Vísir - 20.06.1974, Side 5
5
Vísir. Fimmtudagur 20. júni 1974
Utanríkisráðherra-
fundi Atlantshafsbanda-
lagsins lauk hér í Ottawa
á hádegi í gær, með því að
allir 15 ráðherrarnir lýstu
munnlega yfir samþykki
sínu við Atlantshafsyfir-
lýsinguna.
Beindi Josep Luns,
framkvæmdastjóri Nato,
orðum sínum til ráðherr-
anna eftir stafrófsröð
landa þeirra, og einn af
öðrum lýstu þeir því hver
um sig með einni setn-
ingu, að ríki þeirra féllust
á yfirlýsinguna.
ENGINN þeirra hafði
fyrirvara á afstöðu sinni.
— Einar Ágústsson utan-
rikisráðherra taiaði að
sjálfsögðu fyrir íslands
hönd.
ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
r
Einar Agústsson:
IYSTISAMÞYKKI
ÍSIANDS
þegar röðin kom að
utanríkisráðherra Islands
í nafnakallinu
Björn
Bjarnason
skrifar
frá Ottawa
Hin nýja Atlantshafsyfirlýs-
ing, sem Mitchell Sharp, utan-
rikisráðherra Kanada, hefur
óskað eftir að verði kölluð
Ottawa-yfirlýsingin, er i 14 lið-
um, eins og Atlantshafssáttmál-
inn frá 1949, sem er eftir sem
áður stofnskrá bandalagsins. —
Yfirlýsingin hefur ekki að
geyma neinar lagalegar skuld-
bindingar, heldur er hún stefnu-
mótandi skjal um það, hvernig
Nato-rikin ætla að haga sam-
skiptum slnum við aðstæður,
sem eru allt aðrar heldur en
þegar sáttmálinn var undirrit-
aður fyrir 25 árum.
Á blaðamannafundi eftir að
samþykki yfirlýsingarinnar lá
fyrir voru þeir spurðir, Josep
Luns framkvæmdastjóri og
Henry Kissinger utanrikisráð-
herra hvaða tilgangi það þjón-
aði að efna til fundar 26. júni i
Brussel með Nixon og öðrum
æðstu mönnum bandalagsrikj-
anna, þegar formlegt samþykki
allra rikja hefur komið fram. í
svörum beggja kom fram, að
fundurinn i Brussel væri til þess
fallinn að sanna enn frekar
mikilvægi yfirlýsingarinnar.
Hins vegar væri tilgangur hans
— að sögn Kissingers — að gefa
Nixon tækifæri til að hitta
bandamenn sina, áður en hann
færi til Moskvu. — (Sbr. 11. gr.
yfirlýsingarinnar um að banda-
lagsrikin hafi samráð, áður en
mikilvægar ákvarðanir verða
teknar um utanríkismál.)
Kissinger sagði á fundinum,
að hann og franski starfsbróðir
hans hefðu orðið sammála um
endanlegt orðalag 11. greinar
yfirlýsingarinnar, en fyrir
Ottawa-fundinn höfðu menn
óttazt, að sú grein yrði helzti
ásteytingssteinn ráðherranna.
í tiu fyrstu greinum yfir-
lýsingarinnar er fjallað um
öryggismál og lýst þar nauðsyn
þess, að ekkert verði gert, sem
minnki öryggi aðildarlandanna.
Segir þar m.a., að .. . „riki, sem
vilja viðhalda friðnum, hafa
aldrei náð þvi markmiði með
þvi að vanrækja eigið öryggi”.
— Og þar kemur m.a. fram, að
hættan, sem steðji að banda-
lagsrikjunum, sé annars eðlis
en fyrir 25 árum, þótt grund-
vallarforsendur Atlantshafs-
sáttmálans hafi ekki breytzt.
