Vísir - 20.07.1974, Side 20
VÍSIR
Laugardagur 20. júli 1974.
Einföld lausn
ó umferðar-
tappa
Þrátt fyrir þær miklu endur-
bætur, sem gerðar voru fyrir
nokkrum árum á Ártúnsbrekk-
unni, og þeim tveimur vegum,
sem flytja mestaila umferð út úr
borginni, hefur eitt vandamál
alltaf verið þar viðloðandi.
Þeir, sem koma Suöurlands-
veginn niöur Bæjarháls, hafa allt-
af átt i erfiðleikum með að kom-
ast út á veginn til Reykjavikur,
' N vegna mikillar umferðar um
Áfesturlandsveginn. Hafa oft á
Viöum myndazt langar raðir upp
eltir Bæjarhálsi, vegna þess að
brtar á leið um Vesturlandsveg
gám fá tækifæri.
Lðgregluþjónar við umferðar-
stjórii hafa reynt að gera umferð-
ina greiðari, með þvi að beina
umferðlnni af Vesturlandsvegi
inn á hægri akrein, svo að sú
vinstri væri fri fyrir umferðina af
BæjarhálsV
Nú hefuneyja verið sett upp til
að géra pessa skiptingu enn
greinilegri.\Þótt þeir, sem fara
um Vesturíandsveginn i átt til
Reykjavikur, séu ekki skyldugir
til að fara aðeins hægri akreinina,
þá mun það auðvelda alla umferö
á þessum stað, ef slikt er gert. Þá
geta bilstjórar, sem koma af Bæj-
arhálsi, verið nokkurn veginn
vissir um, aö vinstri akreinin sé
fri.
ökumenn, sem fara um Bæjar-
háls. og ætla út á Vesturlandsvegi
i átt til Reykjavikur, eru samt
varaðir við þvi að lita á þetta sem
einfalda lausn, sem geri þeim
kleift að aka viðstöðulaust inn á
Vesturlandsveginn, án þess að
lita til hægri eða vinstri. —óH
Geir óskar viðrœðna
við Ólaf og Gylfa Þ.
„Býst við svari á mónudag eða
þriðjudag", sagði Geir Hallgrímsson
i viðtali við Vísi í gœrkvöldi
„Ég býst fastlega við
að fá svör við bréfun-
um á mánudag eða
þriðjudag”, sagði Geir
Hallgrimsson,
formaður Sjálfstæðis-
flokksins, i gærkvöldi,
en i gærdag sendi hann
ólafi Jóhannessyni,
formanni Framsóknar-
fiokksins og Gylfa Þ.
Gislasyni, formanni
Alþýðuflokksins bréf,
þar sem hann óskar
eftir formiegum
viðræðum milli flokks
sins og Alþýðuflokks og
Framsóknarf lokks.
Geir segir í bréfunum, að i
þeim viðræðum ,;verði leitað
samstööu um lausn efnahags-
vandans og annarra viðfangs-
efna, sem alþingi og væntanleg
rikisstjórn hljóta að fjalla um og
ráða til lykta, með það fyrir
augum, aö þessir flokkar standi
að myndun nýrrar rikisstjórn
ar.”
1 bréfi sinu til ólafs Jóhannes-
sonar segir Geir Hallgrimsson:
„Ekki fer á milli mála, aö
tilmæli min i bréfi dags. 16. júli
s.l. um viðræður milli fulltrúa
stjórnmálaflokkanna um lausn
efnahagsvandans eru þáttur i
þeirri könnun um möguleika á
myndun meirihlutastjórnar, er
forseti íslands fól mér aö gera 5.
júli s.l. Málefnaleg samstaða i
höfuðatriðum, um lausn
efnahagsvandans, hlýtur að
vera forsenda væntanlegs sam-
starfs I rlkisstjórn. Ég skil bréf
yðar svo, að flokkur yðar vilji
ekki taka þátt I slikum
viöræðum allra flokka um lausn
efnahagsvandans, ef litið er á
þær, sem þátt I stjórnartilraun-
um, og hafið þvi hafnað tilmæl-
um minum”.
