Vísir - 20.07.1974, Side 5
5
Vfair. Laugardagur 20. Júll 1974.
ÚTLÖND ÚTLÖND ÚTLÖND UTLÖND ÚTLÖND ÚTLÖND UTLÖND Umsjón: BB/GP
fulltrúar byltingarmanna ekki
komið fyrir ráðið sem fulltrúar
löglegrar rikisstjórnar. Banda-
riski fulltrúinn i öryggisráðinu
hvatti til þess i gær, að
byltingarmönnum yrði heimilað
að skýra mál sitt fyrir ráðinu.
Þvi bæri skylda til að hlýða á
sjónarmið allra málsaðila við
rannsókn mála, sem það tæki til
meðferðar.
Tyrkir vopnast á
Kýpur
Dimis Demitriou, utanrikis-
ráðherra byltingastjórnarinnar
á Kýpur, efndi til blaðamanna-
fundar i gær. Hann sagðist
reiöubúninn til að fara til Tyrk-
lands og ræða við ráðamenn
þar, hins vegar sagðist hann
telja nauðsynlegra að efna fyrst
til viðræðna við fulltrúa tyrk-
neska minnihlutans á Kýpur.
Rauf Denktash, leiðtogi tyrk-
neska minnihlutans á eyjunni,
hafnaði þessum sjónarmiðum
utanrikisráðherrans. Denktash
var varaforseti Makariosar
fyrir byltinguna. Hann sagðist
vona, að Tyrkir og Bretar gerðu
nauðsynlegar ráðstafanir til að
tryggja sjálfstæði Kýpur.
A blaðamannafundi skýrði
Denktash frá þvi, að 20.000
Tyrkir á Kýpur væru undir
vopnum og mundu verjast
ásókn byltingarmanna. Undan-
farna sólarhringa hafa Tyrkir
grafið skotgrafir umhverfis
tyrknesku bæjarhluta Nikósiu.
Þá má einnig sjá fallbyssur og
stórskotalið i þessum bæjar-
hlutum. Byltingarstjórnin hefur
hvað eftir annað itrekað, að hún
hyggist ekkert gera á hlut
tyrkneska minnihlutans. Lið
Sameinuðu þjóðanna á eyjunni
ber ábyrgð á þvi, að ekki skerist
i odda milli þjóðarbrotanna.
Grikkir hafna kröfum
Tyrkja
Eftir fund Josephs Sisco með
ráðamönnum i Aþenu siðdegis i
gær kom fram, að Grikkir hefðu
hafnað öllum kröfum, sem Tyrk-
ir hafa sett fram sem skilyrði
fyrir þvi, að þeir gætu sætt sig
við ástandið á Kýpur.
Sisco lagði fram kröfur
Tyrkja, sem eru um það , að
Nikos Sampson, forseti
byltingarmanna, segi af sér og
Makarios fái leyfi til að taka
aftur við völdum. Tyrkir vilja
að grisku herforingjarnir, sem
stóðu fyrir byltingunni, verði
kallaðir heim til Grikklands og
griska stjórnin ábyrgist öryggi"
tyrkneska minnihlutans á Kýp-
ur opinberlega. Grikkir geta
ekki fallizt á neittaf þessu nema
kröfuna um heimflutning her-
foringjanna og nýir verði sendir
i þeirra stað. Þessa kröfu hafa
Grikkir samþykkt eftir kröfu
allra NATO-rikjanna. Griska
stjórnin segir, að þjóðin á Kýpur
verði að leysa vandamál sin
sjálf.
Nikos Sampson, forseti
byltingastjórnarinnar á Kýpur.
Tyrkir krefjast þess, að hann
segi af sér — en Grikkir vilja
ekki fallast á þaö.
FrancomeöSoflu, prinsessu, Juan Carlos, rlkisarfi, meö frú Franco.
Frqnco afsalar
sér völdum
ríkisleiðtogi í veikindum hans
— Juan Carlos
Francisco Franco,
einræðisherra á Spáni,
afsalaði sér völdum i
gær i hendur Juan
Carlos de Borbon, lög-
skipuðum arftaka sin-
um og næsta konungi
Spánar. Valdaafsalið
er að formi til tima-
bundið, á meðan ein-
ræðisherrann er á
sjúkrahúsi.
Franco, sem er 81 árs, var
fluttur á sjúkrahús fyrir 10 dög-
um vegna blóötappa i hægra
fæti. Læknar sögðu hann á góð-
um batavegi og bjuggust við, að
hann næði sér fljótlega. Um há-
degisbilið i gær var hins vegar
tilkynnt, að Franco hefði hrakað
að nýju vegna blæðinga og af
þeim sökum hefði hann ákveðið
að fela Juan Carlos að fara með
völd I landinu.
Juan Carlos de Borbon er 36
ára. Frá 22. júlí 1969 hefur hann
verið rlkisarfi Francos. Einræð-
isherrann byrjaði strax aö und-
irbúa það 1948, að Spánn yrði
konungdæmi eftir sinn dag.
