Vísir - 20.06.1974, Side 8
Vlsir. Fimmtudat
júnl 1974
\%JJX Pólverjar áfram og öll
iii r a-ri !!!!„ • 4 'XI! JL. tííill
l/MM 74
Heimsmeistarakeppnin
13. júní - 7. júlí 1974
Holland
í úrslit!
Ég „tippaöi” á Vestur-Þýzkaland og
Itallu i úrslitaleikinn á HM, en nú —
eftir leikina, sem ég hef séö I keppn-
inni — er ég viss um, aö Holland verö-
ur annaö úrslitaliöiö, sagöi sænski
þjálfarinn Georg Ericsson eftir leik
Hollands og Sviþjóöar I gær.
Holland nær áreiöanlega stigi af
Búlgarlu og viö höfum góöa möguleika
aö sigra Uruguay, sagöi Ericsson enn-
fremur, þannig, aö Holland og Svlþjóö
eiga aö komast áfram úr 3. riöii.
Vestur-Þýzkaland er enn efst á blaöi
hjá veömöngurum I Lundúnum 2-1, en
ttalla og Holland eru I ööru sæti, þrátt
fyrir jafnteflisleikina I gær, meö 5-1.
•
Byrjaðir á
nœstu HM!
„Það er öruggt mál, að Argentína
mun sjá um IIM-keppnina i knatt-
spyrnu 1978,” sagði formaður argen-
tinska knattspyrnusambandsins, Dav-
id Lorenzo, á blaðamannafundi i Vest-
ur-Þýzkalandi I gær.
Ilann hélt þennan fund til að svara
fullyrðingum, sem komiö hafa fram i
blöðum i Vestur-Þýzkalandi, að Arg-
entina fái ekki aö sjá um keppnina 1978
vegna ástandsins i innanlandsmálum.
Þessum fullyrðingum visaði Lor-
enzo á bug og sagði, að allir lands-
menn mundu leggjast á eitt um að
gera næstu keppni sem glæsilegasta og
aö þegar væri hafinn undirbún. viö
smiöi Iþróttavalla og að bæta vega-
kerfið á þeim stöðum, seni ákveðið er
aö leika. ^
Gera þeir
hann höfði
styttri?
Haiti leikmaöurinn Jean-Joseph,
sem tekinn var af „dópeftirlitinu á
HM” skömmu eftir leikinn á milli
Haiti og Italiu, hefur veriö rekinn frá
iþróttaskólanum I Gruenewald, þar
sem Haiti leikmennirnir hafa búiö
siðan þeir komu til Þýzkalands.
Það voru hans eigin landsmenn, sem
köstuöu honum út. Þjálfarinn Antoine
Tassy tjáði blaöamönnum, aö Jean-
Joseph væri ekki lengur I hans umsjá
nú tækju aðrir við honum.
Þaö, sem siðast var vitaö um hann,
var, aö hann bjó undir eftirliti á hóteli I
Munchen og beiö eftir þvi aö verða
sendur heim til Port-Au-Prince.
Hveð gert verður viö hann þar veit
enginn. Knattspyrnusamband Haiti
hefur fordæmt hann og segir, aö hann
einn beri ábyrgð á þessu. Þá á eftir aö
heyrast eitthvað frá sjálfum for-
setanum, Claude Duvalier, sem er
mikill knattspyrnuunnandi, og er talið,
aö það veröi ekki jákvætt fyrir hinn
óhamingjusama knattspyrnumann.
Læknir Haitiliösins sagöi á blaða-
mannafundi I gær, aö Jean-Joseph
heföi viöurkennt fyrir sér aö hafa
tekiö inn preludin, sem er örvandi lyf
og eitt af þvi, sem er efst á lista yfir
bannlyf FÍFA, skömmu fyrir leikinn.
