingum og Keltunum í
Wales og það svo, að manni
finnst oft hér á götunum í
Reykjavík, að sem vinir
manns frá Swansea eða
Wrexham séu þar á ferð,
sagði Roy Rees, kunnur
íþróttafrömuður á Bret-
landseyjum, við blaða-
menn i gær. Það var á
fundi í félagsheimili Vik-
ings, en Rees er staddur
hér á vegum félagsins —
aðstoðar við þjálfun og
leggur þar góð ráð, en þó
fyrst og fremst kominn
hingað til að fara yfir og
kynna sér framtiðaráætl-
anir Víkings á íþrótta-
svæðum félagsins við
Réttarholtsveg og í Foss-
vogi.
Jón Aðalsteinn Jónsson, for-
maður Vikings, skýrði blaða-
mönnum frá þvi að Vikingur ætl-
aði sér að koma upp stóru Iþrótta-
húsi norð-austur af félagsheimil-
inu við Réttarholtsveg — og að
byggja þrjá grasvelli á Iþrótta-
svæði þvi, sem Vikingur hefur
forgangsrétt að I Fossvogi. Þess-
ar framkvæmdir munu standa
næstu árin.
Roy Rees er háskólamenntaður
iþróttakennari, sem hefur mjög
unnið að uppbyggingu Iþrótta-
miðstöðva á Bretlandseyjum —
meðal annars i Liverpool og nú
siðustu tvö árin hefur hann verið
að byggja úpp eina slíka íþrótta-
miðstöð i Bangor I Norður-Wales.
Hann var áður fyrr atvinnumaður
i knattspyrnu og lék með Swansea
i 2. deild, þegar hinir frægu
Alchurch-bræður, Mel Charles,
Terry Medwin og Jones gerðu þar
garðinn frægan, en allir þessir
leikmenn léku síðar i 1. deildar-
liðum, Medwin og Jones I Totten-
ham-liðinu fræga um 1960.
Þá hefur hann einnig kynnt sér
sögu iþrótta, einkum á Norður-
löndum og Þýzkalandi, og er hér
einnig til að safna að sér efni frá
íslandi i doktorsritgerð um það
efni. Þetta er I fjórða sinn, sem
Rees kemur til Islands — og það
þarf varla að taka það fram, að
hann er frá Wales, þó svo hann sé
kunnastur fyrir störf sln i Liver-
pool. Var þar meðal annars fram-
kvæmdastjóri Skelmersdale i átta
ár og með honum þar vann
Vlkings-þjálfarinn Tony Sanders.
Það var Rees, sem ráðlagði Vik-
ing að ráða Sanders. Rees hefur
setið fundi með riefnd innan Vik-
ings, sem vinnur að framtiðar-
Norsk og dðnsk met
A sundmóti I Alaborg I
Danmörku fyrst I vikunni voru
sett nokkur ný, norsk sundmet —
Gunder Gundersen bætti met
sitt I 200 metra f jór sundi — synti
á 2:13.6 min. og sigraði á vega-
lengdinni. Annar varð Henrik
Rasmussen, Danmörku, á 2:13.7
min. sem er danskt met Tveir 15
ára strákar norskir náðu
athyglisverðum árangri I 1500 m.
skriðsundi. Tom Walle synti á
17:12.0 min. og John Nymoen á
17:48.0 min. í þessari grein var
sett nýtt, danskt met. Hendrik
Rasmussen synti á 17.05.4 mín og
millitlmi I 800 m. var einnig
danskt met, 9:02,2 mln.
áætlunum félagsins. Hann sagði.
— Það, sem ég hef séð af þess-
um áætlunum og athugað, þá er
greinilegt, að ef þær heppnast á
Vikingur stórkostlega framtlð —
þar er byggt fyrir framtiðina. Ég
hef nokkuð kynnt mér íþróttaað-
stöðu annarra félaga hér I
Reykjavik og verð að segja, að
hjá þeim stærstu hefur ekki verið
hugsað nógu langt fram I timann.
Ég mun kynna mér vel allar
hugmyndir Vikinga — fara með
þær út, en ég fer til Englands
aftur á föstudag og mun svo
senda Víking tillögur minar og
hugmyndir I sambandi við
iþró tta m iðstöð va r.
Ég hef einnig verið með
Sanders á æfingum félagsins og
Vlkingur þarf ekki að kviða fram-
tiðinni hvað knattspyrnumönnum
félagsins viðkemur ef rétt er á
málum haldið. Þar eru margir
góðir leikmenn — og mikill efni
viður fyrir hendi. ísland er mjög
áhugavert land — og öfundsvert
að þvi leyti hvað ungir drengir
hópast hér I knattspyrnuna.
Ahugi þeirra er glfurlegur á
knattspyrnunni — það jafnast á
við það bezta, sem ég þekki er-
lendis eins og til dæmis á Eng-
landi og i Hollandi. Það þarf að
búa vel að þessum mikla
efniviði. Þeir þurfa að fá réttu
undirstöðuna i þjálfun strax á
. unga aldri.
