Vísir - 06.06.1974, Side 13

Vísir - 06.06.1974, Side 13
Vlsir. Fimmtudagur 6. júní 1974 13 Hvenær ætli við getum átt von á því, að hann Eiríkur Ásgeirsson, for- stjóri SVR, láti mála bíl- ana sína eins og forstjóri strætisvagnafyrirtækis- ins í Minneapolis í Bandaríkjunum hefur látið gera???? Þegar hann sendi þessa tvo út á göturnar á dögunum, vöktu þeir eins og gefur að skilja mikla athygli og menn mundu þá, að þeir voru til, og það væri miklu hagkvæmara að skilja einkabílinn eftir heima og fara heldur með strætó í vinnuna... en til þess var leikurinn gerður hjá forstjóranum. Á annan bílinn er máluð mynd af station bíl af gömlu góðu gerðinni, en hinn eftirlíking af Duesenberg ferðabílnum, sem var mjög vinsæll á sínum tíma. Þriðji bíllinn er á leiðinni.. með Volks- wagen á hliðinni, og siðan er hugmyndin að taka alla bíla fyrirtækisins og mála á hliðina á þeim ýmsar bílategundir, enda er af nógu að taka. — klp — „Ég skal gœta þín" Apinn heitir Alice Faye og kötturinn Sweetie Pie. Þau eru miklir vinir eins og sjá má á myndinni, og aö sögn eiganda þeirra, sem heitir Pat Shep- herd, vill apinn helzt halda kett- inum I fanginu allan daginn og varla gefa sér eöa honum tima tiiaðfá sér smásnarl.... Já, dýr- in haga sér oft undarlega —eins og fólkiö!.... RUDOLF HESS ER EINN EFTIR í SPANDAU! Þessi mynd er af nasistafor- ingjanum Rudolf Hess, sem nú hefur setið i 28 ár I Spandau- fangelsinu i Berlin. Myndina tók fyrrverandi of- ursti i bandariska hernum, sem var yfir þeirri deild hernámsliö- anna, sem vaktar Hess dag og nótt. En auk Bandarikjamanna er hann vaktaöur af Rússum og Englendingum. Sagt er, aö þessi eini fangi kosti ríkin hundruö þúsunda á ári. Fer allur sá kostnaöur i laun handa vaktmönnunum og viöhald á fangelsinu, sem hann er eini fanginn i. Oft hefur veriö talað um að láta Hess lausan, þar sem hann er ekki heill á geðsmunum, og sé þar aö auki kominn svo til á grafarbakkann vegna langvarandi veikinda. En Rússar hafa ekki verið til viö- tals um það. Þetta er eina myndin af Hess, sem komiö hefur fyrir al- menningssjónir I þau 28 ár, sem hann hefur verið innilokaður I Spandau, og hefur hún orðiö til þess aö vekja aftur upp umræö- ur um þennan dýrasta fanga i heimi. — klp — ASKUR býóuryður alla sína Ijuffengu rétti Einnig seljum við út í skömmtum Franskar- kartoflur Coektailsósu & Hrásalat Bordió á ASKI . eða takið matinn heim frá ASKl Ö^SKUR Suðurlandsbraut 14 — Simi 38550 LOKSINS eru fáanlegir hér á landi hinir heimsþekktu paradiso tjaldvagnar Paradiso hefur góða innréttingu Paradiso hefur gaseldavél Paradiso hefur vask Paradiso hefur svefnpláss fyrir 4 til 5 Paradiso hefur kosti hjólhýsis Paradiso hefur þó þá kosti framyfir hjól- hýsi, að það byrgir ekki útsýni og er mjög létt og stöðugt i drætti. Paradiso er reist á 3 sekúndum Búsport Rofabæ 27, Arbæjarhverfi. Simar 84348 — 83097.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.