Þaö er ekki rétt, aö hann hafi fengið
þetta lyf heima I Port-Au-Prince til aö
lækna asma, sem hann segist þjást
af.... Jean-Joseph er ekki meö asma og
þaö þjáir hann enginn alvarlegur
sjúkdómur, sagöi læknirinn, sem er
þekktasti Iþróttalæknir Haiti.
lioin í 3. riðli „á lífi
— Pólverjar aðalmarkskorarar á HM með 10 mörk í tveimur leikjum. Argentínumenn
óheppnir gegn ítölum — og Johan Cruyff nœgði Hollandi ekki gegn Svíum
Olympiumeistarar Póllands
uröu næstir gestgjöfunum, Vest-
ur-Þjóðverjum, til aö vinna sér
rétt i 2. umferö heimsmeistara-
keppninnar.
Þaö voru einu úrslitin, sem réö-
ust á HM I gærkvöldi ásamt þvi,
aö leikmenn landsins, sem Pól-
verjar léku sér aö I gær, Haiti,
geta pakkaö saman eftir riöla-
keppnina og haldið heim. 1 3. riöli
keppninnar eru hins vegar öll lið-
in enn „á lifi” eftir leikina I gær-
kvöldi, Holland, Sviþjóö, Búlgar-
ia og Uruguay. Þaö verður ekki
fyrr en i siðustu leikjunum i riöl-
inum að úrslit fást. Leikið veröur
á sunnudag. Þá leikur Ilolland,
sem hefur 3 stig, viö Búlgariu,
sem hefur tvö stig — og Sviþjóð
meö 2 stig viö Uruguay, en landið,
sem átti heimsmeistara 1930 og
1950, hefur aöeins eitt stig i riðlin-
um.
Eftir jafntefli Italiu og Argen-
tinu hafa Suður-Amerikumenn-
irnir smámöguleika að komast á-
fram — en verða þar, i 4. riðlin-
um, að setja allt sitt traust á Pól-
verja. Þeir verða að vinna Itali til
að Argentina komist áfram — og
það er erfitt að sigra ítali. Leik-
menn ttaliu sýndu það eftir að
þeir jöfnuðu gegn Argentinu i
gær. Þá léku þeir upp á jafnteflið
— greinilega ánægðir með það.
Argentinumenn verða að auki að
vinna Haiti með minnst fjögurra
marka mun.
\ií If
and
TÍGHIS
straufría sængurfataefnið er nú fyrirliggjandi í mörg-
um mynztrum og litum.
Einnig í saumuðum settum. Kærkomin gjöf, hverj-
um sem hlýtur.
Sparið húsmóðurinni erfitt verk, sofið þægilega óg
lífgið upp á litina í svefnherberginu.
Reynið Night and Day og sannfærizt.
V Samband ísl. samvinnufélaga
INNFLUTNINGSDEILD
t io
Loksins tókst þaö hjá Gerd
Muller — markakóngnum
mikla. Muller, lengst til
hægri, skoraöi 3ja mark
Vestur-Þjóöverja gegn
Astraliu og komst þar með
„á blaö” I HM-keppninni.
Hann var markhæstur i
keppninnii Mexikó 1970 meö
10 mörk. Næstur var
Jairzinho, Braziliu meö sjö-
En það er þriðji riðillinn, sem
spennan er i. Hollendingar eru
ekki einu sinni öruggir. Jafntefli
þeirra við Svia i gær gerir það að
verkum. Sviar eru sterkir i vörn
og hafa ekki tapað i 20 landsleikj-
um i röð. Hollendingar voru held-
ur ekki á skotskónum i gær. Þrátt
fyrir stórgóðan leik Johans Cru-
yff, sem skapaði félögum sinum
hvað eftir annað upplögð tækifæri
til að skora úr, lenti knötturinn
aldrei i markinu hjá Hellström,
sem aftur sýndi snilldartakta.
Furðulegt hvað Rep og Keizer
fóru illa að ráði sinu eftir undir-
búning Cruyff. Eins og við var bú-
izt hrifust áhorfendur af Cruyff,
dýrasta leikmanni heims, en
hverju skiptir það, þegar hann
getur ekki fundið leiðina i markið,
sagði NTB. — Snjallir hjá NTB
eins og venjulega eða hitt þó held-
ur.
