Vísir - 27.07.1974, Síða 3
Vfsir. Laugardagur 27. júli 1974.
3
SLYSADEILD AÐEINS
FYRIR SLASAÐA
— erfiðleikar vegna
ónœðis af þeim er ekki eiga erindi
„Aösókn aö Slysadeild Borg-
arspitalans hefur aukizt gifur-
lega á undanförnum árum, og
slysum og meiöslum af öilu tagi
fjölgar jafnt og þétt”.
„Aö undanförnu hefur hins
vegar aukizt til mikilla muna
aðsókn fólks með alls kyns sjilk-
dóma og kvartanir, sem ekki
eiga erindi á slysadeild, en ættu
að fá fyrirgreiðslu hjá heimilis-
læknum eða öðrum starfandi
læknum i bænum”.
—■ Þannig segir meðál annars
I tilkynningu frá stjórn Borgar-
spitalans, sem vill beina þessu
til borgarbúa.
Þá segir ennfremur, að mikil
aukning hafi orðið á þvl, að slas-
að fólk utan af landsbyggðinni
sé flutt á slysadeildina og má
segja, að hún sinni nú stórslys-
um fyrir stærsta hluta landsins.
Hlutverk slysadeildarinnar hef-
ur frá byrjun verið að sinna
þessu verkefni fyrst og fremst.
Aðsókn fólks, sem ekki á er-
indi á slysadeildina, er mest á
kvöldin og um helgar. t tilkynn-
ingunni segir m.a.: „Það gefur
auga leið, að slysadeild, sem er
yfirhlaðin verkefnum, er lúta að
slysameðferð, getur ekki sinnt
heimilislækningum, og er þeim,
sem á slikri aðstoð þurfa að
halda, mjög eindregið bent á að
snúa sér til heimilislækna sinna
eða annarra starfandi lækna i
borginni”.
Bent skal á, að utan venjulegs
vinnutima er i göngudeild Land-
spitalans heimilislæknir til við-
tals á virkum dögum kl. 20—21
og á laugardögum kl. 9—12 og
15—16. EA
YFIRLYSING
frá Sementsverksmiðju Ríkisins og steypustöðvunum í
Reykjavík
1 tilefni af blaðskrifum undan-
farna daga, sem ekki hafa um allt
verið of nákvæm, þykir nauðsyn-
legt, að eftirfarandi komi fram:
I. Þriðjudaginn 23. júli sl. til-
kynnti framkvæmdastjóri
Sementsverksmiðju rikisins
steypustöðvunum i Reykjavik, að
vegna yfirvinnubanns verka-
manna á Ákranesi og hættu á
sementsskorti yrði að skammta
sement til stöðvanna. Sú
skömmtun hefði leitt til 50%
minnkunar á dagsafköstum
þeirra. 1 framhaldi af þessu komu
forráðamenn steypustöðvanna
saman og ræddu ástandið, sem
var að skapast. Komust þeir að
þeirri niðurstöðu, að skynsam-
legra væri að loka stöðvunum
alveg um tima, heldur en að
þurfa að skammta steypu og gera
þannig upp á milli viðskiptavina.
Að fenginni þessari ákvörðun var
haft samband við forstjóra
Sementsverksmiðju rikisins og
hann inntur eftir þvi, hvort hann
gæti tryggt steypustöðvunum
sement til föstudagsins 26. júli, ef
á móti kæmi, að stöðvarnar
lokuðu siðan fram til 6. ágúst
þannig að sementverksmiðjunni
gæfist þá timi til að safna
birgðum.
Um þetta náðist samkomulag
og tilkynntu stöðvarnar þvi lokun
eins og áður hefur komiö fram.
II. Sementsverksmiðjan hefur i
samræmi við ofangreint sam-
komulag, afgreittallt það sement
til steypustöðvanna, sem þær
hafa beðið um til föstudagsins 26.
júli. A blaðamannafundi, sem
framkvæmdastjórn sements-
verksmiðjunnar héldu 22. júli var
tilkynnt, að frá þeim degi og til
þess tima, er ný sementskvörn
yrði tekin i notkun um miðjan
ágúst, kynni að verða skortur á
sementi, og þá meöal annars
vegna yfirvinnubanns verka-
manna. Það mál leystist aö kvöldi
þriðjudags 23. júli, og var þá
hindrunarlaust hægt aö halda
áfram sementsflutningi til
Reykjavikur.
Þess vegna kom ekki til þess,
að neinn skortut yrði á sementi til
steypustöðva i Reykjavik i þess-
ari viku.
Enn eru til nokkrar birgðir af
sementi, en sementsverksmiðjan
getur þó ekki tryggt, að nægjan-
legt sement verði til handa
steypustöðvunum út alla næstu
viku. Sekkjað sement verður af-
greittúr skemmum i Artúnshöfða
eins og verið hefur
Breiðholthf.
B.M. Vallá hf.
Steypustöðin hf.
Sementsverksmiðja rikisins.
Símanum
lokað
á
rann-
sóknar-
lög-
regluna
Siminn hjá rannsóknarlög-
reglunni i Hafnarfirði var
lokaður i fyrradag, vegna
vangreiddrar skuldar. Þótt
hagur rikissjóðs hafi oft
verið bágborinn, þá tók út
yfir allan þjófabálk i þetta
sinn. Þannig 1 eit málið
a.m.k. út i fyrstu.