Bandarikin skuldbinda sig til að
viðhalda herafla sinum ótima-
bundið I Evrópu. 1 tiundu grein-
inni segir m.a., að sérhverju
bandalagsriki sé skylt i sam-
ræmi við hlutverk sitt innan
bandalagsins að taka eðlilega
hlutdeild i byrðunum við að við-
halda öryggi þeirra allra. í
samræmi við þetta er það skoð-
un aðildarlandanna, að I þeim
samningaviðræðum, sem nú
fara fram og væntanlegar eru,
skuli ekkert gert, sem geti
minnkað þetta öryggi.
1 tólftu grein yfirlýsingarinn-
ar er fjallað um lýð- og mann-
réttindi og i siðustu greinunum
er lýst yfir stuðningi við mark-
mið Atlantshafssáttmálans og
aukna samvinnu rikjanna.
I lokayfirlýsingu ráðherra-
fundarins kom svo fram, að
Natorikin telja, að meiri árang-
ur þurfi að verða i viðræðunum i
Genf á öryggisráðstefnu
Evrópu, áður en gengið verði til
lokafundar þeirrar ráðstefnu.
Á blaðamannafundi sinum
sagði Kissinger, að hann hefði
hreyft þeirri hugmynd, að Nato-
rikin tækju allan gang mála á
öryggisráðstefnunni til
athugunar og settu fastmótuð
skilyrði fyrir þvi, hvað þau
teldu nauðsynlegt að gerðist i
Genf, svo að unnt yrði að ljúka
öryggisráðstefnunni.
bað vakti mikla kátinu á
fundinum, þegar Kissinger
svaraði þvi, hver afstaðan væri i
simhlerunarmálinu, — sem
hann hafði hótað að nota sem
tilefni til afsagnar — hlæjandi
þannig, að hann fjallaði aldrei
um innanrikismál erlendis! —
bvi það var einmitt i Salzburg,
sem hann tók sjálfur málið upp
á blaðamannafundi.
Kissinger umgengst blaða-
menn mjög frjálslega. Var
fundur hans með þeim hér
langur og stóð fram yfir þann
tima, sem ætlaður hafði verið.
Fyrir bragðið kom Kissinger of
seint i veizlu hjá landsstjóran-
um.
ítalir grípa til
fleirri skatta
ítölsku stjórnarf lokk-
arnir þrír urðu í gærkvöldi
á eitt sáttir um að taka upp
nokkra nýja skatta og
grípa til annarra efna-
hagsaðgerða til að sigla
þjóðarskútunni út úr ein-
hverri verstu kteppu# sem
italía hefur lent í eftir
stríð.
En með þessari samstöðu hafa
leiðtogar kristilegra demókrata,
sósialdemókrata og sósialista
forðað landinu frá þvf að lenda i
stjórnarkreppu ofan á allt annað.
Samsteypustjórn Mariano
Rumors sagði af sér fyrir rúmri
viku, en forsetinn, Giovanni
Leone neitaði að taka lausnar-
beiðni hans til greina. Siðan hafa
stjórnarflokkarnir setið á fundum
nótt og nýtan dag til að koma sér
Giovanni Leone, Italiuforseti, og Mariano Rumor, forsætisráðherra,
sem nú hefur tekizt aö fylkja stjórnarflokkunum þrem á ný undir merki
sitt.
uðinum við útlönd.
Framfærsla á Italiu hefur
hækkað um 20% á ári, og við-
skiptahallinn við útlönd hefur
numið hart nær 75 milljörðum
króna á mánuði, mestmegnis
vegna hækkaðs oliuverðs og kjöt-
innflutnings.
saman um nýjan samstarfs-
grundvöll.
bessar nýju efnahagsaðgerðir
stjórnarinnar fela i sér tilraunir
til að draga um 500 milljarða
króna út úr peningaveltu landsins
til að draga úr verðbólgunni og
stöðva hallann á viðskiptajöfn-
30 fyrirtœki í rúst
Viðurstyggö eyðileggingarinnar blasir við vegfarendum úr1
Skozka-stræti í Dungannon á N-lrlandi i gær eftir aö þar hafði I
sprungiö 300 kilóa sprengja. Henni haföi veriö komiö fyrir I sendi-
bfl, sem skiiinn haföi veriö eftir mannlaus á götunni.