Búlgaria heldur i vonina — en
róðurinn er þungur. Þarf helzt að
vinna Holland i siðasta leik til að
komast áfram. Búlgarar voru af-
ar óheppnir i gærkvöldi gegn
Uruguay. Þeir „áttu” alveg leik-
inn —■ skoruðu mark á 74. min.,
fyrirliðinn Bonev, en þremur
min. fyrir leikslok tókst Uruguay,
sem ekki hafði átt skot á mark
fyrr en á 40. min., að jafna —
Richardo Pavoni fékk þá knöttinn
frir 10 metra frá márki og skoraði
örugglega. Það var sorglegt fyrir
Búlgara og gerir stöðu þeirra nær
vonlausa.
Nú er 16 leikjum lokið á HM og
ennþá hafa löndin á HM, utan
Evrópu, ekki unnið leik. Brazilia
hefur þó allgóða möguleika að
komast áfram — Chile, Argentina
og Uruguay veika von — en hin
þrjú löndin, Ástralia, Zaire og
Haiti, þegar úr leik við fyrstu
hindrun. —hsim.
Halda í vonina!
Þó okkur hafi ekki tekizt aö
sigra ttali I gærkvöldi höfum viö
alls ekki gefiö upp vonina aö kom-
ast áfram i keppninni á HM, sagöi
þjálfari Argentlnu, Cladislav Cap
i morgun. Liö hans var vissulega
óheppiö aö sigra ekki I leiknum.
Eftir aö Rene Houseman haföi
skoraö fyrir Argentlnu á 19.
min. varö fyrirliöinn Roberto
Perfumo fyrir þvi óhappi aö setja
knöttinn i eigiö mark á 34. min.
Rivera lék upp vinstri kantinn og
ætlaði aö gefa fyrir á Riva. Mark-
vöröurinn Carnevali hljóp út úr
markinu og hefði sennilega náö
knettinum á undan Riva, þegar
Pérfumo greip inn I og sendi
knöttinn I opiö narkið.
Cap sagði ennfremur. Ef Italir
leika ekki betur en þetta á sunnu-
dag tapa þeir fyrir Pólverjum.
Viö gerðum allt i leiknum til að
sigra, en það gekk ekki hjá okkur.
ítalla hefur ekki eins sterku liði á
aö skipa og fyrir fjórum árum,
þegar Italia hlaut silfur á HM i
Mexikó. Þeir máttu virkilega
taka á, til að ná jafntefli gegn
okkur.
Geta Argentinu kom mér á
óvart, sagði þjálfari Italiu,
Feruccio Valcareggi. Þeir léku
betur en gegn Póllandi. En við
höfum náð þremur stigum og
erum ánægðir. Við áttum að sigra
— Sandro Mazzola átti opið færi i
lokin.
Stjörnuhrap í USA!
Hale Irwin, 29 ára gamall
Bandarikjamaöur, sem aldrei
hefur veriö talinn meö þeim stóru
I golfiþróttinni — heldur verið
álitinn einn sá lélegasti i atvinnu-
mannakeppninni — sýndi og
sannaði annaö um helgina er
hann sigraöi i stærstu og mestu
golfkeppni, sem haldin er I
heiminum, US OPEN.
Hann lék á 287 höggum —■ 7 yfir
par —og er þetta hæsta skor, sem
keppnin hefur unnizt á siðan þeir
Arnold Palmer og Július Boros,
sem er væntanlegur hingað til
lands I sumar, kepptu um titilinn
áriö 1963.
Annar varð Forrest Fezler,
strákurinn sem alltaf er nálægt —
en vinnur aldrei stóru steikina, á
289 höggum og I 3. og 4. sæti komu
þeir Bent Yancey og Lou Graham
á 290.
Margir urðu fyrir vonbrigðum i
keppninni og fengu að sjá miklar
og stórar tölur. Má þar t.d. nefna
Tom Watson sem hafði forustu
eftir 3 fyrstu dagana. Hann lék á
79 höggum siðasta daginn og
missti þar með af lestinni eins og
Arnold Palmer, sem var með i
slagnum fram á siðasta dag en
fékk „feita 77” siðasta daginn og
kom inn á 293 höggum.
Stóru nöfnin sum komu hvérgi
nálægt þeim fyrstu. Má þar t.d.
nefna Jack Nicklaus, sem var 15
yfir par og Billy Casper og Lee
Trevino, sem komust ekki einu
sinni i úrslitakeppnina.