Þessa daga, sem ég hef dvalið
hér, hef ég séð öll 1. deildarliðin
islenzku i keppni og ég verð að
segja eins og er að knattspyrnan
hér er talsvert á eftir þvi, sem al-
mennt gerist i Evrópu. Kannski
skiljanlegt vegna fámennis,
veðurfars — en með réttri þjálfun
er hægt að gera Islenzka knatt-
spyrnumenn góða. Þetta eru yfir-
leitt góðir strákar — fljótir og
sterkir, en hið flna i knattspyrn-
una vantar hjá flestum — einnig
meiri keppni við sterkari lið. A
þvi má mikið læra.
Já, ísland er mjög áhugavert
fyrir Walesbúa, sagði Roy Rees
að lokum — það er ekki aðeins að
ibúar landanna séu likir i útliti —
iþróttir þeirra eru einnig llkar
eins og til dæmis gliman. Sama
sjálfstæðiskennd, þó okkur heima
i Wales hafi enn ekki tekizt að
losna frá Englendingum. En
baráttan hefur staðið frá 1200 —
Walesbúar beinlinis móðgast ef
þeirerusagðirenskir. -hsim.
Enskir ósigraðir
í Austur-Evrópu!
— Jafntefli Júgóslavíu og Englands 2-2 í landsleik í gœrkvöldi
Enska landsliðið í knatt-
spyrnu lék síðasta leik sinn
í keppnisförinni til Austur-
Evrópu í gærkvöldi í
Belgrad. Gerði þá jafntefli
við Júgóslavíu — eitt
þeirra landa, sem talið er
hafa góða möguleika í
heimsmeistarakeppninni,
sem hefst í Vestur-Þýzka-
landi í næstu viku. Bæði lið
skoruðu tvö mörk — en
enska liðið var nær sigri.
Það tapaði ekki leik í
keppnisförinni
Áhorfendur voru 90 þúsund á
leikvelli Rauðu stjörnunnar i Bel-
grad og höfðu mikla ánægju af
leiknum, sem var fjörugur og
góður, en talsverður ótti greip
um sig meðal þeirra i lok leiksins,
þegr Englendingar fengu tvö
tækifæri til að gera út um leikinn
— fyrst Kevin Keegan, siðan
Malcolm MacDonald, sem aðeins
átti markvörðinn eftir- en þeim
tókst ekki að skora.
A 6. mín. fékk England horn,
sem Keegan tók. Markvörður
Slavanna missti knöttinn fram-
hjá sér til Dave Watson, sem
spyrnti á mark. Bjargað var á
marklinu, en knötturinn hrökk út
til Mike Channon, sem skoraði.
Júgóslavar, sem stilltu upp sama
liði og þeir munu nota i fyrsta
leiknum á HM gegn Braziliu,
breyttu liði sinu fljótt — tóku inn
leikmann, sem verður i leikbanni
gegn Braziliu- og tókst að jafna.
Það var á 16 min. að Petkovic
skoraði.
Fleiri mörk voru ekki skoruð i
hálfleiknum, en enska liðið lék
vel — drifið áfram af stórgóðum
leik Colin Bell á miðjunni.
Framan af siðari hálfleiknum
náðu Júgóslavar sinum bezta leik
og sóttu þá stift. Það bar árangur
á sjö min. að Oblak skoraði.2-1
fyrir Júgósiava. Um miðjan hálf
leikinn breytti Joe Mercer liði
sinu —• tók Worthington útaf, en
setti Malcolm MacDonald inn á i
hans stað. Það virkaði sem vita-
minsprauta á enska liðið. Eftir
samleik I Liverpool-bakvarðanna
Hughes og Lindsay, fékk
macDonald knöttinn, gaf vel
á Keegan, sem skallaði i mark.
Það var á 75.min. og eftir markið
sótti England mjög — en tæki-
færin til að gera út um leikinn
voru misnotuð. Fram að jöfn-
unarmarki Keegan virtist sem
Júgósiavarnir ætluðu að hala
sigurinn i land.
Mœttu ekki
til leiks
Ármenningar mættu ekki til
leiks i gærkvöldi i Laugardals-
laug, þcgar þeir áttu að leika
fyrsta leikinn I Islandsmótinu i
sundknattleik gegn Ægi. Hins
vegar voru Ægismenn á staðnum
reiðubúnir i átökin og allur undir-
búningur mótsins framkvæmdur.
Leikmenn Ægis stungu sér i
laugina og dómari leiksins
flautaði leiksbyrjun. En við
engan var að keppa og leikurinn
var siðan flautaður af — Ægir
tveimur stigum rikari. Þess má
geta, að Ármenningar höfðu farið
fram á frestun leiksins, sem ekki
var veitt.