1 bréfinu til formanns
Alþýðuflokksins þakkar Geir
jákvætt svar við tilmælunum.
1 viðræðum flokkanna
þriggja, ef þær verða, mun
„Sjálfstæðisflokkurinn gera
nánar grein fyrir stefnu sinni og
afstöðu til lausnar þeim
vandamálum, sem um verður
fjallað”, segir i bréfunum til
formanna flokkanna tveggja.
—JBP—
Tveir starfsmenn Sigöldu fluttir sjúkir til Reykjavíkur
Taldir hafa veikzt
af fíkniefnaneyzlu
Tveir menn voru fluttir til
Reykjavikur frá Sigöldu i fyrra-
dag, grunaðir um að hafa neytt
fikniefna.
Báðir veiktust af neyzlu efnis-
ins, og var annar lagður inn á
slysadeild Borgarspitalans.
Hinn maðurinn var betur á sig
kominn, og vegna eðlismálsins,
ákvað lögregluþjónninn, sem
flutti mennina i bæinn, að koma
honum i fangelsi.
Málið er i rannsókn hjá flkni-
efnadeild lögreglunnar i
Reykjavik. Að sögn lögreglu-
þjónsins, sem rannsakar það, er
ekki fullsannað hvers konar efni
hafi verið um að ræða, sem
mennirnir neyttu, þótt grunur
leiki á, aö það hafi verið einhver
tegund fikniefna.
Rannsókn lýkur þó væntan-
lega um helgina, og þyki ástæða
til, verður málinu visað til fikni-
efnadómstólsins.
—ÓH
Skipstjórinn er
gamall kunningi
RICHARD TAYLOR — har»-
skeyttur togaraskipstjóri, sefn
lætur ekki deigan siga fyrr eiJ I
fulla hnefana.
Þeim varðskipsmönn-
um á Þór hefur varla
brugðið, við að heyra
nafn brezka togaraskip-
stjórans, sem svo lengi
hélt út eftirför varð-
skipsins.
Hann heitir Richard Taylor,
alræmdur af viðskiptum sinum
við Islendinga, og mætti kalla
hann helzta „góðkunningja”
Landhelgisgæzlunnar, likt og lög-
reglan talar um sina föstu „góð-
kunningja”.
Hann varð frægur hér á landi,
þegar hann fyrir allmörgum ár-
um á isafirði neitaði að framselja
skipsmenn sina, sem höföu gerzt
brotlegir viö lög. Þvi lyktaði með
þvi.aö Taylor var settur I fangelsi
á Kviabryggju um nokkurn tima.
Hann var skipstjóri á Peter
Scott, þegar hann lenti I miklum
útistööum við Landhelgisgæzluna
við Grlmsey árið 1965.
En þrátt fyrir harðskeyttni
sina, lýsa þeir, sem til Taylor
þekkja, honum sem fremur hæg-
látum og þægilegum manni.
Þaö er aöeins þegar gráu skipin
Landhelgisgæzlunnar birtast sem
hann umhverfist.
1 þorskastriðinu núna kom
Taylor nokkuö viö sögu, likt og
allir aðrir brezkir togaraskip-
stjórar.
— ÓH.
Gangbrautarslys
Áttatiu og tveggja ára gamall
maður varö fyrir bil, er hann
gekk út á gangbraut á Snorra-
braut I gærdag.
Fólksbillinn, sem lenti á hon-
uni, byrjaði að hemla nokkru
ábur en hann kom ab gang-
brautinni, en þrátt fyrir þaö
tókst biístjóranum ekki að
afstýra slysi.
Gamli maðurinn meiddist
ekki alvarlega, en nokkuð
blæddi úr honum.
- ÓH.