Hann samdi pá við Don Juan de
Borbon y Batenburg, landflótta
son Alfonso 13. siöasta konungs
Spánar sero taldi sig réttborinn
til rikiserfða á Spáni, um það,
að sonur hans Juan Carlos hlyti
mennt, sem gerði honum kleift
aö erfo rikið.
Fjölskylda Juan Carlos varð
landflótta um þær mundir, sem
Franco komst til valda 1939.
Hefur faðir hans dvalizt I
Portúgal, en eftir samning hans
viö Franco var ungi prinsinn,
ellefu ára gamall, settur til
náms á Spáni. Slðan hafa
Franco og ráðgjafar hans fylgzt
náið meö uppeldi rikisarfans.
Nokkur ár eru siðan frá þvi var
skýrt, að Franco heföi lýst þvi
yfir, að hann elskaði Juan Carl-
os sem sinn eigin son. Prinsinn
var við sjúkrabeö Francos, þeg-
ar einræðisherrann afsalaði sér
völdum I hans hendur.
Juan Carlos hefur undanfarin
ár komið fram fyrir Francos
hönd við margvisleg opinber
tækifæri. Er hann þá jafnan
með konu sinni Sofiu, prinsessu
af Grikklandi, systur Konstan-
tins, fyrrum Grikkjakonungs.
Njóta þau vinsælda meðal Spán-
verja og hafa haldið sig utan viö
stjórnmáladeilur. Þau eiga einn
son og tvær dætur.
Sagt er, að Juan Carlos sé þvi
hlynntur, aö stjórnmálalifið á
Spáni verði frjálsara. Ræður
hans þykja oft gefa þaö til
kynna. Kröfur um það hafa nú
aukizt vegna byltingarinnar i
Portúgal.
HVETUR TIL ÞESS
AÐ NIXON SÉ STEFNT
Ráögjafi nefndar þeirrar I
fulltrúadeild Bandarlkjaþings,
sem kannar hvort ástæöa sé til
þess að stefna Nixon, Banda-
rikjaforseta, fyrir öldunga-
deildina vegna Watergate-
málsins, lýsti þvl yfir I gær, aö
ástæöa væri til aö gefa út sllka
stefnu.
Þingmennirnir I nefndinni sátu
á lokuðum fundi i gær og hlýddu á
skýrslur og álitsgerðir starfs-
manna sinna og sérfræðinga.
Eftir fundinn sagöi einn nefndar-
manna, að John Doar, sérstakur
ráðgjafi nefndarinnar, hefði mælt
með þvi. að gefin yrði út stefna á
hendur forsetanum.
Doar rökstuddi mál sitt meö þvi
að forsetinn -hofði reynt aö tefja
rannsókn málsins með þvi að
halda gögnum þess leyndum.
Forsetinn heföi þar með farið út
fyrir stjórnskipulegt vald sitt og
sýnt þinginu óviröingu.
Lokaumræður um stefnuna
munu fara fram I nefndinni I
næstu viku. Hún leggur álit sitt
fyrir fulltrúadeild þingsins. Þar
getur einfaldur meirihluti þing-
manna ákveöiö að stefna forset-
anum fyrir öldungadeildina. Það
kemur þá I hlut þeirrar deildar að
rannsaka.hvortástæöa sé til þess
að vlkja forsetanum úr embætti,
en 2/3 öldungadeildarmanna
geta það með samþykkt sinni.
Geimfararnir lentu mjúklega í Sovét
Sovézku geimfararnir
Pavel Popovich og
Yuri Artyukhin lentu
geimfari sinu mjúklega
á steppum Kazakhstan
um hádegisbilið i gær.
Ferðin með Sojusi-14
gekk vel til jarðar eftir
tveggja vikna dvöl
geimfaranna i geim-
skipinu Saljut-3.
Tass-fréttastofan sagði, að
geimfarið hefði lent 200 km fyrir
suðaustan skotpall þess I Baik-
konur, en þaðan var það sent 3.
júll.
Geimferð tvimenninganna er
talin mjög mikilvæg til undir-
búnings undir sameiginlega
geimferð Bandaríkjamanna og
Sovétmanna á næsta ári. En á-
ætlunin um þá ferð gerir ráð
fyrir þvl, aö 15. júll ’75 hefji svo
vézkt geimfar sig á loft og dag-
inn eftir fari Apollo-geimfar af
stað frá Bandaríkjunum. Geim-
förin verða tengd saman úti I
geimnum og geimfararnir flytja
sig á milli farartækjanna áður
en þeir snúa aftur til jarðar.
Þeir Popovich og Artyukhin
voru vel á sig komnir, þegar
þeir lentu. Velgengnin I þessari
ferð á ekkert sameiginlegt meö
hörmungunum, sem urðú siö-
ast, þegar Sovétmenn sendu
menn um borð I Saljut-geim-
skip.Þaðvarl júní 1971.