Maður. sem þurfti að ná i
rannsóknarlögregluna,
hringdi og hringdi i gær-
morgun, án þess að nokkur
anzaði. Hann hringdi þá i
bilanir hjá Landssimanum,
og spurði hvað væri að
númerinu. „Lokað vegna
vangreiddrar simaskuldar”,
sagði sá sem svaraði.
Þetta var mikið áfall fyrir
manninn, þvi hann hafði
hingað til haft nokkuð góða
trú á greiðslugetu rikissjóðs.
Með þvi að hringja i lögregl-
una i Hafnarfirði, náði hann
sambandi við rannsóknar-
lögregluna og gat sagt henni
tiðindin.
„Ég var einmitt að furða
mig á þvi, hvað það hefur
verið rólegt i morgun, engar
simhringingar”, sagði rann-
sóknarlögreglumaðurinn.
sem svaraði. Hann lofaði að
rannsaka málið þegar f stað.
Seinna um daginn kom i
Ijós rétta ástæðan fyrir
simalokuninni, og bjargaði
það virðingu ríkissjóðs i
þetta sinn. Simanum hafði
einfaldlega verið lokað af
misgáningi, en skráð hjá
bilunum að ástæðan væri
vanskil. —ÓH
Staða Þjóðverja betri
eftir úrskurðinn í Haag
— segir formœlandi Bonn-stjórnarinnor
Ríkisstjórn Vestur-
Þýzkalands telur, að
samningsaðstaða hennar
um veiðiréttindi innan 50
mílnanna við island hafi
batnað eftir úrskurð
alþjóðadómstólsins í
Haag á fimmtudag. AP-
fréttastofan hefur þetta
eftir formælanda stjórn-
arinnar i gær.
Formælandinn sagði,
að dómur Haag-dóm-
stólsins, þar sem mælt er
fyrir um það, að íslend-
ingar geti ekki með ein-
hliða ákvörðun bægt
Bretum og Vestur-Þjóð-
verjum frá veiðum milli
12 og 50 mílnanna, væri í
samræmi við stefnu
Vestur-Þjóðverja. Þótt
l'slendingar neituðu að
viðurkenna lögsögu dóm-
stólsins í málinu, styrkti
úrskurðurinn engu síður
stöðu Þjóðverja.
Talsmaðurinn sagði
einnig, að úrskurður
dómsins mundi tvímæla-
laust hafa áhrif á haf-
réttarráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna. Fulltrúi í
matvælaráðuneytinu í
Bonn lét hins vegar svo
ummælt í gær, að hann
vonaði, að ríkisstjórnin í
Reykjavík mundi virða
dóminn og hefja að nýju
samningaviðræður við
Vestur-Þjóðverja.
— BB —
GENGISSIGIÐ HANS
ÓLA JÓ. í SKÚLPTÚR
Yngi Hrafn situr þarna i öllu gengissiginu hans Óla Jó. (Ljósmynd VIsis Bj.Bj.)
„Þetta er gengissigið hans
Óla Jó. Hann var búinn að lofa
okkur að fella ekki gengið og þá
seig það. Hann Leó Árnason
„Ljón norðursins” er að hjálpa
inér við að pússa það. Leó er
listamaður, sem hefur skapgerð,
sem er talsvert sérstæð. Það eru
fáir, sem komast I hálfkvisti við
hann,” segir Ingi Hrafn Hauks-
son um leið og hann stigur upp I
listaverkið svo að ljósmyndar-
inn geti myndað bæði hann og
það. Ingi er sá.sem gerði „Fall-
inn víxill”, sem var til sýnis á
Skólavörðuholtinu fyrir 6 árum
siðan.
,,Ég seldi hann til Sviþjóöar
og fékk greiddar 60 þús. kr. i
dollurum, sem ég geymdi I þrjá
daga. Þá felldi Sjálfstæðisflokk-
urinn gengið um 50% svo að
dollararnir voru þá 120 þús. kr.
viröi, og fyrir þá keypti ég mér
verkfæri. 1 dag myndu þessi 60
þús. kr. samsvara 467 þús. kr.
Ég var að reikna það út áðan,”
segir Ingi.
Komið þið og sjáið það, sem
hann Leó er að mála,” heldur
Ingi áfram, og nú útskýrir Leó
verkið fyrir okkur.
„Þaðhefur ekki nafn enn. Það
kemur til með að heita „Teng-
ing”. Það verður knörr sann-
leikans sem verður settur i
þennan kringlótta reit og út frá
honum mótast það veraldlega.
Stundum yrki ég kvæði i sam-
bandi við það sem ég mála. Hér
er upphafið að einu. Sköp er að
skapa/skip með rá og reiða/og
láta öldur hvitar/um stefni og
siglur freyða/. Það er lengra,”
segir Leó.
Ljón norðursins sýnir á
Mokka um þessar mundir og
segir hann okkur að sýningin
gangi vel miðað við það, að það
sé mitt sumar.
— EVI