Viö sprenginguna uröu alvarlegar skemmdir á hfbýlum þrjátiu
fyrirtækja, en meiðsli uröu engin á fólki.
Sprengjan ber greinilega vott um handbragö öfgamanna, en hvort
aö verki hafa veriö mótmælendur eöa kaþólskir er alls óvitaö.
jfi ,w.
I
Umsjón: BB/GP
Bretar
hugaað
200míl-
unum
//Bretland mun styðja
útfærslu landhelgi ríkja
upp í tólf mílur í mesta
lagi"/ sagði David
EnnalS/ ráðuneytisstjóri
utanríkismála/ sem lýsti
1 gær afstöðu Breta á
hafréttarráðstefnunni í
Caracas, sem hefst í
kvöld.
Hann sagði, að brezkum
yfirvöldum væri ljóst, að al-
menna krafan væri 200 milna
efnahagslögsaga, og brezkur
fiskiðnaður aðhylltist sjálfur
þá hugmynd.
„Við munum kynna okkur,
hve mikils fylgis þessi hug-
mynd nýtur á ráðstefnunni”,
sagði Ennals. ,,En við erum
algerlega andvigir þvi, að ein-
stök riki vikki út einhliða fisk-
veiðilögsögu sina”.
Ráðuneytisstjórinn sagði,
að Bretland mundi leitast við
að fá það skýrt fram, hve
langt strandrfki mættu seilast
til að nýta auðlindir sjávar,
eins og t.d. oliu.
Að endingu sagði hann, að
Bretland styddi þvi aðeins
hugmyndina um 12 milna
landhelgi, að tryggð yrði óheft
umferð um sund, sem væru á
alþjóðlegum siglingaleiðum.
Hearst ófundin
Lögreglan i Kaliforniu telur
sig eiga betri möguleika á aö
ná Patriciu Hearst, dóttur
blaðakóngsins, iífs, vegna
þess að þau tvö, sem eru eftir-
lifandi af symbónesfska freis-
ishernum, eru ekki eins skot-
glöð og hin höfðu verið.
Fulltrúi FBI sagði blaða-
mönnum, að menn hefðu góð-
ar vonir um, að Harrishjónin
mundu láta sér segjast, ef lög-
reglan króaði þau af. bó hafa
þau lýst yfir á siðustu segul-
spólu, sem yfirvöldunum
barst I hendur frá þeim 7. júni,
aö þau muni ekki verða tekin
lifs.
Enn eru menn engu nær um
það, hvort Pat Hearst, sem
rænt var úr ibúð sinni i byrjun
febr., og siðar lýsti þvi yfir,
að hún hefði gengið i lið meö
fangavörðum sinum, hafi gert
slikt ótilneydd eða ekki. Henn-
ar biður þó rannsókn vegna
aöildar hennar f bankaráni 15.
april s.l.
Einsdœmi
Læknir, sem skotið hafði
mann til bana, hlaut i gær ein-
stæðan dóm. Honum var gert
að vera um 2-ja ára bil
fangelsislæknir milli kl. 9 og 5
á daginn.
,,Með þessum dómi er rétt-
lætinu fullnægt og liknar-
málum um leið”, sagði sak-
sóknarinn I Bronx i New
York. „Embætti mitt leitar
ekki hefnda, heldur eðlilegrar
refsingar og endurhæfingar
viðkomandi.”
Hinn fimmtugi læknir,
Morris Halper, átti annars
yfir höfði sér að minnsta kosti
7 ára fangelsi. — Hann var
fundinn sekur um að hafa fyrir
2 árum ■ skotið Thomas
nokkurn Franco (24) ára, sem
réðst að honum skammt frá
læknastofu hans, I rifrildi
vegna bifreiðastæðis.
Halper læknir á að vinna við
borgarfangelsið á Rikers-eyju
5 daga vikunnar fyrra árið, en
2 daga vikunnar seinna árið.