ÞJODVERJAR BÆTTU
UM BETUR - 17:0!
Vestur-þýzka HM-liðið i
knattspyrnu sigraði úrvalsliö
frá Schleswig-Holstein i gær-
kvöldi með hvorki meira né
minna en 17...sautján...mörkum
gegn 0 . . . engu. Er þetta fimm
marka stærri sigur en hjá
italska landsliðinu á dögunum.
Leikurinn fór fram i Ham-
borg, og horfðu á hann yfir
10.000 manns, sem telja má
nokkuð góða aðsókn á æfinga-
leik, jafnvel þótt annað liðið sé
landslið.
Leiknar voru eins og i öðrum
alvöru leikjum niutiu minútur,
en i þetta sinn var þeim skipt i
þrjá jafna kafla, en ekki tvo eins
og venjulega. Fyrsti hálf-
leikurinn fór 5:0, annar 7:0 og sá
siðasti 5:0.
Gerd Muller var markhæstur I
leiknum, skoraði 5 mörk. Lands-
liðsþjálfarinn Helmut Schoen
notaði þennan leik til að finna
beztu uppstillinguna i liðinu, en
hann notaði a.m.k. þrjár i
þessum leik
Þar komst hann m.a. að þvi,
að Real Madrid leikmaðurinn
Guenther Netzer á stutt eftir tii
að komast i mjög gott form. Það
eina, sem hann vantar til að
vera eins og Helmuth Schoen
vill hafa hann, er enn meiri
hraði
Slakir án
Cruyff!
HoIIenzka landsliðið er ekkert „stór-
lið” án Johans Cruyff. Það kom i Ijós I
Rotterdam i gærkvöldi, þegar HoIIand
lék við Rúmeniu. Jafntefli varð 0-0 og
sýndi hollenzka liðið sáralitið jákvætt
— sendingar voru slakar og hraði litill.
Það var heppið að halda jafntefli og
vonbrigði tólf þúsund áhorfenda voru
mikil.
„Super-stjarnan” Johan Cruyff gat
ekki leikið vegna minni háttar meiðsla
i fæti. Hollendingar hafa sigrað i fyrri
æfingarleikjum sæinum fyrir HM —
meðal annars Argentinu með 4-1. Hol-
land er i riðli með Sviþjóð, Búlgariu og
Urugay á HM — og fyrsti leikur liðsins
verður gegn Uruguay 15. júni.
Var rekinn
frá Ajax —
ráðinn lands-
liðsþjálfari!
George Knobel, þjálfarinn frægi,
sem nýlega var rckinn úr þjálfara-
stöðunni hjá hollenzka liðinu Ajax
Amsterdam, hefur verið ráðinn þjálf-
ari hollenzka landsliðsins.
Knobel á aö taka við af núverandi
þjálfara landsliðsins, hinurn tékk-
neska Frantisek Fahdrone, þann 15.
júli n.k.... þ.e.a.s. rétt eftir heims-
meistarakeppnina i Vestur-Þýzka-
landi.
Knobel á að undirbúa landsliðið fyrir
næstu heimsmeistarakeppni, sem
verður i Argentinu árið 1978.
Leika við
Norðmenn
Skoska HM-liðið i knattspvrnu leikur
landsleik við Noreg á Uilevaala leik-
vanginum i Osló i kvöld. Mikill við-«
búnaður er fyrir leikinn hjá
Norðmönnum, sem hafa lofað að sigra
i leiknum — en flestir segja að það
veröi hægara sagt .en gjört hjá þeim.
Einvaldur skozka liðsins, VVillie
Ormond, hefur valið sitt lið, og er það
skipað eftirtöldum mönnum:
Thomson Allen, Dundee, Sandy
Jardine, Rangers, Danny McGrain,
Celtic, Billy Bremner, Leeds,
Jimmy Holton. Man. Utd. Martin
Buchan. Man. Utd. Jimmy Johnstone,
Celtic, Kenny Dalglish, Cheltic, Joe
Jordan Leeds, David Hay, Celtic,
Peter Lorimer Leeds.
Varamenn: Jim Stewart,
Kilmarnock, Gordon McQueen, Leeds,
Peter Cormack, Liverpool, Tom
Hutchisón, Coventry og Dennis Law,
Man. City.
A myndinni til hliðar er skozka liðið á
æfingu á Ullevaala leikvanginum i Osló
daginn eftir koinuna þangað. Til
vinstri cr fyrirliði liðsins, Billy
Bremner hægra megin við Peter
Cormack, sem er i miðjunni, er ein-
valdur skozka liðsins, Willie Ormond.
Hann lét leikmennina heldur betur
heyra það á æfingunni, enda höfðu
sumir þeirra brotið reglur þær, sem
hann hafði sett þeim um notkun
áfengra drykkja, og fengu þeir heldur
betur að svitna á æfingunni.